Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2003, Blaðsíða 24
24
MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 2003
DV
íslendingaþættir
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
90 ára___________________
Nanna Bjarnadóttir,
Víkurbraut 30, Höfn.
Sigurborg Siguröardóttir,
Gullsmára 11, Kópavogi.
85 óro__________________________
Ragnheiður BJarnadóttir,
Dalbraut 18, Reykjavík.
Vilhjálmur Oddsson,
Skjólvangi Hrafnistu, Hafnarfiröi.
75 ára__________________________
Baldvin Ársælsson,
Fálkagötu 21, Reykjavík.
Sigurveig Magnúsdóttir,
Faxabraut 13, Keflavík.
70 ára__________________________
Gunnlaugur R. Jónsson,
Stekkjarhvammi 10, Hafnarfiröi.
Ingibjörg Karlsdóttfr,
Selvogsgötu 13, Hafnarfiröi.
Magnús Sigurðsson,
Hlíö, Tálknafiröi.
60 gra__________________________
Bára Pétursdóttir,
Steinholtsvegi 11, Eskifirði.
Jón Dan Jóhannsson,
Rimasíöu 9, Akureyri.
Rafn Kjartansson,
Byggðavegi 134, Akureyri.
Stelnunn Kristjana Jónsdóttir,
Hverfisgötu 25, Siglufiröi.
50 ára__________________________
Birgir Benediktsson,
Jakaseli 7, Reykjavík.
Brynja Þ. Erlendsdóttir,
Furulundi 13a, Akureyri.
Grétar Ottó Róbertsson,
Drápuhlíð 18, Reykjavík.
Heiðar Halldórsson,
Selvogsgrunni 8, Reykjavík.
Heiðar Sigvaldason,
Heiðargerði 3, Húsavík.
Magnús Kristjánsson,
Furuvöllum 7, Egilsstööum.
Sigríður Einarsdóttir,
Stífluseli 6, Reykjavík.
Sigurður Guðnason,
Háteigsvegi 52, Reykjavik.
Terézia Holbicková,
Réttarseli 7, Reykjavík.
40 ára_________________________
Gestur Ólafsson,
Sólvöllum 6, Grindavík.
Halibjörg Jónsdóttir,
Ránarbraut 19, Skagaströnd.
Harpa Hrönn Gunnarsdóttir,
Vættagili 18, Akureyri.
Helga Hólmfr. Gunnlaugsdóttir,
Byggöavegi 136, Akureyri.
Hulda Kristín Valgarðsdóttir,
Fjaröarseli 20, Reykjavík.
Jónína Ágústsdóttir,
Hljóöalind 11, Kópavogi.
Petra Bragadóttir,
Suöurhúsum 13, Reykjavík.
Ragnheiður Jónsdóttir,
Vesturbergi 100, Reykjavík.
Þröstur Valdimarsson,
Keilufelli 33, Reykjavík.
Örn Sævar Holm,
Sunnubraut 21, Garöi.
Halldór Hafliðason
bóndi
Halldór Haíliöason, bóndi i Ögri
við ísafjarðardjúp, er sjötugur í
dag.
Starfsferill
Halldór er fæddur á Garðstöð-
um í ögurvík, ögursveit, 22.1.
1933, og ólst þar upp til 9 ára ald-
urs en þá flutti fjölskyldan í Ögur.
Hann gekk í barnaskóla í Ögri
og síðan í unglingaskóla í Reykja-
nesi.
Halldór sinnti hefðbundnum
bústörfum í uppvextinum og tók
snemma á sig ábyrgð og skyldur í
rekstri og verkstjórn búsins.
Hann hefur alla tíð síðan búið í
Ögri utan tvo vetur í Reykjavík
árin 1965-66 þegar hann stundaði
sjómennsku á síðutogaranum
Júpíter hjá Útgerðinni Júpíter og
Mars og starfaði um hríð í
Sænska frystihúsinu sem stóð þar
sem Seðlabankinn er núna. Hann
tók við búinu í Ögri 1967 ásamt
konu sinni og þau búa þar enn.
Halldór sat í hreppsnefnd Ögur-
hrepps í fjölmörg ár þar til hrepp-
urinn sameinaöist öðrum. Var
hreppstjóri sömuleiðis í íjölmörg
ár og oddviti Ögurhrepps síðustu
ár hreppsins. Hann var sóknar-
nefndarformaður Ögurkirkju, sat
í skólanefnd Reykjanesskóla, for-
maður Búnaðarfélags Ögur-
hrepps og sat fundi Búnaðarsam-
bands Vestfjarða. Hann er í jarða-
nefnd N-ísafjarðarsýslu og hefur
verið í hlutastarfi hjá Flugmála-
stjóm siðan 1963.
Fjölskylda
Halldór kvæntist 15.11. 1967
Maríu Sigríði Guðröðardóttur
húsfreyju, f. 15.11. 1942, i Kálfavík
í Ögursveit. Foreldrar hennar
voru Guðrööur Jónsson og Guð-
rún Guðmundsdóttir, bændur í
Kálfavík.
María Sigríður gekk í skóla i
Reykjanesi, ísafirði, Reykjavík og
í Húsmæðraskólanum, Staðarfelli
í Dölum. Hún starfaði sem mat-
sveinn á bát, sem ráðskona í
Hvervík Reykjanesi og í Reykja-
vík á árunum í kringum 1960, við
fiskvinnslu í Bolungarvík, á
sjúkrahúsinu ísaflrði. Hún hefur
haft umsjón með húsi Landsbank-
ans í Ögri síðustu ár og hefur enn.
Böm: Halldór á einn son fyrir
hjónaband, Ámunda Halldórsson,
f. 14.5. 1957, móðir hans: Sigrún
Ámundadóttir og maki hans er
Margrét Traustadóttir, börn
þeirra eru þrjú.
Saman eiga Halldór og María
sex börn: Halldór Halldórsson, f.
25.7. 1964, bæjarstjóri í ísafjarðar-
bæ, kona hans er Guðfinna Hreið-
arsdóttir og þau eiga fjögur börn;
Leifur Halldórsson, f. 9.5.1967, lög-
reglumaður á ísafirði, og hann á
þrjú böm; Hafliði Halldórsson, f.
4.2. 1972, matreiðslumaður í
Garðabæ, kona hans er Heiða Sig-
urbergsdóttir og börn þeirra eru
þrjú; Harpa Halldórsdóttir, f.
16.11. 1973, skrifstofumaður í
Reykjavík, hennar maður er Ár-
mann Magnússon og þau eiga eitt
barn; Guðmundur Halldórsson, f.
8.3. 1977, háskólanemi Reykjavík,
hans kona er Elísabet Guðrúnar-
dóttir; Halla María Halldórsdótt-
ir, f. 15.2. 1981, háskólanemi í
Reykjavík.
Systkini Halldórs: Lára, f. 17.11.
1930, fyrrum skrifstofumaður í
Reykjavík; Guðríður, f. 25.12. 1934,
d. 2.11. 1956; Ragnhildur, f. 19.7.
1937, húsmóðir á Höfn í Homa-
firði; Erla, f. 25.12. 1940, vistmaður
hjá Sjálfsbjörgu, Hátúni; Ása, f.
28.9. 1941, d. 8.11. 1998.
Uppeldisbróðir er Guðmundur
Haraldsson, f. 1934, búsettur í
Reykjavík.
Foreldrar Halldórs: Hafliði
Ólafsson, bóndi á Garðstöðum og
Ögri, Þórðarsonar, bónda á
Strandseljum, og Líneik Áma-
dóttir, Jakobssonar, bónda í Ögri.
Sjötugur
Matthías Ingibergsson
skipstjóri
, $ \m
% f - ýi. -
Matthías Ingibergsson skip-
stjóri, Strandvegi 43, Vestmanna-
eyjum, er sjötugur í dag.
Starfsferill
Matthías fæddist í Vestmanna-
eyjum 22.1. 1933 og ólst þar upp.
Hann gekk í barnaskóla í Eyjum
en tíu ára gamall missti hann
móður sína og fór til sjós með föð-
ur sínum á snurvoð þegar hann
var á ellefta ári. Eftir fermingu fór
hann á m/b Nönnu VE með Ósk-
ari Matthíassyni, síðan á togar-
ann Elliðaey VE og var á togurum
í 22 ár og á bátum í 37 ár. Matthi-
as stundaði síldveiðar, skelflsk-
veiðar og veiðar með snurvoð,
línu, net og troll. Hann var skip-
stjóri á bátum í 23 ár.
Fjölskylda
Matthias kvæntist Steinunni
Ingvadóttur. Þau skildu. Seinni
kona hans er Gréta Magnúsdóttir.
Matthías og Steinunn eignuð-
ust tvær dætur: Árnýju Matthías-
dóttur sem lést 1986 og hún lét eft-
ir sig tvö böm: Hin er Karen Ingi-
björg Matthíasdóttir, sem á þrjú
börn og býr í Grindavík.
Stjúpdóttir Matthíasar er Lilja
Ósk Þórisdóttir og stjúpsynir Jó-
hann Þórisson, forstjóri á Selfossi,
Erlendur Þórisson skipstjóri,
Garöi, og Magnús Þórisson, verka-
maður í Reykjavík.
Systkini Matthíasar: Guðjón
Ingibergsson sjómaður, látinn,
Jónína Margrét Ingibergsdóttir
húsmóðir, Vestmannaeyjum; Inga
Ingibergsdóttir, látin, og Ámý
Ingibergsdóttir, látin. Hálfsystur
hans em tvær; Guðrún Ingibergs-
dóttir húsmóðir, Vestmannaeyj-
um, og Guðmunda Ingibergsdóttir
húsmóðir, Reykjavík.
Foreldrar Matthíasar: Ingiberg-
ur Gíslason frá Eyrarbakka, skip-
stjóri í Vestmannaeyjum, og Ámý
Guðjónsdóttir frá Vestmannaeyj-
um, húsmóðir í Vestmannaeyjum
og Reykjavík. Stjúpmóðir Matthí-
asar var Lovísa Guðmundsdóttir
úr Gaulverjarbæ. Hún er látin.
Jens Anton Tómasson, Hvassaleiti 22,
Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Eir
föstudaginn 10. janúar. Útförin hefur
fariö fram I kyrrþey.
Ágúst Nathanaelsson, Noröurbrún 1,
Reykjavík, lést á líknardeild Landspítala
Landakoti 18. janúar.
Bjarni Marinó Stefánsson, Lindargötu
63, Reykjavík lést á heimili sínu 18.
janúar.
Björn Guömundsson frá Grjótnesi lést á
Landspítalanum viö Hringbraut 19.
janúar.
Guðmundur Jóhann Guðmundsson, eða
Gvendur Jaki eins og hann var oft kállaður,
var fæddur 22.1.1927 í Reykjavík. Foreldr-
ar hans voru Sólveig Jóhannsdóttir hús-
móðir og Guömundur Halldór Guð-
mundsson sjómaður.
Guðmundur fékkst við ýmis verka-
mannastörf 1941-1953 en gerðist þá
starfsmaður Verkalýðsfélagsins Dags-
brúnar og tók viö formennsku þess
1982. Hann var þjngmaður Reykjavík-
ur fyrir Alþýðubandalagið 1979M987,
formaður Verkamannasambands ís-
lands 1975-1991 og sat í ótal nefndum og
ráðum fyrir verkalýöshreyfinguna, m.a.
samninganefndum VMSf og Dagsbrúnar og
var fulltrúi ASf hjá Alþjóðavinnumálastofnun-
inni í Genf 1986-91. Hann var í miðstjóm ASÍ
Guðmundur J. Guðmundsson
980-88, í stjórn fulltrúaráðs verkalýðsfélag-
ánna í Reykjavík frá 1954, í stjóm Verka-
mannabústaða í Reykjavík 1974-82. Guð-
mundur var borgarfulltrúi 1958-1962 og
varaborgarfulltrúi 1962-64. Hann sat í
mörgum nefndum hjá Reykjavikur-
borg, meðal annars í hafnarstjórn
1962-82. Hann var einnig í stjómum
SÁÁ og Vemdar.
Guðmundur var kvæntur Elínu
Torfadóttur, fóstru og kennara, f. 22.9.
1927. Böm þeirra: Gunnar Öm, Sólveig,
Guðmundur Halldór og Elín Helena.
Endurminningabækur um Guðmund
J. Þær heita Jakinn - í blíðu og stríðu,
1989, og Baráttusaga, 1990, skráðar af Ómari
Valdimarssyni. Guðmundur J. lést árið 1997.
Anna Soffía Jóhannsdóttir, Hringbraut
86, Keflavík, veröur jarösungin frá
Keflavíkurkirkju föstudaginn 24. janúar
kl. 15.30.
Guöni Sigvaldason veröur jarösunginn
frá Hafnarfjaröarkirkju í dag, 22;janúar,
kl. 10.30.
Tómas Jónsson, Hafnarstræti 21,.
Akureyri, veröur jarösunginn frá
Akureyrarkirkju í dag, 22. janúar, kl.
13.30.
Guðni Baldur Ingimundarson,
Langholtsvegi 96, Reykjavík, verður
jarðsunginn frá Langholtskirkju í dág,
22. janúar, kl. 15. _ ; ;
Guörún Sigurjónsdóttir, Ægislöu‘107,
Reykjavík, veður jarösungin frá
Fossvogskirkju 23. janúar kl. 13.30.
ViðskÍDtabátlurinn
Utvarpi Sögu fm 94.3
Þáttur um viðskipti og efnahagsmál á hverjum
virkum degi milli klukkan 17-18
(tlll )>((() (íluigaverðasta í heinii viðskipta í dag
- það borgar sig að hlusta
Landsbankinn
msmmm