Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2003, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2003, Page 4
Fréttir MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 2003 DV Kolbelnn Óttarsson Proppé, efstl maður á llsta Vinstrl-grænna í Suðurkjördæmi. Yngsti oddvitinn Nafn: Kolbeinn Ottarsson Proppé. Aldur: 30 ára. Heimili: Reykjavík Staöa: Efsti maður á lista VG í Suöurkjórdæmi. Efni: Yngsti oddviti framboðs- lista fyrir komandi þing- kosningar. Vmstrihreyfmgin - grænt fram- boð reið ekki feitum hesti frá sið- ustu þingkosningum á svæðinu sem núna heitir Suðurkjördæmi. Flokk- urinn hlaut tæp 6% á Reykjanesi og ekki nema tæp 3% á Suðurlandi, samanborið við rúm 9% á lands- vísu. Og sveitarstjórnarkosningarn- ar sl. vor gáfu ekki tilefni til að ætla að hagurinn hefði vænkast mikið. Það er því ekki létt verk sem bíð- ur Kolbeins Óttarssonar Proppé, efsta manns á lista flokksins í Suð- urlyördæmi - og jafnframt lang- yngsta oddvita nokkurs framboðs- lista á landinu. Ofmælt er að segja að kraftaverk þyrfti til að tryggja honum þingsæti - en allt að því. Af rótum Framsóknar Kolbeinn er sonur Óttars heitins Proppé, sem var meðal annars bæj- arstjóri á Siglufirði, ritstjóri Þjóð- viljans og framkvæmdastjóri Al- þýðubandalagsins, og Guðnýjar Ás- ólfsdóttur frá Ásólfsstöðum i Þjórs- árdal. Hann ólst upp í Reykjavík, á Dal- vík, í Hafnarfirði og á Siglufirði, gekk í Menntaskólann í Kópavogi og býr nú í Reykjavík. Sumir spyrja því - þeirra á meðal stórvinur hans og briddsfélagi Flosi Eiríksson, bæj- arfulltrúi fyrir Samfylkinguna í Kópavogi - hvers vegna Kolbeinn reyndi ekki heldur að komast á framboðslista í Suðvesturkjördæmi; þar hefur hann þó búið og þar eiga vinstri-grænir líka að flestra mati meiri möguleika á þingsæti. Þá er leitt að því líkum að honum myndi þykja kratinn Guðmundur Ámi æskilegri andstæðingur en gamla flokkssystirin Margrét Frímanns- dóttir. Þessari spurningu er ósvar- að. Hitt er víst, að Kolbeinn á ættir að rekja á Suðurland; meðal annars til Gests Einarssonar á Hæli í Gnúp- verjahreppi, sem var einn af aðal- hvatamönnum þess að bændur sam- Nærmynd Olafur Teitur Guðnason blaöamaður einuðust í einn flokk - stjómaði reyndar undirbúningsfundi fyrir framboð Óháðra bænda, sem seinna varð Framsóknarflokkurinn. Eirík- ur bróðir hans var í hópi fyrstu þingmanna flokksins en seinna fyr- ir Sjálfstæðisflokkinn. Sonur Gests, Steinþór, var þingmaður fyrir Sjálf- stæöisflokkinn i ein funmtán ár. Inn meö Flosa Ef marka má stjömuspekina vom allar líkur á því frá upphafi að Kol- beinn yrði vinstra megin í stjóm- málum, því hann á sama afmælis- dag og Leonid Breshnev Sovétein- valdur. Flosi Eiríksson segist hins vegar eiga heiðurinn af því að draga hann inn í stjómmálastarfið með því að fá hann til liðs við Æskulýðs- hreyfingu Alþýðubandalagsins, sem Flosi hafði stofnað. Kolbeinn var síðan formaður hreyfmgarinnar á menntaskólaárunum. Hann helgaði sig því næst sagn- fræðinámi en varð formaður Al- þýðubandalagsins í Reykjavík 1997, þá 24 ára. Hann tók sér frá upphafi stöðu með Vinstri-grænum; var á framboðslista flokksins í Reykjavík í síðustu þingkosningum og raunar kosningastjóri flokksins í kjördæm- inu. Hann er nú varaborgarfulltrúi og formaður umhverfis- og heil- brigðisnefndar borgarinnar. Raspútín Á námsárunum framfleytti Kol- beinn sér meðal annars með togara- sjómennsku og garðyrkjustörfum, svo fátt eitt sé nefnt. Reyndar fóm- aði hann einu sumri á togara til þess að helga sig rokkhljómsveit- inni Sonum Raspútíns, en hún mun hafa komið lagi á safnplötu á há- tindi fræðgar sinnar. Segja má að þjóðerniskennd sé sérsvið Kolbeins á sviði sagnfræði og um hana hefur hann ritað fjölda greina og gert útvarpsþætti. Af öðr- um störfum má nefna vinnu við ætt- fræðigagnagrunn íslenskrar erfða- greiningar og skrif um atvinnu- og efnahagssögu í ritröðina Island i aldanna rás. Kolbeinn er í hópi svokallaðra Múr- verja, ritstjóm vefritsins Múrsins. KoUegi hans þar, Ármann Jakobsson, segir að Kolbeinn leyni á sér við fyrstu kynni, enda hafi hann tvær hliöar: „Annars vegar er hann há- skólamaður, sagnfræðingur sem er öflugur á sinu sviði, og hins vegar er hann alþýðlegur og laus við mennta- mannsbrag. Honum er gjamt að tala um pólitík á hversdagslegu máli og er lítið gefinn fyrir frasa.“ Ríkið Kolbeinn er ekki sagður djúpur pólitískur hugsuður. Sumir segja að hann sé „atvinnulífsmegin" í Vinstri-grænum en Flosi Eiríksson segist ekki viss um það. „Hann viU nú að ríkiö eigi aUa skapaða hluti, banka, síma, sjónvarp og svo fram- vegis. Hann er þó sjálfsagt frjáls- lyndari en einhverjir aðrir - og hef- ur kannski oröið víðsýnni með skrifum um atvinnulífsmál íslend- inga,“ segir Flosi. Hann bætir við að Kolbeinn hafi verið í hópi þeirra flokksmanna sem gagnrýndu Ingi- björgu Sólrúnu Gísladóttur hvað harðast fyrir þingframboð hennar: „Hann var Steingrímsmegin á með- an Ögmundur vUdi tala blíðar." Sveigjanleg festa Kolbeinn er sagður fastur fyrir, og sumir koUega hans segja að hann eigi tU að vera ekki nægUega sveigj- anlegur. Ámi Þór Sigurðsson, for- seti borgarstjómar, tekur ekki und- ir það: „Kolbeinn er hörkuduglegur og afskaplega þægUegur í samstarfi; það er hans stærsti kostur," segir Árni Þór. „Hann hefur þurft að axla ábyrgð sem fylgir því að vera i meirihluta og er sveigjanlegur þeg- ar þarf að ná samkomulagi mUli ólíkra sjónarmiða." En málamiðlanir verða ekki efstar á baugi í komandi kosningaslag, þar sem á brattann er að sækja í barátt- unni fyrir þingsæti. Segja má að í þeim slag komi í ljós hvort hljómsveit- in góða hafi staðið undir nafni. Raspútín var jú kraftaverkamaður. Sementsverksmiöjan hf. með 80% markaðshlutdeild: Ekki með markaðsráðandi stöðu - segir áfrýjunarnefnd samkeppnismála ið gegn ákvæðum 11. greinar sam- keppnislaga. Þá seg- ir: „Því einungis get- ur verið um brot gegn þeim ákvæð- um að ræða að fyrir- tæki það sem um ræðir hafi „mark- aðsráðandi stöðu“ og hafi jafnframt misnotað þá stööu, sbr. 1. mgr. um- ræddrar lagagrein- ar. Sementsverksmiðjan hf. á Akranesi. Áfrýjunamefhd samkeppnismála sendi á mánudag frá sér úrskurð í kæru Aalborg Portland íslandi hf. (APÍ) á niðurstöðu samkeppnisráðs frá 28. október. Þar er staðfest áUt samkeppnisráðs um að ekki sé tUefni tU aðgerða vegna viöskiptahátta Sementsverksmiðjunnar hf. (SV) á Akranesi sem APÍ kærði í ijósi mark- aðsráðandi stöðu fyrirtækisins. Er vísað tU sérstöðu á sementsmarkaðn- um hérlendis. Samkeppnisstofnun hefur þó viðurkennt að markaðshlut- deUd Sementsverksmiðjunnar hf. hérlendis hefúr verið um 80% en APÍ um 20%. Taldi stofnunin því í sumar koma tU áUta aö beita SV stjóm- valdssekt vegna viðskipta verksmiðj- unnar við B.M. Vallá. I niöurstöðu áfrýjunamefndar kemur fram að kæra APÍ snúist um hvort Sementsverksmiðjan hafi brot- MarkaðshlutdeUd SV er með þeim hætti að jafngUda myndi markaðs- ráðandi stöðu við flestar aðstæður eftir hefðbundnum viömiðunum. Hins vegar fer ekki á mUli mála aö aöstaöan á sementsmarkaönum hér á landi er sérstök eins og nú er háttað, ekki síst með hliðsjón af því aö kaup- endur era örfáir að þvi er varðar stærsta hluta vörunnar. Hefur þetta óhjákvæmUega mikU áhrif á mat þess, hvort um markaðsráðandi stöðu sé að ræða eða ekki. I forsendum hinnar kærðu ákvörð- unar samkeppnisráðs era færð rök fyrir jpeirri niðurstöðu ráðsins, að miðað við hinar sérstöku aðstæður á sementsmarkaði verði ekki taUð, að svo búnu máli, að staða SV sé mark- aðsráðandi og geti því ekki komið tU álita að beita 11. gr. samkeppnislaga um þá háttsemi þess fyrirtækis, sem hér um ræðir. Áfrýjunamefnd sam- keppnismála feUst aö öUu leyti á þá röksemdafærslu, sem hér var vikið að, og tekur jaöiframt undir niður- stöðu samkeppnisráðs í máli þessu, með vísan tU þeirra raka. Ekki er tekin afstaða tU krafna áfrýjanda sem ekki hafa fengið um- fjöUun í samkeppnisráði. Niðurstað- an er því sú, að kröfur áfrýjanda era ekki teknar tU greina og ber aö stað- festa hina kærðu ákvörðun.“ -HKr. Seðlabankinn: Frekari vaxta- lækkanir vænt- anlegar? Skiptar skoðanir eru meðal fjár- festa og greiningaraöUa um það hvort frekari stýrivaxtalækkana sé að vænta af hálfu Seðlabankans. í Markaðsyfirliti janúarmánaðar, sem Greining Islandsbanka sendi nýverið frá sér, kom fram að Grein- ing teldi vaxtalækkunina í desem- ber hafa verið síðustu vaxtalækkun Seðlabankans um hríð a.m.k. I Morgunkomi bankans í gær kveður við nokkuö annan tón en þar segir að þótt slakinn i efnahagslUinu hafi færst í aukana undanfarið séu líkur á vaxandi verðbólguþrýstingi á næsta ári samhliða auknum hag- vexti tengdum auknum fjárfesting- um og neyslu. LUdegt sé að Seðla- bankinn vUji bregðast við því nú, enda hafl vaxtabreytmgar bankans áhrif á hagkerflð með talsverðri töf. -VB Frá störfum vegna veikinda Margrét Frímannsdóttir, alþingis- maður og varaformaður Samfylk- ingarinnar, verður frá störfum um óákveðinn tíma vegna veikinda. Margrét greind- ist nýlega með krabbamein í brjósti og gekkst undir aðgerð á Landspítalanum síöastliöinn fóstudag. Aðgerð- in tókst vel og verður ákvörðun um framhald meðferðar tekin á næstu dögum. Margrét fór heim af sjúkrahúsinu i gær og tekur sem fyrr segir hlé frá störfum um hríð, en hún mun leiða lista Samfýlkingarinnar í Suðurkjör- dæmi í komandi kosningum. -aþ Margrét Frímannsdóttir. V irðisaukaskattsskýrslur: Sýna aukna veltu hjá fyrirtækjum Heildarvelta fyrirtækja í landinu, samkvæmt virðisaukaskattskýrsl- um, var 1.069 milljarðar króna á fyrstu tíu mánuðum síðastliðins árs, samanborið við 1.032 milljarða á sama tímabili 2001. Aukningin er 3,6%. Kemur þetta fram í gögnum sem Hagstofa íslands birti á mánu- dagsmorgun. Aukningin skýrist að hluta til af 5,5% verðbólgu sem mældist á tímabilinu. Þannig var t.d. samdráttur í veltu á fóstu verði í smásölu og byggingarstarfsemi á tímabilinu. Lítils háttar veltuaukn- ing var í umboðsverslun en sam- dráttur í magni innfluttra neyslu- og fjárfestingavara. Magn innflutn- ings í heild dróst saman um ríflega 4% á tímabilinu. Vöxtm- var hins vegar í útflutningi og sést það m.a. í um 12% aukningu í veltu í fískveið- um og um 9% vexti í framleiðslu málma en til þess liðar telst stóriðj- an. Samtals jókst útflutningur í magni á tímabilinu um ríflega 9%. Tölumar lýsa enn hagkerfi þar sem misjafnt gengi er í útflutningsat- vinnuvegunum annars vegar og hins vegar þeim greinum sem þjón- usta og selja inn á innlendan mark- að hins vegar. Greining Islands- banka telur líklegt að jafnara gengi verði í vexti einstakra greina efna- hagslifsins á þessu ári. -vb

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.