Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2003, Síða 19
19
MIÐVDCUDAGUR 22. JANÚAR 2003
PV_____________________________________________________________________________________________________Menning
Hlutverk og eðli konunga
Nýútkomin doktorsrit-
gerð Ármanns .Jakobsson-
ar, Staður í nýjum heimi,
er ítarleg úttekt á Morkin-
skinnu, því elsta af
nokkrum söfnum konunga-
sagna sem rituð voru hér-
lendis á fyrstu áratugum
13. aldar. Önnur verk af
sama meiði eru Fagur-
skinna og svo sjálf
Heimskringla Snorra Sturlusonar. Einhvem
veginn hefur svo æxlast að Morkinskinna hef-
ur fallið í skuggann af þessum tveimur síðar-
nefndu ritum, einkum þó meistaraverkinu
Heimskringlu. Hún hefur aðeins tvisvar verið
gefm út á prenti auk einnar ljósprentunar og
ekki hefur enn séð dagsins ljós textaútgáfa af
henni fyrir almenning.
Bókmenntir
Efni Morkinskinnu er ævisögur norsku
konunganna, frá Magnúsi góða Ólafssyni og
Haraldi harðráða til og með Inga konungi og
bræðrum hans. Morkinskinna er í grunninn
sagnfræðiverk, saga norsku konungsættarinn-
ar á miklum umbrotatímum útrásar og borg-
arastyrjalda, en í bók sinni sýnir Ármann
fram á að verkið er ofið úr fleiri þáttum en
einskærum áhuga á liðnum atburðum. Mork-
inskinna er nefnilega ekki síður hugsuð sem
athugun á hlutverki og eðli konungsins og
hirðarinnar í samfélaginu, valdi þessara aðila
og áhrifum.
Eitt af því sem talið er að hafi orðið til þess
að Morkinskinna féll í skuggann af öðrum
konungasögum er að formgerð hennar er með
nokkuð öðrum hætti en við eigum að venjast.
í stað þess að fylgt sé línulaga frásögn frá ein-
um atburði til annars er hoppað fram og aftur
í tíma, teknir langir útúrdúrar, stimdum um
eitthvað sem í fljótu bragði virðist allsóskylt
meginsöguþræðinum, og stundum fer tvenn-
um sögum fram samtímis. Ármann líkir þess-
ari aðferð á einum stað við bútasaum og á það
Ármann Jakobsson íslenskufræöingur.
vel við. Þessi frásagnaraðferð var þeim fræði-
mönnum sem aldir voru upp við fræðikenn-
ingu Aristótelesar lítt að skapi og fór þvi
mestur tími þeirra sem á annað borð lögðu
fyrir sig Morkinskinnurannsóknir í að tína út
eitthvað sem þeir töldu vera viðbætur við
hinn eiginlega texta og síðan deila um hvað
væru viðbætur. Ármann lætur slíka iðju lönd
og leið enda sýnir hann fram á með sterkum
rökum að einmitt svona hafi Morkinskinna
alla tíð átt að vera, þetta form hafi tíðkast á
miðöldum og verið miðaldamönnum jafneðli-
legt og hin línulaga frásögn okkur nútíma-
mönnum.
íslendingurinn - heppilegur spegill
Aðalumfjöllunarefni Ármanns er, eins og
áður segir, konungurinn, konungsvaldið og
hirðin ásamt siðum og venjum þeim tengdum.
Hann telur að þættirnir sem eldri fræðimenn
töldu innskot gegni einmitt því hlutverki að
varpa ljósi á þessi atriði með ýmsum hætti.
Oft og tíðum eru það einmitt íslendingar sem
leika aðalhlutverkið i þessum þáttum og er
konungsvaldið látið speglast f sýn þeirra á
það. Þetta er áreiðanlega engin tilviljun og
ástæðan er ekki bara sú að Morkinskinna var
skrifuð hér á landi. íslendingar hentuðu eink-
ar vel i þetta hlutverk af fleiri en einni
ástæðu. Þeir eru útlendingar en þó nátengdir
Norðmönnum menningarlega, framandlegir
og pínulítið hallærislegir en þó kunnuglegir
um leið. Síðast en ekki sist bjuggu þeir við
stjómskipulag sem var gerólíkt því sem tíðk-
aðist annars staðar í Evrópu: Samfélag án
framkvæmdavalds og landfræðilega afmark-
aðra höfðingjavelda. Allt þetta gerir íslending-
inn heppilegan spegil til að varpa ljósi á kon-
ungsvaldið og eðli þess.
Eins og öll góð fræðirit vekur Staður í nýj-
um heimi fleiri spumingar en það svarar. Til
dæmis er umhugsunarvert hvort sú aðferð Ár-
manns að nota bókmenntafræðilegar aðferðir
til að fjalla um sagnfræðilegan texta takmarki
ekki sýn okkar á efni Morkinskinnu og mikil-
vægur þáttur hennar, sagnfræðin, lendi því
utan garðs. Einnig er forvitnilegt að velta fyr-
ir sér hvor tengsl séu milli formgerðar Mork-
inskinnu og munnlegrar geymdar og hvort
það sé ekki einmitt hin munnlega geymd sem
móti að einhverju leyti formgerð hennar?
Svona mætti lengi telja, en hversu mikið sem
um er rætt þá verður niðurstaðan ætíð sú
sama; að þetta sé mikilvægt grundvallarrit
sem hver einasti áhugamaður um íslensk
fræði þurfi að eignast og kynna sér vandlega.
Og svo er bara að vona að Ármann ráðist í að
gefa út handhæga textaútgáfu af Morkin-
skinnu fyrir almenning.
Guðmmidur J. Guðmundsson
Ármann Jakobsson, Staöur í nýjum heimi. Konunga-
sagan Morkinskinna. HSskólaútgáfan 2002.
Ármann Jakobsson ver doktorsritgerö sína viö Há
skóla Islands þann 1. febrúar.
BORGARLEIKHÚSIÐ
Leikfélag Reykjavikur
STÓRA SVIÐ
SÖNGLEIKURINN SÓL & AAÁNI
eftir Sálina og KarlÁgmt Úlfsson
5. sýn. fó. 24/1, ld. 20, blá kort
Lau. 25/1, kl. 20
Fö. 31/1, kl. 20
Lau. 1/2, kl. 20
Fi. 6/2, kl, 20
Fö. 7/2, kl. 20
Lau. 8/2, kl. 20
Fö. 14/2, kl. 20
Lau. 15/2, kl. 19
SÖLUMAÐUR DEYR
e. Arthur Miller
Su. 26/1, kl. 20. Fi. 30/1, kl. 20. Su. 2/2 kl. 20.
Su. 9/2, kl 20. Su. 16/2 kl. 20. Fi. 20/2, kl. 20
SÍÐUSTU SÝNINGAR
HONKl UÓTIANDARUNGINN
e. George Stiles ogAnthony Drewe
Gamansöngleikurfyrir allaJjölskylduna.
Su. 26/1, kl. 14. Su. 2/2, kl. 14. Su. 9/2, kl. 14
FÁAR SÝNINGAR EFTIR
ÍSLENSKU TÓNLISTARVERÐLAUNIN
Fi. 23/1, kl. 20 _____________
NÝJASVIÐ
MAÐURINN SEM HÉLT AÐ KONAN
SÍN VÆRI HATTUR
eftir Peter Brook og Marie-Héléne Estienne
Frumsýning lau. 1/2, kl. 20. UPPSELT
Su. 2/2, kl. 20. UPPSELT
Fö. 7/2, kl. 20. Lau. 8/2, kl. 20
JÓN OG HÓLMFRÍÐUR
Frekar erótískt leiktrit íprem páttum
e. Gabor Rassov
Lau. 25/1, kl. 20. Fö. 31/1, kl. 20
SÍÐUSTU SÝNINGAR
KVETCH eftir Steven Berkoff,
I SAMSTARFI VIÐ Á SENUNNI
Su. 26/1, kl. 21. UPPSELT
Fi. 30/1, kl. 20
Ath. breyttan sýningartíma
ÞRIÐJA HÆÐIN
GINUSÖGUR-VAGINA
MONOLOGER-PÍKUSÖGUR
áfereysku, dönsku og islensku.
Birita Mohr, Chorlotte Böving, Kristbjörg
Kjeld og María Ellingsen.
Leiksýning, kaffi, tónleikar.
Eyvör Pálsdóttir syngur.
Lau. 25/1 kl. 20 _______________
LITLASVIÐ
RÓMEÓ OG JÚLÍA Shakcspcare
[ SAMSTARFI VIÐ VESTURPORT
Fi. 23/1, kl. 20
Fö. 31/l.kl. 20UPPSELT
Fi. 6/2, kl. 20
Fö. 14/2, kl. 20
V...................................
SKJALLBANDALAGIÐ KYNNIR
Miöasalan í lönó er opin frá 10-16
alla virka daga, 14-17 um helgar og
frá kl. 19 sýningardaga. Pantanir í
s. 562 9700. Ósóttar pantanir eru
seldar 4 dögum fyrir sýningar.
Fös. 24. jan. kl. 21.00, uppselt
Fös. 31.jan. kl. 21.00
ertir Salina hans Jóns míns og Kar! Agúst Ultsson
* sýnin<3
BORGARLEIKHÚSIÐ
Miðasala 568 8000
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS
Tónleikar í
Háskólabíói
Fimmtudaginn 23. janúar,
kl. 19.30.
Hljómsveitarstjóri:
Alexander Vedernikov
Einleikari:
Hermann Stefánsson
Mikhaíl Glinka:
Lífið fyrir keisarann,
forleikur
Carl Maria von Weber:
Klarínettukonsert nr. 2 í
Es-dúr, op. 74
Claude Debussy:
Premiére Rhapsodie
Maurice Ravel:
Valses nobles et
sentimentales
Paul Dukas:
L’Apprenti sorcier
(Lærisveinn
galdrameistarans)
Alexander
Vedemikov
„Til að kóróna herlegheitin er boðið upp á Ijújfengt smurhrauðfyrir sýningu ogþvíóhœtt lofaþeim sem
taka allanpakkann nærandi kvöldstundfyrir sál og l(kama.“ H.F., DV
Hin smyrjandi jómfrú
Nærandi leiksýning fyrir líkomo og sól.
Sýnt íIðnó:
Síðdegissýningar
Sun. 26. jan., kl. 15.00
Sun. 2. febr., kl. 15.00
Kvöldsýningar
Sun. 26. jan., kl. 20.00
Lau. 1. febr., ld. 20.00
Sun. 2. febr., kl. 20.00
GVUt L lötui
Hin smyrjandi
Jómfrú
á ra: IÍ...T