Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2003, Síða 22
22
______________________MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 2003
Tilvera DV
Robbie gagnrýnd-
a ur af ráöherra
Eins og fram
kom fyrir
stuttu í DV lét
breski poppar-
inn Robbie
Williams hafa
eftir sér að hon-
um þætti sjó-
ræningjastarf-
semin í kring-
um tónlistar-
bransann vera af hinu góða.
„Mér finnst hún frábær, í al-
vöru,“ sagði hann.
Hann þurfti ekki að bíða lengi
eftir viðbrögðum en breski menn-
ingarráöherrann, Kim Howells,
segir Robbie með þessu að vera
að styðja eiturlyfja- og vændis-
bransann, þar sem ólögleg tónlist-
arútgáfa tengist oftar en ekki
skipulögðum glæpum þar sem
það þykir vera kjörin leið til að
„þvo“ peningahagnað sem fylgir
vændi og eiturlyfjasölu.
Renée tilbúin í
framhaldið
Að eigin sögn er Renée
Zellweger reiðubúin til að gera
framhald á Bridget Jones’s Diary,
en sú bók og væntanleg
kvikmynd heita The Edge of
Reason. Hún mun ekki hafa getað
staðist beiðni Colin Firth, þess er
-" lék elskhugann Mark Darcy i
fyrstu myndinni, um að taka þátt
í þessu en einnig er búist við að
hann endurveki hlutverk sitt í
nýju myndinni.
Zellweger þurfti að þyngja sig
talsvert fyrir fyrstu myndina en
handritshöfundar þeirrar nýju
segja að á slíku sé ekki þörf
aftur. „Á meðal þess sem gerist í
myndinni er að hún fer í fangelsi
í Taílandi vegna eiturlyfjasmygls
sem þýðir beinlínis að hún þarf
að missa nokkur kíló. Zellweger
hefur sagt að hún vilji alls ekki
bæta á sig þeim 10 kílóum sem
hún gerði fyrir fyrstu
dagbókarfærsluna.
Richard Crenna
allur
Bandaríski
leikarinn Ric-
hard Crenna
lést um síðustu
helgi, 76 ára að
aldri. Líklega
er hann þekkt-
astur sem
ofurstinn sem
Sylvester
Stallone barðist með og fyrir í
öllum sínum Rambó-myndum en
hann er einnig kunnugur sjón-
varpsáhorfendum vegna hlut-
verks síns í Judging Amy sem
sýndur er á Skjá einum.
Hlutverki hans þar var slegið á
frest vegna baráttu Crenna við
^ krabbamein í brisi. „Hann var
vinur allra,“ sagði Stallone um
fýrrverandi samstarfsmann sinn.
HáList og HáMenning í Háskólanum:
Markmiðið er að skapa
samkennd meðal nemenda
Menningar- og listviðburðir
verða áberandi í byggingum Há-
skóla íslands dagana 22. -24. janúar.
Þá eru í fyrsta sinn haldnir menn-
ingar- og listadagar á vegum Stúd-
entaráðs. Markmið daganna er að
sýna hversu mikil gróska er í menn-
ingarlífi Háskólans og að fella niður
múra milli deilda með því að tengja
saman stúdenta á nýjum vettvangi.
Nemendafélögin, Háskólakórinn,
Stúdentaleikhúsið, Félag samkyn-
hneigðra stúdenta og Samtök er-
lendra nema sjá um fjölbreytta við-
burði. Á dagskrá verða m.a. fyrir-
lestrar um „freak-show“ og fljúg-
andi furðuhluti og rithöfundar úr
röðum stúdenta lesa upp úr verkum
sínum. Háskólakórinn stendur fyrir
opinni kóræfingu þar sem gestum
og gangandi er gefið tækifæri á að
liðka raddböndin. Á kafflstofunum
munu spákonur spá í framtíðina og
hárgreiðslunemar bjóða upp á ódýr-
ar klippingar í Odda og Háskóla-
bíói. Auk þess verður smásagna-
samkeppni á vegum íslenskufræði-
nema og ljósmyndamaraþon.
Félag samkynhneigðra stúdenta
setur mark sitt á dagana með því aö
sýna aðalbyggingu Háskólans í nýju
ljósi á fimmtudagskvöldið. Á kvöld-
in verður Stúdentakjallarinn vett-
vangur listhneigðra stúdenta. í
kvöld verður dagskráin tileinkuð
Spáni þar sem sýnd verður spænsk
kvikmynd, alþjóðadegi verður fagn-
að að kvöldi fimmtudags og slegið
verður upp skákmóti og skemmtun-
um á fóstudagskvöldi.
Steinunn Vala Sigfúsdóttir, fram-
kvæmdastjóri menningardaga, segir
Steinunn Vala Sigfúsdóttir
Framkvæmdastjóri menningardag-
anna í Háskólanum.
dagana hafa mikla þýðingu fyrir
Háskóla íslands, bæði út á við og
inn á við. „Út á við er þetta ákveðin
kynning á skólanum þar sem
HáList og HáMenning er tækifæri
fyrir stúdenta til að sýna að við Há-
skóla Islands er ekki eingöngu
stundað bóknám heldur að hér
blómstrar líka mikið menningar- og
félagslíf. Markmið daganna er
einnig að skapa samkennd meðal
stúdenta svo þeir upplili að þeir til-
heyri Háskólanum, sérstaklega þar
sem hann stækkar sífellt. Það er
líka gaman að lífga upp á tilveruna
í skólanum í svartasta skammdeg-
inu,“ segir Steinunn.
Hægt er að nálgast dagskrá
HáList og HáMenningar á www.stu-
dent.is.
-HAB/DH
Ragnar Sigurjónsson sýnir ljósmyndir í Lóuhreiðrinu:
Esjan séð frá Viðey
- sýnir einnig á samsýningu í Vestmannaeyjum á gosafmæli
Ragnar Sigurjónsson, sem nú
gegnir starfi ráðsmanns i Viðey,
starfaði um langt skeið sem ljós-
myndari, meðal annars á DV. Áhugi
hans á ljósmyndum dvínaði ekki
þótt hann flytti búferlum í Viðey
fyrir nokkrum árum og gerðist Við-
eyjarbóndi. Hann hefur myndað
náttúruna i Viðey og ferðast með
ljósmyndavélina á hina ýmsu staði,
meðal annars í hópi stuðnings-
manna ÍBV, en þar hefur hann um
árabil verið fremstur í flokki. Þá
hefur hann tekið sig til og myndað
Esjuna í ýmsum tilbrigðum og í dag
opnar Ragnar sýningu í Lóuhreiðr-
inu við Hverfisgötu þar sem hann
sýnir Esjumyndir sínar. Sýnir hann
ellefu ljósmyndir og er ein í fjórum
hlutum.
Þetta er ekki eina sýningin sem
Ragnar er með. Hann er meðal
þeirra sem sýna ljósmyndir á sam-
sýningu í Vestmannaeyjum í tilefni
þess að 30 ár eru liðin frá því að gos
hófst. Ragnar er einn af þeim Vest-
mannaeyingum sem komu í land þá
DV-MYND E.ÓL
Myndir á sýningu
Ragnar Sigurjónsson var í óöaönn aö setja upp myndir í Lóuhreiörinu þegar
Ijósmyndara bar aö garöi.
örlagaríku nótt, 23. janúar 1973, og eyjum sýnir hann eldri myndir frá
var þá með aðeins nokkurra vikna heimaslóðum. -HK
barn. Á sýningunni í Vestmanna-
Af erlendu þjóðemi
Stefan Bottenberg er einn af listamönnunum. Hann skapar óvenjulegan ullarútsaum í krossviö. Hinir eru Andrew Chitd,
Tom Merry og Jonathan Dronsfield
Nútímalist og líf
Ustamenn
Þeir eiga verk á sýningunni: Miles Henderson Smith, Birgir Snæbjörn Birgis-
son og Gísli Bergmann.
Ungir listamenn, íslenskir og
breskir, opnuðu samsýningu á Kjar-
valsstöðum um síðustu helgi undir yf-
irskriftinni then...hluti 4 - minni
forma. Eins og nafnið ber með sér á
hún að vekja hugsanir um form og
þau form byggjast á menningu nútim-
ans, jafhvel þótt þau séu til í endur-
minningunni eða séu ímynduð. then
er alþjóðlegur hópur listamanna sem
hefur miðstöð í Lundúnum en mark-
mið hans er að sýna, gefa út og ræða
málefni sem tengjast nútímalist og
lífí. Þetta er fyrsta sýning then á ís-
landi en hópurinn hyggur á samsýn-
ingar víða um Evrópu á næstunni. í
honum eru Stefan Bottenberg, Gísli
Bergmann, Miles Henderson Smith,
Birgir Snæbjörn Birgisson, Tom
Merry og Andrew Child. -Gxm.
Vangavelt-
ur um tré
og skóga
Um þessar mundir sýnir banda-
ríska myndlistarkonan Joan Backes
myndlist sína í Hafnarborg, Joan
Backes kom fyrst til íslands árið 1989
og hafði þá þegið styrk til að kynna
sér málverk Þórarins B. Þorláksson-
ar. Hún kom aftur árið 1991 og dvaldi
þá á gestavinnustofu Hafnarborgar.
Upp úr þeirri dvöl varð til sýning á
eggtemperu-málverkum þar sem ís-
lenskt landslag var tekið fyrir á ný-
stárlegan og nærfærinn hátt.
Nokkrum árum síðar hélt hún aðra
sýningu í Hafnarborg og nú er hún
enn komin hingað og sýnir í Hafnar-
borg í þriðja sinn.
„Eg hef alltaf unnið út frá náttúr-
unni og strax fyrst þegar ég kom tii ís-
lands fékk ég mikinn áhuga á náttúru
landsins og þeirri fjölbreytni sem þar
er að finna og hefur hún gefið mér
ótal tækifæri til að vinna að list
minni eins og ég kýs helst.“
Á sýningunni nú beitir Joan ýms-
um miðlum til að koma til skila
vangaveltum sínum um tré og skóga
og það sjónræna viðhorf sem þar
kviknar. Málverk af trjábérki mynda
kjarna sýningarinnar en til viðbótar
sýnir Joan litaglærur af myndunum
og endurtekur þemað í verkum sem
samsett eru af málningu, glerperlum,
neti, pappír, trjáberki, glimmeri, mold
og fleiru. Með öllu þessu leitast hún
við að endurvekja minningar okkar
um tré og skóglendi og kynda þannig
undir ímyndunarafli áhorfandans.
Joan var mjög ánægð með aðsókn-
ina fyrstu daga sýningarinnar: „Ég
var alveg hissa hve margir komu og
hve mikill áhugi virðist vera á þeim
verkum sem ég sýni í þetta skipti."
Joan Backes er einnig sýningar-
stjóri og hefur hún greitt götu margra
íslenskra listamanna i Bandaríkjun-
um með því að bjóða þeim þátttöku í
sýningum sem vakið hafa athygli og
fengið umfjöllun í virtustu dagblöðum
vestanhafs.
Joan Backes
Hún hefur áður sýnt hér á landi og
tekiö á móti listamönnum sem
koma til Bandaríkjanna.