Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2003, Qupperneq 31

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2003, Qupperneq 31
MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 2003 31 I>V Sport Óvissuástand hjá Jóhannesi Karli: Betis snerist hugur og setur fram nýjar kröfur - félagiö vill nú fá tvöfalt meira fyrir leikmanninn Leigusamningur Aston Viila við Real Betis vegna Jóhannesar Karls Guðjónssonar er í uppnámi eftir að forráðamenn Real Betis ákváðu á elleftu stundu að krefjast tvöfait hærri greiðslu £rá Villa fyrir Jó- hannes. Félögin komust að samkomulagi um leiguverðið á Jóhannesi á mánudaginn og voru forráðamenn Betis búnir að skrifa undir alla samninga þess efnis og þegar kom aö því að senda samningana þá snerist þeim allt í einu hugur. Þeir krefjast þess nú að Vilia greiði tvöfalt hærri upphæð fyrir þjónustu Jóhannesar en upphaf- lega var búið að semja um. Þetta er að sjálfsögðu mikið reið- arslag fyrir Jóhannes sem var kominn til Englands í huganum og hlakkaði mikið til að taka á vænt- anlegum andstæðingum í enska boltanum, eins og við greindum frá í gær. Félögin eru því sest að samn- ingaborðinu á nýjan leik og alls óljóst hvort þau ná lendingu í mál- inu í þetta sinn. Ef þau gera það ekki fyrir lok janúar verður Jóhannes áfram á Spáni. -HBG Var að spá í Bowyer Alan Cur- bishleys, fram- kvæmdastjóri Charlton, hefur viðurkennt að honum hafi flogið það í hug og í raun viljað fá Lee Bowyer að nýju til liðs- ins á dögunum þegar leikmaðurinn t gekk til liðs við West Ham. „Ég hefði haft áhuga á að fá hann til liðsins að nýju, en ég fékk það á tilflnninguna að hann væri bara á leiðinni til West Ham. Ég taldi mig sjá þaö fyrir að ef hann kæmi til London aö nýju væri hugur hans hjá hans uppáhaldsfélagi, þar sem allir félagar hans eru.“ -PS Liverpool tryggði sér í gærkvöld sæti í úrslitaleik enska deilarbikars- ins með því að leggja Sheffield United að velli 1 síðari leik liðanna á Anfield Road í Liverpool í fram- lengdum leik, 2-0. Fyrri leikur lið- anna fór 2-1 fyrir Sheffield United, en staðan í gær að loknum venjuleg- um leiktíma var 1-0 Liverpool í vil og því þurfti að grípa til framleng- ingarinnar. Það var E1 Hadji Diouf sem kom Liverpool yflr strax á áttundu mín- útu leiksins og eftir það sóttu leik- menn Liverpool talsvert það sem eft- ir lifði leiks, en án þess að það bæri árangur. Eftir að liöin höfðu leikið í 107 mínútur náði hinn mjög svo gagnrýndi Michael Owen að skora annað mark Liverpool sem tryggði sæti í úrslitaleiknum, sem fram fer í Cardiff. f kvöld mætast í hinum undanúr- slitaleiknum lið Blackburn og Manchester United á Eawood park, heimavelli Blackburn, en fyrri leik liðanna lauk með jafntefli, 1-1, þannig að róður Man. Utd gæti orðið þungur. -PS Knattspyrnusamband Úganda: Ekkert kynlíf dóm- ara daginn fýrir leik Knattspymusamband Úganda í Afr- iðka kynlíf og því geti þeir alveg neit- íku hefur beðið knattspymudómara landsins um að hafa ekki kynmök daginn fyrir leik. Forsvarsmenn sam- bandsins telja að kynlíf svo stuttu fyr- ir leikinn muni hafa áhrif á dóm- gæslu þeirra og draga úr þeim aiia orku. Formaður sambandsins telur að það gefist fjöldi annarra stunda til að að sér um það á þeim timapunkti. Það er þekkt að þjálfarar knattspyruliða hafa bannað leikmönnum sínum að stunda kynlíf daginn fyrir leik, en ekki er þó sannað að það hafi slæm áhrif á frammistöðu manna í kapp- leikjum. -PS Norskir viöur- kenna veðmál spyrnumanna á þessari flkn. Skömmu eftir að viðtalið við Eið birtist i The People viðurkenndi Micheal Owen að hafa stundað veð- mál. Og það eru ekki bara leikmenn í Englandi sem opna sig um þessar mundir heldur hefur norski knatt- spyrnumaðurinn Andre Bergdölmo, sem leikur með Ajax frá Amsterdam, viðurkennt að stunda spilavíti I Amsterdam, auk þess sem hann hef- ur brugðið sér til Las Vegas, en þar segist hann hafa unnið rúmar 5 milljónir íslenskra króna. Hann seg- ist þó aldrei sitja lengi við heldur bregði sér kannski í eina eða tvær klukkustundir til að freista gæfunn- ar. Bergdölmo segist enn fremur þekkja marga knattspyrnumenn sem stundi spilavítin. Fyrrum félagi Eyjólfs Sverrisson- ar hjá Herthu Berlín, Kjetil Rekdal, sem nú leikur með Válerenga í Nor- egi, hefur aldrei dregiö dul á það að honum þyki gaman að grípa í fjár- hættuspil eða að kíkja í spilavíti, en hann segir það ekki ánægjulegar fréttir að knattspyrnumenn sói millj- ónum króna á skömmum tíma í spilavítum. -PS meistaradeildarsæti Eiður Smári Guðjohnsen virðist ekki hafa mikla trú á því að hann og félagar hans í Chelsea geti hampað enska meistaratitlinum á þessari leiktíð. Chelsea hefur á fyrstu vikum þessarar leiktíðar tap- að fyrir báðum þeim liðum sem eru fyrir ofan það í deildinni og virðist vera að missa af lestinni eftir góða frammistöðu fyrri hluta tímabils- ins. Eru þeir nú 11 stigum á eftir Arsenal sem situr á toppi deildar- innar. „Bilið á milli okkar og efstu lið- anna verður breiðara og breiðara," sagði Eiður í samtali við enska blaðið Standard. „Okkar takmark hefur alltaf ver- ið að ná meistaradeildarsæti og við verðum að halda áfram og berjast fyrir þvi takmarki. Við höfum verið á góðu skriði og nú verðum við að vonast eftir því að liðin fyrir ofan okkur fari að tapa stigurn," sagði Eiður aö lokum en hann hefur leikið ágætlega fyrir Chelsea að undanförnu og skoraði ágætt mark fyrir Chelsea gegn Man. Utd á Old Trafford um síðustu helgi. -HBG El Hadji Diouf fagnar hér fyrra marki Liverpool gegn Sheffield United í gærkvöld. Síðara mark liðsins gerði Michael Owen. Reuters Eftir að Eiður Smári Guðjohnsen viðurkenndi að vera haldinn spilafíkn hafa fleiri knattspyrnu- menn viðurkennt hið sama og tala sumir um öldu viðurkenninga knatt- Eiður Smári ekki bjartsýnn á að Chelsea verði meistari: Stefnan er sett á C3 B & Urslit í nótt Cleveland-Orlando....94-103 Ilgauskas 35 (12 frák.), Wagner 14, Davis 11 (7 stoðs.) - McGrady 35 (11 frák., 6 stoðs.), Garrity 20 (8 frák., 4 stoðs.), Sasser 14. Dallas-Houston.......107-86 Nowitzki 26 (8 frák.), Nash 20 (8 stoðs.), Finley 19 - Francis 26 (8 frák., 4 stoðs), Mobley 16 (7 frák.), Taylor 8. Sacramento-New Jersey. 109-102 Webber 36 (15 frák., 8 stoðs.), Stojakovic 26 (7 frák.), Bibby 13 (10 stoðs.) - Kidd 27 (5 stoðs.), Jefferson 19 (7 frák.), Martin 17 (13 frák.). pool í úrslit v xC. 4- c

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.