Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2003, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2003, Page 32
32 MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 2003 Sport DV I í stuttu máliil Dorgveiðimenn hafa aðeins verið að kíkja á stöðuna síðustu daga eftir að kólna tók og ís kom á vötnin víða um land. Enda er dorgveiðitíminn stutt- ur hérlendis þegar hlýindi eru mán- uð eftir mánuð. Ekki er vitað á þess- ari stundu hvar íslandsmótið í dorg- veiði fer fram þetta árið en það síð- asta var á Hólavatni í Eyjafirði og tókst vel. Veiöimaður kastar flugunni við Seglbúðasvæðið í Gren- læk en margir hafa fariö á flugukastsæfingar núna f vetur. DV-mynd GHH Fluguveiðin í íslenskum ám er merkileg fyrir margar sakir: Leyndardómur Salan á hreindýraveiðileyfum fyrir næsta timabil hefur farið vel af stað en salan stendur til 15. febrúar og eru þau seld á Egilsstöðum hjá Hrein- dýraráði. Þaö er Karen Erla Erlings- dóttir sem selur veiðileyfin. Ferðaskrifstofa Guðmundar Jónas- sonar og Veiðifélagið Lax-á selja veiðileyfi til Grænlandsen þeim fjölg- ar sem fara þangaö til að veiða silung eða til skotveiða. Guðmundur Jónas- son býður 4 og 5 daga ferðir frá 80.900 krónur upp í 98.900 krónur, með öllu. Þessa dagana er veiðistjórasvið Um- hverfisstofunnar að senda skotveiði- mönnum um allt land veiöiskýrslur til að komast að því hvað veiddist mikið á síðasta tímabili. Margir veiðimenn nota sér það að hægt er að senda tölumar á Netinu. Það sparar mikla pappírsvinnu. Lítið hefur heyrst að árshátíð Stanga- veiöifélags Reykjavíkur sem haldin veröur í byrjun febrúar en hátíðin er víst í fullum undirbúningi þessa dag- ana. Formaður skemmtinefndar er Brynja Gunnarsdóttir og eru aðeins konur í nefndinni og verður gaman að sjá hver verður heiðursgestur á þessari hátíð. Við spáum því að það verði Guöni Ágústsson eða Jóhannes Kristjánsson. -G. Bender Veiðimaður með með sex væna urriða á Staöartorfu í Laxá í Aðaldal f sumar. DV-mynd Gísli Egill Hrafnsson. Víða góð veiðisvæði - í Aðaldal sem er rómaður fyrir fallega Aðaldalur er rómaður vegna nátt- úrufegurðar og fuglalífs og af þeim sökum er dalurinn hinn fullkomni staður fyrir fjölskylduna þegar fara á í ferðalag. Allt í seilingarfjarlægö Innan seilingarfjarlægðar eru all- ir helstu staðir Noröausturlands, s.s. Akureyri, Laxárvirkjun, Goða- foss, Húsavík, Ásbyrgi, Dettifoss, Mývatn og Hljóðaklettar. í Laxá í Aðaldal eru fjölbreytt laxa- og silungasvæði. Mýrarkvíslin gaf vel síðasta sumar. Kjörinn fjölskyldustaöur í Laxá í Aðaldal er Árbót en Ár- bótin er kjörinn staður fyrir íjöl- skylduna þar sem hægt er að sam- einast um ferðir í sund og skoðun- arferðir milli þess sem veitt er. Aðeins ein stöng er í Árbót, veiöi- svæðið er 3 km svo nægt rými er fyrir veiðimanninn. Ágætis aðgengi er að ánni og hægt er að keyra um stóran hluta veiðisvæðisins. Leyfi- legt agn er fluga, maðkur og spónn. Sumarið 2002 var veiðin 24 laxar og 230 urriðar og var stærsti urrið- inn 10 pund. Veiðihúsið í Árbót, Vörðuholt, er mjög gott, búið öll- um helstu þægindum, 100 fermetar, 3 herbergi með gistiaðstöðu fyrir samtals 6 fullorðna, stór verönd með útigrilli og stór stofa með arni. Frábært útsýni er yflr hraunið og í góðu skyggni sést til Flateyjar á Skjálfanda. Góður kostur fyrir veiöihópa Það getur veriö góður kostur fyr- ir veiðihópa að bóka sig á Staðar- torfu og Múlatorfu með Árbót til að fá húsið og veiöa á 5 stangir í einu. Staðartorfa og Múlatorfa gáfu um 900 urriða og nokkra laxa síðasta sumar. Þar er eingöngu leyfð flugu- veiði en ekki leyft að veiða á maðka eða spón, líkt og til dæmis í Laxá í Aðaldal. náttúru og fuglalíf Byrjað aö selja leyfi Þessa dagana er byrjað að selja veiðileyfl á urriðasvæðin í Laxá í Þingeyjarsýslu og gengur salan vel enda fjölgar þeim sem reyna urriða- svæðið í fyrsta sinn. Við fréttum af einum sem var búhm að fara frnim sinnum á svæðið hjá Hólmfríði og fékk ekki fisk, enda var hann að læra á svæðið. 1 sjötta skiptiö var allt annað uppi á teningnum, hann mokveiddi og næstu skipti á eftir. Hann hafði lært á svæðið. Ætlaði ekki aö gefast upp „Ég ætlaði alls ekki að gefast upp, svæðið er flott en erfitt og ég vildi bara læra á það. Það gekk og núna veiði ég alltaf vel af urriða. Fá veiði- svæði eru skemmtilegri fyrir flugu- veiðimenn," sagði veiðimaður í samtali við DV-Sport um leið og hann pantaði sér veiðileyfi fyrir næsta sumar. -G. Bender veiðiskaparins? Fleiri og fleiri læra fluguveiði og leyndardóma hennar því fátt er skemmtilegra en að kasta flugu fyr- ir fiska sem taka innan tíðar og landslagið er eins fallegt og á mynd- inni hér að ofan sem er tekin í haust við Seglbúðasvæðið í Gren- læk. Veiöimaður kastar flugunni sem fellur í rennisléttan hylinn og þarna var mikið af bleikju og sjóbirtingi. Veiðimaöurinn fékk nokkra fiska. „Svæðið er fallegt og fjölbreytt fyrir fluguveiðina, margir góðir veiðistaðir og flskurinn vænn,“ sagöi Þröstur Elliðason í viðtali við DV-Sport en hann leigir svæðið og hefur veitt þarna nokkrum sinnum. Fluguveiði er leyndardómur sem allir ættu að læra. Menn æfa fluguköst hjá stangveiðifélögunum, mest hjá Kastklúbbi Reykjavíkur og Ármönnum. Menn og konur, en þeim hefur fjölgað verulega í veiði- skapnum, æfa köst af krafti. Fluguveiðiskólar hafa verið stofn- aðir, til dæmis við Langá á Mýrum, og hafa þeir fengið feikna undirtekt- ir veiðimanna. Enda er fátt betra en að kasta flugunni undir handleiðslu manna sem kunna að segja til og lesa í vatnið. Núna í sumar ætla margir að nema þessi fræði við Langá um leið og fyrstu laxamir koma í ámar. Á hverju ári bætast við veiðiár sem eingöngu leyfa fluguveiði. Maðkurinn er greinilega á undan- haldi hjá veiðimönnum. Þó er auð- vitað ekkert sem mælir gegn þvi að veitt sé á maðkinn, allavega snemma sumars þegar fiskurinn er nýgenginn. -G. Bender

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.