Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2003, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2003, Side 9
MÁNUDAGUR 27. JANÚAR 2003 25 DV Ágúst Jóhannsson metur íslenska liðið - leikir helgarinnar og framhaldið Höfum burði til að fara í undanúrslit - en til þess þarf vörnin að lagast og sóknin að vera agaðri íslenska landsliðiö stóð í ströngu um helgina er það lék tvo leiki. Sá fyrri var auðveldur sigur gegn Kat- ar en í gær lentum við í klónum á miskunnarlausum Þjóðverjum sem sigruðu okkur með fimm mörkum. DV-Sport ræddi við Ágúst Jóhanns- son, þjálfara Gróttu/KR, um leiki helgarinnar og framhaldið í milli- riðlunum. Góð einbeiting „Mótstaðan hjá Katar var nú ekki beint gríðarlega mikil en það var eins og í Ástralíu- og Grænlands- leiknum að strákamir mættu vel einbeittir í leikinn og kláruöu hann verulega vel sem var hið besta mál,“ sagði Ágúst um leikinn gegn Katar sem fram fór á laugardaginn. Of mörg mistök „Þetta var góður leikur gegn Þjóð- verjum þótt það hafi orðið nokkuð um mistök og það sem kannski varð okkur að falli var að við vorum að gera fullklaufaleg mistök sem við eigum ekki aö vera að gera og sem gerði það að verkum að við náðum ekki að klára þennan leik en að mörgu leyti fannst mér þetta mjög góður og skemmtilegur leikur. Við vorum mjög slakir vamar- lega í fyrri hálfleik og þegar Sigfús og Rúnar voru að ganga út í menn þá voru þeir oft og tíðum of seinir niður aftur og fyrir vikiö var línan mikið frí á bak við þá. Þannig að við fengum mikið af mörkum á okk- ur frá línu og eins var línumaður- inn að fiska mikið af vítaköstum. Það var svona einna helst það sem mér fannst okkur vanta. Menn voru svolítið mikið að tapa stöðunum sínum og þar af leiðandi opnaðist of mikið fyrir línuna og þeir fengu mikið af góðum færum. Þó má ekki gleyma þætti Guðmundar í mark- inu en hann var virkilega góður í leiknum." Betra í seinni hálfleik „Vömin skánaði síðan í seinni hálfleik og fyrir vikið fengum við fleiri mörk úr hraðaupphlaupum og náðum þar með að koma okkur aft- ur inn í leikinn og í rauninni vor- um við algjörir klaufar þegar svona tíu mínútur voru eftir og Kretzchmar var rekinn út af í fjórar mínútur. Það er okkar klúður að hafa ekki nýtt það betur og hrein- lega klárað þennan leik. Sóknin var í smávandræðum þar sem Óli var klipptur út og mér fannst menn alltof bráðir. Við vor- um að slútta allt of fljótt og þetta virtist vera svolítið ráðleysislegt. Það er ekki nokkur spurning að skipulagið er til staðar en menn unnu kannski ekki nægjanlega vel úr því og bráðlætið var kannski stundum fullmikið eins og ég sagði. Þannig að sóknarleikurinn var ekki nægjanlega góður.“ Anægöur með varamennina „Óli var að spila virkilega vel þegar við náðum að losa hann. Ar- on var seigur og hefði að ósekju mátt spila meira. Siggi Bjama kom einnig mjög sterkur inn og ég er virkilega ánægður með hans frammistöðu í þessari keppni, mik- ill styrkur að fá hann svona öflugan upp. Heiðmar kom líka mjög sterk- ur upp og þá má kannski segja að Heiðmar hefði mátt koma fyrr inn og þá hefðum við getað fært Óla á miðjuna en þetta er allt auðvelt að segja eftir á.“ Líst vel á framhaldið „Nú eru náttúrlega bara alvöru leikir eftir og við getum hæglega unnið báða þessa leiki og við getum einnig vel tapað þeim báöum. Ég held engu að síður að við klárum Pólverjana á miðvikudaginn og svo verður leikurinn gegn Spánverjum rosalegur og það er ekki spuming að við höfum alla burði til þess að fara upp úr milliriðlinum. Til að geta lagt Spánverjana verð- um við að ná varnarleiknum betur en á móti Þjóðverjum og við þurfum á meiri fótavinnu að halda frá Sig- fúsi og Rúnari inni á miðsvæðinu. Ef það lagast og við höldum áfram að fá mörk úr hraðaupphlaupum frá Einari, Gústaf og Guðjóni Val þá getum við klárað Spánverjana. Þessir hlutir verða að vera i lagi og svo verður sóknarleikurinn aö „Til þess að geta lagt Spán- verjana verður varnarleik- urinn að vera betri en gegn Þjóðverjum og þá fá- um við fleiri mörk úr hraðaupphlaupum frá Ein- ari, Gústaf og Guðjóni Val.“ verða agaðri heldur en hann var á móti Þjóðverjum. Annars finnst mér sóknarleikur- inn hafa verið góður og mér finnst við hafa góðar lausnir þegar Óli er tekinn úr umferð. Ég held að það geti allir veriö sammála um það að Dagur á ennþá mikið inni og sama með Patrek og ég held að það sé ekki spuming hvort þessir menn koma upp heldur hvenær og ég hef trú á því að það verði á miðvikudag- inn og við klárum Pólverjana. Við höfum alla burði til þess að komast í undanúrslit en því má ekki gleyma að þetta eru stórþjóðir í handbolta með gífurlega hefð og þetta verður alls ekki létt verk. Það getur brugðið til beggja vona en ég hef trú á strákunum." -HBG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.