Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2003, Side 17
MÁNUDAGUR 27. JANÚAR 2003
33
x>v
Sport
dár%2S||r
..... - •
Breiðablik vanii sinn annan leik í röð í Intersport-deildinni:
Urslitakeppnin
moguleiki
Kenneth Tate, burðarásinn í liöi Breiðbliks, hér í baráttu við nýjan leikmann Vals, Evaldas Priudokas. DV-mynd E.ÓL.
Breiðablik vann sinn annan leik í
röð þegar liðið sigraði Val á fostu-
dagskvöld 96-90 í Smáranum. Blikar
eiga því ágætis möguleika á að ná
inn í úrslitakeppnina og ættu að
vera búnir að kveðja fallbaráttuna á
meðan Valsmenn eru i vondum mál-
um á botninum með aðeins tvö stig.
Leikurinn byrjaði með látiun og
voru þeir Mirko Virijevic hjá Blik-
um og Evaldas Priudokas hjá Val í
miklum ham og skoruðu á víxi. Priu-
dokas var að leika sinn fyrsta leik
fyrir Val og vissu Blikar ekkert
hvernig átti að dekka kappann en
komust fljótt að því að hann getur
skotið fyrir utan.
Jafnræði var með liðunum í fyrri
háifleik þar til Bragi Magnússon
kom inn á hjá Blikum og skoraði
þrjár 3ja stiga körfur í röð í lok fyrri
hálfleiks og sá til þess að Blikar
leiddu með 12 stigum í leikhléi, 57-
45. Blikar komust síðan mest 19 stig-
um yflr í seinni háifleik, 79-60, þar
sem Kenny Tate fór fyrir sínum
mönnum og virtust Valsmenn vera
sprungnir. Það var alls ekki raunin
og stórleikur Jasons Pryor í þriðja
leikhluta og byrun þess íjórða
breytti stöðunni í 87-83 og rúmar sex
mínútur eftir af leiknum.
Blikum gekk erfiðlega að finna
körfuna í fjórða leikhluta og skoruðu
aðeins níu stig í leikhlutanum en
sókn Vals var að sama skapi frekar
stirð. Valsmenn fengu nokkur tæki-
færi til að minnka muninn enn frek-
ar en tókst ekki að nýta sér þá mögu-
leika sem gáfust og því fór sem fór
hjá þeim á meðan Blikar fognuðu
frekar sanngjörnum sigri þar sem
þeir voru betri aðilinn megnið af
leiknum.
Blikar léku finan sóknarbolta
framan af þar til í fjórða leikhluta.
Tate var góður þar til í fjórða leik-
hluta þar sem hann gerðist sekur um
nokkur mistök en enginn leikmaður
Blika fann sig á þessmn kafla. Mirko
var góður í byrjun leiks og ágætur í
Snæfellingar sóttu ekki gull í greipar Grindvíkinga á Suðurnesjum:
Flugeldasýning Helga
- skoraði 46 stig og Snæfellingar réðu ekkert við hann
heildina en Pálmi Sigurgeirsson
fann sig ekki. ísak Einarsson var
traustur og þáttur Braga í lok fyrri
hálfleiks skipti sköpum.
Hjá Val voru Pryor og Priudokas
langatkvæðamestir og báru sóknar-
leik liðsins uppi. Þá átti Gylfi Geirs-
son frábæra innkomu af bekknum
en aðrir lykilmenn náðu sér ekki á
strik. Valsliðið hefur styrkst mikið
að undanfórnu og eru þrír erlendir
leikmenn á mála hjá liðinu sem allir
styrkja liðið.
Liðið hefur staðið i liðunum í efri
hlutanum en þarf nauðsynlega að
fara að hala inn stig sem allra fyrst
ef fall niður í 1. deild á ekki að verða
að staðreynd. -Ben
Breiöablik-Valur 96-90
0-3, 7-6, 9-10, 17-10, 17-15, 19-19, 25-22,
(27-27), 29-30, 36-30, 42-37, 48-42, (57-45),
57-47, 68-50, 70-60, 79-60, 81-71, (87-73),
87-83, 94-86, 94-90, 96-90.
Stig Breidabliks: Kenny Tate 28, Mirko
Virijevic 17, Pálmi Sigurgeirsson 13, ísak
Einarsson 11, Friörik Hreinsson 11, Bragi
Magnússon 11, Loftur Einarsson 3, Jón
Arnar Ingvarsson 2..
Stig Vals: Jason Pryor 33, Evaldas
Priudokas 25, Gylfi Geirsson 9, Ægir
Jónsson 7, Bamaby Craddock 7, Bjarki
Gústafsson 5, Hjörtur Hjartarson 2, Ragnar
Steinsson 2.
Dómarar (1-10):
Kristinn Óskars-
son og Einar Ein-
arsson (8).
Gœði leiks
(1-10): 6.
Áhorfendur: 150.
Maöur leiksins:
Evaldas Priudokas, Valur
Fráköst: Breiöablik 40 (8 í sókn, 32 í
vöm, Tate 11), Valur 33 (10 í sókn, 23 í
vöm, Evaldas 11).
Stoósendingar: Breiðablik 14 (Pálmi 5),
Valur 17 (Bjarki 8).
Stolnir boltar: Breiðablik 11 (Tate 5),
Valur 10 (Pryor 2, Hjörtur 2, Evaldas 2).
Tapaðir boltar: Breiðablik 19, ValurlS.
Varin skot: Breiðablik 1 (Friðrik), Val-
ur 5 (Hjörtur 5).
3ja stiga: Breiðablik 19/9 (47%), Valur
32/12 (38%).
Viti: Breiöablik 10/9 (90%), Valur 28/20
(71%).
Grindavík—Snæfell 95-81
8-0, 10-3, 15-5, 25-10, 28-15, (32-19), 39-20,
43-25, 47-28, 47-36, (5041), 5546, 60-51,
62-56, 62-57, (65-58), 70-61, 76-69, 81-72,
95-81.
Snæfellingar hafa verið á góðu
skriði undanfarið en þeir mættu
ofjörlum sínum i Grindavík á
föstudagskvöldið. Heimamenn
sigruðu 95-81. Liðið, sem nýlega
vann sér rétt til að leika til úrslita
um bikarinn, gekk einfaldlega á
VINTERSP&RT
DEILDÍN
Staöan í deildinni:
KR 14 12 2 1274-1122 24
Grindavík 14 12 2 1300-1145 24
Keflavík 14 10 4 1401-1162 20
Njarðvík 14 9 5 1152-1152 18
Tindastóll 14 8 6 1262-1237 16
Haukar 14 8 6 1251-1208 16
ÍR 14 7 7 1209-1229 14
SnæfeU 14 6 8 1139-1159 12
Breiðablik 14 5 9 1281-1335 10
Hamar 14 4 10 1313-1437 8
Skallagr. 14 2 12 1128-1277 4
Valur 14 1 13 1074-1321 2
vegg í byrjun leiks og var aldrei
líklegt til að vinna heimamenn.
Grindvíkingar settu í fluggírinn
strax í byrjun leiks, skoruðu 8
fyrstu stigin og náðu fljótlega 15
stiga forystu, 25-10.
Snæfellingar illa undirbúnir
Það var eins og Snæfellingar
væru ekki undirbúnir og vömin
var hörmuleg. Helgi og Lewis skor-
uðu að vild á þessum kafla áður en
Snæfellingar vöknuðu aðeins til
lífsins og fóru að klóra í bakkann.
Selwin Reid, sem byrjaði leikinn
fyrir Snæfell, var tekinn út af um
miðjan leikhlutann og kom ekkert
meira inn á í leiknum. Staðan eftir
fyrsta leikhluta var 32-18. Grind-
víkingar hófu annan leikhluta af
sama krafti og þann fyrsta, juku
muninn í 19 stig og allt virtist
stefna í risasigur heimamanna.
Bárður Eyþórsson, þjálfari Snæ-
feOs, breytti þá um vörn, fór yfir í
svæðisvörn, og hægði þannig á
leik heimamanna. Þetta virtist
ganga upp og skot heimamanna
fóru að missa marks á meðan gest-
irnir gengu á lagið. Þeir skoruðu
meðal annars 8 stig í röð og náðu
að koma muninum niður í 9 stig
fyrir hlé, staðan í hálfleik 50-41.
Góöur kafli Bush
Baráttan hélt áfram í þriðja leik-
hluta, Grindvíkingum gekk illa að
brjóta niður vörn gestanna og svo
virtist sem í vændum væru spenn-
andi lokamínútur. Á þessum kafla
lék Clifton Bush mjög vel, tók
mörg fráköst og dreif sitt lið áfram.
Hinumegin fékk Guðmundur
Bragason sína fiórðu villu og sett-
ist á bekkinn. Allt var í járnum og
eftir þennan leikhluta var munur-
inn aðeins 7 stig, 65-58. Friðrik
Ingi hefur líklega lesið hressilega
yfir sinum mönnum fyrir fiórða
leihlutann því þaö var strax ljóst
að heimamenn ætluðu ekki að gefa
sigurinn eftir. Helgi fór aftur í
gang og raðaði niður 3ja stiga körf-
um ásamt því að eiga nokkur
glæsileg gegnumbrot. Hann gerði
alls 19 stig í fiórða leihlutanum og
sökkti Snæfellingum sem áttu ekk-
ert svar. Ekki hjálpaði að Bárður
þjálfari fékk tæknivillu um miðjan
leikhlutann, en eftir það var ljóst
að gestirnir yrðu að játa sig sigr-
aða. Grindvíkingar unnu á endan-
um öruggan 14 stiga sigur, 95-81.
Helgi yfirburðamaður
Helgi Jónas var yfirburðamaður
á vellinum og fór fyrir annars frek-
ar daufu Grindavíkurliði, sem virt-
ist frekar áhugalaust eftir að hafa
náð góðri forystu í fyrsta leikhluta.
Helgi hafði þetta um leikinn að
segja: "Þetta var ekki sérstakur
leikur af okkar hálfu eftir góðan
fyrsta leikhluta. Það kom bara
kæruleysi upp í mannskapnum eft-
ir að við náðum þessari forystu en
mér fannst samt aldrei að við gæt-
um tapað leiknum." Um eigin
frammistöðu sagði Helgi: "Þetta
var ágætt, þetta var ágætur sókn-
arleikur í kvöld."
Ásamt hinum hógværa Helga
spiluðu Páll og Lewis ágætlega og
Jóhann barðist vel. I liði gestanna
var Clifton Bush að spila best, var
drífandi og ákveðinn allan leikinn.
Hlynur stóð fyrir sinu og Helgi og
Sigurbjörn börðust af krafti. -TK
Stig Grindvík: Helgi Jónas Guðfinnsson
46, Darrel Lewis 23, Páll Axel Vilbergsson
18, Guðmundur Bragason 6, Jóhann Þ.
Ólafsson 2.
Stig Snœfell: Cliíton Bush 29, Hlynur
Bæringsson 16, Heigi Guðmundsson 12,
Sigurbjöm Þórðarson 10, Lýður Vignisson
8, Jón Ó. Jónsson 6.
Dómarar (1-10):
Sigmundur Her-
bertsson og Gunn-
ar F. Steinsson (8).
Gceói leiks
(1-10): 7.
Áhorfendur: 90.
Ma&ur leiksins:
Helgi Jónas Guöfinnsson, Gríndavík
Fráköst: Grindvík 34 (25 í vöm, 9 i
sókn, Jðhann 7, Lewis 7), SnæfeU 29 (7 i
sókn, 22 í vöm, Bush 14).
Stoösendingar: Grindvík 16 (Lewis
3, Guðmundur 3), SnæfeU 12 (Helgi 7),
Stolnir boltar: Grindvik 13 (Helgi 5),
SnæfeU 11.
Tapaðir boltar: Grindvík 19, SnæfeU
17.
Varin skot: Grindvík 1 (PáU),
SnæfeU 4 (Hlynur 2, Sigurbjöm, Lýður).
3ja stlga: Grindvik 29/11 (38%),
SnæfeU 25/6 (24%).
Vlti: Grindvík 14/12 (86%), SnæfeU
20/15 (75%).