Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2003, Page 20
MÁNUDAGUR 27. JANÚAR 2003
^ 36
Sport__________________________________ r>v
bikabinn;
-----------------------u
Úrslit:
GiUingham-Leeds ...........1-1
0-1 Smith (49.), 1-1 Sidibe (82.)
Blackbum-Sunderland.........3-3
0-1 Stewart (2.), 1-1 Cole (14.), 1-2
Proctor (51.), 1-3 Phillips (70.), 2-3
Cole (73.), 3-3 Yorke (90.)
Brentford-Bumley ...........0-3
0-1 Blake (52.), 0-2 Cook (86.), 0-3
Little (89.)
Famborough-Arsenal..........1-5
0-1 CampbeU (19.), 0-2 Jeffers (23.),
0-3 Jeffers (68.), 1-3 Baptiste (71.), 1-4
Bergkamp (74.), 1-5 Lauren (79.)
Norwich-Dag. &Redbr.........1-0
1-0 Abbey (90.)
Rochdale-Coventry...........2-0
1-0 Connor (33.), 2-0 Griffiths (47.)
Sheff. Utd-Ipswich .........4-3
1-0 Brown (19.), 2-0 Jagielka (31.), 3-0
Brown (64.), 3-1 Gaardsoe (66.), 3-2
MUler, víti (68.), 3-3 Bent (70.), 4-3
Peschisolido (89.)
Southampton-MUlwall ........1-1
0-1 Claridge (17.), 1-1 Davies (90.)
WalsaU-Wimbledon ...........1-0
1-0 Zdrilic (75.)
Watford-WBA.................1-0
1-0 Heiðar Helguson (80.)
Wolves-Leicester............4-1
1- 0 Ndah (5.), 1-1 Dickov, víti (29.),
2- 1 Ndah (45.), 3-1 MiUer (51.), 4-1
MiUer (73.)
Man. Utd-West Ham...........6-0
1-0 Giggs (8.), 2-0 Giggs (29.), 3-0 Van
Nistelrooy (49.), 4-0 P. NevUle (50.),
5-0 Van Nistelrooy (58.), 6-0 Solskjær
(69.)
Fulham-Charlton ............3-0
1-0 Malbranque (59.), 2-0 Mal-
branque, víti (66.), 3-0 Malbranque,
víti (87.)
Stoke-Boumemouth............3-0
1-0 Iwelumo, víti (45.), 2-0 Iwelumo
(51.), 3-0 Hoekstra (84.)
Crystal Palace-Liverpool ... .0-0
Shrewsbury-Chelsea..........0-4
0-1 Zola (40.), 0-2 Cole (53.), 0-3 Zola
(75.), 0-4 Morris (80.)
Fjórða umferð ensku bikarkeppninnar fór fram um helgina:
Slær hausnum í
harðan steininn
Glenn Roeder, knattspymu-
stjóri West Ham, lætur engan
bUbug á sér finna þrátt fyrir að
leikmenn hans séu með allt
niður um sig þessa dagana.
Leikmenn West Ham vom
eins og lömb, leidd til slátrunar,
þegar þeir voru teknir í bakaríið
af Manchester United í gær, en
Roeder er samt ekki á því að
hætta og lemur hausnum við
harðan steininn enn sem komið
er og spuming hvort forráða-
menn félagsins ættu ekki að fara
í grípa í taumana.
„Ég skal viðurkenna að staða
mín batnar ekki með hverju tap-
inu á fætur öðru en ég hef ekki
hingað til verið þekktur fyrir að
hætta því sem ég byrjaður á og
ég hef ekki einu sinni leitt hug-
ann að því að hætta sem knatt-
spymustjóri hjá West Ham. Ég
stend enn uppréttur og ætla mér
að berjast til síðasta blóðdropa.
Ég vona bara að ég fái tækifæri
til að rétta skútuna við,“ sagði
Glenn Roeder, sem verður seint
sakaður um að gefast upp þó
deiia megi um skynsemina sem
fólgin er í þrjóskunni að halda
vonlausu verkefni áfram. -ósk
- Man. Utd tók dapurt lið West Ham í kennslustund á Old Trafford
Þriðju deildar lið Rochdale kom
gríðarlega á óvart þegar það tryggði
sér sæti i 5. umferð ensku bikarkeppn-
innar með því að leggja lærisveina
Gary McAllister, 2-0, en Coventry
hafði ekki tapað í tíu leikjum í röð áð-
ur en það lenti í klónum á Rochdale
sem berst í bökkum í 3. deildinni.
„Mér fannst við eiga sigurinn skil-
inn,“ sagði Paul Simpson, stjóri
Rochdale, eftir leikinn, en hann vill fá
enn stærra lið í næstu umferð.
„Við erum komnir i næstu umferð
og ég vil fá mjög stórt lið næst.
Leikurinn verður að helst að vera það
stór að hann verði sýndur i beinni
sjónvarpsútsendingu þannig að við fá-
um helling af peningum því þannig
verðum við litlu liðin að hugsa,“ sagði
Simpson en Rochdale var að komast í
5. umferð í annað sinn í sögu félagsins.
Jafnt hjá Leeds
Raunir Leeds Utd. héldu áfram þeg-
ar liðið gerði jafntefli, 1-1, við 1. deild-
arlið Gillingham og til að bæta gráu of-
an á svart þá fékk Mark Viduka rautt
spjald í leiknum. Mamady Sidibe,
markaskorari Gillingham í leiknum
gaf ekki mikið fyrir Leeds-liðið að leik
loknum.
„Þetta var líkamlegur leikur og
erfitt að leika gegn úrvalsdeildarvörn
en leikurinn gegn Leicester var erfið-
ari,“ sagði Sidibe, en Gillingham lagði
einmitt Leicester í síðasta leik sínum í
deildinni.
ÚrvalsdeOdarlið Southampton, sem
var ósigrandi á heimavelli áður en
Liverpool lagði það á St. Mary's fyrir
viku, lenti í kröppum dansi gegn 1.
deildarliði Millwall. Það var Kevin
Davies, sem var í láni hjá Millwall fyrr
á leiktíðinni, sem bjargaði heima-
mönnum fyrir horn á síðustu mínútu
leiksins en áður hafði hinn 36 ára
Steve Claridge komið Millwall yfir í
fyrri hálfleik.
„Steve gaf allt i leikinn. Hann held-
ur áfram að koma mér á óvart og fram-
lag hans var meira en markið,“ sagði
Mark McGhee, stjóri Millwall, um
Claridge eftir leikinn en hann var að
skora í sínum fimmta leik í röð. McG-
hee sagðist þó ekki hafa átt von á slíkri
frammistöðu frá Claridge þegar hann
fékk hann til félagsins.
„Ég vildi gjarna segja að ég hafi séð
þetta fyrir en sannleikurinn er að þetta
er meira heppni en innsæi hjá mér.“
Yorke bjargaði Blackburn
Blackburn og Sunderland stigu
skemmtilegan dans á Ewood Park þar
sem dramatíkin var í fyrirrúmi. Sund-
erland hafði leikinn í sinum höndum
þegar 20 mínútur voru eftir en Cole og
Yorke reyndust þeim erfiðir og það var
hinn síðarnefndi sem jafnaði leikinn í
uppbótartíma.
„Mér fannst við eiga skilið að vinna
og við gerðum nóg til þess. Við vorum
óheppnir og ég vil gjama fá að sjá
Það var stór stund í sögu utandeildarfélagsins Farnborough þegar Rocky Baptiste komst fram hjá Pascal Cygan og
skoraöi fyrir þá á Highbury. Þaö dugöi þó skammt því Arsenal vann ieikinn 1-5. Reuter
fyrsta markið þeirra aftur því mér
fannst Cole vera rangstæður. Mér
fannst líka að við hefðum átt að fá tvö
víti,“ sagði brúnaþungur stjóri Sunder-
land, Howard Wilkinson, í leikslok.
Rimma 1. deildarliðanna Woives og
Leicester var aldrei eins spennandi og
búist var við þvi að Úlfamir pökkuðu
Leicester saman, 4-1. Kenny Miller og
George Ndah gerðu tvö mörk hvor og
Dave Jones, stjóri Wolves, var ánægð-
ur með Ndah sem hefur meira og
minna verið meiddur undanfarin þrjú
ár.
„Hann er kominn í almennilegt
form. Hann hefur spilað núna fimm
leiki í röð sem er það mesta síðan
hann gekk til liðs við félagið. Við höf-
um einnig breytt viðhorfinu hjá hon-
um þar sem hann varð strax þunglynd-
ur um leið og hann meiddist lítiliega
því hann hélt að hann yrði frá í ein-
hverja mánuði,“ sagði Jones, en Ndah
skoraði einnig tvö mörk gegn
Newcastle í síðustu umferð.
Farnborough stóð sig vel
Utandeildarlið Famborough stóð sig
frábærlega gegn bikarmeisturum
Arsenal þrátt fyrir að vera einum
færri í rúman klukkutíma. Graham
Westley, stjóri Famborough, var stolt-
ur af strákunum sínum í leikslok. „Það
hefði verið mjög auðvelt að gefast upp
þegar við misstum manninn út af. En
við sýndum styrk, stóðum saman og
sýndum mikla einbeitingu. Ég var yf-
ir mig ánægður með markið. Það var
þeirra bikar, sérstaklega fyrir Rocky,"
sagði Westley í leikslok, en þess má
geta að hann á skúringarfyrirtæki sem
sér um að skúra skrifstofumar hjá
götublaðinu The Sun.
Heiðar Helguson skaut Watford í 5.
umferðina í fyrsta skipti í átta ár þeg-
ar hann skoraði eina mark leiksins
gegn WBA tíu mínútum fyrir leikslok.
Láms Orri Sigurðsson var nærri því
að jafna fyrir gestina en skalla hans
var bjargað á línu.
Veisla á Old Trafford
Manchester United var ekki í mikl-
um vandræðum með slakt lið West
Ham og valtaði yfir það, 6-0. Sir Alex
Ferguson var sérstaklega ánægður
með Ryan Giggs sem skoraði tvö mörk
í leiknum en hann hafði ekki skorað á
Old Trafford í háa herrans tíð og hafði
legið undir mikilli gagnrýni fyrir
frammistöðu sina undanfarið.
„Sjálfstraust hefur áhrif á alla og
það er enginn leikmaður sem fer var-
hluta af því en við sáum Giggs upp á
sitt besta í dag. Hann var hreint stór-
kostlegur og er augljóslega kominn í
sitt besta form á ný,“ sagði Ferguson
og bætti við að sjálfstraustið í herbúð-
OKKAR MENN
Heióar Helguson var í byrj-
unarliði Watford og skoraði
eina mark leiksins gegn úr-
valsdeildarliði WBA á 80.
mínútu. Hann fór af leikvelli
tveim mlnútmn fyrir leiks-
lok eftir góðan leik.
Lárus Orri Sigurösson
byrjaöi á varamannabekkn-
um gegn Watford og kom inn
á sem varamaöur á 58. mín-
útu en tókst ekki að forða
liði sínu frá tapi. Hann átti þó góðan
skalla á lokamínútunni setn vamar-
menn Watford björguöu á marklinu.
Heíöar Helguson.
Hermann Hreiöarsson var I byrjunar-
liði Ipswich sem tapaði í æsilegum leik
gegn Sheff. Utd„ 4-3. Þrátt fyrir mörkin
íjögur sem vöm Ipswich fékk á sig fékk
Hermann ágæta dóma fyrir leik sinn
sem fyrr.
Eióur Smári
Guöjohnsen var I
byijunarliði Chelsea
í bikarleiknum gegn
Shrewsbury en fór af
velli á 62. mínutu fyr-
ir Danann Jesper
Grönkjær. Eiður
sýndi lipra spretti I
leiknum.
Lárus Orri
urösson.
Helgi Valur Danielsson sat
á varamannabekknum allan leikinn
gegn Northampton sem Peterbrough
vann, 0-1.
Þóröur Guöjónsson var ekki I leik-
mannahópi Bochum sem sigraöi Num-
berg, 2-1.
Eyjólfur Sverrisson
var ekki heldur í
leikmannahópi Hert-
hu Berlin sem sigr-
aði Þýskalandsmeist-
ara Dortmund, 2-1.
ívar Ingimarsson
var ekki i leik-
mannahópi Úlfanna
gegn Leicester sem
unnu glæstan sigur á
ekki í leikmannahópi Dundee Utd sem
tapaði fyrir Hibemian í skosku bikar-
keppninni, 3-2.
Brynjar Björn Gunnarsson var i byrj-
unarliði Stoke sem lagði Boumemouth,
3-0, í enska bikamum. Brynj-
ar lék allan leikinn og þótti
standa sig vel.
Pétur Marteinsson var
einnig í byrjunarliði Stoke í
leiknum og hann lék allar 90
minútumar rétt eins og
Brynjar.
Sig-
Brynjar Björn
Gunnarsson.
sterku liði gestanna, 4-1.
Arnar Gunnlaugsson var sem fyrr
Bjarni Guöjónsson var þriðji
íslendingurinn í byrjunarliði
Stoke og var hann tekinn af velli átta
mínútum fyrir leikslok en þótti engu að
síður standa sig ágætlega. -HBG
um Man. Utd þessa dagana hefði ekki
verið eins gott lengi.
Fulham var í finu formi gegn
Charlton og fór með öruggan sigur af
hólmi, 3-0. Frakkinn Steed Mal-
branque átti stórleik í liði Fulham en
hann skoraði öll mörk liðsins og þar af
tvö úr vítum. Jean Tigana, stjóri Ful-
ham, var hæstánægður með Mal-
branque í leikslok.
„Ég er ánægður fyrir hönd Steed
þótt ég hafi verið búinn að ákveða að
taka hann út af 10 mínútum fyrr en ég
gerði. Hann hefur sjálfstraustið til þess
að spila á meðal þeirra bestu."
Öruggt hjá Stoke
Stoke City var ekki í vandræðum
með Boumemouth og vann góðan sig-
ur, 3-0. íslendingamir þrír vom allir í
liði Stoke og stóðu sig vel. Stoke var að
komast í 5. umferð i fyrsta skipti í 16
ár og Tony Pulis, stjóri Stoke, var sátt-
ur í leikslok enda voru margir leik-
manna liðsins veikir.
„Það gekk flensa í hópnum og 12
manns vom frá og þar á meðal
Shtaniuk. Það vom aðeins 15 leikmenn
klárir og þurftum við að ná í strák úr
unglingaliðinu. Því lékjum við ekki
eins vel og við getum,“ sagði Pulis og
bætti við að hann vildi fá stórlið í
næstu umferð þar sem Stoke vantaði
sárlega peninga.
Crystal Palace og Liverpool verða að
mætast á ný þar sem þau gerðu marka-
laust jafntefli. Gerard Houllier, stjóri
Liverpool, var nokkuð brattur í leiks-
lok.
„Við vissum að þetta yrði erfiður
leikur. Við áttum nokkur tækifæri og
þurftum að verjast pressu frá þeim og
mér fannst við verjast vel. Hugsanlega
hefðum við getað skapað okkur fleiri
færi en svona er boltinn," sagði Houlli-
er sem missti markvörð sinn, Chris
Kirkland, meiddan af velli.
Lokaleikur 4. umferðinnar var
viðureign Chelsea og Shrewsbury og
fóra Chelsea-menn með léttan sigur af
hólmi, 0-4. Zola fór á kostum í liði
Chelsea og skoraði tvö marka liðsins.
-HBG