Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2003, Page 21
MÁNUDAGUR 20. JANÚAR 2003
_____3Jk
Sport
Heiðar Helguson
Fæddnr: 22. ágúst 1977
Heimaland: ísland
Hæð/þyngd: 178 cm/81 kg
Leikstaða: Framheiji
Fyrri lið: Dalvik, Þróttur, Lilleström
Deildarleikir/mörk: 50/22
Landsleikir/mörk: 23/2
Hrós:
„Þetta var stórkostlegt mark og ég held
að þetta sé besta markið okkar í ár. Allt
við markið var fullkomið og slúttið stór-
kostlegt. Heiðar sýndi í þessum leik
hversu sterkur leikmaður hann er,“
sagði Ray Lewington, stjóri Watford.
-HBG
Heiðar Helguson slær heldur bet-
ur í gegn í enska boltanum þessa
dagana en sigurmark hans gegn
WBA veu: tíunda mark hans fyrir
Watford í vetur.
Þar að auki skoraði hann sigur-
mark fyrir Watford aðra helgina í
röð og í bæði skiptin hafa mörkin
komið á síðustu mínútum leiksins.
Það sem gerði markið enn mikil-
vægara er sú staðreynd að það kom
Watford í 5. umferð bikarkeppninn-
ar í fyrsta skipti í átta ár og því er
óhætt að segja að hann sé í miklum
metum hjá stuðningsmönnum fé-
lagsins um þessar mundir.
Heiðar kom til Watford frá norska
úrvalsdeildarliðinu Liileström í jan-
úar árið 2000 fyrir rúmar 200 milij-
ónir króna og hefur hann reynst lið-
inu vel þann tíma sem hann hefur
verið hjá félaginu.
Heiðar átti erfitt uppdráttar fram-
an af vetri en eins og íslenskir
knattspyrnuáhugamenn vita er
Heiðar óþrjótandi baráttuþjarkur og
í stað þess að leggja árar í bát lagði
hann enn harðar að sér og eftir því
var tekið.
Þegar hann fékk svo loks tækifær-
iö greip hann það báðum höndum
og hefur hreinlega farið á kostum
með liðinu. Harrn er nú sá leikmað-
ur Watford sem andstæðingarnir
óttast mest allra.
-HBG
Stórleikur helgarinnar í ensku knattspyrnunni var á Bramall Lane:
Storkostleg skemmtun
- þegar Sheff. Utd lagði Ipswich í dramatískum sjö marka leik i Sheffield
Fyrstudeildarliðin Sheff. Utd og
Ipswich buðu hvort ööru upp í stór-
kostlegan dans í ensku bikarkeppn-
inni á laugardaginn.
Sheff. Utd stóð sig frábærlega í
deildarbikamum og datt út í fram-
lengingu á Anfield Road í seinni
leiknum gegn Liverpool eftir að
hafa lagt úrvalsdeildarliðið að veUi
í fyrri leiknum. Margir héldu að
það myndi hafa áhrif á þá í leiknum
gegn Ipswich en sú varð nú aldeUis
ekki raunin.
Michael Brown, sem varð 26 ára á
laugardaginn, skaut Sheff. Utd yfir
á 19. mínútu með góðu marki og 12
mínútum síðar kom PaulJagielka
heimamönnum tveimur mörkum yf-
ir og leikmenn Shefiield í verulega
góðum málum.
Endurkoma Ipswich
Margir héldu að þeir væru búnir
að jarða Hermann Hreiðarsson og
félaga þegar Brown skoraði sitt ann-
að mark í leiknum á 64. mínútu.
3-0 fyrir heimamenn, 25 mínútur
eftir og hætt við aö mörg lið hefðu
gefist upp þama. Það gerðu leik-
menn Ipswich ekki og á fjögurra
mínútna kafla tókst leikmönnum
Ipswich að skora þrjú mörk. Fyrsta
markið gerði vamarmaðurinn
Thomas Gaardsoe á 66. mínútu.
Tommy Miller minnkaði muninn í
eitt mark úr vítaspymu tveim mín-
útum síðar og á 70. mínútu jafnaði
táningurinn Darren Bent metin -
hreint ótrúlegur kafli hjá leikmönn-
um Ipswich.
Dramatískur endir
Hart var barist síðustu 20 mínút-
ur leiksins en það var varamaður-
inn Paul Peschisolido sem tryggði
leikmönnum Sheff. Utd sigurinn
einni mínútu fyrir leikslok þegar
hann ýtti boltanum yfir línuna af
stuttu færi. Hreint ótrúleg drama-
tík og verður að taka ofan fyrir leik-
mönnum Shefíleld sem sýndu mik-
inn karakter með því að klára leik-
inn eftir áfallið þegar þeir fengu á
sig þrjú mörk í röð.
Brown hógvær
Michael Brown átti stórleik í liði
Sheffield en hann skoraði tvö mörk
og átti í heild góðan leik. Það er
ákveðin kaldhæðni i því að það var
Joe Royle, stjóri Ipswich, sem seldi
Brown á sínum tíma frá Man. City
yfir til Sheffield Utd. Sjálfur vildi
Brown nú ekki gera mikið úr því og
var hógvær í leikslok.
„Þetta var bara enn eitt markið.
Ég var réttur maður á réttum stað
og það var ljúft að sjá boltann liggja
í netinu," sagði Brown og játaði að
þeir hefðu aldrei náð að taka al-
mennilega við sér eftir fyrsta mark
Ipswich fyrr en rétt undir lokin.
Warnock stoltur
NeO Wamock, stjóri Sheff. Utd,
gerði fimm breytingar á byrjunar-
liðinu síðan á Anfield og það virtist
ekki hafa mikil áhrif á liðið. Hann
var stoltur af strákunum sínum í
leikslok.
„Ég verð að taka ofan fyrir þeim.
Þeir vita bara aldrei hvenær þeir
eru búnir að tapa og gefast aldrei
upp. Viö þurftum að gera margar
breytingar á liðinu þar sem margir
voru þreyttir en vogun vinnur, vog-
un tapar. Ég hefði ekkert verið í
molum þótt við hefðum tapaö því
mér er annara um heilsu strákanna
minna. En þetta var mikil dramatlk
og svona leikir eru nákvæmlega það
sem enska bikarkeppnin stendur
fyrir,“ sagði útkeyrður Warnock í
leikslok.
Joe Royle, stjóri Ipswich, var
furðu lostinn í leikslok.
„Þetta var ótrúlegt. Ég skil ekki
hvemig við fómm að þvi aö tapa
þessum leik. Eins og þetta spilaðist
hefði ég verið helmingi svekktari
með jafntefli því við þurftum ekki á
öðrum leik að halda.“
-HBG
Michael Tonge og félagar í Sheffield United fögnuðu vel og lengi eftir leikinn gegn Ipswich en þeir höföu eins marks sigur aö lokum í vægast sagt sveiflu-
kenndum leik. Reuter
GjBITbOMonn
( Dwight Yorke
Mark Viduka
Dwight Yorke er hetja helgar- L-
innar eftir að hann tryggði Black-
burn ævintýralegt jafntefli gegn
Sunderland á lokamínútunni en
Sunderland hafði 2 marka forystu
í leiknum er 20 mínútur voru eft-
ir. Yorke átti erfitt uppdráttar í
fyrra er Alex Ferguson var með
hann í frystiklefanum á Old Traf-
ford og byrjaði hann aðeins 4 leiki
með Man. Utd í fyrra. Hann er þó
að fmna nýtt líf hjá Blackbum við
hlið vinar síns, Ándy Cole, en eft-
ir brösuga byijun virðast þeir fé-
lagar vera farnir að ná saman á ný
eins og sést á markaskoran Black-
bum í undanfómum leikjum.
-HBG
Mark Viduka er skúrkur helg-
arinnar. Þessi ástralski framherji
hefur ekki verið nema skugginn
af sjálfum sér í vetur og hann kór-
ónaði dapurlega frammistöðu það
sem af er vetri með því að láta
reka sig af velli gegn Gillingham
er hann gaf Andy Hessenthaler,
leikmanni og stjóra Gillingham,
olnbogaskot. Fyrir vikið náðu
leikmenn Gillingham að jafna
skömmu síðar og tryggja sér nýj-
an leik. Ef Leeds tekst ekki að
tryggja sér sigur þar veröa þeir af
þó nokkrum tekjum, þökk sé
Viduka. Fyrir um ári var Viduka
einn eftirsóttasti framherji Evr-
ópu en miöað við spilamennsku
hans þessa dagana fást ekki mörg
pund fyrir hann nú.
-HBG
CMlgjFQÐ uarac?
Þriðjudagur 28. janúar
Middlesbrough-Aston Villa
Bolton-Everton
Chelsea-Leeds Utd
Sunderland-Southampton
Miðvikudagur 29. janúar
Man. City-Fulham
Tottenham-Newcastle
WBA-Charlton
West Ham-Blackbum
Liverpool-Arsenal
Laugardagur 1. febrúar
Arsenal-Fulham
Bolton-Birmingham
Chelsea-Tottenham
Everton-Leeds
Man. City-WBA
Middlesbrough-Newcastle
Southampton-Man. Utd
Sunderland-Charlton
Sunnudagur 2. febrúar
West Ham-Liverpool
Aston Villa-Blackbum