Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2003, Síða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 2003
Fréttir DV
Fram fyrir Framsókn
Friðrik Þór Frið-
I riksson kvikmynda-
gerðarmaður skipar
15. sæti á framboðs-
lista Framsóknar-
flokksins í Reykjavík-
urkjördæmi norður
fyrir næstu alþingis-
1 kosningar. Flokkur-
inn hefur gengið endanlega frá uppstiil-
ingu á framboðslista beggja Reykjavík-
urkjördæma fyrir komandi kosningar.
Fýigst með lífeyrissparnaöi
Fjármálaeftirlitið hefur sent sjóðum
og fjármálastofhunum bréf þar sem
mirrnt er á að þeim sem taka við lífeyr-
isspamaði beri að upplýsa fólk ná-
kvæmlega um allan kostnað sem því
getur fylgt. RÚV greindi frá.
FBM vill nýtt nafn
Félag bókagerðarmanna, FBM, hefur
óskað eftir því að félagsmenn komi
með tiilögur að nýju nafni félagsins. Að
sögn mun ástæðan meðal annars sú að
margir nýir félagsmenn, sem starfa við
hönnun og margmiðlun, frnni ekki
samsvörun í því að vera kallaðir bóka-
gerðarmenn.
Vegur að Dettifossi
Heilsársvegur með bundnu slitlagi
veröur lagður að vestanverðu við Jök-
ulsá og er áætlað að vegurinn liggi
milli hringvegar og Norðausturvegar
að vestanverðu við Dettifoss. Þetta er
niðurstaða samráðshóps um vegamál.
Vinnueftirlitið hyggst loka starfsstöð lögreglunnar á Keflavíkurflugvelli:
Æ fleiri í miöborgina
Tveir af hveijum þremur lands-
mönnum áttu erindi í miðborg Reykja-
víkur í desember síðastliðnum sam-
kvæmt nýrri könnun Gallups. Þriðj-
ungur aðspurðra kom aldrei í miðborg-
ina. Flestir fara til að skoða sig um en
þriðji hver miðborgarfari, eða um 28%,
fer til að kaupa inn.
■aþ
Leifsstöðvar
Hannes tapaði fyrstu skákinni í 6 skáka einvigi
Hannes Hlífar Stefánsson tapaöi fyrstu skákinni í einvíginu gegn Sergei Movsesian í gær. Hannes stýröi svörtu mönnunum og
tefld var sikileysk vörn. Hannes fékk fljótlega mun verri stööu og þrátt fyrir hetjulega vörn varö hann aö viöurkenna sig sigraöan
eftir 41 leik. Önnur skákin veröur tefld í dag, þriöjudag, en þá stýrir Hannes hvítu mönnunum. Teflt er í höfuöstöövum Olís, Sunda-
göröum 2, og tefla þeir samtals 6 skákir. í dag fer jafnframt fram tölvuskák en þá tefla Arnar E. Gunnarsson og Bragi Þorfmnsson
viö öflugt skákforrit á skákstaö. Helga Friöriksdóttir hjá OLÍS sést hér leika fyrsta leikinn.
Bandaríkjamaðurinn með sjálfshjálparnámskeiðin:
Lögreglan og landlækn-
ir skoöa starfsemina
- John Alden hefur ekki svarað ítrekuðum boðum landlæknis
John Alden, Bandaríkjamaðurinn
sem hefur verið með fólk á svokölluð-
um sjálfshjálpamámskeiðum hér á
landi í gegnum tíðina, hefur ekki
svarað ítrekuðum skilaboðum Sig-
urðar Guðmundssonar landlæknis
um að gefa sig fram við embættið.
Alden hefur þó verið staddur hér á
landi að undanfómu, enda dvelur
hann langdvölum hér. Útlendingaeft-
irlitsdeild lögreglunnar, svo og Út-
lendingaeftirlitið, em jafnframt að
skoða mál Johns Aldens.
„Við erum ekki sátt við að svona
margir hafi átt svo mjög um sárt að
binda að þeir hafi þurft að leita sér ein-
hvers konar hjálpar í heilbrigðiskerf-
inu í kjölfar þess að hafa lent í meðferð
hjá þessum manni," sagði Sigurður.
„Það teljum við vera alvarlegt mál.
Þess vegna emm við aö leita manninn
uppi til þess að ræða við hann, en það
—~ hefur ekki tekist enn
. sem komið er þar
sem hann hefur ekki
svarað ítrekuðum
á jksI skilaboðum minum á
símsvara sínum. Við
I munum halda því
I áfram.“
Sigurður sagði að
Alderi. samkvæmt saman-
tekt væm það a.m.k.
á bilinu 20-25 manns sem hefðu leitað
sér aðstoðar í heilbrigðiskerfmu eftir
að hafa verið í sjálfshjálparhópi hjá
John Alden á undanfómum árum.
Eins og DV greindi ítarlega frá fyrir
skömmu hefur maður þessi starfrækt
eins konar sjálfshjálpamámskeið hér á
landi undanfarinn áratug a.m.k. Sam-
kvæmt upplýsingum allmargra við-
mælenda blaðsins, sem lent hafa í
„meðferðinni" eða þekkja vel til henn-
ar, hafa ársgjöldin verið miðuð við
gengi dollara og hafa fariö hækkandi
frá 7 til 10.000 dollara á mann. Þau hafa
runnið til Aldens. Að auki hefur fólk
þurft að greiða aukalega fyrir auka-
tima, svo og svokallaðar orkuferðir til
Hawaii, Ástraliu, Grikklands, Arizona,
Alaska og Colorado. Flest hefur verið
30-35 manns í hópi Aldens en em um
10-12 nú.
Fólk hefur orðið mjög illa úti and-
lega eftir dvöl í hópnum, auk þess sem
það hefur stundað dýran lífsmáta og
tekist á hendur miklar skuldbindingar
vegna framfærslulána, visareikninga
og fleira, að sögn viömælenda DV. Þess
em dæmi aö einstaklingar hafi orðið,
eða séu að verða, gjaldþrota eftir að
hafa verið í sjáifshjálparhópnum um
nokkurt skeið. John Alden er hvergi
skráður til heimilis hér á landi né með
síma. -JSS
Sólmyrkvi dregur að
Ekkert gistirými er laust á Raufar-
höfn í lok maímánaðar en þá verður
sólmyrkvi yfir landinu. RÚV greindi
frá því í gær að franskir sérfræðingar
hefðu metið það svo að Raufarhöfn sé
einn ákjósanlegasti staður heims til að
fylgjast með þessum myrkva.
Ráöinn kosningastjóri
Gestur Kr. Gestsson hefur verið ráð-
inn kosningastjóri Framsóknarflokks-
ins í Reykjavík fyrir komandi þing-
kosningar. Gestur er innflutningsfull-
trúi hjá Samskipum og formaður
Framsóknarfélagsins í Reykjavík. Þá
hefur sjö manna kosningastjóm flokks-
ins tekið til starfa. mbl.is sagði frá.
Ekki fólk í kjördeildum
Sjáifstæðisflokkur-
inn í Reykjavík verð-
ur ekki með fulltrúa í
kjördeildum í þing-
kosningunum í vog,
með sama hætti og
verið hefur. Maigeir
Pétursson, formaður
fulltrúaráðs flokks-
ins, sagði i samtali við RÚV að ákvörð-
unin feli aðeins í sér hvernig málum
verði háttað í næstu kosningum en
ekki hafi verið ákveðið hvemig síðar
verði haldið á málum.
Grunaöir beittir ofbeldi
Nærfellt þriðjungur grunaðra
manna, sem tóku nýlega þátt í rann-
sókn á vegum Ríkislögreglustjóra,
kveðst hafa verið beittur ofbeldi vegna
flkniefna. Þá kvaðst fjórðungur að-
spurðra hafa beitt aðra ofbeldi vegna
fíkniefna. mbLis sagði frá.
Lögreglan á Keflavíkurflugvelli er
komin með starfsaðstöðu i gámi við
brottfarardyr Flugstöðvar Leifs Ei-
ríkssonar á Keflavíkurflugvelli. Óskar
Þórmundsson yfirlögregluþjónn segir
að við fjölgun innritunarborða i flug-
stöðinni megi segja að starfsaðstöðu
lögreglunnar hafi verið ýtt út á stétt
og þá hafi bráðabirgðaskúr verið sett-
ur upp. Óskað hefur verið leyfis hjá
Leifsstöð til þess að setja upp 12 gáma
á svæðinu, 90 fermetra að grunnfleti á
tveimur hæðum, sem eiga að hýsa þá
starfsemi sem nú er í Grænási. Rann-
sóknardeildin er með 4 gáma og svo
verða skrifstofur í einhverjum gám-
um.
„Á morgun (í dag, innsk. blm.) ætl-
ar Vinnueftirlitiö að loka starfsstöð
lögreglunnar í Grænási þar sem
vinnuaðstaðan uppfyllir ekki kröfur
stofnunarinnar. Mannskapurinn hef-
ur gengið á því að þaö á að byggja var-
anlega stjórnsýslubyggingu undir
starfsemi embættis sýslumannsins
við Leifsstöð og hún á að vera þannig
Við eigum í viðræðum við Lögreglufé-
lagið og auðvitað vona ég að við fáum
enn einn frestinn en kannski verðum
við beittir dagsektum. Það er hálfnöt-
urlegt að vera í þessari húsnæðiseklu
við hliðina á þessari glæsilegu flug-
stöð. Starfsemi okkar hefur verið að
aukast hér, ekki síst vegna Schengen-
samningsins, og um áramótin hófst
100% sprengjuleit á öllum innritunar-
farangri og farþegum," segir Óskar
Þórmundsson yfirlögregluþjónn.
Lögregluliðið er nú 47 manns, auk
öryggisvarða sem m.a. starfa við
sprengjuleit en heyra undir lögregl-
una. Óskar segir að þegar áætlanir
um byggingu stjómsýsluaðstöðu hafi
breyst og Ijóst var að ekki fengist fjár-
veiting til starfseminnar hafi hljóðið
breyst, bæði í starfsmönnum og
vinnueftirliti. Gefið hafi verið leyfi til
þess að selja húsin í Grænásnum en
hugmyndin sé að leita að einhverjum
einkaaðila til að byggja húsnæði sem
lögreglan hafi síðan á leigu. Sú lausn
er hins vegar ekki í sjónmáli. -GG
Aðalstöövar „alþjóðalögreglunnar" a Keflavíkurflugvelli.
Þaö er lágt risiö á byggingunni sem sker sig nokkuö úr byggingarstíl
Leifsstöövar.
staðsett að hægt verði að ganga að kvæmd. Vinnueftirlitið hefur marg-
henni báðum megin girðingarinnar. sinnis gefið okkur frest til koma á úr-
Nú er kominn afturkippur í þá fram- bótum, ekki síst í búningsaðstöðu.
Ráðherra heim-
sækir Aicoa
Valgerður
Sverrisdóttir.
Viðskiptasendi-
nefiid islenskra
stjómvalda og fyrir-
tækja undir forystu
Valgerðar Sverris-
dóttur, iðnaðar- og
viðskiptaráöherra, er
í Kanada og ræðir
þar m.a. fríverslun-
arviðræður Kanada
og EFTA-ríkjanna
sem hafa legið niðri sl. þrjú ár og flug-
samgöngur milli landanna. í Ottawa
og Montreal verður einnig völdum
fjárfestum boðið tfi hádegisverðar þar
sem aðstæður á íslandi verða kynntar.
í dag, þriðjudag, mun iðnaðarráðherra
heimsækja álver Alcoa í Quebec. Um
er að ræða eitt nýjasta álver Alcoa og
er af svipaðri gerð og Fjarðaál sem
Alcoa mun byggja í Reyðarfirði.
Á miðvikudag kemur ráðherra til
móts við fulltrúa frá 14 íslenskum fyr-
irtækjum sem þá verða komnir til
Halifax í Nova Scotia-fylki. Þar verður
boðað til kynningarfundar þar sem
annars vegar verður farið yfir rekstr-
araðstæður á íslandi og hins vegar
munu íslensk fyrirtæki kynna starf-
semi sína.
1 heimsókn sinni til Nova Scotia
mun ráðherra leggja áherslu á aukið
samstarf fyrirtækja og viðskipti milli
svæðanna. Ein meginforsenda til að
það takist er að treysta samgöngur
milli Islands og Kanada. Fram kemur
annars staðar í blaðinu í dag að
flugfélagið HMY er hætt við flug til
íslands, en félagið hugðist fljúga
daglega á milli íslands og Kanada. -GG
KOMDU INN I
KOFANN MINN -!
Hímir í kofa utan