Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2003, Qupperneq 4
Fréttir
ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 2003
DV
Ungur maður ákærður fyrir ítrekað ofbeldi - var með fylgdarmann í eitt skiptið:
Slasaðir lögreglumenn
og fjórar líkamsárásir
Ungur maður viðurkenndi fyrir
dómara í gær að hafa orðiö svo frá
sér af bræði þegar hann heyrði út-
grátna unnustu sína kvarta yfir
að annar maður hefði „farið mjög
illa“ meö hana að hann ákvað að
fá mann til liðs við sig til að ganga
í skrokk á sökudólginum. Fór
hann ásamt öðrum að íbúð
mannsins í Breiðholti og ruddist
inn í svefnherbergi þar sem bæði
húsráðandinn og kona sem hjá
honum var voru dregin úr rúminu
út á gólf. Við svo búið kvaðst maö-
urinn hafa látið högg og spörk
dynja á honum en honum er gefið
að sök að hafa bæði slegið og
sparkað í höfuð hins liggjandi
fórnarlambs. Hlaut það meðal
annars kjálkabrot og brot á augn-
tóft, mar og miklar bólgur. Hús-
ráöandinn fer fram á að árás-
armaðurinn og fylgdarmaður
hans greiði sér tæplega 1,2 millj-
ónir króna í skaðabætur. Þessir
atburðir áttu sér stað fyrir réttum
tveimur árum.
Meiddir lögreglumenn
Þegar árásin stóð yfir var
hringt á lögreglu. Komu tveir lög-
reglumenn á vettvang. Samferða-
manni ákærða, sem einnig kom
fyrir dóm í gær, er gefið að sök að
hafa veist með barsmíöum að lög-
reglumönnunum þar sem þeir
voru að sinna skyldustörfum sín-
um - slegið lögreglumann á
vanga, gripið í hár hans og hrist
höfuð hans. Einnig er hann
ákærður fyrir að hafa hrint lög-
reglukonu þannig að hún skall
með höfuðið á hátalarakassa.
Bæði hlutu þau meiðsl og þau
krefjast hvort um sig 143 þúsund
króna skaðabóta úr hendi manns-
ins. Hann neitar hins vegar að
hafa átt sök á að hafa meitt lag-
anna verði en segist hafa lent í
átökum við lögreglumanninn.
Hann hlaut mar yfir kinnbeini og
húðblæðingar á hvirfli, eymsl við
úlnið og hnéskel. Lögreglukonan
hlaut mar á sköflungi, mikla
bólguhellu framan við eyra og
eymsl þaðan og upp í hársvörð,
sem og eymsl í kjálkalið og í bak-
vöðvum.
Óttar Sveinsson
Önnur, þriðja og fjórða
Ríkissaksóknari gaf út ákæru á
hendur báðum mönnunum í lok
júlí. Var þá annar þeirra, sá sem
átti framangreinda unnustu,
einnig ákærður fyrir að kasta gler-
flösku í andlit annars manns í
lyftu í fjölbýlishúsi í Hátúni. Var
síðan ákveðið að fresta réttarhöld-
um þar sem önnur ákæra, einnig
fyrir líkamsárásir og ofbeldi, var á
leiðinni. Var hún gefin út 24. sept-
ember síðastliðinn og nú fyrst eru
málin að koma fyrir dóm en komið
er á þriðja ár síðan glerflöskumál-
ið átti sér stað.
í síðarnefndu ákærunni er mað-
urinn ákærður fyrir líkamsárásir
í apríl og maí á síðasta ári - í ann-
að skiptið fyrir að slá mann niður
og sparka í höfuð hans þar sem
hann lá fyrir utan bíl sem stöðvað-
ur hafði verið á Bústaðavegi. Að
síðustu er maðurinn svo ákærður
fyrir fjársvik og líkamsárás með
því að hafa slegið leigubílsjóra
hnefahögg í andlit eftir að hafa
tekið sér far með honum, án þess
að hafa möguleika á að greiða far-
gjaldið. Bílstjórinn fer fram á 4.400
krónur í skaðabætur en fyrr-
greindi maðurinn, sem sleginn
var niður, fer fram á 230 þúsund
krónur.
Þingmenn telja líklegt að vínauglýsingar muni koma í íslenska fjölmiðla:
Frelsið kann að gera sigar-
ettuna löglega í blöðum
Svo kann að fara að afnám
banns á auglýsingum áfengis
komi til kasta Alþingis í náinni
framtíð. Án efa verður þar um að
ræða þverpólitískt mál, menn
hafa afar misjafnar skoðanir á
áfengisnotkun og auglýsingu og
umfjöLlun á þessari vörutegund.
Til skamms tíma þótti það ljóöur
á ráði fjölmiðils að minnast á
áfengi, hvað þá birta mynd af
áfengisflösku eða vínglasi. Önnur
hugsun ríkir í Evrópu og frelsi til
athafna viröist inni á borði hjá
Evrópusambandinu. Menn spyrja
sig í leiðinni hvort sígarettuaug-
lýsingar eigi líka eftir aö koma
aftur í íslensk blöð. Þingmenn
munu sumir styðja tóbaksauglýs-
ingar sem og áfengis. Aðrir þing-
menn standa þverir fyrir gagn-
vart hvoru tveggja. DV ræddi viö
nokkra þingmenn í gær.
Fyrirvarinn í EES
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maöur Vinstri grænna, er andvíg-
ur auglýsingum á áfengi. Hann
telur trúlegt aö auglýsingamálið
komi til umræðu á þingi.
„Ég er ákaflega lítið hriflnn af
áróðri fyrir aukinni áfengis- eða
tóbaksnotkun. Ég vil trúa því í
lengstu lög að við getum komið
við einhverjum skynsamlegum
forvarnar- og aðhaldssjónarmið-
um í þessum efnum. Ég hef óttast
það að svo færi að lokum að sú
stefna Norðurlandaþjóða annarra
en Dana að líta á stefnu í áfengis-
málum sem hluta af heilbrigðis-
málum en ekki sem viðskiptamál
yrði brotin á bak aftur. Þetta hef-
ur gerst. En ég tel að við eigum að
berjast til þrautar í þessum efn-
um. Þótt núverandi bannákvæði
yrðu ekki talin standast, þá kynni
ef til vill að vera hægt að beita
einhverjum takmörkunum eftir
sem áður, til dæmis að menn
veröi neyddir til að kynna skað-
semi neyslunnar í sömu auglýs-
ingu með áberandi hætti,“ sagði
Steingrímur. Hann segist óttast
þaö að sígarettuauglýsingar verði
næsta vígið sem falli.
„Ég minni á það þegar íslend-
Steingrímur J. Ásta
Sigfússon. Möller.
,Ámi R. Sverrir
Árnason. Hermannsson.
ingar voru ásamt Noregi, Sviþjóð
og Finnlandi í samningaviöræð-
um um EES-samninginn þá var
tekinn inn sérstakur fyrirvari af
hálfu þessara fjögurra Norður-
landaþjóða hvað varðaði það fyrir-
komulag sem haft hafði verið í
áfengismálum. Það var sagt að
þessar þjóðir litu á löggjöf sína á
þessu sviði sem hluta af heilbrigð-
isstefnu landanna - ekki sem mál
viðskiptalegs eðlis. Þennan fyrir-
vara sem við gerðum ættum við
auðvitað að nota okkur,“ sagði
Steingrímur J. Sigfússon.
tel að við verðum
að endurskoða
þetta bann,“
sagði Ásta Möll-
er, alþingismaður
Sjálfstæðisflokks-
ins. Ásta segir að
tóbak gangi i
þveröfuga átt og
flokkist sem heil-
brigðismál, reyk-
ingar skaði alla,
en áfengið aðeins
örlítinn hluta
þeirra sem þess
neyta. „Ég tel
auglýsingar ekki
ráðandi þátt
gagnvart neysl-
unni,“ sagði Ásta
Möiler alþingis-
maður. Hún hef-
ur talað fyrir því
að sala á léttu víni og bjór verði
leyfð í matvöruverslunum.
„Spumingin er hvað Norðmenn
gera, við verðum meira í þeirra
sporum í þessum málum, en auð-
vitað kemur að því að þessar
áfengis- og bjórauglýsingar verða
leyfðar. Þær blasa við hvort eð er
hvar sem er og þær flæða yfir í er-
lendum fjölmiðlum og oft dulbún-
ar í íslenskum fjölmiðlum. Sjálf er
ég ekkert hrædd viö að auglýsing-
ar á áfengi verði leyfðar hér á
landi,“ sagði Guðrún Ögmunds-
dóttir, alþingismaður Samfylking-
ar, í gær.
Hluti af menningu
„Ég tel að við komumst ekki hjá
því að skoða þetta. Reglur Evr-
ópusambandsins kveða á um
þetta og við erum hluti af þessu
reglukerfi. í rauninni tíðkast
áfengisauglýsingar hér á landi nú
þegar, þær eru bara dulbúnar og
það á hlægilegan máta. Mér finnst
þörf á aö endurskoða þessar regl-
ur. Allavega aö auglýsa mætti
áfengi í fagblöðum eins og Gest-
gjafanum og slíkum blöðum. Þetta
er i raun upplýsingaþjónusta fyr-
ir neytendur. ÁTVR stendur sjálf
fyrir auglýsingum. Áfengi er sem
betur fer orðið hluti af menningu
okkar frekar en ómenningu. Eg
Tjáningarfrelsi aö augiýsa
Árni R. Árnason, foringi sjálf-
stæðismanna í Suðurkjördæmi, er
eindregið hlynntur auglýsingum á
áfengi og einnig á tóbaki. „Mér
finnst þetta varða tjáningarfrelsi
þeirra sem bjóða fram vörur og
þjónustu. Það er til lítils að banna
auglýsingar á þessum vörum þeg-
ar blöð og tímarit berast hingað til
lands með slíku efni. Allur al-
menningur er að skoða áfengis-
auglýsingar flesta daga og bannið
við þessum auglýsingum er óskyn-
samlegt. Heilsuíarsástæðum þarf
að mæta eftir öðrum leiðum en
neysla verður aldrei stöðvuð með
því að banna kynningu og auglýs-
ingu, miklu fremur með því að
hafa bein áhrif á lífsstíl fólks með
upplýsingum,“ sagði Ámi Ragnar.
„Eftir því sem löggjafinn hefur
leyft fólki að umgangast þessar
vörur frjálslegar þá hefur það gætt
meiri hófsemi," sagði Ámi Ragnar
Ámason alþingismaður.
Mundi auka drykkjuna
„Ég geld stóran varhug viö því
að farið veröi að auglýsa áfengi í
fjölmiðlunum okkar,“ sagði Sverr-
ir Hermannsson, formaður Frjáls-
lynda flokksins. „Þetta mundi
stórauka drykkju landans. Hvort
þetta kemur hingað skal ég ekki
um segja, en standist þetta þær
nýju reglur sem flæða alls staðar
yfir þá er vandséð annað en að
þetta komi á daginn hér líka,“
sagði Sverrir.
Aðspurður um tóbaksauglýsing-
ar sagði hann: „Ja, hérna hér, það
er eitur í lagi. Það er skelfilegt til
að hugsa þar sem við megum til
með að venja alla þjóðina af reyk-
ingum. Sjálfur hætti ég fyrir tutt-
ugu ámm rúmum og hafði þá
reykt í þrjátíu ár.“ Sverrir Her-
mannsson talaði á sínum tíma
gegn lögleiðingu áfengs bjórs á ís-
landi.
Ekki gott frelsi
„Ég er áreiðanlega íhaldssöm og
gamaldags varðandi þessi mál,“
sagði Rannveig Guðmundsdóttir,
alþingismaður Samfylkingar, í
gær. „Þessi dómur er vísbending
um að í sjónmáli sé aukið frelsi á
öllum sviðum, líka á auglýsingum
á áfengi sem skapar þá annað yfir-
bragð á áfengisnotkuninni. Ég get
ekki leynt því að mér finnst þessi
frelsisþróun ekki góð, ég er í hópi
þeirra sem vilja fara mjög varlega
í áfengismálum. Við eigum meö
öllum ráðum að berjast gegn allri
fíkniefnaneyslu og áfengisböli.
Það er annað frelsi sem ég set í
öndvegi en þetta,“ sagði Rannveig
Guðmundsdóttir. -JBP
Rífandi gangur á
Reykjanesbraut
Hafnar eru framkvæmdir við
tvöföldun Reykjanesbrautar, en að
verkinu vinna þrír verktakar: Há-
fell og Jarðvélar sjá um vegagerð-
ina en Eykt sér um mislægu
gatnamótin við Kúageröi og
Hvassahraun og hefjast fram-
kvæmdir við þau í næstu viku.
Ingi Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri Háfells, segir að það sé of
snemmt aö fullyrða að verkið sé
þegar mikið á undan áætlun, enda
séu skil á verkinu 1. nóvember
2004. En verkið gangi vel og stefnt
sé að því að koma malbiki á
Reykjanesbrautina á þessu ári.
Frágangsvinna verður á árinu
2004. Verktakar eru nú að „ribba“
niður svokallaðan Afstapabruna
sem er í Kúagerði og nær þar að
núverandi vegarstæði.
„Við fáum bónus fyrir að skila
verkinu fyrr, en samningsupphæð-
in var 616 milljónir króna. Bónus-
inn er 400 þúsund krónur á dag og
getur orðið 24 milljónir króna svo
það er eftir heilmiklu að slægjast,"
segir Ingi Guðmundsson. -GG
Þyrla sótti slas-
aðan sjómann
Þyrla Landhelgisgæslunnar,
TF-LÍF, sótti slasaðan sjómann
um borð í risaolíuskipið Dundee í
fyrrinótt. Mjög erfið skilyrði voru
til flugs en skipið var statt um 60
sjómílur suður af Reykjavík.
Landhelgisgæslunni barst ósk um
aðstoð frá Alþjóðlegu fjarlækn-
ingamiðstöðinni í Róm á Ítalíu
um að hinn slasaöi, sem er pólsk-
ur, væri tvírifbeinsbrotinn.
Greiðlega gekk að ná mann-
inum um borð en skyggni við híf-
ingu var 3 km og vindhraðinn 19
m/s. Hann dvelur nú á Landspít-
alanum í Fossvogi.
Olíuskipið Dundee er 156.408
brúttótonn, 332 metrar að lengd, 58
metrar aö breidd og mesta djúp-
rista þess er 28,1 metri. Skipið er
skráð í Monróvíu í Líberíu. -aþ
Síldin fundin
í síldarrannsóknum á rann-
sóknarskipinu Árna Friðrikssyni
í nóvember og desember á síðasta
ári fannst, líkt og árin á undan,
lítið af stórsíld. Var hún jafn-
framt dreifð og greinilega ekki
komin í vetursetuástand. Því var
ákveðið að fara af staö að nýju í
byrjun febrúar til að freista þess
að mæla stærð veiðistofnsins. í
leiðangrinum var lögð áhersla á
að kanna svæðið frá Suðvestur-
landi að Vestfjöröum. Enda þótt
leiðangri Árna Friðrikssonar sé
enn ekki lokið er ljóst að búið er
að finna töluvert af kynþroska
síld, þ.e. veiðistofninum. Mest
var um síldina í Kolluál, norðan
við 64°30N. Með þessu er aflétt
þeirri óvissu sem verið hefur um
ástand síldarstofnsins. -GG