Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2003, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2003, Qupperneq 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 2003 DV Fréttir Ólýsanleg grimmd Hundruð eða þúsundir stúlkna í Bangladess geta ekki sýnt andlit sín á almannafœri vegna þess að þcer eru afmyndaðar af sýru- bruna. Það eru sérstaklega ungar og fallegar stúlkur sem verða fyrir því að sýru er skvett í andlit þeirra. Þar eru að verki menn sem stúlkumar hafa hryggbrotið. Þeir hefna sín með því að koma með vinum sínum á heimili stúlknanna og hella yfir þœr sýru sem brennir skinn og hold og jafnvel bein. Tíðarandinn er sá að stúlkumar em taldar hafa kallað ósköpin yfir sig og em því sekar en fantamir eru lausir allra mála og eins vitorðsmenn þeirra. Enginn veit með vissu hve mörgum stúlkum hefur verið misþyrmt hryllilega í Bangladess fyrir að hryggbrjóta vonbiðla sína. En vitað er um 57 sýruárás- ir á einum mánuði, eða nærri tvær á dag. Yfirvöldin gera yfir- leitt lítið úr þessum plagsið í landinu og ekki hefur verið gengið eftir því að láta glæpa- mennina svara til saka. En nú er það að breytast, ekki síst vegna þess að evrópskir - aðallega breskir - lýtalæknar sem reyna að lagfæra útlit sýrubrenndra stúlkna gera sér grein fyrir um- fangi þessara hræðilegu hefndar- aðgerða sem farnar eru að vekja athygli og viðbjóð langt út fyrir landamæri Bangladess. Það kem- ur óorði á stjóm landsins og þá á að fara aö grípa í taumana. Hefndarþyrst illmenni nota yf- irleitt saltsýru eða brennisteins- sýru til að afskræma stúlkumar sem hafna þeim. Þetta eru algeng efni sem notuð eru í margs kon- ar iðnaði, svo sem við fram- leiðslu áburðar og litarefna. Auð- velt er að kaupa þessar sýruteg- undir og kostar magn sem svar- ar bollafylli ekki nema nokkrar krónur. Fríðar stúlkur í mestri hættu Þegar Nasima Akhter var 15 ára var hún óvenjufríð stúlka og það varð hennar ógæfa. Á augna- bliki var andlit hennar afskræmt og lætur hún ekki sjá sig meðal fólks nema með stór sólgleraugu og blæju fyrir andlitinu. Saga hennar er dæmigerð og lýsir ör- lögum þúsunda stúlkna sem svipað er ástatt fyrir og er af- skræming á andlitum þeirra fyr- ir svipaðar sakir: að neita að giftast mönnum sem þær kæra sig ekki um. Nasima er frá þorpi vestur af höfuðborginni Dhaka. Foreldrar hennar vom búnir að semja um að hún giftist Shikder frænda sínum sem hugði á læknisnám. Hún var enn í skóla og var að búa sig undir að taka próf sem veitti henni rétt til að starfa hjá því opinbera þegar líf hennar breyttist á svipstundu 1. septem- ber 1993. Þá hafði þrítugur maður að nafni Babul beðið foreldra henn- ar um hönd dótturinnar. En þeir neituðu og vissu enda að hann var á flótta undan lögreglunni. Þá sneri hann sér beint til stúlkunnar og bað hana að gift- ast sér en hún vísaði honum aft- ur á foreldra sína og sagðist eng- an áhuga hafa á að giftast hon- um. Babul varð reiður og stúlk- an var hrædd um að hann leitaði hefnda og varaöist hann. Fjórum sólarhringum síðar kom hann á heimili stúlkunnar um miðnæturskeið og hafði tvo vini sina með sér og sýru í skum af kókoshnetu. Nasima svaf í rúmi ásamt ömmu sinni. Hann kom á glugga og skvetti sýrunni

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.