Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2003, Side 12
12
Útlönd
ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 2003
x>v
Inderjit Singh Reyat
Játar sprengjutil-
ræði í Balí
Inderjit Singh Reyat, 51 árs bar-
áttumaöur sikh-trúarinnar, játaði
í gær hlutverk sitt í gröndun flug-
vélar Air India-flugfélagsins, árið
1985. Fyrir utan hryðjuverkin í
Bandaríkjunum 11. september
2001 er þaö mesta skemmdarverk
flugsögunnar en allir farþegamir,
329 talsins, fórust með vélinni
sem fórst utan stranda írlands
þann 23. júní árið 1985. Ekki
nema helmingur líkanna fannst
nokkum tímann.
Reyat situr nú þegar í fangelsi
en hann er að afplána 10 ára dóm
fyrir manndráp og sprengjutil-
ræði á Tókíó-flugvelli sama dag
og fyrrgreind flugvél fórst. Hann
fékk 5 árum bætt við dóminn
sinn. Sikh-baráttusinnar voru að
berjast fyrir aðskilnaði frá Ind-
verjum og voru með þessum
verkum að hefna árásar Indlands-
hers á Gullna hofið, helgasta stað
sikh-trúarinnar.
Þungar áhyggjur
Bandaríkjamanna
Bandaríkjamenn hafa lýst yfir
„mjög þungum áhyggjum" af
þeirri yfirlýsingu írana að þeir
hygðust vinna úran úr námu í
þeim tflgangi að framleiða kjarn-
orkueldsneyti. Þeir sögðu að þessi
þróun væri aðeins skiljanleg í því
samhengi að hún væri tilraun til
framleiðslu kjarnorkuvopna, ann-
að kæmi ekki tfl greina.
íranar em meðlimir hins svo-
kaUaða NPT-sáttmála sem kveður
á um takmörkun útbreiðslu
kjarnorkuvopna, en fyrir nokkru
sagði N-Kórea upp sáttmálanum
eftir að hafa tilkynnt áætlanir
um að ræsa kjarnaofna í sams
konar tOgangi og íranar hafa gef-
ið út. Þeir hafa nú boðið Mo-
hamed ElBaradei, formanni Al-
þjóða kjarnorkumálastofnunar-
innar, til írans til að sýna að ekk-
ert óeðlilegt sé að íinna.
Mótmæli í S-Kóreu
Viö bandaríska sendiráöiö í Seoul
Vilja enn beinar
viðræður
N-Kóreumenn viröast ósveigj-
anlegir í þeirri kröfu sinni að
þeir vOji við engan annan ræða
um kjarnorkumálefni sín en
sjálfa Bandaríkjamenn. Deilan
hófst með því að sáttmáli ríkj-
anna var roflnn eftir að upp
komst kjarnorkustarfsemi N-
Kóreu og hættu Bandaríkjamenn
þá að aöstoða ríkið eins og þeir
höfðu gert frá árinu 1994.
Javier Solana, einn æðstu
manna ESB, kom tO Seoul frá
Tókíó í gær og er enn óvíst hvort
hann fer tO N-Kóreu tO viðræðna
í Pyongyang.
ísraelar fyrirskipa
algjört ferðabann
- eftir vísbendingar um yfirvofandi hryðjuverk
ísraelar fyrirskipuðu í gær
ferðabann á Vesturbakkanum og
Gaza-svæðinu og lokuðu á alla
umferð frá palestínsku heima-
svæðunum inn til ísraels.
Að sögn talsmanns varnarmála-
ráðuneytisins var gripið til þess-
ara aðgerða eftir að vísbendingar
bárust um yfirvofandi hryðjuverk
palestínskra öfgahópa.
Banninu verði þó fljótlega aflétt
þannig að verkamenn sem starfa í
Israel fengju að fara til vinnu
sinnar auk þess sem Palestínu-
menn, 45 ára og eldri, fengju að
sækja bænahald í gamla hluta Jer-
úsalem á fórnarhátíð múslíma
sem nú stendur sem hæst.
Til þessa hefur aðeins verið
gripið til slíkra ferðabanna eftir
alvarlegar sjálfsmorðsárásir en
ísraelar leggja nú aUa áherslu á að
koma í veg fyrir alvarleg átök á
meðan Sharon forsætisráðherra,
sem fékk formlegt stjórnarmynd-
Handtökur í Nablus
Þrírgrunaöir hryöjuverkamenn voru
handteknir í Nablus í gær og fannst
sprengjubelti í fórum eins þeirra.
unarumboð á sunnnudaginn,
þreifar áfram fyrir sér í von um
að takast megi að mynda þjóð-
stjórn með þátttöku Verkamanna-
flokksins þó hverfandi líkur séu á
því.
Þrátt fyrir allt hefur þó ofbeldið
haldið áfram víða á heimastjóm-
arsvæðunum og munu að minnsta
kosti tveir Palestínumenn hafa
fallið í gær auk þess sem þrír voru
handteknir grunaðir um að hafa
skipulagt sjálfsmorösárásir.
Annar hinna föOnu var liðsmað-
ur vopnaðs arms Frelsishreyfing-
ar Palestínu, PFLP, og var hann
skotinn til bana í skotbardaga í
bænum Nablus á Vesturbakkan-
um. Hinn var skotinn til bana í
nágrenni Netzarim-landtöku-
byggðarinnar á Gaza-svæðinu.
Þeir handteknu náðust viö hús-
leit í Nablus og fannst skotbelti
með 20 kílóum af sprengiefni í fór-
um eins þeirra.
REUTERS
Gantast í Berlín
Leikararnir Sam Rockwell og George Clooney eru í Berlín til aö kynna nýjustu mynd sína, Confessions of a Dangerous
Mind, sem sá síöarnefndi leikstýrir en Rockwell leikur aöalhlutverkiö í. Hún segir frá þekktum bandarískum sjónvarps-
framleiöanda, Chuck Barris, sem í bók frá 9. áratugnum segir frá sínu tvöfalda lífi, í sjónvarpi og sem leynimoröingi
bandarísku leyniþjónustunnar, CIA. Barris hefur ekki veriö tekinn mjög trúanlegur en CIA hefur ákveöiö aö tjá sig
ekkert um máliö.
NATO-deilan:
Reynt til þrautar í dag
Donald Rumsfeld, vamarmála-
ráðherra Bandaríkjanna, segir að
deilan innan NATO muni engin
áhrif hafa á fyrirhugaðar hernað-
araðgerðir Bandaríkjamanna gegn
írökum verði þeir ekki við skil-
yrðislausri afvopnun samkvæmt
ályktun Öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna.
Þetta kom fram á blaðamanna-
fundi sem Rumsfeld boðaði eftir
að Frakkar og Belgíumenn og síð-
an Þjóðverjar höfðu beitt neitun-
arvaldi sínu í NATO gegn beiöni
Bandaríkjamanna um aðstoö viö
varnir Tyrklands komi til stríðs í
írak.
Hann sagði að hernaðarundir-
búningi yrði haldið áfram þrátt
fyrir ágreininginn innan NATO
og leitað annarra leiða ef
Rumsfeld og Robertson
Reynt veröur til þrautar í dag aö ná
samkomulagi innan NATO.
andstæðingar aðgerðanna héldu
sínu til streitu.
Fulltrúar aðildarríkja NATO
voru kallaðir saman til neyðar-
fundar í höfuðstöðvum bandalags-
ins í Brussel strax í gærmorgun
eftir að Belgar og Frakkar höfðu
beitt neitunarvaldinu og síðan aft-
ur síðdegis eftir að mistekist hafði
að ná samkomulagi og er málið
enn í hnút.
Bandaríkjamenn lýstu að von-
um mikilli óánægju með afstööu
ríkjanna þriggja og sagðist Bush
Bandaríkjaforseti ekki skilja
þessa afstöðu þeirra. Aftur hefur
verið boðað til fundar í dag og þar
verður reynt til þrautar hvort
samkomulag náist í þessari mestu
deilu sem komið hefur upp innan
NATO frá stofnun bandalagsins.
Stuðningur dvínar
Stuðningur við
Verkamannaflokk-
inn í Bretlandi
hefur ekki verið
minni í áratug,
samkvæmt skoð-
anakönnunum. Er
þessi minnkandi
stuðningur aðal-
lega rakinn til þess að Tony Blair
forsætisráðherra er einn ötulasti
stuðningsmaður Bush Bandaríkja-
forseta í umræðunni um írak.
Nýr forsætisráðherra
Forseti Fílabeinsstrandarinnar,
Laurent Gbagbo, hefur tilnefnt
nýjan mann í stöðu forsætisráð-
herra í landinu. Sá heitir Seydou
Diarra en skipan hans er talin
vera fyrsta skrefið sem er tekið
samkvæmt nýjum friðarsáttmála
stjómvalda og uppreisnarmanna
sem undirritaður var í París fyr-
ir skömmu.
Leifar Ramons heim
Líkamsleifar Ilans Ramons,
fyrsta ísraelska geimfarans,
komu á heimaslóðir í gær. Hann
var mikiö dáður í sínu heima-
landi og var þjóðin harmi slegin
þegar geimskutlan Columbia fórst
um fyrri helgi. Var mikil viöhöfn
er líkamsleifarnar komu heim og
voru forsætisráðherrann Ariel
Sharon og aðrir háttsettir emb-
ættismenn viðstaddir athöfnina
ásamt fjölskyldu Ramons.
Zimbabwe aftur inn
Suður-Afríka og Nígería hafa
lýst því yfir að þau telji að
Breska samveldið eigi ekki að
halda úti eins árs banni við þátt-
töku Zimbabwe í samveldinu sem
rennur út í mars næstkomandi.
John Howard, forsætisráðherra
Ástralíu, segir kollega sína í fyrr-
nefndum löndum ekki deila
þeirri skoðun sinni að berjast
verði frekar fyrir auknum mann-
réttindum í landinu.
Hermaður heiðraður
Hinn 106 ára
gamli franskættaði
Bandaríkjamaður
Anthony Pierro var
í gær heiðraður með
hæstu sæmdargráðu
franska hersins fyr-
ir störf sín í fyrri
heimsstyrjöldinni
þar sem hann barðist með
franska hernum gegn Þjóðverj-
um. Var þessi athöfn talin minna
á samstöðu Frakka og Banda-
ríkjamanna þá en tengsl þjóð-
anna eru viðkvæm nú vegna mis-
munandi skoðana varðandi írak.
2 tonn af kókaíni
Mexíkóski herinn hefur lagt
hald á 2 tonn af kókaíni og hand-
tók 3 menn í tengslum við það
þegar flugvél þeirra lenti í
Mexíkó. Hún mun hafa verið að
koma frá Kólumbíu en ekki var
upp gefið hver ákvörðunarstaður
hennar var.
Ástralía í sárum
Einhverjir mestu þurrkar í 100
ár í Ástralíu hafa ýtt undir hrika-
lega skógarelda sem hafa geisað í
Ástralíu undanfarna vikur og
mánuði. Hefur verið mælt að
brunnið skóglendi nær yfir um
660 ferkílómetra svæði, meira en
6 sinnum stærð íslands.