Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2003, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2003, Qupperneq 13
13 ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 2003 py______________________________________________________________ Útlönd írakar leyfa loks notkun ómannaðra eftirlitsflugvéla - telja sig þó ekki geta tryggt öryggi þeirra nema loftárásum verði hætt írösk stjórnvöld hafa farið að óskum vopnaeftirlits Sameinuðu þjóðanna og samþykkt að leyfa notkun ómannaðra U-2 eftirlitsvéla við vopnaeftirlitið í landinu. Tilkynning þess efnis frá Saddam íraksforseta var lesin upp i íraska sjónvarpinu í gær og á eftir sagði Mohammed al-Douri, sendiherra íraka hjá Sameinuðu þjóðunum, að stjómvöld þar í landi myndu koma til móts við aðrar kröfur eins og setningu nýrra laga sem bönnuðu framleiðslu kjamavopna í landinu. Fram til þessa höfðu írakar lagst gegn notkun eftirlitsvélanna á þeim rökum að þeir gætu ekki tryggt öryggi þeirra á meðan Bretar og Bandaríkjamenn, sem fara með eftirlit á flugbannssvæðunum í suð- ur- og norðurhluta landsins, stund- uðu stöðugar sprengjuárásir. „Það aö stöðva loftvarnir okkar gegn loftárásunum væri það sama og að gefast upp og ef Sameinuðu þjóöunum, að undanskildum Banda- ríkjamönnum, finnst nauðsynlegt að nota U-2 vélarnar- við eftirlitið þá verða Sameinuðu þjóðimar að stöðva loftárásimar. Öðruvísi er ekki hægt að tryggja öryggi þeirra," sagði í tilkynningunni frá Saddam. Þar með hafa írösk stjómvöld komið til móts viö lykilkröfur vopnaeftirlitsins en áður höfðu þau samþykkt að leyfa skilyrðislaus viðtöl við vísindamenn sína, sem vopnaeftirlitið hefur þó fyrst um sinn tekið með fyrirvara nema þeir fái sjáifir að ráða því við hverja þeir tala og hvenær. Bandaríkjamenn gefa lítið fyrir þessar nýjustu tilkynningar íraka og kalla þær aðeins kænskubragð. Richard Boucher, talsmaður banda- ríska utanríkisráöuneytisins sagði í gær að þeir hefðu ekki enn sýnt nein merki um vilja til afvopnunar sem sé krafa númer eitt. „Ég hef ekki séð né heyrt neitt nýtt sem gef- ur tilefni til að kætast yfir og spum- ing hvort þessar yfirlýsingar þeirra hafa nokkurt gildi,“ sagði Boucher. Tveir íraskir borgar munu hafa látið lífið og að minnsta kosti níu særst í loftárásum Bandaríkja- manna og Breta á flugbanns- svæðinu í suðurhluta íraks, nálægt borginni Basra, í gærkvöld. Að sögn talsmanns Bandaríkja- hers voru árásimar gerðar á loft- vamarstöðvar íraka eftir að skotið hafði verið á eftirlitsvélar yfir flugbannssvæðinu. Liösmaöur öryggissveitanna. Þjóðverjar taka við stjórninni Þjóðverjar og Hollendingar tóku í gær formlega við stjóm alþjóðlegu öryggissveitanna i Afganistan af Tykjum sem farið hafa með stjómina síðustu átta mánuðina. Það eru þýski herforinginn Norbert van Heyst, sem fer með yflrstjóm öryggissveitanna næstu sex mánuðina, með Hollendinginn Robert Bertholee sér við hlið, og tóku þeir við af Tyrkjanum Akin Zorlu við hátíðlega athöfn í gær. Aðeins klukkustund eftir athöfnina var sprengjuflaug skotið að aðalbækistöð öryggissveitanna í nágrenni Kabúl án þess þó að slys eða skemmdir hlytust af. [l w 7 ^ w 3. ) i W-'S REUTERSMYND Oöld í Peking Leigubílstjórar í Peking, höfuöborg Kína, veröa aö gera sér þaö að góöu aö keyra bíla sína á bak viö lás og slá vegna sífellt aukinna rána. Eins og sést á myndinni eru plasthlífar ekki látnar duga heldur hafa veriö settir járnrimlar fyrir glugga til aö tryggja algjört öryggi bílstjóranna sem kvarta sáran undan þrengslum viö stýriö. Sprengjumaöurinn sýnir hvernig hann setti saman Balí-sprengjuna. Sprengjumaður biðst afsökunar Ali Imron, einn þeirra sem eru í haldi indónesísku lögreglunnar, grunaður um aðild að sprengjutil- ræðinu á Balí í október sl. viður- kenndi á blaðamannafundi í gær aö hafa hannað sprengjuna sem varð tæplega 200 manns að bana. Hann sagðist stoltur af því hversu miklu hópur hans gat áorkað en bað einnig aðstandendur fómar- lambanna afsökunar. Það er hryðjuverkahópurinn Jemaah Islamiah sem Imron tilheyrir og stóð fyrir tilræðinu. Mörg lönd hafa tengt hópinn al- Qaeda samtökum Osama bin Ladens en Imron neitaði öllum tengslum viö nokkum annan hóp og sagði þá hafa staðið eina að tilræðinu. Flest fómarlambanna vom erlendir ferðamenn en þó fórust einnig tugir Indónesa. Vinstri vængur- inn fundinn Embættismenn NASA telja að nú hafi allir hlutar vinstri vængs Colombia-skutlunnar sem fórst um fyrri helgi komið í leitirnar. Vinstri vængurinn er vitanlega mikilvægur rannsókninni þar sem skemmd á honum varð til þess að skutlan liðaðist í sundur þegar hún kom aftur inn í gufu- hvolfið. Alls hafa nú 12 þúsund hlutar komið í leitirnar en það er þó langt í frá að sérfræðingar NASA hafi borið kennsl á þá alla. Þannig er óvíst hvort flísamar sem klæddu flaugina að utan og vernduðu hana frá þeim mikla hita sem myndast við endurkom- una koma í leitirnar þannig að hægt verði að rannsaka þær. Ekki hefur enn verið hægt að segja neitt með vissu um það hvað olli slysinu og virðast ráða- menn NASA jafnráðþrota og al- menningur. Ferskir tónar DV ^ Tonar ^ eingöngu fyrir ^NOKIA sima. Til aö panta hringitón sendir þú skeytið: Tone DV kódi. T.d.: Tone DV 2142, til að velja Lose Yourself með EMINEM og sendir á 1919. 99 kr. stk. Fáðu stjörnuspána þína beint í farsímann þinn á hverjum degi. Ef þú ert t.d. fiskur sendirðu skeytið DV FISKUR. Á hverjum degi munum við senda þér stjörnuspá dagsins beint í farsímann þinn. Að móttaka hvert SMS kostar 49 kr. Flytjandi EMINEM Jennifer Lopez Theme Lenny Kravitz Led Zeppelin Keliy Osborne Nirvana No Doubt Weezer Europe Deep Purple Coldplay Bryan Adams Buffy the Vampire ACDC lag Lose Yourself Jenny From The Block Mothy Python American Woman Stairway to heaven Papa Dont Preach Smells Like Teen Spirit Hey Baby(DTI) Hashpipe FinalCountdown Smoke On The Water In my Place Summer of 69 Theme 2 TNT kodi 2142 2144 3147 5026 9425 1864 9431 0587 9540 7008 5064 1762 1772 9269 9566 Til að stoðva þjonustuna sendu DV FISKUR STOPP á númerið 1919. SENDU: DV Steingeit DV Hrutur DV Naut DV Tviburi DV Krabbi DV Ljon DV Meyja DV Vog DV Sporddreki DV Bogamadur DV Fiskur DV Vatnsberi Nú senda allir sitt SMS áeitt númer: 1919 T I ■ ■

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.