Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2003, Page 18
18
ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 2003
Tilvera z>v
íslenskar
uppfinningar
Landssamband hugvitsmanna
stóð á laugardaginn var að opnun
sýningar á nokkrum uppfinningum
íslendinga í Hönnunarsafni íslands
við Garðatorg i Garðabæ. Þar eru til
sýnis ýmis brot af því sem íslend-
ingar hafa fundið upp og komið á
markað hérlendis og erlendis. Marg-
ir þeirra uppfmningamanna sem
koma við sögu hafa barist móti
straumnum við að koma nýjungum
á markað og sumir þurft að flytja úr
landi til að hugmyndir þeirra yrðu
að vöru. Haldið var málþing um ís-
lenskt hugvit í tengslum við sýn-
inguna.
Hugmynd Jóns skoöuö
Steingrímur J. Sigfússon skoöar hér
hugmynd Jóns Ármanns Héöinsson-
ar aö sildarflokkunarvél. Meö þeim
á myndinni er Árni Matthías
SSigurösson.
Uppfinningafólk
Elinóra Inga Sig-
uröardóttir er
formaöur Lands-
sambands hug-
vitsmanna. Með
henni á mynd-
inni er upþfmn-
ingamaöurinn
Guöjón Orms-
son.
Gestlr á sýningu
Meöal gesta í Hönnunarsafni íslands voru Ingi Fernandes og Sigurður Örn
Árnason. í bakgrunni sést í Aöalstein Ingólfsson, forstööumann Hönnunar-
safnsins.
Kvíkmyndagagnrýni
taugarásbíö/Regnboginr) - Chicago ★★★
Svalar stelpur
DV-MYNDIR TEITUR
Rýnt í gegnum gler
Steingrímur J. Sigfússon alþingis-
maöur flutti erindi á málþinginu um
hugvit. Meö honum á myndinni er
Sveinbjörg Jónsdóttir.
Hugmyndir skoðaðar
Meöal gesta viö opnun hugvitssýn-
ingarinnar voru Steingrímur A. Jóns-
son og Ástþór Ragnars-
son.
Hilmar
Karlsson
skrifar gagnrýni
um kvikmyndir.
Strax í upphafsatriðinu í Chicago, All
That Jazz, er komin tengingin við Bob
Fosse, ekki aðeins að ein fimm kvik-
mynda sem hann leikstýrði heitir All
That Jazz heldur minnir atriðið á hans
bestu kvikmynd, Cabaret. Þessi tenging
við Fosse er áþreifanleg í allri myndinni
og eitthvað sem sjálfsagt hefur ekki ver-
ið hægt að komast hjá, Fosse var jú sá
sem setti þennan vinsæla söngleik fyrst-
ur á svið árið 1975 og höfundareinkenni
hans hafa alltaf verið sterk. Þegar svo
sett var á svið vinsæl endurupptaka
söngleiksins árið 1996 þá var stuðst við
dansútsetningar Fosse og það er einnig
gert í kvikmyndinni.
Rob Marshall, sem hefur sama bak-
grunn og Fosse (meðal annars leikstýrði
Caberet á Broadway fyrir stuttu) og er
að leikstýra sinni fyrstu kvikmynd, ger-
ir mjög vel í að koma söngleiknum sem
gerist að mestu innan fangelsiveggja í
skemmtilegt kvikmyndaform þar sem
aldrei fer á milli mála að um leiksviðs-
verk er að ræða. Hann nýtir sér mögu-
leika kvikmyndarinnar í að tvöfalda
sviðsatriðin og lætur yfirleitt söguna
ganga áfram í gegnum frábær söng- og
dansatriði. Með þessu tekst honum að
víkka þröngt form söngleiksins, þó ekki
alveg nóg.
í Chicago er það ekki hinn talaði texti
sem leikaramir þurfa að glíma við held-
ur frekar líkamleg túlkun, hvort sem er
í dansi eða söng. Renée Zellweger,
Catherine Zeta-Jones og Richard Gere
leggja mikið á sig í erfíðum hlutverkum
og uppskera í samræmi við það.
Renée Zellweger, sem fyrir hafði enga
Vllma Kelly
Catherine Zeta-Jones nýtur sín vel í
dans- og söngatriöum.
reynslu af dansi og söng, kemur mest á
óvart. Hún nær góðum tökum á Roxie
Hart sem „slysast" til að myrða elsk-
huga sinn. Hún er sakleysið uppmálað
en kann ýmsilegt fyrir sér þegar kemur
að slægð og undirferli. Söngur hennar
er góður, ekki kraftmikill en í fullu sam-
ræmi við persónuna og hún hélt sínu í
dansinum en ekki mikið meira. Á móti
kemur að hún er best þeirra þriggja þeg-
ar kemur að leiknum og í heildina vinn-
ur hún sigur í þessu hlutverki.
Catherine Zeta-Jones i hlutverki
Velma Kelly hefur meira aðdráttarafl en
Zellweger, er fædd í dansinn, leggjalöng
og fim. Röddin er einnig kraftmikil og
góð. Nýtur hún sín vel í femme fatale-
hlutverkinu, glæsileg og hættuleg.
Hennar leikur er samt ekki eins innileg-
ur og Zellwegers.
Það er ekki hægt að segja að Richard
Gere komi á óvart með þvi að syngja og
dansa eins og sá sem valdið hefur. Hann
er góður tónlistarmaður og hefur af og
til leikið sér að söngleikjaforminu. Með-
al annars í The Cotton Club. Hann nær
góðum tökum á hinum útsjónarsama
lögfræðingi Billy Flynn sem aldrei hef-
ur tapað máli. Að mínu mati á Gere
besta atriðið í kvikmyndinni, stepp=
dansinn, þegar hann sýnir snilld sína í
réttarsalnum og steppar á sviði í sam-
ræmi við atburðarásina í réttarsalnum.
Chigao líður einna helst fyrir það að
vera of mikið sviðsverk. Kvikmyndin á
það til að hverfa í leikhúsið. Það vantar
í myndina sögu á borð við þá sem var í
Cabaret, svo enn einu sinni sé vitnað í
þá kvikmynd, þar sem við höfðum
áhrifaríka sögu um leið og snilldin í
sviðsetningu var til staðar. í Chicago
eru persónumar meira til hliðar. Svið-
setningin er framhliðin og innihaldið og
sem slík er Chicago stórfengleg. Lögin,
textar og flutningur eru slík að hægt er
að fara strax aftur á næstu sýningu og
hafa jafngaman af.
Leikstjóri og danshöfundur: Rob Mars-
hall. Handrit: Bill Condon eftir söngleikja-
texta Fred Epp og Bob Fosse. Kvik-
myndataka: Dione Beebe. Tónlist: John
Kander (lög) og Danny Elfman. Aóalleik-
arar: Renée Zellweger, Catherine Zeta-Jo-
nes, Richard Gere og John C. Reilly.
Samskipti
Aðsókn í bíó í Bandaríkjunum
var góð um síðustu helgi. Sérstak-
lega voru það tvær nýjar kvikmynd-
ir, How to Lose a Guy in 10 Days og
Shanghai Knights, sem fengu góða
aðsókn. Þá var sýningarsölum fyrir
Chicago fjölgað um 1200 og aðsókn-
in lét ekki á sér standa.
How to Lose a Guy in 10 Days er
lauflétt gamanmynd með róman-
tískum þræði. Fjallar myndin um
forhertan kvennabósa sem aldrei
getur tollað með neinni stelpu. Vin-
ir hans veðja að hann geti ekki
haldið út í 10 daga með sömu stelp-
unni. Kvennabósinn telur þetta lítið
mál, velur sér fórnarlamb og hefur
leikinn. Honum bregður heldur bet-
ur í brún þegar þessi stúlka, sem
hann ætlaði að leika með, vill losna
strax úr sambandinu, og það löngu
áður en tíu dagar eru liðnir. Kate
Hudson leikur stúlkuna.
IT'»TiMT' 1’V__________________________________
ALLAR UPPHÆÐIR I ÞÚSUNDUM BANDARÍKJADOLLARA.
SÆTI FYRRI VIKA TtnLL INNKOMA HELGIN: INNKOMA ALLS: FJÖLDI BÍÓSALA
O _ How To Lose a Guy in 10 Days 23.774 23.774 2923
o _ Shanghai Knights 19.603 19.603 2753
o 5 Chicago 10.786 63.803 1841
o 1 The Recruit 9.226 29.822 2376
o 2 Final Destination 2 8.389 27.876 2834
o _ Deliver Us From Eva 6.648 6.648 1139
o 4 Kangaroo Jack 6.105 53.035 2848
o 3 Biker Boyz 4.233 16.017 1769
o 6 Darkness Falls 3.820 26.806 2456
© 7 Lord of the Rings: Two Towers 3.516 320.857 1680
0 10 About Schmidt 3.018 48.484 1240
© 8 Catch Me If You Can 2.979 156.427 1744
0 13 The Hours 2.126 21.727 549
© 9 Just Marrled 2.041 52.626 1796
© 11 National Security 1.458 34.632 1569
© 12 Confession of a Dangerous Mind 1.343 14.443 1376
© 15 My Big Fat Greek Wedding 1.003 239.952 971
© 19 The Pianist 996 9.078 328
© 14 Gangs of New York 862 70.047 891
© 20 Adaptation 751 16.967 415
Vírrsæftistu rnyncfböndín
kynjanna
How to Lose a Guy in Ten Days
Matthew McConaughey leikur
kvennabósa sem er hafnaö þegar
mikiö liggur viö.
Shanghai Knight er framhald á
Shanghai Noon með Jackie Chan og
Owen Wilson í aðalhlutverkum. Nú
eru þeir félagar á hælum Jack the
Ripper í London. -HK
Partíglaðar stelpur
Þriðju vikuna i röð er engin
breyting á tveimur efstu
myndunum á myndbandalist-
anum. Spennumyndin The
Sum of All Fears og hin róm-
antíska gamanmynd, The
Sweetest Thing, hrinda frá sér
allri samkeppni. The Sweetest
Thing er öll á léttu nótunum.
Christina (Cameron Diaz),
Courtney (Christina Applega-
te) og Jane (Selma Blair) eru
þrjár partíglaðar stelpur sem
finnst gaman að dansa og
daðra og hafa engan áhuga á
„alvöru-langtímasambönd-
um“. Þær búa saman í íbúð í
San Francisco og virðast vera
í afar finni vinnu en það er
aukaatriði. Hér skiptir aðeins
máli hvað gerist utan
vixmutima og það er
sem sagt partí, partí,
partí og að leika sér
við sæta stráka. En í
einu klúbbpartíinu
hittir Diaz drauma-
prinsinn, Peter
(Thomas Jane). Þau
rífast að vísu en finna
bæði að það er greini-
lega eitthvað meira á
milli þeirra en bara
loft. Samt lætur hún
hann sleppa án þess
að fá hjá honum
heimilisfang, síma-
númer eða tölvupóst-
fang og eyðir því sem
eftir er af myndinni í
að leita að honum. Sú
leit felur í sér eitt
ferðalag og ótal atriði
með þeim Diaz og
Applegate á nærbux-
unum.
-HK
r(irLLT»-iij:friniTiilililllillilllliii
FYRRI VIKUR
SÆT1 VIKA TITILL (DREIRNGARAÐILI) ÁLISTA
e 1 The Sum of All Fears <sam myndbönd) 3
2 The Sweetest Thing (skífanj 3
! © 4 Van Wilder (myndform) 4
1 o 3 Orange County (sam myndbönd) 2
Q 5 Bad Company (sam myndböndi 8
0 8 Elght Legged Freaks (sam myndböndj 2
Q 7 Unfalthful (skífan) 5
Q Q 6 Murder By Numbers <sam myndbönd) 8
_ Servlng Sara isam myndböndj 1
© 10 Bend It Llke Beckham (göðar stundir) 9
0 11 About a Boy (Sam myndbönd) 13
0 9 The New Guy (skífan) 8
0 13 Joe Somebody (skIfanj 2
0 14 Black Knight (skífan) 9
j ífct 16 My Big Fat Greek Wedding (myndformj 18
15 Slap Her... She’s French <sam myndböndj 4
I © !© 19 The Man From Elysian Relds ibergvIki 4
12 The Royal Tennenbaums (sam myndbönd) 10
_ Importance og Being Earnest iskIfan) 1
|S _ The Buisness of Strangers (BErgvIkj 4