Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2003, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2003, Blaðsíða 21
21 ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 2003 X>v Tilvera Sheryl Crow fertug Rokkstjarnan Sheryl Crow á stórafmæli í i dag. Crow skaust upp á |S0Þ®jjg stjörnuhimininn þegar MKaslW hún sendi frá sér lagið All I Wanna Do. Fór hún strax í röð allra vinsælustu söngkvenna og þó að ferillinn hafi verið skrykkjóttur þá er hún mjög vinsæl og selur vel. Áður en Crow hóf sólóferilinn var hún meðal annars í bakraddahóp Michaels Jacksons og söngvari og gítarleikari hjá Don Henley. Crow hefur verið orðuð við marga fræga kappa. Crow hafði tónlistina i blóð- inu frá fæðingu en foreldrar hennar eru báðir hljóðfæraleikarar. Gildir fyrir miövikudaginn 12. febrúar i vmuiauni iz >v' Vatnsberinn (20. ian.-is. febr.r ■ Eitthvað sem þú ' hefur heðið eftir lengi gerist loksins þér til óblandinnar gleði. Kvöldið verður mjög ánægjulegt. Happatölur þínar eru 7, 28 og 30. Fiskarnirno. fehr.-?o. marsr Hreinskilni dugar best lí vandamáli sem þú stendur frammi fyrir í dag. Vinir þínir standa með þér í einu og öllu. Ástvinir eiga góða stimd í kvöld. Hrúturinn (21. mars-19. apríl): . Gefðu þér nægan tima *fyrir það sem þú þarft að gera, þá er minni hætta á mistökum. Þér hættTr til óþarfa svartsýni. Happatölur þínar eru 11,12 og 28. Nautið (20. apríl-20. mai): / Þú færð fréttir frá JL. vini þinum sem býr [ langt í burtu. Það setur að þér trega þegar þú minnist gamalla tímar þegar allt var svo skemmtilegt. Tvíburarnir 121. maí-21. iúntt: Unga fólkið er í ’aðalhlutverki í dag. Það getur verið að þeim sem eldri eru þyki nóg um fyrirganginn. Þú gætir þurft að miðla málum. Krabbinn 122. ifjní-22. iúin: Til þín verður leitað 1 í dag og þér flnnst ábyrgð þín mikil. Vinir þínir eru að skipuleggja einhverja skemmtun saman. Liónið (23. iúlí- 22. áaúst); , Fjölskyldan stendur þétt saman og vinnur að framtíðaráætlunum sínum. Búferlaflutn- ingar eru sennilega á döflnni. Happatölur þínar eru 5, 8 og 24. Mevlan (23. áeúst-22. sept.): Þú skalt vera viðbúinn ^VSA því að til tíðinda dragi 'R.í ástarmálum þinum. * f Rómantíkin er svo sannarlega alls staðar í kringum þig. Vogln (23. sept.-23. okt.): J Þú ert að skipuleggja eitthvert ferðalag og V f hlakkar mikið til. r j Auk þess er heilmikið að gera í vinnunni þannig að ekki er mikið um frístundir. Sporðdrekinn (24. okt.-2i. nóvJ: Láttu sem þú takir ekki \ eftir því þó að vinur V\ V^þinn sé eitthvað * afundinn við þig. Það lagast af sjálfú sér og er í rauninni ekkert til að gera veður út af. Bogmaðurinn f22. nfiv.-2.i. rifis.i: |Þú gerir einhveijum Fheilmikinn greiða og færð hann ríkulega endurgoldinn þó að siðar verði. Þér virðist ganga allt í haginn. Steingeltin (22. des.-19. ianO: Þú hefur í mörg hom að lita og er ekki víst að þú hafir tíma fyrir allt sem þú ætlaðir. Fjárhagsstaðan fer batnandi. Happatölur þínar eru 9, 17 og 38. Nýkominn úr einni hörðustu matreiðslukeppni heims: Hver mínúta skiptir máli - segir Björgvin Mýrdal Björgvin Mýrdal er nýkominn frá Frakklandi úr einni hörðustu matreiðslukeppni heims, Bocuse d’Or. Þar náði hann níunda sæti af 24. „Við höfum alltaf sætt okk- ur við að vera í 10 efstu sætunum og það hefur tekist hingað til,“ segir hann og á þar við Klúbb mat- reiðslumeistara sem sendir einn keppanda hverju sinni. Hann seg- ir þátttöku í keppninni gríðarleg- an skóla enda komi virtustu mat- reiðslumeistarar veraldar að þess- um viðburði. Fimm tíma maraþon Björgvin er ættaður af Skagan- um en fæddur og uppalinn í Reykjavík. Þótt hann sé aðeins 25 ára á hann ótrúlegan feril að baki sem matargerðarmaður. Hann hóf námið 17 ára í Perlunni og útskrif- aðist 21 árs. Strax árið eftir vann hann titilinn matreiðslumaður ársins á íslandi og hlaut brons- verðláun í Norðurlandakeppni árið 2001. Hann var aðstoðarmað- ur Sturlu Birgissonar í Bocuse d’Or-keppninni árið 1999 og hefur dreymt um þátttöku síðan. Nú var hann langyngstur keppenda og trúlega sá yngsti frá upphafi, að því er hann segir sjálfur. Hann byrjaði að huga að keppninni fyr- ir einu og hálfu ári og hætti vinnu 1. september til að helga sig undirbúningnum. „Mestur tíminn fer í hugmyndavinnu við að þróa rétti sem ekkert er hægt að setja út á,“ segir hann. Björgvin segir alla þátt takendur nota sama grunnhráefhi og það sé ákveðið tveimur árum áður en keppnin fer fram. í þetta sinn voru það franskar nauta- lundir og norskur sjóbirtingur, ásamt þremur tegundum af meðlæti og sósu með hvorri teg- und fyrir sig, allt ætlað fyrir 14 manns. „Undir venjulegum kring- umstæðum tæki svona matreiðsla 10-15 klukkustundir en þarna verður að ljúka henni á fimm tím- um. Ég var með Daníel Inga Jó- hannsson, matreiðslunema í Perlunni, sem aðstoðarmann og við vorum búnir að æfa hvert handtak vel, enda skiptir hver minúta máli,“ segir hann í fótspor Sturlu og Hákonar Bocuse d’Or keppnin hefur verið haldin á tveggja ára fresti frá 1987. Við íslendingar hófum þátttöku fyrir fjórum árum er Sturla Birgis- son, matreiðslu- meistari í Perlunni, reið á vaðið og varð í fimmta sæti og fyr- ir tveimur árum var það Hákon Már Örv- arsson sem hélt .’-í6ARP uppi heiðri íslendinga og hreppti þriðja sæti. Björgvin segir að þurft hafi talsvert áræði til að fara í keppnina eftir svo góða frammi- stöðu þeirra tveggja en bendir á að það sé mikill heiður fyrir smá- þjóð að fá að taka þátt og alls ekki sjálfgefið því um 40 þjóðir sæki um. „Þetta er gríðarlega hörð keppni sem best sést á því að Norðmenn sigruðu Frakka með eins stigs mun og Þjóð- verjar voru aðeins tveim- ur stigum á eftir Frökk- um. Þó eru 1440 stig í pottinum. Flestar þjóðir eyða tugum milljóna í keppnina en hjá okkur er þetta framtak rekið á góðvild fjöl- margra fyrirtækja. Stærstu styrkt- araðilar eru SÍF, SH, Klúbbur matreiðslumeistara og sjávarút- vegsráðuneytið en einnig má nefna Visa Island, íslandsbanka og Ingvar Helgason," segir Björg- vin Hann getur þess að Bandarík- in og Bretland hafi aldrei náð fimmta sæti keppninnar og hafi þó tekið þátt frá upphafi og eytt í hana stórfé. Lúxemborg sé líka þekkt fyrir góða kokka en hafi nú hafnað í 15. sæti. í Frakklandi sé sérstakt fyrirtæki sem sjái um þjálfun þeirra kandídats og Norð- menn séu strax búnir að velja þátttakanda fyrir 2005. Notaði ævaforna aðferð við nautið En nú viljum við vita hvernig hann fór með norska silunginn og nautalundirnar. „Þegar ég hafði roðflett og beinhreinsað silungs- flökin stakk ég þau út, setti í form og sprautaði humarfarsi utan um þau þannig að þau yrðu innbökuð. Setti þau síðan í 45 stiga heita olíu og hafði þau þar í 20 mínútur. Þess má geta að við vorum með 4. eða 5. hæst metna fiskréttinn. Kjötið hafði ég innbakað í brieostdeigi (brioche brauð- deig) og mótaði það í hring. Þetta eru ævafornar aðferð- ir, annars vegar formið og hins vegar aðferðin, en þetta hefur aldrei verið sett svona saman áður enda vakti það mikla athygli. Þegar Poul Bocuse, einn frægasti kokk- ur í heimi, virti þetta fyrir sér og rétti upp þumalputt- ann var ég ánægður. Það eitt var erfiðisins og útgjald- anna virði fyrir mig,“ segir Björgvin og brosir." -Gun. DV-MYND HARI Matreiöslumeistarinn „Mestur tíminn fer í hug- myndavinnu viö aö þróa rétti sem ekkert er hægt aö setja út á, “ segir Björg- vin Mýrdal. 7-D í Rimaskóla í heimsókn á DV Alfreö Andri Alfreösson, Arnór Fannar Theódórsson, Arnór ingi Ingvarsson, Guö- mundur Smári Guömundsson, Helga Haraldsdóttir, Jón Hilmar Kristjánsson, Katrín Hrund Pálsdóttir, Lára Ingileif Henrysdóttir, María Araceli Qunitana, Ólaf- ur Páll Ólafsson, Sandra Ósk Karlsdóttir, Sigurást Valdís Viktorsdóttir, Siguröur Trausti Ásgrímsson, Sigurjón Árni Pálsson, Stephanie Rósa Bosma, Tinna Jök- uisdótlir, Tinna Lind Hallsdóttir. Kennari er Rósa Ingvarsdóttir. B0NUSVIDE0 ÞARFASTI ÞJÓNNINN!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.