Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2003, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2003, Blaðsíða 8
8_______ Fréttir FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2003 DV Krafinn um laun tvo mánuði aftur í tímann Óttar Sveinsson blaöamaöur Fféttaljós Fangaverðir á Litla-Hrauni fjölmenntu á fund í Félagsheim- ilið Stað á Eyrarbakka í gær- kvöld þar sem samþykkt var harðorð ályktun til dómsmála- ráðherra um að þeir væru orðn- ir langþreyttir á þeirri ringul- reið sem ríki í starfsmannamál- um þeirra. Kurr og óánægja hefur verið á meðal fangavarðanna síðustu mánuði og misseri en steininn tók úr að undanförnu eftir að framkvæmdastjóri Litla-Hrauns kraföi einn þeirra um endur- greiðslu á launum hans tvo mán- uði aftur í tímann - allt aftur til 29. nóvember. Hér var um að ræða mann sem hafði sýnt fram á með vottorðum lækna að hann væri óstarfhæfur um hríð eftir að eiginkona hans og barn lágu meðvitundarlaus á gjörgæslu sjúkrahúss en bíll fjölskyldunn- ar hafði farið í Hólmsá við Geit- háls. Tvö önnur börn hjónanna voru einnig í bílnum þegar slys- ið varð í lok nóvember. Fanga- vörðurinn annaðist því bömin þrjú í desember og janúar á með- an konan ýmist lá milli heims og helju, var komin á almenna deild og endurhæfingu en síðast heim. Óvissa á heimili Þungt hefur verið í fangavörð- um að undanförnu vegna fram- angreinds máls - þykir mönnum að forstöðumaður fangelsisins sýni félaga þeirra kuldalega og óréttláta framkomu. Þeir álykt- uðu í gærkvöld að krafa þeirra sé sú að dómsmálaráðherra grípi þegar í stað til aðgerða og fái utanaðkomandi aðila til að stjórna þeim endurbótum sem gera þurfi í starfsmannamálum Fangelsismálastofnunar ríksins. Nútimalegri viðhorf verði í starfsmannamálum en að baki þeirri kröfu segja fangaverðimir vera ópersónulega framkomu yf- irstjómenda en nú sem fyrr sé hún ekki byggð á mannúð. Þegar slysið átti sér stað við Hólmsá, og þjóðin fylgdist í fjöl- miðlum með líðan þriggja barna móðurinnar sem haldið var sof- andi eftir slysið, tók maðurinn sér veikindafrí þegar í stað enda óvinnuhæfur með öllu. Eitt barnanna, þriggja ára, hafði einnig legið meðvitundarlaust en það komst til rænu heldur fyrr en móöirin en hafði þó ekki náð sér af meiðslunum. Var fangavörðurinn því að gæta bús og bama á meðan óvissa var með hina illa slösuðu eiginkonu og móður þriggja barna þeirra. Krafinn skýringa Þann 10. desember var gefið út læknisvottorð til Fangelsisins á Litla-Hrauni vegna fjarvista heimilisföðurins. Læknir stað- festi þá að fangavörðurinn væri með öllu óvinnufær vegna „ann- ars slyss“. Öllum starfsmönnum Litla-Hrauns var kunnugt um það frá upphafi hvers vegna um- ræddur fangavöröur var fjarver- andi. Þann 9. janúar skrifaði Krist- ján Stefánsson, framkvæmda- stjóri Litla-Hrauns, fangaverðin- um bréf þar sem fram kom að „okkur þætti vænt um að þú gerðir okkur grein fyrir eðli slyssins og hvenær má vænta að þú komir tU vinnu aftur“. At- vinnurekandinn vUdi því eðli- lega vita hvernig staðan væri hjá starfsmanninum. Fangavörð- urinn útvegaði þá annað vottorð þar sem læknir skýrði að um- ■

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.