Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2003, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2003, Blaðsíða 25
FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2003 25 DV Tilvera lífiö T I R V I N [J U V-dagurinn í dag V--dagurinn er í dag en hann er alþjóðlegur baráttudagur gegn of- beldi á konum. Dagskrá dagsins á íslandi hefst með máiþingi í hátíð- arsal Háskóla íslands kl. 16.30. Kl. 19.30 verður svo dagskrá í Borgar- leikhúsinu þar sem fjöldi lista- manna kemur fram. Að dagskrá lokinni verður V-dagsgleði í Þjóð- leikhússkjailaranum. V-dags bolir og merki eru seld í öllum helstu tískuvöruverslunum og kaöihúsum á höfuðborgarsvæðinu Nautnablót við norðurljós Á Hótel Glym í Hvalfirði er dekrað við augu, eyru, nef og munn á nautnablóti með ljós- myndasýningu, söng og sögum, og ilmandi krásum sem renna ljúflega niður. Markmið blótsins er barma- fullt hjarta af fegurð og hamingju. Hefst kl. 19 og er verð fyrir kvöld- verðarhlaðborð með sagnaskemmt- un og söng aðeins 4900 krónur. Auk þess verður sérstakt tilboð á gistingu þessa nótt, aðeins 5000 á mann með morgunverðarhlaðborði. Enstmi og Brain Police á Grand rokk Hljómsveitimar Ensími og Brain Police ljúka tónleikaferðalagi sínu um landið á Grand Rokk í kvöld. Með þeim spilar Solid I.V. Tónleik- amir hefjast eftir miðnætti, 500 kr. inn og 20 ára aldurstakmark. Mát í Keflavík Hljómsveitin Mát spOar á KafFi Duus í Keflavík í kvöld. Pétur Kristjáns í Sandgeröi Pétur Kristjáns og hljómsveit spila á Vitanum Sandgerði í kvöld eftir þorramat og þjóðleg skemmti- atriði. lÁ'iliuiyutiuf-Gí-iiiýai Tekur þátt í íslandsmóti í pokakasti: Hóf ekki íþróttaiðkun fyrr en hundrað ara - segir Ágúst Benediktsson sem hefur titil að verja Sambíóin Nemesis - Star Trek: ★★ „Ég byrjaði ekki að æfa neinar íþróttir fyrr en ég varð hundrað ára,“ segir Ágúst Benediktsson, heimilismaður á Hrafnistu í Hafn- arfirði, sem nú er á hundraðasta og þriðja aldursári. Hann ætlar að taka þátt í „íslandsmóti" í pokakasti á þriðjudaginn og hefur titil að verja frá því í fyrra, er hann sigraði með yfirburðum. Þótt hann hafi ekki lagt stund á íþróttir í uppvextinum kveðst hann eitt sinn hafa tekið þátt kappslætti og lent í öðru sæti en segir sér hafa fundist sjálfsagt að taka þátt í þeim æfingum sem bjóðast þarna á heimilinu. „Það er gott að stytta sér stundir með ein- hverju.. Leikfimitímarnir eru tvisvar i viku og ég hef alltaf get- að mætt nema einu sinni síðan ég flutti hingað og í dag eru nákvæm- lega tvö ár síðan,“ segir hann. „Ágúst er venjulega fyrsti maður á vettvang," segir Helena Björk Jónasdóttir íþróttafræöingur, en hún hefur séð um þjálfun heimil- isfólks Hrafnistu síðustu tvö árin og stendur fyrir keppninni á þriðjudaginn. Hún segir aðal- greinarnar vera pokakast og hringjakast og þátttakendur séu 15-20 á hverri hæð. Hæðirnar eru þrjár og lendir bikarinn á þeirri hæð sem best stendur sig. Ágúst og tveir aðrir náðu bikarnum á sína hæð í fyrra. „Það er Hilmar Karlsson skrifar gagnrýni um kvikmyndir. Klónaður geimfari Langlífasta geimsería kvik- myndanna er Star Trek-serí- an. Hún er einnig lang- lífasta geimserí- an í sjónvarpi. Það er ótrúlegt hversu lengi hef- ur verið hægt að halda úti þessu framtíðarævin- týri sem hófst á sjötta áratugn- um og hefur spunnið sig áfram með ýms- um breytingum án þess þó að gleyma upp- runanum. Star Trek: Nemesis er tíunda kvik- myndin. Sjálf- sagt verður þetta síðasta kvik- myndin, þreytumerkin eru aug- ljós. Nemesis hefur ekkert nýtt fram að færa. Það er helst atriðið þar sem við sjáum Enterprise sigla á annað geimfar sem kemur adrenalíninu af stað. Þetta atriði og fleiri tilkomumikil hasaratriði fela þó ekki veika og máttlausa sögu. Star Trek-serían er gærdagurinn í gerð ævintýrakvikmynda. Þetta er áberandi þegar hún er borin saman við stórar og nýjar ævin- týramyndir á borð við Harry Pott- er, Hringadróttinssögu og nýjustu kaflana í Stjömustríðsmyndum Ge- orge Lucas. Ef á aö bjarga seríunni þarf að skipta um áhöfn á Enter- prise og finna nýjan óvin. í Star Trek: Nemesis erum viö með Klónaður Plcard Tom Hardy leikur Shinzon, mann sem aldrei hefur búiö í mannheimum. Picard kaptein við stjórnvölin eins og í síðustu þremur myndum og hefur hlutur hans sjálf- sagt aldrei verið stærri. Það kemur nefnilega i ljós að hann hefur verið klónaður og klón- inn, sem aldrei hefur í mann- heimum dvalið, hefur tekið stjórn- ina á óvinaslóð- um. Það er greini- legt að aðdráttar- aflið hefur átt að vera í samskipt- um Picards við „sjálfan sig“. Þeirra samskipti er hjarta myndar- innar. Það er svo aftur á móti staðreynd að myndin hægir mikið á sér þegar þeir ræða tilfinningar. Mim betur heppnað er þegar vélmennið Data hittir fyrir eldra módel af sjálfum sér. Passa þau samskipti betur inn í Star Trek-ímyndina. Star Trek: Nemesis er samt ekki slæm kvikmynd þó hún flokkist ekki með því besta í seríunni. í myndinni eru tilþrifamikil atriði sem eru vel gerð og spennandi. Vandræðagangurinn er mestur þegar reynt er að höfða til mann- legra tilfmninga eins og í brúð- kaupsveislunni í upphafsatriðinu. Leikstjóri: Stuart Baird. Handrit: John Logan. Kvikmyndataka: Jeffrey L. Kimball. Tónlist: Jerry Goldsmith. Aöalleikarar: Patrick Stewart, Jonathan Frakes, Brent Spiner, Lev- ar Burton og Michael Dorn. DVJVIYND HARI Eldhress öldungur „Ég tók einu sinni þátt í kappsiætti á yngri árum og lenti í ööru sæti, “ segir Ágúst. Bak viö hann hanga medalíur sem hann hefur unniö síöustu ár í keppni á Hrafnistu, tvær fyrir pokakast og ein fyrir hringjakast. stemning yfir þessu,“ segir Helena sem hefur greinilega gaman af sínu starfi. Byrjaði sex ára að vinna Ágúst er fæddur aldamótaárið 1900 og ólst upp í Kollafirði á Ströndum. Sex ára byrjaði hann að sitja yfir ánum allan daginn ásamt öðrum. „Svo var ég lánaður til þess starfa vestur í Barða- strandarsýslu þegar ég var níu ára,“ rifjar hann upp. „Það var annar með mér fyrstu þrjá dagana og það dofnaði yfir mér eftir að hann fór. Ég hafði ekki lyst á matnum í nokkra daga, mér leidd- ist svo, en ég hélt þetta samt út sumarið og ég held ég hafi ekki týnt neinni kind.“ Á Hvalsá í Kollafirði bjó Ágúst í 43 ár, frá 1929-1972, meö konu sinni, Guðrúnu Þ. Einarsdóttur. Þeim varð sjö sona auðið en tveir þeirra féllu frá á besta aldri. Ágúst stundaði ekki bara landbúnað heldur reri líka til fiskjar á haustin og segir strákana hafa verið unga þegar þeir fóru að róa með honum. „Þeir urðu þó að ná niður á botn á balanum," segir hann kankvís. Sígarettur rak á fjörur Ágúst byggði upp öl1 hús á jörð- inni sinni - sagaði meira að segja máttarviðina í þau og rafvæddi bæinn í fyrstu með þvi að smiða sér vindmyllu - allt úr rekaviði af Ströndum. Nú er hann að byrja á tálgunar- námskeiði á Hrafnistu og á borð- inu liggja fyrstu smíðisgripirnir, enda er hann ekki óvanur að fást við tréð. Hann kveðst hafa unnið talsvert við smíðar í sveitinni. „Ég fór oft á vorin þegar sauðburður var búinn og var í byggingar- vinnu fram aö slætti,“ segir hann. Ekki er ofsögum sagt af rekan- um á Ströndum. Ágúst segir þar meira að segja hafa rekið sígarett- ur á stríðsárunum. „Þá byrjaði ég að reykja,“ segir hann og hlær en kveðst löngu hættur. Helena íþróttafræðingur bendir honum kurteislega á að á peysunni henn- ar standi: „Reykingar, ógeðsleg fyla,“ og gerir honum ljóst að hún hefði ekki viljað kyssa hann með- an hann reykti. Hann tekur þeirri athugasemd fálega. Þá minnist hún á vísur við hann. „Já, það er mikið safn af vísum i hausnum á mér,“ segir hann. „En það kemur ekki fram nema stundum." Setti upp síðustu netin ald- argamall Þegar Ágúst brá búi 1972 og þau hjón fluttu suður kveið hann að- gerðaleysinu en ekki liðu nema tveir dagar þar til hann var farinn að salta grásleppuhrogn. Síðan tók netavinna við. „Ég setti upp síð- ustu netin á hundraðasta árinu,“ segir hann og brosir. Guðrún, kona hans, lést fyrir rúmum tveimur árum og höfðu þau þá átt farsæla samfylgd í yfir 70 ár. Elsti drengurinn hans á lífi er 72 ára. „Þetta verða orðnir karlar áður en ég fer héðan,“ segir hann og hlær. Nú kveðst hann vera farinn að sjá svolítið illa og þó sérstaklega heyra. En hann ætlar að gera sitt besta í íþróttakeppninni á þriðju- daginn og svo verður að koma í ljós hvort hann heldur titlinum. Það sem mestu skiptir er lífsgleð- in og Ágúst er greinilega ríkur af henni. Hann ætlar að skemmta sér um helgina með fyrrverandi sam- býlisfólki á Dalbrautinni og er ný- kominn af dansæfmgu þegar við- talið er tekið. „Þær sóttu mig þrjár fram til að dansa,“ segir hann og bætir við hlæjandi: „Þó ég sé eins og rekaviðardrumbur af Ströndum." -Gun. Allir íþráttaviáburdir í beinni á risaskjám. Pnol. Eóður matseðill. Tökum að nkkur hnpa, starfsmannafélög. Stórt ng gntt dansgnlf.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.