Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2003, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2003
I>V
Fréttir
11
Aftur til fortíðar
Anna Sui er meöal
þeirra hönnuöa sem
leita aftur til sjöunda
áratugarins. Efnin eru
þunn og fatnaöurínn
frjálslegur.
■
Rautt latex
Gúmmí er
áberandi í
haustlínu
Gaelyn og
Cianfarani.
Fjaöraþytur
Ofurfyrirsætan
Eva Herzegova
er nakin undir
fiöruöum
kvöldkjól úr
smiöju Oscars
de la Renta.
Kjóllinn var einn
af hápunktum
sýningar de la
Renta enda afar
glæsilegur.
.. t
Ull og leður
Látlaus ullarkjóll
úr smiöju Tommys
Hilfigers. Áhrífa
sjöunda
áratugarins gætir
augljóslega hér.
Síldarmynstriö er
víöa aö finna í
haustlínu Hilfigers
aö þessu sinni.
Þjálfunar og æfingarpunktar
Það er mikilvægt heilsu að halda ákjósanlegri þyngd. Ákjósanleg þyngd
hvers og eins fer eftir þáttum eins og kyni, hæð, aldri og erfðum. Of
mikil líkamsfita eykur líkur á að fólk verði fyrir barðinu á of háum
blóðþrýstingi, hjartasjúkdómum, heilablóðfalli, sykursýki og sumum
tegundum krabbameins, svo eitthvað sé nefnt. Hafa ber í huga að fólk
sem er of grannt á líka á hættu að fá ýmsa sjúkdóma, eins og
beinþynningu, og það gefur augaleið að vannærður maður er heilsuveill
maður. Ef áhugi er fyrir hendi til að afla sér haldgóðra upplýsinga um
mataræði ætti að leita til næringarfræðinga/næringarráðgjafa, enda þeir
vel menntaðir á því sviði og eiga því auðvelt með að geina hismið frá
kjarnanum. En ekki má gleyma mikilvægi líkamsþjálfunar sem að flestra
áliti er mikilvægasta forvarnarleiðin gegn þróun offitu. Hreyfing er
nauðsynleg!
Matseðill dagsins
Dagur 5
Morgunverður: Kornflex, 3 dl = 1 diskur
Fjörmjólk, 2,5 dl = 1 glas
Hádegisverður: Engjaþykkni, létt, 1 dós
Heilhveitibrauð, 1 sneið
Létta, 1 tsk.
Sardínur í tómatsósu, 3 stk.
Miðdegisverður: Tekex, 2 stk
Marmelaði, 1 msk.
Pera, 1 stk.
Fjörmjólk, 2,5 d1 = 1 glas
Kvöldverður: Hrísgrjónagrautur, 3 dl = 1 diskur
Rúsínur, 2 msk.
Fjörmjólk, 2,5 dl = 1 glas
Kvöldhressing: Mandarínur, 4 stk.
Til umhugsunar: Fólk sem stundar líkams-
ræktarstöðvar spyr oft út í hvaða mataræði sé
hentugast fyrir þjálfun svo það nái hvað
bestum afköstum. Ef við gefum okkur að það
séu um tveir tímar þar til viðkomandi fer að
þjálfa gætum við verið að tala um 300-600
hitaeiningar - fer að sjálfsögðu eftir ýmsum
þáttum, eins og kynferði, hæð og þyngd.
Hitaeiningarnar ættu aðallega að koma úr kolvetnaríkum en
jafnframt frekar trefjalitlum mat sem einstaklingurinn kannast við
og þolir vel. Ástæðan er sú að trefjaefni í meltingarkerfi draga til
sín vatn úr blóði og ef einstaklingurinn fer að þjálfa uppþembdur
getur það leitt til meltingartruflana, ógleði og jafnvel uppkasta.
Sem dæmi má nefna að tvær brauðsneiðar með léttu viðbiti og
banana sem skolað er niður með undanrennuglasi gefa um 400
hitaeiningar.
Kveðja, Olafur G. Sæmundsson næringarfræðingur
HReynnc