Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2003, Blaðsíða 10
10
_________FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2003
Fréttir JOi/'
Brasilísk fegurð
Fyrirsæturnar sýna fatnaö brasilíska
hönnuöarins, Marciu Ganems, en
haustlína hennar þótti frumleg og
einkar skemmtileg.
Síglld síld
Flott dragt úr
kasmírull þar sem
klassískt
síldarmynstriö nýtur
sín.
Haust í
New York
Haustlltlr
Haustlína Marcs Jacobs er afar
skrautleg í þetta skiptiö.
Tískuvikan er yfirstaðin í New York en þar
sýndu margir virtustu hönnuðir heims haust- og
vetrartískuna. Eins og svo oft áður þóttust
tískusérfræðingar sjá afturhvarf til fortíðar en áhrifa
sjöunda áratugarins þykir einkum gæta í hausttiskunni að
þessu sinni. Svo er bara að sjá hvort það sama verði upp á
teningnum þegar tiskuvikurnar verða haldnar í London,
París og Mílanó á næstunni.
AnA,(síI > JOM
Latexbrúður
Þessi stórglæsilegi
brúöarkjóll er úr
latexi og ætti aö
henta vel viö
íslenskar aöstæöur.
Hönnuöirnir heita
Gaelyn og
Cianfarani.
Gömul í hettunni
Vera Barreto Leite er oröin 74 ára
og lætur ekki deigan síga. Hún sýnir
hér hausttísku hönnuöarins Franks
Amaury.
Ögrandi fatnaður
Hönnuöurinn Anand Jon vakti
mikla athygli í New York á
dögunum. Kvöldkjóllinn er úr
leðri og beltiö sveiflast
fagurlega um fyrirsætuna. Til
hliöar má sjá „hversdagslegri"
fatnaö úr smiöju Jons.