Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2003, Side 4
4
MÁNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2003
DV
Fréttir
Stórframkvæmdir fiugáhugamanna undir Fljótshlíð:
Sumarhúsabyggð
skipulögð við Múlakot
DV-MYND JÓN PÁLL ÁSGEIRSSON
Dreginn til hafnar
Hrafn GK-111 dreginn til hafnar
Jón Páll Ásgeirsson, stýrimaöur á
varöskipinu Tý, tók þessa mynd af
Hrafni GK-111 er skipiö kom til
Hafnarfjaröar á föstudag
- búið að teikna lóðir fyrir um 70 sumarhús
Búið er að skipuleggja mikla
sumarhúsabyggð í landi Múlakots
undir Fljótshlíð og hefur
deiliskipulag nú verið sent til
meðferðar hjá sveitarstjórn í
Rangárþingi eystra. Gert er ráð
fyrir að skipulagið verði auglýst á
næstu dögum.
Flugvöllur er í Múlakoti sem
mikið hefur verið notaður af flug-
áhugamönnum undanfarin ár og
þar hafa verið haldnar hátíðir á
hverju sumri síðan 1984. Er Múla-
kot m.a. frægt fyrir það að þetta er
ein fyrsta jöröin sem flugvél lenti
á hér á landi. Þar var á ferð Agn-
ar Kofoed-Hansen sem hélt mikilli
tryggð við staðinn eftir þaö. Árni
Guðmundsson, bóndi í Múlakoti,
gerði þar síðan flugvöll. Til að af-
stýra því að flugvöllurinn legðist
af þegar jörðin var seld keypti
hópur flugáhugamanna Múlakot,
en félagið heitir Múlakot 1 Fljóts-
MYND PÉTUR JÓNSSON LANDSLAGSARKITEKT
Múiakot, paradís flugáhugamanna
Svona mun landiö væntanlega líta
út ef hugmyndir flugáhugamanna
veröa aö veruleika.
Stórmót Hróksíns 2003
Shirov efstur
Umsjón
Sævar Bjamason
Það er fjör og gaman á Kjar-
valsstöðum þessa dagana, snjall-
ir leikir og afleikir leiknir í gríð
og erg og mikil skákhátíð. Nú
fer hver að verða síðastur að
drífa sig, umferðunum sem eftir
eru fækkar með degi hverjum!
Alexei Shirov er orðinn einn
efstur eftir umferðir helgarinnar
á Hróksmótinu á Kjarvalsstöð-
um. Hann vann báðar skákir sín-
ar, fyrst gegn Helga Áss og síðan
Stefáni Kristjánssyni. Varla lætur
hann sér nægja að leggja íslend-
inga, í dag á Shirov að tefla með
hvítu gegn Viktor Kortsnoj.
Kortsnoj tapaði fyrri helgar-
skák sinni gegn Macieja á tíma.
Staðan var eyðilögð hjá þeim
gamla en hann lagði síðan Ad-
ams, sem er stigahæstur kepp-
enda, þannig að allt getur gerst
ennþá. Staðan er þessi í 5. um-
ferð: 1. Shirov 4 v. 2.-3. Macieja
og Sokolov 3,5 v. 4.-5. Adams og
Kortsnoj 3 v. 6. McShane 2,5 v. 7.
Hannes 2 v. 8.-9. Helgi Áss og
Bacrot 1,5 v. 10. Stefán 0,5 v.
Fjórar umferðir eru eftir af
mótinu en íslensku keppendun-
um hefur ekki gengið sem
skyldi. Þó er staða þeirra í mót-
inu í samræmi viö hin alræmdu
Elo-stig. Stefán var þó nálægt
því í síðustu viku að leggja
Kortsnoj sem er rúmlega hálfri
öld eldri og reyndari.
Hvítt: Viktor Kortsnoj
(2642). Svart: Michael Adams
(2734).
Drottningar-indversk vörn.
Hróksmótið Kjarvalsstöðum (5),
22.02.2003.
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 b6 4.
a3 Ba6 5. e3 d5 6. Rbd2 Be7 7.
b3 0-0 8. Bb2 c5 9. Bd3 cxd4 10.
exd4 Rc6 11. 0-0 Hc8 12. Hel
He8 13. Hcl Bb7 14. Rfl BfB
15. Rg3 g6 Kortsnoj hefur valið
gamla en trausta uppbyggingu í
byrjuninni.. En hér tekur hann
af skarið og flækir taflið með
þekktu þema í miðtaflinu. 16. c5
a5 17. Bb5 Bh6 18. Hbl Rd7
Baráttan kemur nú til með að
einkennast af frípeðum hvíts á
drottningarvæng og frípeðum
svarts á miðborðinu. 19. Bcl!
Bg7 20. b4 axb4 21. axb4 Ra7
22. Ba4 h6 23. Dd3 bxc5 Og nú
getur Viktor drepið meö b peði á
c5 vegna klaufalegrar uppstill-
ingar Englendingsins. 24. bxc5
Bc6 25. Bc2 Hb8 26. Bf4 Hxbl
27. Hxbl Da5 Hér er staöan við-
kvæm og spurningin hvort
svartur hefði átt að sprengja upp
stöðuna með 27. e5 eða 27. Hc8
og undirbúa sömu sprengingu.
28. h4 Bb5 29. De3 Rf6 30. Dcl
Dc3 Drottningarflan er sjaldan
tii fagnaðar segja menn en það
má reyna stundum. 31. Hb3
Dc4? 32. Db2 Ba4.
; SílHÍI; é I
A 4 A 1
14 1 ii
mmm 9/
/ a jí m
A A foth
Jl a aB
wi m :
En nú getur hvítur með snjöll-
um leik unnið drottninguna. Og
eftir að 40 lekjunum er náð gefst
tími til að gefast upp. 33. Rd2
Bxb3 34. Rxc4 dxc4 35. Bxb3
cxb3 36. Dxb3 Rd5 37. Da4
Hd8 38. Bxh6 Bxh6 39. Dxa7
Bg7 40. c6 Hc8 41. Re4 1-0
hlíð ehf. Þeirra fyrirætlanir eru
að gera Múlakot og næsta ná-
grenni flugvallarins að útivistar-
paradís fyrir flugáhugafólk.
Um sjötíu bústaðir
Jörðin liggur á mjórri ræmu
upp með veginum frá Stóra-Dímon
við Markarfljót og upp að Fljóts-
hlíðinni. Hún nær einnig að Múla-
koti 1, þar sem Skógræktin á um
23 hektara þar sem er að finna
eina af fyrstu gróðrarstöðvum á
íslandi. Þá nær landið sem flug-
mennirnir keyptu einnig upp
Fljótshlíðina sjálfa og töluvert inn
á vel gróna heiðina þar fyrir ofan
sem nær þó upp í um 360 metra
hæð yfir sjó.
Pétur Jónsson landslagsarkitekt
hefur unnið að skipulagi svæðis-
ins. „Það er búið að hanna þyrp-
ingar eða eins konar hverfi sum-
arhúsa á leirunum undir Fljóts-
hlíðinni. Ein þyrpingin, með um
23 lóðum, verður þar sem við köll-
um Heimatún, við gamla bæinn í
Múlakoti. Önnur þyrping með 24
lóðum kemur neðan við flugvöll-
inn. Þá kemur enn ein svipuð
þyrping neðar á leirunum, fast við
75 hektara leiguland sem Skóg-
ræktarfélags Rangæinga fékk leigt
fyrir 12 árum. Búið er að gróður-
setja tré að fullu í það land.“
Formaður félagsins Ágúst
Karlsson hafði forgöngu um að
stofna félagið um kaupin á Múla-
koti. Hann segir að strax hafi ver-
ið hafist handa um að skipuleggja
svæðið samkvæmt ítrustu kröfum
og reglum um skipulagsmál. -
„Það verður staðið eins vel að
þessu og frekast er hægt,“ segir
Ágúst. Hann vonast til að þegar af-
sal að jörðinni liggi fyrir 1. júní
verði allt klárt til að hefjast handa
við uppbyggingu. -HKr.
DV-MYND SIGURÐUR JÖKULL
Danskir dagar
Stine Bach Ruttel heitir stúlkan sem hér spilar á banjó en hljómsveit hennar
sér um fjöriö á dönskum dögum sem nú eru í Fjörukránni í Hafnarfiröi. Auk
tónanna frá Stine ergestum boöiö upp á danskar krásir.
Hættulegustu fyrirbrigði sem myndast geta í eldgosum:
Gjóskuhlaup varð í síð-
asta Heklugosi
-ferðamenn gætu lent í hættu, segir jarðfræðingur hjá NÍ
Tvö stór gjóskuhlaup hlupu niður
suðurhlíðar Heklu í eldgosinu sem
varð í febrúar árið 2000 og ummerki
smærri gjóskuhlaupa fundust
einnig við norðurenda fjallsins.
Þetta kom i ljós eftir að gosefnin frá
eldgosinu höfðu verið kortlögð af
Náttúrufræðistofnun íslands.
Stærsta hlaupið rann niður eftir
sama farvegi og meginhraunstraum-
urinn rann í og má rekja það allt að
5 km frá fjallinu, en í bugðum far-
vegarins sjást leifar gjóskuhlaups-
ins stinga sér undan hrauninu.
Gjóskuhlaup eru hættulegustu
fyrirbrigði sem myndast geta í eld-
gosum og hafa þau valdið hvað
mestu manntjóni sem þekkt er sam-
fara eldgosum. Þau myndast þannig
að gosmökkur ofan við eldstöðina
fellur saman. Gjóskan þeytist
þannig undir áhrifum aðdráttarafls
jarðar niður hlíðar eldfjallsins og
eyðir öllu sem á vegi hennar verður.
Hitastig gosefnanna getur farið upp
í 800 gráður á Celsíus og algengur
skriðhraði er á bilinu 100-150
km/klst.
Á Náttúrufræðistofnun standa nú
yfir rannsóknir á gosefnunum og
áhrifum þeirra. Það kom nokkuð á
óvart að gjóskuhlaup skyldi hafa
getað myndast í Heklugosinu 2000
þar sem það var frekar smátt í snið-
um. Ármann Höskuldsson, jarðfræð-
ingur hjá NÍ, segir að nánast enginn
möguleiki sé á að gjóskuhlaup frá
Heklu nái til mannabyggðar.
„Þeim mun lengra sem líður á
milli gosa í Heklu, því stærri verða
þau. Ef hún svæfi næstu 50 ár þá
myndum við reikna með stærra gosi
og um leið stærri og efnismeiri
hlaupum. En fjalliö þyrfti að sofa í
yfir 200 ár til að hugsanlegt væri að
gjóskuhlaup sem næði til byggða
myndaðist,“ segir Ármann en bætir
við að ferðamenn, sem gjarnan vilja
skoða Heklu á sumrin, gætu lent í
hættu ef þeir væru á röngum stað
þegar gos hæfist. „Við vitum það að
Hekla gefur innan við 30 mínútna
fyrirvara að gosi svo að ef einhverj-
ir ferðamannahópar eru í fjallinu á
þeim tíma þá getur reynst mjög
erfitt að ná til þeirra áður en fjallið
fer af stað. Gjóskuhlaup myndast
strax í upphafi goss svo að þeir
gætu verið í hættu ef til þess kæmi,“
segir Armann. -vig
Fékk trollið í skrúfuna:
6 kafarar voru
13 tíma að
skera úr
Á fóstudag dró varðskip Týr tog-
skipið Hrafn GK-111 til Hafnarfjarö-
ar, en skipið hafði fengið veiðar-
færin í skrúfuna. Sex kafarar Land-
helgisgæslunnar unnu frá kl. 16.12
á fostudag til kl. 5.37 aðfaranótt
laugardags, eða í rúmlega 13 klst.,
við að hreinsa úr skrúfunni.
Tildrög málsins voru þau að
Hrafn hafði verið á veiðum er hann
missti botnvörpuna. Þegar reynt
var að slæða hana upp skaut henni
undir skipið og festist hún þá í
skrúfunni. Kallað var eftir aðstoð
varðskips og var skipið þá dregið
til hafnar. Eftir 13 tíma vinnu kaf-
ara við að hreinsa úr skrúfunni
hélt Hrafn til veiða að nýju. -HKr.
DVWYND HANNA INGÓLFSDÓTTIR
Tvíburar
Þeir Skelkur og Bakur, glænýir tví-
burar, vinna saman viö eitt troll. Hér
eru þeir komnir með fisk til vinnslu í
Breiðdalsvík.
Sáu tvöfalt:
Tvíburatogar-
ar í höfn
íbúar á Breiðdalsvík ráku upp
stór augu í morgim þegar þeir fóru
á stjá. Inn að bryggju komu tveir
togarar og fannst þeim sú sjón
minna nokkuð á gamla og góða daga
þegar mikil umsvif voru við höfnina
og liggja þar nú þrjú togskip. Þama
voru komnir Skelkur og Bakur frá
Runavík í Færeyjmn og gekk vel að
komast að bryggju þrátt fyrir mjög
slæmt veður.
Togaramir landa um 160 tonnum
af ufsa, þorski og ýsu sem verða
unnin hjá Útgerðafélagi Breiðdæl-
inga og á fleiri stöðum næstu daga.
Skelkur og Bakur em um 37 metra
langir og með 7 menn í áhöfn hvor.
Þeir komu nýir til Færeyja í desem-
ber og eru svokallaðir tvíburar, þ.e.
em saman með eitt troll. Að sögn
Ríharðs Jónassonar framkvæmda-
stjóra er von til aö framhald geti
orði á löndunum þeirra hér.
Björg, togskip Breiðdælinga, hefur
legið við bryggju í nokkum tíma
vegna brælu. -HI
Lögreglan á Akranesi:
Fíkniefni upptæk
Lögreglan á Akranesi lagöi um
helgina hald á 17 g af hassi og 1 g af
amfetamini. Lögregla hafði afskipti
af ökumanni viö venjubundið eftirlit
og framkvæmdi í kjölfarið leit í bif-
reið hans. Við leitina fannst lítilræði
af hassi og i framhaldi af því var .
gerð húsleit á heimili mannsins. Þar
fundust áðumefnd fikniefni. í yfir-
heyrslu gekkst maðurinn við því að
eiga efnin. Hann hefúr áður komið
við sögu lögreglu vegna fikniefna-
neyslu. -vig