Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2003, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2003, Blaðsíða 24
48 t Tilvera MÁNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2003 I>V Soprano-fjölskyldan mætir til leiks í sjónvarpinu Fjármálin plaga Tony - „íslenskar flugfreyjur" í þættinurrt kvöld Margar eftirminnilegar persón- ur hafa orðið til i vinsælum sjón- varpsseríum, persónur sem hafa lifað lengur en sjónvarpsseríurnar sjálfar. Má þar nefna Archie Bunker, Lucy Ricardo, Theo Kojak, svo einhverjar séu nefndar, persónur sem löngu eru horfnar af skjánum en lifa enn góðu lífi í hugum fólks. Svo eru aðrar, eins og Frasier Crane, sem örugglega eiga eftir að lifa lengi í minnum fólks, löngu eftir að sjónvarpið hefur hætt að sýna þættina. Ein slík persóna er Tony Soprano, höf- uð Soprano-ættarinnar. Tony Soprano er persóna sem nær langt út fyrir seríuna og er vitnað í hann í tíma og ótíma og oftar en ekki er þessi eða hinn sagður líkj- ast Tony Soprano. Sjónvarpsserían The Sopranos, sem sýningar hefjast á í kvöld, er sú fjórða í röðinni og hefur ekki notiö minni vinsælda í Bandaríkjunum en fyrri seríur og það er ekkert í kortunum sem segir okkur að serí- an eigi ekki lengra líf fyrir höndum. Það sem greinir Soprano-fjölskyld- una frá öðrum fjölskyldum sem við fylgjumst með í sjónvarpsþáttum er að hún er mafiuíjölskylda. I upphafi þáttaraðarinnar fór Tony til sálfræðings og hefur haldið því áfram síðan. Hefur mikið gengið á í samskiptum þeirra en sú sem leikur sálfræöinginn er Loraine Bracco og var í upphafi þekktasti leikarinn í seríunni. Frammistaða James Gandolfmi hefur aftur á móti gert hann að stórstjörnu í kvik- myndum og getur hann valið um hlutverk þegar hann á frí frá Soprano. Þó við séum að fylgjast með mafiufjölskyldu þá eru vandamálin sem Tony á við að etja sum hver býsna hversdagsleg, samanber ung- lingaveiki dóttur og sonar. Önnur vandamál eru ekki eins hversdags- leg því eins og góðum mafíuforingja sæmir er Tony auðvitað reglulega með alríkislögregluna á eftir sér, auk þess sem afbrýði gætir innan fjölskyldunnar og þar leggja menn jafnvel á ráðin um að myrða hver annan. Nú er sem sagt komið að því sem margir hafa beðið eftir. Ný sería hefst í sjónvarpinu í kvöld og má ör- ugglega gera ráð fyrir að fleiri en aðdáendur Tonys Sopranos setjist fyrir framan sjónvarpið þar sem í ljós kom þegar þessi fyrsti þáttur var sýndur í Bandaríkjunum í haust að íslenskar flugfreyjur komu við sögu og þótti mörgum það ekki góð auglýsing fyrir land og þjóð. Nú geta íslenskir áhorfendur fengið að sjá hvað íslenskar fegurðardísir voru að þvælast með mafíósagenginu hans Tonys. En annars eru það áhyggjur af flármálum sem plaga Tony og hans nánustu og setja mest- an svip á þáttinn. -HK Gandolfini ásamt Juliu Roberts Léku saman í The Mexican. James Gandolfini James Gandolfini fæddist í New Jersey árið 1961 og ólst þar upp. Áður fyrr vann hann á börum á Man- hattan, auk þess sem hann reyndi fyrir sér í leiklistinni. í raunveru- leikanum er Gandolfini ólíkur Sopranos og vinir hans segja að ekki sé tO meira gæðablóð. Sjálfur segist hann vera ein taugahrúga: „Ég er í raun 200 punda Woody AOen.“ Hvað sem því líður þá er hann vin- sælasti mafiósinn í sjónvarpinu þeg- ar hann bregður sér í hlutverk Tonys Sopranos. Hann er ekki hrifinn af að ræða við blaöamenn og sagöi við einn slíkan: „Ég skO ekkert í því að þið skulið hafa áhuga á að tala við mig. Ég tel mig vera ósköp venjuleg- an mann sem fer í vinnu á morgnana og kemur heim á kvöldin. Þegar ég svo heyri mig segja eitthvað í sjón- varpinu eða sé eftir mér haft eitt- hvaö í blöðum þá kemur í ljós hversu lítt áhugaverð persóna ég er.“ James Gandolfini fékk eldskírn á Broadway í leikritinu Sporvagninn girnd árið 1992 og í kvikmyndinni True Romance árið 1993. Hann hefur þegar leikið í tuttugu kvikmyndum og verða hlutverkin stærri og stærri. „Persónurnar sem ég leik eru oft áhugaverðar en ég er það ekki. Ég er aðeins heppinn leikari þegar tekið er tOlit tO þess hvernig ég lít út.“ í frí- stundum leikur Gandolfini á trompet og saxófón. -HK Útivinna isumar! Leiöbeinendastörf með hressu, ungu fólki Viljum ráða leiðbeinendur í sumarstörf. Fjölbreytt og gefandi störf. Kjörin fyrir þá sem kraftur er í og kjósa útiveru og skemmtilegan félagsskap. Væntanlegir leiðbeinendur sækja námskeið í upphafi ráðningartímans, t.d. í stjórnun, vinnu með unglingum, ýmsum öryggismálum og verklegum störfum. Athugið að margvísleg reynsla og þekking fæst með þessum störfum, sem nýtist fólki vel, þegar horft er til framtíðar. Umsóknir og upplýsingar eru á heimasíðu skólans: www.vinnuskoli.is Nánari upplýsingar um sumarstörf í síma 563 2750 VINNUSKÓLI REYKJAVÍKUR Umhverfis- og heilbrigðisstofa Skúlagötu 19 »101 Reykjavík Sími 563 2700 • Fax 563 2710 Netfang: vinnuskoli@vinnuskoli.is Veffang: www.vinnuskoli.is mm live From Baghdad ★★★ Vstr/ Stríð í beinni Persaflóastríð gerði CNN að stórri sjón- varpsstöð. Fréttamenn- imir á vegum hennar í Bagdad voru þeir einu sem höfðu aðgang að símkerfi og gátu útvarp- að og sjónvarpað beint | ffá árás Bandaríkjanna. AOir sem höfðu tækifæri tO að fylgjast með CNN þessa nótt gleyma ekki Peter Amett, Bemhard Shaw og John HoU- iman sem greindu frá atburðum, lok- aðir inni á hótelherbergi. Þetta er hápunktur Live From Bag- hdad, sem byggð er á bók eftir Robert Wiener, en hann var stjómandi CNN- liðsins sem var í Bagdad og sá sem CNN má þakka fyrir að hafa verið með þessa yfirburði yfir aðrar frétta- stöðvar. Wiener hafði vingast við | upplýsingaráðherra Saddams, Naji, og verið svOcinn um viðtal við Saddam og sendur hálfgerða fyluferð tO Kúveits. TO að jafna sakimar fékk Naji honum símtæki sem kom sér síðan vel, nóttina þegar fyrstu árás- imar vora gerðar. Það var svo tekið | af honum daginn eftir. í myndinni fylgjumst við með Wi- ener og hans liði síðustu dagana fyrir stríð og fáum skýringar á ýmsu for- vitnUegu í sambandi við þessa ffægu útsendingu. Michael Keaton leikur Wiener af miklum krafti og er sérlega góður samleikur hans og Helen Bon- ham Carter sem leikur útsendingar- stjóra hans. Fyrir aUa þá sem hafa gaman að myndum um störf ffétta- manna á hættuslóðum er Live From Baghdad gullmoli og fer í flokk með gæðamyndum á borð við The Year of Living Dangerously, Under Fire og Welcome To Sarajevo. Eini gaUinn er að ég hefði vUjað fá meiri úttekt á Peter Amett sem elskar stríð. Hann kemur seint tO sögunnar og er sú per- sóna sem er hvað áhugaverðust. -HK Útgefandi: Skífan. Gefin út á myndbandi. Leik- stjóri: Mick Jackson. Bandarlkin, 2002. Lengd: 112 mln. Bönnuð börnum innan 12 ára. Leikar- an Michael Keaton, Helen Bonham Carter, Lili Taylor og David Suchet Scorched ★i Bankaran Hganga nægUega vel upp. Og þegar svartar kómed- íur hætta að vera fyndn- ar þá er stutt í stórslys- in. Leikstjóra Scorched, Gavin Grazer, tekst að sigla mUli skers og bára og þó að fyndnin í myndinni hefði átt að vera markvissari þá tekst sæmOega að tengja saman hina mörgu þrreði sem myndin hefúr. Scorched gerist í smábæ í miðri eyðimörk, hvar hef ég ekki hugmynd um, en örugglega ekki langt frá Las Vegas þar sem tvær persónur myndar- innar fara í helgarferð þangað. Persón- umar sem við fylgjumst með era öU starfsmenn bankans í bænum. Þrír starfsmenn sem hafa öU á mismunandi hátt farið iUa út úr samskiptum við bankastjórann, beint eða óbeint. ÖU hafa þau aðgang að hirslum bankans og hyggja á rán sitt í hveiju lagi og öU ræna þau bankann sömu nóttina án þess að verða vör hvert við annað. Jaihffamt sögunni af bankaránunum fáum við innsýn í persónulegt líf þeima sem er æði skraudegt. Woody Harrelson og John Cleese er finir gamanleikarar þegar þeir era með réttu setningamar. Hér er hvor- ugur þeirra fyndinn. Það er meira púð- ur í minna þekktum leikurum þó segja megi að leikarahópurinn upp tO hópa hafi ekki erindi sem erfiði. -HK Útgefandi: Skifan. Gefin út á myndbandi. Leik- stjóri: Gavin Grazer. Bandarikin, 2002. Lengd: 95 mln. Leyfö öllum aldurshópum. Leikarar Alicia Silverstone, Woody Harrelson, Rachel Leigh Cook og John Cleese.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.