Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2003, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2003, Qupperneq 32
£A3 10 PANORAMA afsláttur af 20 hurðartegundum .... miðstöð innréttinga Grensásvegi 8 • 108 Reykjavik Sandblásin filma á gler fyrir heimahús og fyrirtceki w w w . a r + i s . i s Skilti - Ljósaskil+i - Bílamorklngar - Límmiðaprentun UMaamuBaaamaBtBmmmmammmmmBamaBBBMmaammmmmmaBammmmmtmamaammimBmammæMMasamamBamœm Bikarme istarar í»lífc'unri Frábær varnarleikur og óbilandi sigurvilji skilaði Valsmönnum bikarmeistaratitli í 2. flokki karla í handbolta í gær. Eftir að hafa tekið við verðlaununum brugðu nokkrir leikmanna Vals á leik. # DV-SPORT BLS. 26 -Skyit verður að upplýsa um kaupauka Forstjóri Samherja um ESB og sjávarútveg: Möguleg áhrif íslands eru ofmetin Framvegis veröur skylt aö upp- lýsa um kaupauka og kaupréttar- ákvæði í samningum islenskra fyrirtækja stjómenda samkvæmt ínýjum reglum sem Kauphöll ís- lands kynnir á miövikudag. Þórð- ur Friðjónsson, forstjóri Kauphail- arinnar, segir að þegar sé búið að samræma helstu reglur sem varða starfsumhverfi, upplýsingaskyldu og fleira til samræmis við reglur sem gilda í helstu kauphöllum í kring um okkur, ekki síst þeim norrænu. Þóröur var spurður hversu al- gengir kaupaukar væru í samning- um íslenskra fyrirtækjastjómenda. „Ég hef ekki á reiðum höndum um hversu algengt það er. En það er nokkuð um það hjá íslenskum fyrirtækjum eins og erlendum. Þá eru í gildi einhvers konar árang- urstengdir samningar. En það er síður en svo algilt,“ sagði Þórður við DV í morgun. - Hvemig er upplýsingagjöf háttað um þessa samninga? , „Það hafa ekki verið mjög skýr- ar reglur í gildi varðandi slíka samninga en stjóm Kauphallar- innar hefur samþykkt nýjar reglur sem kynntar verða á miðvikudag." Vísað var í reglur sænsku kaup- hallarinnar þegar kaupauki Sig- urðar Einarssonar, forstjóra Kaup- þings banka, var gerður opinber. Þórður var spurður hvemig upp- lýsingu væri háttað þegar fyrir- tæki lytu bæði reglum erlendra kauphalla og þeirrar íslensku. „Hver kauphöll setur sínar eigin reglur hvaö þetta varðar en það er mikið samstarf milli norrænu kauphallanna í gegn um sameigin- legt fyrirtæki, Norex. Þegar er búiö að samræma helstu reglur þessara kauphalla." - Verður þá framvegis skylt að upplýsa um kaupréttarákvæði og ákvæði um kaupauka í ráðningar- samningum íslenskra fyrirtækja- stjómenda? „Já, það verður það samkvæmt nýju reglunum.“ -hlh „Það sem vegur þyngst i afstöðu minni er að ég tel að við séum svo litl- ir að við munum ekki hafa þau áhrif sem talað er um heldur mun ákvörð- unarvaldið færast til Brussel. Sjávar- útvegur í ESB er ekkert lítill heldur mörgum sinnum stærri en hér, og á sumum svæöum í ESB hefur hann ná- kvæmlega sömu þýðingu og hér á ís- landi. Þannig að sú hugmynd að við munum setjast í eitthvert leiötogasæti finnst mér vera hálfgerð firring og kannski lýsa því hvað sumir eru langt frá raunveruleikanum," segir Þor- steinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, um hugsanlega ESB-aðild út frá hagsmunum sjávarútvegsins, en þau mál ræddi hann á opnum fundi hjá Samfylkingunni á laugar- dag. Önnur ástæða sem Þorsteinn Már nefhir fyrir andstöðu sinni við ESB- aðild er mikill ágreiningur um deilistofna, þ.e. úthafskarfa, grálúðu, kolmunna, síld og fleiri tegundir. Á hinn bóginn segir hann að það sé skemmtilegra að vinna í sjávarútvegi innan ESB. „Ég heyri aldrei sagt eitt einasta jákvætt orð um okkur hér á íslandi og það sem við erum að gera. í Evrópusambandinu er jákvæðara andrúmsloft gagnvart greininni, það er ekki verið að rífast um hvað sé rétt og hvað rangt í kerfinu heldur eru menn studdir og hvattir áfram,“ segir Þorsteinn. , ‘Bónstöcfín IS-TEFLON Bryngljái - lakkvörn HyrjorhöfSi 7 • Sími 567 8730 Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, sagði í grein í DV fyrir helgi að það markaði „nokkurs konar kaflaskil" að Þorsteinn Már skyldi ætla að ræða þessi mál á opn- um fundi enda væri tímabært að stjórnmálaflokkar og sjávarútvegur- inn opnuðu samræður um Evrópu- mál. „Ég var fyrst og fremst að upplýsa menn um fyrirkomulag sjávarútvegs- ins i ESB og mér þykir sjáifsagt að mæta á fundi til að ræða þessi mál,“ segir Þorsteinn Már. „Mér finnst það ekki kaflaskii heldur tel ég það skyldu mína að fara yfir þessi mál með al- þingismönnum ef þeir óska eftir því.“ -ÓTG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.