Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2003, Qupperneq 2
2
MÁNUDAGUR 3. MARS 2003
x>v
Fréttir
Davíö Oddsson forsætisráöherra um Baugsfeðga í Útvarpsviötali í morgun:
VUu bjóða mér 300 miiónir
Þorgeir Baldursson, stjórnarmaöur í Baugi:
Trúnaðapbnestup innan stjóraar
- verður aö rannsaka hvaöan lekinn kemur
Davíö Oddsson sagöi í beinni
útsendingu í samtali við Óöin
Jónsson á morgunvakt Rásar tvö
í morgun að Hreinn Loftsson
hefði greint sér frá því á fundi
þeirra fyrir rúmu ári að forstjóri
Baugs hefði getið þess við hann
að það þyrfti að bjóða sér þrjú
hundruð milljónir króna gegn
því að hann léti af ímyndaðri
andstöðu við Baugs-fyrirtæki.
Davíð segir ekkert hæft í frá-
sögn Fréttablaðsins fyrir helg-
ina um að komið hefði fram í
samtali við þáverandi stjórnar-
formann Baugs að hann vissi
um Jón Sullenberger og búast
mætti við aðgerðum gegn Baugi
eins og greint var frá í Frétta-
blaðinu fyrir helgina. „Þann
mann hafði ég aldrei heyrt
nefndan á þeim tíma og það var
flsískur ómöguleiki að ég nefndi
hann á nafn, því nafnið hafði ég
aldrei heyrt.“
Allt sett upp
- „Þetta er allt saman sett
upp, bersýnilega, þessar svokall-
aðar fréttir Fréttablaðsins. Þetta
eru frekar aðgerðir en fréttir.
Það er augljóst að forráðamenn
Baugs skaffa fundargerðir og e-
mail og þess háttar fyrir blaðið.
Enda kvarta þeir ekkert yfir því
þó einhver maður hafi komist
yfir fundargerðir þeirra og per-
sónulegan e-mail. Eins og við
þekkjum úr fyrirtækjum þá
hefðu þau orðið vitlaus ef ein-
hverjir fréttamenn væru búnir
að ná tökum á einhverju slíku,
en þarna er ekki gerð nein at-
hugasemd við það enda augljóst
hverjir eru að fóðra þetta og láta
slíta þetta allt saman úr sam-
Þung orö
„Ég get sagt þér frá því aö á þessum fundi okkar Hreins Loftssonar, fyrst þú ert að nefna þaö, sagöi hann mér frá því aö
Jón Ásgeir í Baugi heföi sagt viö sig aö þaö þyrfti aö bjóöa mér þrjú hundruö milljónir króna gegn því aö ég léti af ímynd-
aöri andstööu viö Baugs fyrirtæki. Ég lét nú Hrein segja mér þetta tvisvar. “ Davíö Oddsson í viötaii viö Óöinn Jónsson
fréttamann í nýjum morgunþætti Útvarpsins í morgun.
hengi eins og Þorgeir, forstjóri
Odda, og rektor Háskólans í
Reykjavík hafa bent á. Þannig
að þetta er ekki fréttamennska,
þetta er eitthvað allt, allt ann-
að.“
- Hafði Hreinn ekki ástæðu til
að óttast aðgerðir vegna samtala
við þig?
„Ég held að þetta sá allt sam-
an gert til að ýta undir það sem
talsmaður Samfylkingarinnar
byrjaði svo óheppilega á í Borg-
arnesi að fjalla um, það sem hún
kallaði orðróm eða gróusögur,
og byggja ræður sínar á því. það
sé verið að reyna að sanna það
að ég hljóti að hafa þekkt þetta
nafn á þessum manni og þar
með sé komin svona einhver
sönnun fyrir því að ég hafi und-
irbúið allar þessar innrásir í öll
þessi fyrirtæki. Það er nú dálít-
ið skrýtið að ef ég er á sama
tíma að undirbúa innrásir í öll
þessi fyrirtæki og skipa lög-
reglumönnum og öllu þessu sem
Þorgeir Baldursson, stjómarmað-
ur í Baugi hf. segir að eðlilegt sé aö
rannsakað sé hvaðan leki úr stjóm
félagsins sé kominn en augljóst sé
að trúnaðarbrestur hafi orðið innan
stjómarinnar. Fréttablaðið birti síð-
astliðinn laugardag frétt rnn fund
Hreins Loftssonar, stjórnarfor-
manns Baugs og Davíðs Oddssonar
forsætisráðherra í London í janúar
á liðnu ári. Þar er vitnað í fundar-
gerðir stjórnar og birt afrit af fund-
argerð sem og afrit af tölvupósti
Hreins Loftssonar til stjómenda
Baugs þar sem hann varar við að-
gerðum opinberra aðila gegn fyrir-
tækinu og að einungis sé tímaspurs-
mál hvenær lögregla, skattayfirvöld
og Samkeppnisstofnun legðu til at-
lögu við Baug, verið væri aö brýna
þessa aðila til aðgerða..
Því er haldið fram að
Hreinn Loftsson, stjómarfor-
maður Baugs, hafi greint Jó-
hannesi Jónssyni, Jóni Ásgeiri
Jóhannessyni forstjóra og
Tryggva Jónssyni, þáverandi
aðstoðarforstjóra Baugs, ífá
því að Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra hafi nefiit nafn Jóns
Geralds Sullenbergers og fyrir-
tæki hans Nordica þrátt fyrir að
hann hafi síðar sagt að hann hefði
fyrst heyrt um hann getið í tengslum
við lögreglurannsókn. Þá á forsætis-
ráðherra átt að hafa sakað Jóhannes
og Jón Ásgeir um spillingu.
Þorgeir Baldursson, forstjóri
prentsmiðjunnar Odda og stjómar-
maður í Baugi, segir augljóst að
trúnaðarbrestur hafi orðið innan
stjómarinnar.
„Eg get ekki litið öðru-
vísi á máliö,“ segir Þorgeir
Baldursson, stjómarmaður
í Baugi aðspurður um
hvort trúnaðarbrestur hafi
orðið innan stjórnar Baugs.
„Með birtingu þessara
gagna hefur augljóslega
orðið trúnaðarbrestur inn-
an stjómar, eða jafnvel hef-
ur þessum uppýsingum verið
komið út úr fyrirtækinu af öðrum.
Ég hef ekki komist að því hvaðan,
en það er ijóst í minum huga að
eitthvaö er ekki eins og það á að
vera. Það er eðlilegt að stjórnin
láti rannsaka og skoða hvaðan
lekinn kom. Það er alveg kristal-
tært.“
- Munt þú sitja áfram í stjórn
þrátt fyrir þetta?
„Það hefur ekki komið til um-
ræðu, stjórnarformaðurinn er er-
lendis, og við því ekki getað ráðið
ráðum okkar. Ég geri mér heldur
ekki ljóst hvað verður næsta
skrefið í málinu. En það er ljóst að
það er töluvert verið að slíta hlut-
ina úr samhengi og tengja þessa
hluti saman við fund Hreins Lofts-
sonar og Davíðs Oddssonar á sín-
um tíma. Það er mjög óeðlilegt að
setja hlutina svona upp og taka
upp einhverjar tilvitnanir af allt
öðrum tilefnum þegar verið er að
ræða almennt um stjómmála-
menn og t.d. þeirra afstöðu til for-
svarsmanna í viðskiptalífinu. Það
hefur alls ekkert með fund þeirra
Hreins og Davíðs að gera,“ segir
Þorgeir Baldursson. -GG
Þorgelr
Baldursson.
ég hef ekkert boðvald yfir að
gera alla þá hluti, þá sé ég með
átta mánaða fyrirvara að vara
Hrein Loftsson við þannig að
þeir geti nú búið í haginn og
falið öH gögn og þess háttar
áður en ég hafi látið innrásina
koma. Það stangast hvað á ann-
ars horn í öHum þessum tilfær-
ingum. Þetta blað er náttúrlega
notað hins vegar gagngert af
hálfu þessa fólks í kosningabar-
áttu. Það er enginn vafi á því að
þeir telja sig þurfa að fá stjóm-
völd í landinu sem fara betur í
vasa en ég geri.“
300 milljóna mútur!
- Leggur þú einhverja sér-
staka fæð á Baugsveldið eða að-
aleigendur þess sérstaklega?
„Nei, ég geri það út af fyrir sig
ekki. Hins vegar hef ég mjög lít-
ið álit á þeim mönnum. Ég get
sagt það og hef ríkar ástæður tfi
þess. Ég get sagt þér frá því að á
þessum fundi okkar Hreins
Loftssonar, fyrst þú ert að nefna
það, sagði hann mér frá því að
Jón Ásgeir í Baugi hefði sagt við
sig að það þyrfti að bjóða mér
þrjú hundruð mUljónir króna
gegn því að ég léti af ímyndaðri
andstöðu við Baugs-fyrirtæki.
Ég lét nú Hrein segja mér þetta
tvisvar. Og hann sagði mér það
tvisvar að hann hefði nefnt við
sig, Jón forstjóri, að það þyrfti
að bjóða mér þrjú hundruð
mifijónir króna. Ég var nú svo
þrumulostinn og Hreinn sá það
nú og sagðist hafa sagt við for-
stjórann; þú þekkir ekki forsæt-
isráðherrann. Það þýðir ekkert
að bera á hann fé. Þá hafði Jón
þessi, að sögn Hreins Loftsson-
ar, sagt: Það er enginn maður
sem stenst það að fá þrjú hundr-
uð mfiljónir sem hvergi koma
fram, hvergi er greiddur skattur
af og er lagðar bara inn á reikn-
ing hvar sem hann vfil í heimin-
um. - Það var nú þögn við þetta
og þá sagði ég við Hrein: Maður
sem getur hugsað sér að reyna
svona að orða það að það sé bor-
ið fé á forsætisráðherra, á
hverja er hann búinn að bera fé?
Og þá sagði Hreinn við mig. -
Já, á þessu augnabliki ákvað ég
að segja af mér sem stjómarfor-
maður Baugs á næsta stjórnar-
fundi, sem hann og gerði. Nú
segir Hreinn mér að hann telji
að þessi orðaskipti hafi verið
sögð í hálfkæringi af Jóni Ás-
geiri, en ekki meiri hálfkæringi
þó en það að Hreinn sagði við
mig að hann hefði ákveðið á
þessu augnabliki að segja af sér
sem stjórnarformaður Baugs á
næsta aðalfundi, sem hann
gerði. Þannig að það er ekki að
ástæðulausu að ég hef ekki mik-
ið álit á þessum mönnum."
-HKr.
Stuttar fréttir
Stóru flokkarnir jafnir
Ríkisstjómin heldur veUi sam-
kvæmt nýrri könnun Fréttablaðs-
ins. Stjórnin fengi þrjátíu og þijá
þingmenn en stjórnarandstaðan
þrjátíu. Samkvæmt könnuninni
mælast Samfylkingin og Sjáifstæð-
isflokkurinn með svipað fylgi og
fengju báðir flokkarnir tuttugu og
fimm þingmenn úr kosningum nú.
Mikil aukning í bílasölu
Rúmlega fimmtíu prósent aukn-
ing hefur orðið í sölu nýrra bUa
það sem af er árinu. Salan í febrú-
ar jókst um 50,2 % miðað við sama
tíma í fyrra. Nýskráðir bílar í
febrúar í fyrra vorú 486 en 730 í
ár. Mbl. greindi frá.
Fjörutíu prósent íslendinga i
megrun
Samkvæmt skoðanakönnun
GaUup hafa fjórir af hverjum tíu
íslendingum reynt að léttast síð-
astliðið ár. Umræða um megrun
og megrunarkúra í fjölmiðlum
undanfarna mánuði er ástæða
þess að GaUup ákvað að taka púls-
inn á þessu máli.
íslensk flugstjórn í Pristina
íslenska friðar-
gæslan tekur við
flugumferðar-
stjórn á flugvellin-
um í Pristina í
Korsovo í dag.
Halldór Ásgríms-
son utanríkisráð-
herra tekur form-
lega við stjórn vallarins fyrir
hönd friðargæslunnar. Stefnt er
að því að Sameinuðu þjóðimar
taki við stjórn vallarins með
heimamönnum um mitt næsta ár.
Fréttablaðið greindi frá.
Dísilolía hækkar
Olíufélagið ákvað hækkun á
dísilolíu um 2,30 krónur lítrann og
flotaolíu um 2,20 krónur í gær en
verð á bensíni og svartolíu helst
óbreytt. Mbl. greindi frá.
Skrifstofa SÞ hafi aðsetur hér
Siv Friðleifs-
dóttir umhverfis-
ráðherra ætlar að
beita sér fyrir því
að skrifstofa Sam-
einuðu þjóðanna
um varnir gegn
mengun í hafi fá
aðsetur hér á
landi. Málið er enn á frumstigi en
Siv telur ekki óeðlfiegt, í ljósi þess
að ísland hafi haft forystu í
barráttunni gegn mengun sjávar,
að skrifstofan veröi hér á landi.
-Kip