Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2003, Page 24
48
MÁNUDAGUR 3. MARS 2003
Tilvera DV
LJÖSMYNDIR 8RJANN BALDURSSON
Tveir borgarstjórar
Ingibjörg Sólrún hefur sem kunnugt er nýlega látiö af störfum sem borgar-
stjóri. Þórólfur Árnason, sem sestur er í sæti hennar, mætti á sýninguna í
Það
Geröubergi.
Ingbjöng
Sólrún vill sjá
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir velur
sína eftirlætislistamenn á sýninguna
Þetta vil ég sjá! í Gerðubergi. Sýning-
in var opnuð á laugardaginn og kom
fjöldi manns til að fagna sýningunni
og sjá hvað væri í uppáhaldi hjá fyrr-
verandi borgarstjóra.
Á sýningunni er að finna verk eft-
ir tuttugu og tvo íslenska listamenn.
Einnig eru nokkur verk úr eigu Ingi-
bjargar sjálfrar. Fjölbreytnin er mik-
il og má t.d. finna á sýningunni inn-
setningar, skúlptúra, ljósmyndir, lág-
myndir, glerverk, líkan og margt
fleira. Verkin eru frá árunum
1989-2003
Þeir listamenn sem eiga verk á
sýningunni eru: Anna Líndal, Bryn-
hildur Þorgeirsdóttir, Dagur Sigurð-
arson, Eggert Pétursson, Gabríela
Friðriksdóttir, Georg Guðni, Guð-
mundur Ingólfsson, Guðrún Einars-
dóttir, Guðrún Kristjánsdóttir, Haf-
Meö rautt nef
Halldóra Geirharösdóttir leikkona,
sem felur sig undir rauöu trúösnefi,
viröir fyrir sér listaverk sem Ingibjörg
Sólrún hefur valiö.
steinn Austmann, Hallgrímur Helga-
son, Hulda Hákon, Húbert Nói, Hmur
Stefánsdóttir, Kristín Blöndal, Ólöf
Nordal, Ragna Róbertsdóttir, Rúrí,
Sigurður Guðmundsson, Spessi,
Steinunn Þórarinsdóttir og Tumi
Magnússon. -HK
Ekki við eina fjölina felldur
Landsliðsfyrirliði Þjóðverja í
knattspyrnu og einn besti mark-
vörður heimsins, Oliver Kahn, á
von á sínu öðru bami með eigin-
konu sinni, Simone. Um sama
leyti komst einhver að því að það
væri önnur kona í líf Kahns og
hefur hann nú gengist við því.
„Þetta er sannleikur. Ég á við
vandamál að stríða. Það er önnur
kona I lífi mínu og ég hef rætt
þessi mál við eiginkonu mína.
Konan sem um ræðir mun vera 21
árs gömul og hafði unnið sem
þjónustustúlka í næturklúbb í
Munchen sem Kahn hafði heim-
sótt ásamt félögum sínum.
DV-MYND BRJÁNN BALDURSSON
Bubbi á borglnni
Sá margheiöraöi tónlistarmaöur og sá tónlistarmaður sem selt hefur flestar
plötur á íslandi, Bubbi Morthens, ætlar aö halda nokkra tónleika á Hótel
Borg á næstunni og voru þeir fyrstu á föstudagskvöld. Veistan hófst meö dýr-
indis kvöldveröi og eftir aö gestir höföu snætt steig Bubbi á sviö með gítar-
inn og söng mörg afsínum þekktustu lögum ásamt nýjum viö mikinn fögnuö
gesta. Tókust hljómleikarnir mjög vel og þarna litu dagsins Ijós meöal annars
lög sem Bubbi hefur ekki veriö meö á tónleikum í mörg ár.
REUTERS
Kjötkveöjuhátíöin hafin í Ríó
Drottning kjötkveðjuhátíðarinnar í Rio de Janeiro, Amanda Barbosa heilsar
vegfarendum á götum borgarinnar. Barbosa og Momo tóku sig til og kenndu
almenningi að dansa samba í gærkvöld.
J.K. Rowling verður
teiknimyndafígúra í
J.K. Rowling
mun verða gesta-
leikari í hinum
sívinsælu þáttum
The Simpsons.
Ekki kemur hún
sjálf fram eins og
flestir ættu að
vita, heldur verð-
ur gerð teiknimyndafígúra eftir
henni og mun Rowling sjálf radd-
setja sig. í þættinum sem Rowling
verður í mun Ian McKellan
(Gandálfur) einnig verða gerður að
teiknimyndafígúru þannig að ljóst
er að beðið verður með eftirvænt-
ingu eftir þessum þætti sem verður
ekki sýndur fyrr en i nóvember
eða desember. í þættinum þarf
Rowling að svara hinni gáfuðu
Lisy Simpson. Það sem Lisa meðal
annars spyr um er hvemig Harry
Potter-serían endar.
Vill ekkí leika
Superman
í síðustu viku var talið nær ör-
uggt að hinn 24 ára
gamli leikari Josh
Hartnett myndi
leysa Christopher
Reeve af hólmi og
leika Superman.
Fékk hann tilboð
sem ekki var hægt
að neita eins og
sagt er á bisnessmáli. Hartnett sá
sig samt um hönd og hefur gefið út
þá yfirlýsingu að hann ætli ekki að
leika Superman. Þetta setur allt á
annan endann i gerð myndarinnar
og nú eru helst taldir koma til
greina Brendan Fraser, Paul Wal-
ker og sápuþáttaleikarinn Matthew
Bomer.
John Travolta:
Lífip í eigin stjörnuheimi
John Travolta hefur átt sínar
lægðir og hæðir og sjáifsagt hefur
engin kvikmyndastjarna náð jafn
miklum hæðum og hann gerði eft-
ir að hafa verið í mikilli lægð og
verið nánast afskrifaður í mörg
ár. Með Pulp Fiction og fleiri
myndum náði hann toppnum aft-
ur, en er nú á niðurleið eftir að
hafa leikið í nokkrum kvikmynd-
um sem hafa kolfallið. Þetta hefur
þó ekki haft áhrif á sjálfsálitið og
heimtar hann hærri laun en nokk-
ur annar leikari. Og það er sjálf-
sagt ástæðan fyrir því að hann
hefur ekki verið nefndur á nafn
þegar um stór hlutverk er aö
John Travolta
Heldur enn að hann sé í hæsta
launaflokki.
ræða. Sagan segir að hann hafi
haft undir höndum mjög gott
vestrahandrit, The Outlaws, sem
að sögn annarra er vel skrifað og
gæti orðið góð kvikmynd.
Ekkert hefur orðið úr gerð kvik-
myndarinnar enn sem komið er
vegna launakrafna Travolta (hann
á handritsréttinn). Hafa öll stóru
kvikmyndafyrirtækin fengið til-
boð um að gera myndina, en neit-
að. Ástæðan er að Travolta setur
upp launakröfu upp á 23 milljónir
dollara auk kostnaðar sem hann
reiknar að verði 4 milljónir dollar-
ar. Þetta hefur farið fyrir brjóstið
á ráðamönnum og sagði einn
þeirra: „Það er ekki eins og Pulp
Fiction hafi verið gerð í gær.“
Eftirsótt sjón-
varpsstjarna
Ein vinsælasta sjón-
varpsleikkonan í
Bandaríkjunum er He-
ather Locklear. Hún er
ekki aöeins vinsæl hjá
áhorfendum heldur
einnig sjónvarpsþátta-
framleiðendum þar
sem heillastjarna virð-
ist vera yfir þeim sjón-
varpsseríum sem hún
leikur í. Nú þegar ljóst
er að hætt verður að
gera Spin City þar sem hún hefur
verið aðalaðdráttaraflið ásamt
Charlie Sheen þá keppast sjón-
varpsstöðvarnar um
hana, en meðal sjón-
varpssería sem hún
hafði áður leikið í
voru Dynasty og Mel-
rose Place. Það virðist
nú sem NBC-sjón-
varpsstöðin hafi farið
með sigur af hólmi og
hefur Locklear sam-
þykkt að leika aðal-
hlutverkið í sjón-
varpsseríu sem hefur
hlotið heitið Once Around the
Park. Þar mun hún leika einstæða
móður tveggja bama.
Afangasigur
hjá Jackson
Michael
Jackson vann
áfangasigur í bar-
áttu sinni gegn
því að Granada-
sjónvarpsstöðin í
Bretlandi sýni
óbirt efni úr hin-
um umdeilda
sjónvarpsþætti Living with Mich-
ael Jackson. Það voru lögfræðing-
ar beggja aðila sem komust að
þessu samkomulagi. Þetta eru þó
engin endalok því samkomulagið
felur í sér að myndskeiðin sem
um ræðir verði geymd undir lás
og slá hjá Granada þar til lokayf-
irheyrslur verða 31. mars og á
meðan hefur Granada einnig
samþykkt að gefa ekki út þáttinn
á myndbandi eða DVD.