Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2003, Blaðsíða 4
4
MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 2003
Fréttir DV
DV kannar afstööuna til starfsemi erótískra nuddstaöa:
Þjóðin klofin gagnvart banni
Bann viö erótískum nuddstööum
Þeir sem afstööu tóku
Karlar
Konur
r
' 56,3%
L 43,7%^
n Fylglandl [~] Andvíglr
Jafnmargir eru fylgjandi því að
erótískir nuddstaðir verði bannað-
ir og að þeir verði leyfðir. Ekki er
marktækur munur á þessum hóp-
um. Hins vegar er marktækur
munur á afstöðu kynjanna þar sem
meirihluti karla er andvígur því að
erótískir nuddstaðir verði bannað-
ir en meirihluti kvenna er hins
vegar fylgjandi banni. Þessar nið-
urstööur má lesa úr skoðanakönn-
un DV sem gerð var á mánudags-
kvöld
Spurt var: Ertu fylgjandi eða
andvíg(ur) banni við starfsemi eró-
tískra nuddstaða? Úrtakið var 600
manns, jafnt skipt milli kynja og
hlutfallslega milli höfuðborgar-
svæðis og landsbyggðar.
Af öllu úrtakinu sögðust 45,8 pró-
sent fylgjandi banni við starfsemi
erótískra nuddstaða, 43,8 prósent
sögðust andvíg slíku banni, 7,2 pró-
sent voru óákveðin og 3,2 prósent
neituðu að svara. Það þýðir að tæp-
lega 90 prósent tóku afstöðu til
spurningarinnar.
Af þeim sem tóku afstöðu reynd-
ist 51,1 prósent fylgjandi banni við
starfsemi erótískra nuddstaða en
48,9 prósent andvíg.
Konur vilja frekar bann
Þegar afstaða kynjanna er skoð-
uð reyndust 45,6 prósent karla
fylgjandi banni en 54,4 prósent and-
víg. Hjá konunum snýst þetta við
en 56,3 prósent þeirra reyndust
fylgjandi banni en 43,7 prósent and-
víg. Við þetta er að bæta að konur
voru ákveðnari í afstöðu sinni þar
sem 7,6 prósent þeirra reyndust
óákveðin eða svöruðu ekki á móti
13 prósentum karla.
Það er einnig marktækur munur
þegar afstaða til erótískra nudd-
staða er greind eftir búsetu þannig
að færri eru fylgjandi banni á höf-
uðborgarsvæðinu en mun fleiri á
landsbyggðinni. 46,3 prósent íbúa
höfuðborgarsvæðisins eru fylgjandi
banni en 53,7 prósent andvíg. Á
landsbyggðinni snýst dæmið alveg
við þar sem 59,1 prósent er fylgj-
andi banni við starfsemi erótiskra
nuddstaða en 40,9 prósent andvíg.
Spurningin virtist hins vegar vefj-
ast frekar fyrir kjósendum á lands-
byggðinni en 15,4 prósent þeirra
reyndust óákveðin eða svöruðu
ekki á móti 7 prósentum á höfuð-
borgarsvæðinu.
Ráðherra í herferð
Áþreifanlegar tillögur um bann
við erótískum nuddstofum hefur
ekki komið fram en ljóst er af könn-
un DV að þjóðin er klofin í þeim
efnum. í DV á mánudag mátti hins
vegar lesa að dómsmálaráðherra
ætlaði í herferð gegn kynlífsiðnað-
inum á íslandi, þar á meðal nudd-
stofum þar sem boðið er upp á nak-
ið nudd og DV hefur greint ítarlega
frá.
„Við höfum beint þeim tilmælum
til lögreglu að skoða þessi mál í
kjölfar ykkar umfjöllunar," sagði
Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráð-
herra við DV á mánudag.
Dómsmálaráðherra sagði að lög-
regla færi með eftirlit á fyrirbærum
sem þessum svokölluðu nuddstof-
um. Hún myndi væntanlega skoða
þá starfsemi sem þar færi fram.
„Lögreglan hefur verið að fylgjast
með þessari starfsemi," sagði dóms-
málaráðherra. „Eftir ykkar umfjöll-
un beindum við þessum tilmælum
til hennar. Mér fmnst það nokkuð
sérstakt að þetta skuli vera að skjóta
rótum hérna. En þetta er kannski
þáttur í því að við erum orðin hluti
af alþjóðasamfélaginu." -hlh
Mælir dýptina á
Malavívatni
Forstjóri Landhelgisgæslunnar,
Hafsteinn Hafsteinsson, og fram-
kvæmdastjóri Þróunarsamvinnu-
stofnunar, Sighvatur Björgvinsson,
hafa undirritað samstarfssamning
við Mælingastofhun Malaví um að-
stoð Landhelgisgæslunnar við dýpt-
armælingar og kortagerð af Malaví-
vatni. Samningurinn gildir til árs-
loka 2004.
Forstjóri gæslunnar og forstöðu-
maöur sjómælingasviðs stofnunar-
innar eru nú staddir í Monkey Bay
í Malaví í boði Þróunarsamvinnu-
stofnunar þar sem samningurinn
var undirritaður. -GG
Fnáleitt að Ingibjörg
Sólpún hafi neitað að
mæta Halldóri
Það er aldeilis
fráleitt að Ingi-
björg Sólrún hafi
neitað að mæta
Haildóri Ásgríms-
syni í sjónvarp-
inu eins og hann
hélt fram í DV í
gær. Samfylking-
in bað um að
kappræða þeirra
yrði færð til um
fáeina daga vegna anna Ingibjargar
Sólrúnar. Af alkunnri fómfýsi sinni
og bræðraþeli tók Halldór Asgríms-
son vel í það og þessi sjónvarpsþátt-
ur verður í næstu viku,“ segir Karl
Th. Birgisson, framkvæmdastjóri
Samfylkingarinnar, vegna ummæla
Halldórs Ásgrímssonar utanríkis-
ráðherra í DV í gær en þar hélt
Halldór því fram að Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir ætlaði ekki að mæta
sér í Kastljósþætti eins og til stóð.
„Það er hins vegar frétt aö Davíð
Oddsson hefur neitað að mæta í
slíka kappræðu við Ingibjörgu Sól-
rúnu og vill senda varamann í sinn
stað. Það ber ekki vott um mikið
sjálfstraust hans gagnvart konunni
sem frelsaði Reykjavíkurborg úr
höndum Sjálfstæðisflokksins, ef
hann treystir sér ekki til að leyfa
kjósendum að bera þau saman
hvort á móti öðru. Því hefði maður
ekki að óreyndu trúað á formann
Sjálfstæðisflokksins, segir Karl Th.
Birgisson. -aþ
Karl Th.
Birgisson.
DV-MYND SIGURÐUR JÓKULL
Páskaeggin búin til
Hér sést starfsmaður Nóa-Síríusar setja gsm-síma í páskaegg
Sérpöntuð páskaegg:
Demantshringir og símar í eggin
„Það er mjög mikið um að fólk
vilji setja alls konar hluti í páska-
eggin," sagði Sigfríð Þormar hjá
Nóa-Síríusi í samtali við DV í gær.
„Þetta eru alls konar hlutir eins og
gsm-símar, skartgripir og ástar-
kveðjur. Einn maður bað mig um
að skrifa fyrir sig lítinn miða þar
sem á stóð: Viltu giftast mér? og
fannst okkur það mjög skemmti-
leg. Það kostar ekkert að láta setja
aukahluti í páskaeggin, þetta er
bara skemmtileg þjónusta sem við
bjóðum upp á,“ sagði Sigfrið. „Það
kom nokkrum sinnum upp hér
áður að fólk vildi setja alls konar
skrítna hluti í eggin en nú er mest
um skartgripi og fallegar orðsend-
ingar. Fyrir nokkru kom maður
sem var að fara að gifta sig og vildi
að ég setti demantshring og tvo
miða í siglingu um Karíbahafið í
páskaeggið sitt. Það fannst mér
mjög hugljúft,“ sagði Sigfríð.
Hjá sælgætisverskmiðjunni
Mónu er einnig boðið upp á sér-
pöntuð páskaegg. „Margir biðja
okkur um að setja hluti í páska-
eggin og skemmtilegast fmnst okk-
ur að setja bónorð í þau,“ sagði
Jakobína Edda Sigurðardóttir
framkvæmdastjóri Mónu. „Fólk er
að senda alls konar kveðjur til
vina og vandamanna og einnig er
mikið um að skartgripir séu settir
í eggin. Það er aðeins erfiðara með
stærri hlutina því þeir komast
ekki inn um götin á eggjunum. Við
höfum selt fólki egg með lausum
tappa til þess að það geti sjálft sett
hluti í þau en þó verður að fara
varlega í þeim efnum. Við viljum
helst gera þetta sjálf þar sem við
berum ábyrgð á eggjunum," sagði
hún. „Þetta er bara hluti af þjón-
ustu okkar viö viðskiptavinina og
kostar ekkert aukalega. Við sett-
um einnig á markað fyrir um það
bil tveimur árum svokölluð ástar-
egg sem eiga að höfða meira til
eldra fólks. Þar eru málshættir og
allt nammi valið með ástina, vin-
áttu og fjölskylduna í huga,“ sagði
Jakobína.
„Við höfum séð nokkuð af því að
fyrirtæki kaupi páksaegg fyrir
starfsfólkið sitt og setji happdrætt-
ismiða í þau“ sagði tálsmaður
Góu. „Við setjum einnig hluti í
eggin fyrir einstaklinga og er alltaf
nokkur aðsókn í það hjá okkur.“
Símafyrirtækið Tal lætur einnig
sérframleiða fyrir sig páskaegg í
ár og sagði talsmaður fyrirtækis-
ins að þau væru ætluð fyrir
símaglaða páskaeggjaunnendur.
Samkvæmt upplýsingum blaðs-
ins biður fólk ekki aðeins um að
rómantískar orðsendingar og dem-
antshringir séu sett í páskaeggin
heldur er eitthvað um það að
gervilimir og önnur hjálpartæki
ástarinnar fái að fljóta með. Þá
dugar nú varla annað en stærstu
eggin. -EKÁ
DV-MYND SIGURÐUR K. HJÁLMARSSON
Stöðin opnuö
Umhverfisráöherra, Siv Friðleifsdótt-
ir, ýtir hér á hnapp og nýja sorp-
brennslustöðin tekur til starfa.
Kirkjubæjarklaustur:
Sorpið hitar upp
skóla og sundlaug
Sorpi sem leggst til á Kirkju-
bæjarklaustri og nágrenni, um
það bil tveim tonnum á dag, er
nú breytt í orku, 440 kílóvött á
dag. Siv Friðleifsdóttir umhverfis-
ráðherra ræsti nýverið nýja véla-
samstæða til sorporkubrennslu
en í stöðinni eru nú tvær vélar
til orkuframleiðslu og verður
hægt að framleiða 0,6 megavött
daglega þegar best lætur. Það
þýðir hita fyrir þrjár mikilvægar
og talsvert orkufrekar stofnanir.
Heita vatnið er leitt í hitakerfi
skóla og sundlaugar og síðar á
þessu ári verður það nýtt til að
hita upp nýtt íþróttahús sem þá
verður fullbyggt og er við hliðina
á sorporkustöðinni.
Talið er að heildarkostnaður
við að reisa nýju sorporku-
brennsluna á Klaustri nemi um
60 milljónum króna. Hreppsfélag-
ið fékk tvo myndarlega styrki til
að vinna verkið, frá Byggðastofn-
un og Orkusjóði. -JBP
Aukin umsvif eystra:
Lifnar yfir flugstöö-
inni á Egilsstöflum
Það er líflegt um að litast á Eg-
ilsstaðaflugvelli um þessar mund-
ir og má merkja það þar sem
annars staðar í fjórðungnum að
þensla á sér stað og mannlif er
með fjörugasta móti.
Frá 1. janúar til 27. mars jókst
farþegafjöldi hjá Flugfélagi ís-
lands um Egilsstaðaflugvöll um
11% frá því sem var í fyrra eða
úr 12.111 farþegum á þessum
tíma árið 2002 í 13.456 árið 2003.
Frá 1. mars til 27. mars síðastlið-
inn jókst fjöldinn um 15% frá því
sem var í fyrra eða úr 4.411 í
5.094 farþega.
Algengara er nú að vélar séu
orðnar fullbókaðar daginn fyrir
flug og þarf fólk að huga að því
að bóka sig fyrr í flug en áður.
Dagsferðarfarþegum hefur fjölgað
og kemur sú aukning einnig fram
hjá bílaleigunum, þar sem al-
gengt er að dagsferðarfarþegar
nýti sér þjónustu þeirra. Vegna
mikillar eftirspurnar hefur nú
verið bætt við ferð um miðjan
dag á mánudögum, auk þess sem
bætt verður við ferðum er nær
dregur páskum.
Að sögn Hlyns Elíssonar hjá
Flugfélagi íslands er félagið mjög
vakandi yfir nýtingartölum á
þessari flugleið og kemur til með
að bæta við ferðum ef eftirspurn
gefur tilefni til þess. -HEB