Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2003, Blaðsíða 34
34
MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 2003
Rofpóstur: dvsport@dv.is
- keppni í hverju oröi
Grandberg til Spánar
Kevin Grandberg, sem lék meö Kefla-
vík í Intersport-deildinni framan af-
vetri, er farinn til Spánar og hefur hann
gert samning við 4. deildar lið þar í
landi.
Grandberg spilaði sinn fyrsta leik í
fyrrakvöld og lék í 18 mínútur. Hann
gerði 13 stig og tók 8 fráköst á þeim tíma
sem verður að teljast gott þar sem hann
hefur ekki spilað frá því að honum var
sagt upp hjá Keflavík í byrjun janúar.
Grandberg fékk íslenskt ríkisfang sl.
sumar og lék með landsliðinu á milli
jóla og nýárs á móti í Lúxemborg. -Ben
Ótrúleg úrslit í Krikanum
- þegar Stjarnan sigraöi FH, 14-28, og tryggöi sér sæti í undanúrslitum
Stjarnan sigraði FH örugglega,
14-28, í öðrum leik liðanna í átta liða
úrslitum Essodeildar kvenna í hand-
knattleik sem leikinn var í
Kaplakrika í gærkvöld. Stjömustúlk-
ur sem sigmðu í fyrsta leik liðanna
á laugardaginn tryggðu sér meö
sigrinum leik í undanúrslitunum
þar sem þær mæta Haukum. FH-
stúlkur era hins vegar úr leik og
þurfa að upplifa þessa martröð sem
leikurinn var þeim í allt sumar,
frammistaða þeirra var fyrir neðan
allar hellur og ótrúlegt að lið geti
boðið upp á slíka frammistöðu í úr-
slitakeppninni og það á sínum
heimavelli. Það var aðeins fyrsta
stundarfjórðunginn sem FH sýndi
einhverja baráttu og í stööunni 6-7
kom vendipunkturinn í leiknum,
FH-stúlkur höfðu þá möguleika á að
jafna leikinn en þær misnotuðu
þrjár góðar tilraunir til þess og gest-
imir úr Garðabæ keyrðu þess í stað
fram úr FH og höfðu yfir, 7-13, í hálf-
leik. I síðari hálfleik var sama von-
leysið sem einkenndi leik FH á sama
tíma og allt gekk upp hjá Stjömu-
stúlkum. Þær héldu áfram að auka
forskot sitt og þegar þær komust í
9-18 þegar rúmar tíu mínútur vom
liðnar af síðari hálfleik þá gáfust FH-
stúlkur hreinlega upp, munurinn
var orðinn of mikill en hins vegar
var engin reisn yfir tapi þeirra.
Öruggt í restina
„Þetta var ömggt í restina en mað-
ur var aldrei ömggur fyrr en tíu
mínútur vom eftir og munurinn tíu
mörk. Við eram búnar að brenna
okkur á þvl oft í vetur og það kost-
aði okkur meðal annars annað sætið
og mér leið aldrei vel fyrr en þetta
var í raun búið. Við unnum heima-
vinnuna mjög vel og það gekk allt
eftir og ekkert sem kom okkur á
óvart. Það er ekki til heppni í íþrótt-
um og það sýndi sig í kvöld, við vor-
um að vinna vel og uppskárum eftir
því og FH-stelpurnar mættu hrein-
lega ofjörlum slnum hér í kvöld, þær
eiga Scimt hrós skilið fyrir frammi-
stöðu sína i vetur,“ sagði Matthías
Matthíasson, þjálfari Stjörnunnar,
að leik loknum.
í liði Stjömunnar átti Elísabet
Gunnarsdóttir mjög góðan leik á lín-
unni og Margrét Vilhjálmsdóttir stóð
sig einnig vel. Jolanta Jovanovic
varði vel og einnig Helga Dóra
Magnúsdóttir sem stóð í markinu
síðustu tíu mínútur leiksins. Hjá FH
var litiö um góða frammistöðu, þá
helst markverðirnir þær Jolanta
Slapikina og Kristin María Guðjóns-
dóttir sem stóðu fyrir sínu. Dröfn
Sæmundsdóttir kom ágætlega inní
síðari hálfleik en slasaðist á fæti þeg-
ar um fimm mínútur vora eftir og
var borin af leikvelli, meiðsli sem
litu út fyrir að vera alvarleg.
Mikil vonbrigði
„Þetta er þaö hrikalegasta í vetur
og mikil vonbrigði. Við komumst
aldrei í takt við leikinn og það var
ekki eitt heldur var það allt, sama
hvort það voru sendingar eða skot
eða hvaða atriði í handbolta sem er,
það var allt í mínus. Það er stutt í
spennufall þegar menn era búnir að
gera sér væntingar, en stundum er
þetta svona í handbolftanum, það
gengur allt upp öðram megin en ekk-
ert hinum megin,“ sagði Einvaröur
Jóhannsson, þjálfari FH.
-ÞAÞ
Jóna Margrét Ragnarsdóttir, leikmaöur Stjörnunnar, er hér ekki tekin neinum vettlingatökum af þeim Jónu Heimisdóttur og Hörpu Vífilsdóttir, en Elísabet
Gunnarsdóttir bíður átekta á línunni. Þessi varnarieikur FH-inga skilaði engu fyrir þær í gærkvöld og eru þær nú úr leik í Essodeildinni. DV-mynd E.ÓI.
Skyldusigur og kveðjutap
- þegar deildarmeistarar ÍBV slógu út Fylki/ÍR í átta liöa úrslitum Essodeildar kvenna
Deildarmeistarar ÍBV sigruðu
Fylki/ÍR, 28-23, í öðrum leik liðanna í
átta liða úrslitum íslandsmótsins í Ár-
bænum í gærkvöld. Leikurinn var fyr-
irfram álitinn skyldusigur gestanna.
Lítil leikgleði og barátta var í þeirra
liði. Annað var uppi á teningnum hjá
Fylki/ÍR því þar voru allir leikmenn
liðsins að berjast og leikgleöin skein
úr hverju andliti. Leikmenn liðsins
kvöddu þar með þjálfara sinn í vetur,
Gunnar Magnússon, i hans síðasta
leik með liðið með góöum leik.
Strax í upphafi leiks tóku heima-
stúlkur tvo leikmenn deildarmeistar-
anna úr umferð. Það virtist ekki ætla
að koma aö sök því ÍBV komst í 3-1 en
þá kom góður leikkafli Fylkis/ÍR sem
skoraði fjögur næstu mörk og náði 9-4
spretti á næstu 20 mínútum. Þar með
var staðan orðin 10-7 heimastúlkum í
vil.
Þjálfari Eyjastúlkna tók þá leikhlé
og á síðustu 7 minútum hálfleiksins
sneru þær leiknum sér í hag með 6-1
spretti. Á þessum leikkafla var Hekla
Daðadóttir tekin úr umferð hjá gest-
gjöfunum og virtist það há þeim tölu-
vert til að byrja með.
Munurinn á liðunum jókst í upp-
hafi síðari hálfleiks en það var samt
ekki fyrr en upp úr miðjum hálfleikn-
um að munurinn var orðinn þaö mik-
ill að sigurinn var orðinn öraggur og
varamenn ÍBV fengu að spreyta sig
síðustu mínútumar og héldu í horf-
inu. Hjá Fylki/ÍR var Hekla Daðadótt-
ir áberandi í vöm og sókn. Ema M.
Eiríksdóttir varði oft vel í markinu,
þar á meðal þrjú vítaköst.
I liði ÍBV var Anna Jákova at-
kvæðamest þrátt fyrir að vera tekin
úr umferð allan leikinn. Birgit Engel
var einnig sterk í vöm og sókn. Vig-
dís Sigurðardóttir varði nokkuð vel í
markinu. Það var samt greinilegt á
leik liðsins að um skylduverk var að
ræða. Lítil stemning var í liðinu. Þær
þurftu að standa lengstum leiksins í
vörn og þegar sóknarfærin komu var
asi á öllum aðgerðum fram eftir leik.
„Það er kannski erfitt að ná upp
stemningu í svona leik þar sem við
eigum að vinna. Við komum ekki
nógu vel stemmdar á meðan
stúlkurFylkis/lR komu alveg brjálað-
ar til leiks og eiga heiður skilið fyrir
baráttuna sem þær sýndu í þessum
leik. Það er ábyggilega rosalega gam-
an að vera í þeirra liði þar sem liðs-
heildin er svona sterk. Vonandi tekst
okkur að rífa okkur upp því annars
eigum við ekkert skilið að fara lengra.
Mér líst bara.vel á framhaldið, við er-
um alveg með liðið til að komast langt
en hausinn þarf bara að vera í lagi,“
sagði yigdís Siguröardóttir, mark-
vörður ÍBV.
„Mér fannst stelpumar spUa frá-
bærlega. Þær eru ungar og eru að
spila á sínu fyrsta ári og eru að spUa
í úrslitakeppninni á móti þessum leik-
mönnum ÍBV sem eru miklu reyndari
og mér fannst við bara spUa alveg
ótrúlega vel. Við þurftum að taka
tvær úr umferð vegna þess að við er-
um í meiðslum og öðru.
Okkur vantaöi mikinn líkamlegan
styrk þannig við urðum að mæta
þeim framarlega. Mér fannst það
ganga vel. Sóknarlega fannst mér
þetta ganga mjög vel nærri aUan leik-
inn en smáhikst kom þegar þær tóku
Heklu þama úr umferð eftir tuttugu
mínútur. Þar kannski snerist leikur-
inn því þær skoruðu fimm núU. Þetta
tímabU er búið að vara algjört ævin-
týri og það er rosaleg eftirsjá að þessu
liði. En þessar stelpur sönnuðu það að
þær eiga heima í þessari deUd og auð-
vitað er sárt að kveðja þær en hjá mér
tekur spennandi og erfitt verkefni
við,“ sagði Gunnar Magnússon sem er
að fara að þjálfa karlalið Víkings á
næsta tímabUi. -MOS
FH- Stjarnan 14-28
1-0, 2-5, 4-6, 6-7, (7-13), 7-15, 9-18, 10-21,
13-24, 14-28.
FH:
Mörk/viti (skot/víti): Harpa Vífilsdóttir 3
(3), Dröfn Sæmundsdóttir 3 (10), Björk Æg-
isdóttir 3/2 (10/3), Berglind Björgvinsdóttir
2 (2), Eva Albrecthsen 2 (4), Sigrún Gilsdótt-
ir 1 (3), Bjarný Þorvaröardóttir (1), Birna
Helgadóttir (1), Sigurlaug Jónsdóttir (3).
Mörk úr hradaupphlaupum: 1, Harpa.
Vítanýting: Skoraö úr 2 af 3.
Fiskuö viti: Dröfn, Björk, Sigrún.
Varin skot/viti (skot á sig): Jolanta
Slatikina 15 (40/2, hélt 5,37%), Kristín Guö-
jónsdóttir 2 (5, hélt 1 40%).
Brottvisanir: 4 míiiútur.
Dómarar (1-10):
Jónas Elíasson
Ingvar Guöjóns-
son (7).
GϚi leiks
(1-10): 4.
Á horfendur: 180.
Best á vellinum:
Elísabet Gunnarsd., Stjörnunni
Stjarnan:
Mörk/víti (skot/viti): Elísabet
Gunnarsdóttir 8 (8), Margrét
Vilhjálmsdóttir 6 (6), Amela Hegic 4/2
(11/2), Anna Einarsdóttir 3 (4), Sólveig Lára
Kjærnested 2 (4), Jóna Margrét
Ragnarsdóttir 2 (5), Rakel Bragadóttir 1 (2),
Júlíana 1 (5), Hind Hannesdóttir 1 (6).
Mörk úr hradaupphlaupum: 6, Elisabet 3,
Sólveig 1, Anna 1, Margrét 1.
Vitanýting: Skorað úr 2 af 2.
Fiskuó víti: Hind 2.
Varin skot/viti (skot á sig): Jelena
Jovanovic 13/1 (25/3, hélt 4, 52%), Helga
Dóra Magnúsdóttir 4 (6, hélt 2 67%).
Brottvisanir: 6 mínútur.
Stjarnan - FH 2-0
Fylkir/ÍR - ÍBU 23-28
0-1, 1-3, 5-3, 6-6, 10-7, (11-13), 11-15, 14-18,
15-20, 19-26, 23-28.
Fylkir/ÍR:
Mörk/viti (skot/viti): Hekla Daðadóttir 6/4
(12/5), Lára Hannesdóttir 5 (8), Hulda Guö-
mundsdóttir 3 (4), Tinna Jökulsdóttir 3 (8),
Soffía Rut Gísladóttir 2 (2), Valgeröur Árna-
dóttir 2 (4), Andrea Olsen 1 (1), Iris Ásta Pét-
ursdóttir 1 (1), Helga Pálsdóttir (1), Hrönn
Kristinsdóttir (5).
Mörk úr hraóaupphlaupum: 2 (Andra
Valgerður).
Vítanýting: Skoraö úr 4 af 5
Fiskuö viti: Tinna, Soöia, Hekla og Lára
Varin skot/viti (skot á sig): Ema M. Ei-
ríksdóttir 14/3 ( 42/6 , hélt 5, 33%).
Brottvisanir: 6 mínútur.
Best á vellinum:
Anna Yakova, ÍBV
ÍBV:
Mörk/viti (skot/viti): Anna Yakova 9/1
(12/2), Sylvia Strass 5/1 (6/1), Birgit Engl 4
(6), Edda Helgadóttir 2 (2), Ingibjörg Jóns-
dóttir 2 (4), Edda Eggertsdóttir 2/1 (4/1),
Anna Hallgrímsd. 1 (1), Þorsteina Sigur-
bjömsson 1 (3), Ana Perez (2/1).
Mörk úr hraöaupphlaupum: 6 (Yakova 3,
Sylvia 2, Þórsteina 1.
Vitanýting: Skoraö úr 3 af 6.
Fiskuö viti: Ingibj. 3, Edda, Birgit, Sylvia.
Varin skot/víti (skot á sig): Vigdís
Siguröuardóttir 15/1 (38/4, hélt 9, 39%).
Brottvisanir: 2 mínútur.
ÍBV—Fylkir/ÍR 2-0
Dómarar (1-10):
Júlíus Sigurjóns-
son og Magnús
Bjömsson (7).
GϚi leiks
(1-10): 6 .
Áhorfendur: 150.
Leyfiskerfi KSÍ:
Leyfisráð
frestar fundi
Leyfisráö kom saman í dag, en
samkvæmt leyfishandbók KSÍ skal
úrskurður leyfisráðs liggja fyrir eigi
síðar en 1. apríl. Leyfisráð ákvað að
fresta fundi þar sem Knattspymu-
samband Evrópu, UEFA, hefur ekki
formlega samþykkt leyfishandbók
KSÍ. UEFA hefur lýst því yfir að
fyrstu leyfishandbækur knatt-
spymusambanda í Evrópu verði
samþykktar í apríl. KSÍ væntir þess
að leyfishandbók KSl verði í hópi
þeirra bóka sem fyrstar verða sam-
þykktar. Gert er ráð fyrir að leyfis-
ráð komi aftur saman 8. apríl.