Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2003, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2003, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 2003 DV Útlönd 17 Lokasóknh gegn liðssveitum Lýð- veldisvarðar Saddams Hussems hafin - segir talsmaöur bandaríska varnarmálaráöuneytisins í Pentagon Talsmaöur varnarmálaráöuneytis- ins í Pentagon sagði í morgun að mik- il sókn væri hafm gegn síðustu sveit- um Lýðveldisvarðar Saddams Huss- eins, sem enn veittu viðnám 1 ná- grenni höfuðborgarinnar Bagdad og yrði hún hugsanlega lokaáfanginn í sókn bandamanna til borgarinnar þar sem Saddam og nánustu samstarfs- menn hans hafa búist til vamar. Að sögn talsmanna bandaríska hersins hefur borgin Karbala, heilög borg síta-múslíma, þegar verið um- kringd, en hún mun að þeirra áliti vera síðasta meiri háttar hindrunin i sókninni til Bagdad, sem er í um 100 kílómetra fjarlægð. Aðgerðimar við Karbala hófust upp úr miðnætti í nótt að staðartíma og tók það bandarísku hersveitimar aðeins um þrjár klukkustundir að ná tökum á öllum helstu aðkomu- leiðum til borgarinnar. Að sögn sjónavotta veittu írakar litla sem enga mótspymu enda við ofurefli að etja þar sem hersveitir Karbala umkringd Hersveitir txandamanna umkringdu í nótt borgina Karbala, heilaga borg síta-músiíma, en hún er sögö síöasta meiri háttar hindrunin í sókninni til Bagdad, sem er í um 100 kílómetra fjarlægö. Bandaríkjamanna voru dyggilega studdar árásarþotum, Apache- þyrlum og stórskotaliði. Á sama tíma héldu ílugvélar bandamanna áfram að dæla sprengjum yfir höfuðborgina Bagdad og var árásunum aðallega beint að einni halla Saddams Husseins og höfuðstöðvum írösku ólympíunefndarinnar á vestur- bakka árinnar Tígris en þar er talið að helsta pyntingarstöð Udays, sonar Saddams, hafi verið til húsa. Þá varð ein snekkja Saddams fyrir árás og einnig höfuðstöðvar íraska flughersins en þar var einnig til húsa foringjaklúbbur iraska hersins. Framvarðarsveitir bandamanna eru nú sagðar í aöeins um 50 kílómetra íjarlægð frá Bagdad og komnar inn á svokallað „rauða svæði“ innan varnarlínu Lýðveldsvarðar Saddams Husseins. REOTERSMYND Lengi enn Bretar telja að hermenn þeirra eigi jafnvel eftir aö berjast lengi í írak. Bretar telja að stríðið í írak geti orðið langt Meirihluti Breta telur vel hugs- anlegt að stríðið í írak eigi eftir að verða bæði langt og blóðugt en engu að síður að stríðsaðgerðim- ar séu nauðsynlegar, að því er fram kemur í skoðanakönnun sem birtist í blaðinu Daily Tele- graph í morgun. Fimmtíu og fjögur prósent eru hlynnt hernaðaraðgerðum tU að koma Saddam Hussein íraksfor- seta frá, sama hlutfall og fyrir tveimur dögum. Fjörutíu prósent telja hins vegar að rangt hafi ver- ið að fara í stríð, tveimur pró- sentustigum fleiri en í síðustu könnun. REUTERSMYND Blaöaö í Biblíunni í rústunum Bólivískur maður biaöar í Biblíu sem hann fann í rústum þar sem áöur voru meira en eitt hundraö hús áöur en gífur- leg aurskriöa fór þar yfir og eyöilagöi allt. Aö minnsta kosti fjórtán manns týndu lífi þegar aurskriöur fóru yfir gullgraf- arabæinn Chima sem er um 190 kílómetra noröur af bóiivísku höfuöborginni La Paz. Tvö hundruö er saknaö. írakar streyma heim frá Norðurlöndum Ágreiningur meðal ráðamanna vestra um framtíðarskipanina í frak Yfir þúsund írakar, sem búsettir eru á Norðurlöndunum, hafa leitað ásjár i íraska sendiráðinu í Stokk- hólmi. Þeir vilja komast heim. Flest- ir þeirra vilja taka þátt í stríðinu og berjast við hlið Saddams meðan nokkrir vilja finna fjölskyldur sínar og koma þeim til hjálpar eftir því sem þeir geta. Þá hafa ferðaskrifstofur sem sér- hæfa sig í ferðum til Miðausturlanda, vart við að afgreiða traka sem vilja komast heim. Framkvæmdastjóri ferðaskrifstofunnar Merru Travels & Tours segist aldrei hafa upplifað slík- an ágang í ferðir til nágrannalanda íraks, aðallega Sýrlands og Jórdaníu, og segir hann fyrirtækið ekki geta annað eftirspuminni. Jamal Abbeulraka, ritari í íraska sendiráðinu í Stokkhólmi, segir að þúsundir landa sinna, frá Svíþjóð, Noregi og Danmörku, bíði eftir að komast heim til að taka þátt í stríð- unu með trúbræðrum sínum. -GÞÖ Hætta er talin á að öll áform um neyðaraðstoð og uppbyggingu í írak að stríðinu þar loknu verði í uppnámi vegna innbyrðis deilna í ríkisstjórn Bush Bandaríkjafor- seta, að því er embættismenn og sérfræðingar greindu frá í gær. Donald Rumsfeld landvarnaráð- herra og embættismenn í Penta- gon, sem eru með eitt hundrað þúsund hermenn í írak, keppa við embættismenn í utánríkisráðu- neytinu um það hver getur haft mest áhrif og stjórn á uppbygging- unni og á skipan bráðabirgða- stjórnarinnar í landinu. „Á meðan umtalsverður fjöldi hermanna verður í írak, og þeim fer fjölgandi, mun Pentagon ráða ferðinni," sagði sérfræðingur sem hefur tengsl við utanríkisráðu- Ráöríkur Donald Rumsfeld, iandvarnaráö- herra Bandaríkjanna, vill ráöa sem mestu um framtíöarskipan í írak. neytið í samtali við Reuters-frétta- stofuna. Bandaríska dagblaðið Was- hington Post sagði frá því í gær að Rumsfeld hefði hafnað liði emb- ættismanna sem utanríkisráðu- neytið stakk upp á að yrðu hafðir með í ráðum við stjórn íraks að Saddam Hussein forseta föllnum. Ari Fleischer, talsmaður Hvíta hússins, viöurkenndi fyrir frétta- mönnum að innan stjórnkerfisins færu fram viðræður um eðli fram- tíðarstjórnar íraks. Sagt er að utanríkisráðuneytið vilji að þáttur hersins verði ekki jafnsýnilegur og Sameinuðu þjóð- imar muni hugsanlega taka við, í þeirri von að það yrði til að efla bæöi pólitískan og íjárhagslegan stuðning við uppbygginguna. Notaðir bííar hjá Suzuki bilum hf. Hyundai Accent 1,5, bsk. Skr. 9/98, ek. 67 þús. Verð kr. 570 þús. Land Rover Freelander, bsk. Skr. 6/99, ek 58 þús. Verð kr. 1490 þús. Sjáðu fleiri á suzukibilar.is $ SUZUKI ---✓/// , ! .......... SUZUKI BÍLAR HF. Skeifunni 17, sími 568-5100 Suzuki Baleno GLX, 4d., bsk. Skr. 8/99, ek. 39 þús. Verð kr. 1150 þús. Suzuki Swift GLX, 5d., bsk. Skr. 11/96, ek. 67 þús. Verð kr. 560 þús. Suzuki Jimny JLX, bsk. Skr. 6/02, ek. 15 þús. Verð kr. 1480 þús. Suzuki Sidekick JX, 5d., bsk. Skr. 9/96, ek. 88 þús. Verð kr. 780 þús. Suzuki Grand Vitara 2,0, bsk. Skr. 11/98, ek. 88 þús. Verð kr. 1450 þús. Suzuki Grand Vitara 2,0, bsk. Skr. 6/01, ek. 67 þús. Verð kr. 1790 þús. Subaru Forester 2,0, ssk. Skr. 3/98, ek. 89 þús. Verð kr. 1250 þús.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.