Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2003, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2003, Blaðsíða 31
31 MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 2003 DV Tilvera Jóhann Ásmundsson Bætir kermslunni viö spilamennskuna. Eftin endalausa spilamennsku var kominn tfmi tl að Uára námið - segir Mezzoforte-kappinn Jóhann Ásmundsson sem heldur tónleika í kvöld lífiö Leiðsögn i Listasafni íslands Hádegisleiðsögn verður um sýn- ingamar þrjár sem eru í gangi í Listasafni íslands milli kl. 12.10 og 12.40 í fylgd Rakelar Pétursdóttur, deildarstjóra fræðsludeildar. Blóðugt og bragðmikið Stúdentaleikhúsið sýnir verkið Sweeney Todd í Vesturportinu. Verkið fjallar um rakara sem sker meira en skegg af fólki. Miðasala í síma 8810155. Skipta kosningar máii? Félag stjórnmálafræðinga boðar til fundar um efhahagsstjóm á næsta kjörtímabili í ljósi væntanlegra framkvæmda. Fundurinn verður haldinn í Lögbergi 101 kl. 17.10-19. Með framsögu fara Sigurður Jóhannes- son hagfræðingur og Már Guðmundsson, aðalhagfræðingur Seðlabankans. Að framsögnum loknum munu fulltrúar stjómmálaflokkanna sitja fyrir svörum: Birgir Ármannsson, Sjálfstæðisflokki, Halldór Ásgrímsson, Framsóknarflokki, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Samfylkingunni, Sigurður Ingi Jónsson, Frjálslyndaflokknum, Ögmundur Jónasson, Vinstri- hreyfmgunni Grænt framboð. Með fundarstjóm fer Lilja Hjartardóttir stjómmálafræðingur. Afleiðingastjórnun - hagnýt nálgun fyrir stjórnendur Síðasta málstofa sálfræðiskorar á vormisseri verður haldin frá kl. 12.05-12.55 í dag. Dr. Finnur Oddson, lektor við Viðskiptadeild Háskólann í Reykjavík, heldur erindið: Afleiðingastjórnun hagnýt náigun fyrir stjórnendur. Málstofan er öllum opin. Verndar stjórnarskráin verkfallsrettindi? Við þessari spumingu verður leitað svara milli kl. 12.15 og 13.30 í dag í stofu 101 í Lögbergi. Málstofan er opin ölllum þeim sem áhuga hafa á efninu. í kvöld mun bassaleikarinn Jó- hann Ásmundsson halda tónleika í sal Félags íslenskra hljómlistar- manna. Þessir tónleikar eru loka- áfangi í námi við skólann, eða 8. stig. Jóhann er þekktur fyrir leik sinn í hljómsveitinni Mezzoforte en hún hefur gert garðinn frægan í um tvo áratugi. „Nú hef ég lokið áttunda stigi þannig að þetta eru nokkurs kon- ar útskriftartónleikar," segir Jó- hann. En aðspurður hvað hafi orð- ið til þess að hann skellti sér loks- ins í nám eftir öll þessi ár og alla spilamennskuna segir hann að það hafl verið kominn tími til að klára þetta, „Ég byrjaði á þessu þegar skólinn var opnaður fyrir um 20 árum. Síðan tók Mezzoforte við og endalaus spilamennska. Það er búinn að vera mjög skemmtilegur og lærdómsríkur tími en ég ákvað síðan að skella mér aftur í skólann og klára nám- ið.“ Jóhann er einnig að ljúka kenn- aradeild skólans og fær því kennsluréttindi í vor. „Þá fer ég líklega að kenna. Mér sýnist að það verði nóg að gera í því, það eru það margir sem vilja læra á hljóðfæri." Jóhann segir að Mezzoforte sé enn á fulllu. „Við fórum til Noregs nýlega og spiluðum í þrjár vikur. Síðan höfum við komið saman svona annað slagið. Við stefnum á að gera plötu sem mun líklega koma út í haust. Þá mun restin af haustinu fara í að fylgja henni eft- ir í Evrópu. Við erum samheldinn hópur. Það hafa ekki orðið neinar mannabreytingar í hljómsveitinni en við erum svo aftur á móti í samstarfi við ýmsa aðila. Dagskráin í kvöld byggist upp að mestu á efni úr smiðju Jóhanns en einnig verða flutt lög eftir Ornetta Coleman, Andrea Crouch og Bob Berg. Jóhann hefur fengið til liðs við sig hóp af frábæru tón- listarfólki til að leika með sér á þessum tónleikum. Þar koma fram Eyþór Gunnarsson, Jóel Pálsson, Sigurgeir Sigmundsson, Erik Quick, Agnar Már Magnússon og loks Óskar Einarsson sem mun stjórna Gospelkór Reykjavíkur ætla þau að syngja tvö lög. Ein- söngvarar úr hópi þeirra eru Fanney Tryggvadóttir og Edgar Smári Atlason. Tónleikarnir eru eins og áður sagði í sal Félags íslenskra hljóm- listarmanna í Rauðagerði. Þeir hefjast kl. 20 og aðgangur er ókeypis. -GFV Jackoekki með öllum mjalla Sú var tíöin að söngkonan og leikkonan Cher dáðist mjög að furðu- popparanum Michael Jackson. Ekki meir. Henni finnst gaukur- inn bara ekki með öllum mjalla. „Mér er nokk sama hvað hann gerir við andlitið á sér,“ segir Cher sem sjálf veit kvenna best um strekkingar og aðrar lyftingar á andliti og öðrum líkamspörtum. Það er meðferð hans á börnunum sem fer fyrir brjóstið á henni. Þar verður henni hugsað til þess þegar Mikki mætti með börnin á tónleika og haföi pakkað þeim inn í teppi. „Þessi náungi er ekki með öllum mjalla, hugsaði ég með mér,“ segir Cher í viðtali við aprílhefti ameríska sjónvarps- vísisins. Michelle Pfeiffer aftur í grínið Samkvæmt fréttum frá kvik- myndaborginni Hollywood hefur leikonunni Michelle Pfeiffer verið boðið hlut- verk í nýrri gamanmynd sem tvíeykið Army- an Bernstein og Mark Johnson hafa tekið að sér að framleiða fyrir Disney. Taki Pfeiffer boðinu verður þetta hennar fyrsta gamanhlutverk í nokkur ár en síðustu árin hefur hún aðeins fengist við alvarlegri hlutverk eins og í myndunum White Oleander og What Lies Beneath. Áður hefur hún ma. leikið í gam- anmyndum eins og Frankie and Johnny og The Witches of Eastwick, en umrædd mynd, sem hlotið hefur vinnuheitið She’s Gone, mun fjalla um veraldarvön hjón sem standa á krossgötum í hjónabandi sínu. DVJílYND E.ÓL. I heimsókn hjð DV 7. bekkur SHG í Selásskóla kom í heimsókn á DV nýlega ásamt kennar- anum sínum, henni Sólrúnu Hönnu. Þetta voru þau Andrea Fanný Rik- harösdóttir, Andri Friöriksson, Anna Lilja Marteinsdóttir, Aron Grétar Björnsson, Árni Viöar Steinsson, Ásta Karen Ólafsdóttir, Ásta Sif Magn- ússon, Daöi Daníelsson, Daöi Hauksson, Emma Ásmundsdóttir, Felix Hjálmarsson, Gunnar Skaptason, Kári Ólafsson, Kjartan Már Ragnars- son, Kristín Helga Bergsveinsdóttir, Magnús Ingvi Magnússon, Margrét Ríkharösdóttir, Reynir Snorrason, Sævar Már Atlason, Unnur Kristín Sig- urgeirsdóttir og Vigdís Matthíasdóttir. SérBCað um sum arfíús fyCaír Magasmí MeðaC efnís: Hvað kostar að byggja sér góðan bústað? Hvað spyr sumarhúsafólk helst um? Sagan á bak við sumarhúsið Viðtal Útþensla byggðanna 1 Umfjöllun um gróður og trjáklippingar og margt annað fróðlegt og skemmtilegt efni. io, aj)ríí - 82_þús. eintöíz Umsjón með efni í blaðið hefur Vilmundur Hansen kip@dv.is Skilafrestur auglýsinga ertil 8. apríl. Við erum tilbúin að aðstoða ykkur: Inga, b.s. 550 5734, inga@dv.is Katrín, b.s. 550 5733, kata@dv.is Ransý, b.s. 550 5725, ransy@dv.is Teitur, b.s. 550 5728, teitura@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.