Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2003, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2003, Blaðsíða 36
36 MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 2003 Sport DV Grindvíkingar mæta Keflvíkingum í úrslitum Intersportdeildarinnar Gpindavik-lindastoll 109-77 Gníndavík—Hndastóll 3-2 Darrel Lewis: Fráköst: Grindavík 48 (22 i sókn, 26 í vörn. Lewis 17), Tindastóll 28 (8 í sókn, 20 i vörn, Axel 10). Stoósendingar: Grindavík 18 (Lewis 6 ), Tindastóll 16 (Cook 5). Stolnir boltar: Grindavík 13 (Helgi J. 6) Tindastóll 5 (Cook 2, Kristinn 2). Tapaðir boltar: Grindavík 14, Tindastóll 22. Varin skot: Grindavík 3 (Páll 2, Jóhann), Tindastóll 3 (Antropov 2, Cook 1). 3ja stiga: Grindavik 9/26 (35%), Tindastóll 4/23 (17%). Víti: Grindavík 18/23 (78%), Tindastóll 19/24 (79%). - skoraöi 45 stig í 32 stiga sigri Grindvíkinga á Tindastólsmönnum í Röstinni 0-2, 6-2, 8-8, 12-12, 16-17, (25-19), 25-20, 35-20, 35-24 , 43-27, 50-34, (56-40) 5543, 67-45, 72-57, 76-62, (81-62) 82-62, 93-70, 102-72, 109-77. Stig Grindavikur: Darrel Lewis 45, Predraq Pramenko 14, Páll Axel Vil- bergsson 12, Helgi Jónas Guöfinnsson 12, Guölaugur Eyjólfsson 7, Guð- mundur Ásgeirsson 7, Jóhann Þ. Ólafsson 6, Guömundur Bragason 4, Ármann Ö. Vilbergsson 2 Stig Tindastóls: Michail Antropov 20, Kristinn Friðriksson 20, Clifton Cook 16, Axel Kárason 6, Sigurður G. Sigurðsson 4, Óli B. Reynisson 4, Gunnar Andrésson 4, Helgi R. Viggós- son 3. Dómarar (1-10): Leifur Garðarsspn og Kristinn Ósk- arsson (9). Gœöi leiks (1-10): (8). Áhorfendur: 800. Maður leiksins: Darrel Lewis, Grindvík Grindvíkingar unnu öruggan sig- ur á Tindastóli í Röstinni í gær- kvöld en þá fór fram fimmti leikur þessara liða - leikur sem skar úr um hvort liðið myndi mæta Keflvík- ingum í lokaúrslitunum. Heimavöll- urinn reyndist happadrjúgur í þess- ari rimmu og þótt Tindastólsmenn hefðu farið betur af stað i þessum leik var greinilegt að það fór vel um heimamenn í gærkvöld og þeir voru tilbúnir í þennan slag - vel studdir af góðum Grindvíkingum. Þeir leiddu með sextán stigum í leikhléi og hleyptu síðan Stólunum ekki inn í leikinn að nýju. Stórleik- ur Darrell Keith Lewis vó þar þungt en drengurinn átti stórkostlegan leik - skoraði nánast að vild, frá- kastaði virkilega vel og þá spilaði hann frábæra vöm á Clifton Cook. Það er ekki hægt að fara fram á meira en það sem Lewis skilaði í þessum mikilvæga leik. Allir leik- menn Grindvíkinga lögðu sitt af mörkum, Predrag Pramenko var drjúgur í sókninni og lét svo Mich- ael Antropov hafa mikið fyrir hlut- unum. Helgi Jónas Guðfmnsson og Páll Axel Vilbergsson voru traustir. Tindastólsmenn fara út úr þessari úrslitakeppni með sóma, þeir fóru lengra en flestir áttu von á en mættu einfaldlega ofjörlum sinum i þessum leik. Léleg hittni liðsins í 3ja stiga skotum kom liöinu í vand- ræði og þá var 3:2 svæðisvöm liðs- ins ekki að virka vel. Michael An- tropov fór vel af stað og var síðan sterkur í þriðja leikhluta en lenti svo í viUuvandræðum. Kristinn Friðriksson gaf allt í þetta og Clifton Cook átti spretti. Spiluöum illa Kári Marísson, aðstoðarþjálfari Tindastóls, hafði þetta að segja í samtali við DV-Sport rétt eftir leik: „Eftir því sem leið á þessa rimmu þá hefur okkur liðið betur og betur og því áttum við alls ekki von á að lenda í þessum hremmingum eins og raunin varð hér i kvöld. Hins vegar vomm við einfaldlega að spila Ula í'þessum leik, það er ekk- ert flóknara en það. Heimavallar- rétturinn skipti auðvitaö gríðar- lega miklu máli, bæði lið með sterkan heimavöU og það sannað- ist auðvitað í þessum viðureign- um.“ En er Kári sáttur með vetur- inn í heildina séð? „Það má kannski segja að við höfum farið fram úr væntingum í vetur en það hefur verið góð stígandi í leik liðs- ins og okkur finnst við hafa ágæt- ismannskap sem tók nokkurn tíma aö berja saman. Það er auðvitað aUtaf svekkjandi að tapa leik sem þessum en frammistaðan í úrslita- keppninni var frábær og við stönd- um i raun ágætlega eftir þennan vetur,“ sagði Kári. Frábærar viöureignir Friðriki Inga Rúnarssyni, þjálf- ara Grindvíkinga, var stórum létt eftir leik og hafði þetta að segja þegar DV-Sport kom að máli við hann í leikslok: „Þetta eru búnar að vera fimm alveg frábærar viðureignir og íþróttinni til fram- dráttar - framganga beggja liða fannst mér bara glæsileg. Stólarnir eiga mikið hrós skilið og ég þakka þeim bara kærlega fyrir frábæra frammistöðu sem á ekki að þurfa að koma mönnum svo mikið á óvart. Einhverjir hafa líkast til bú- ist við því að við myndum valta yfir þá 3-0 en þeir sömu menn vita þá ekki hvað það er að fara á Sauðárkrók og spila þar. Við náð- um hins vegar að spila taktískt og komum með ákveðin svör eftir tapleikina og segja má að við höf- um sprungið út hér í kvöld. Við höfum verið að leita að taktinum í liðinu eftir að Darrell kom inn aft- ur og fundum hann svo um mun- aði í kvöld og liðið mætti virkilega rétt stemmt í þennan leik og vor- um alls óhræddir við að gera mis- tök - við héldum bara áfram á fullu tempói og trúðum því að það myndi skila okkur sigri sem og það gerði. Nú tekur bara við enn meira fjör og það verður gaman að taka á Keflvíkingum - þeir eru með frábært lið en við höfum spil- að vel gegn þeim í vetur og höfum ákveðnar leiðir sem við munum nota og þetta verður heilmikil áskorun fyrir okkur og við fógn- um henni,“ sagði Friðrik. innað pakka" Darrell Keith Lewis var fagn- að gríðarlega í Grindavík í gær- kvöld enda frammistaða hans hreint út sagt ótrúleg. Hann sagði þetta i spjalli við DV- Sport: „Ég var upptjúnaður og virkilega tilbúinn í þennan slag hér í kvöld. Það var að duga eða drepast og ég var ekki tilbúinn að pakka niður og fara heim eftir þennan leik - ég ætlaði að komast i mín fyrstu lokaúrslit á ferlinum og gaf allt sem ég átti í leikinn. Hlutimir litu ekki vel út hjá mér fyrir nokkrum vik- um en aðgerðin á hnénu tókst vel og bati minn hefur gengið vonum framar - ég trúi á æðri máttarvöld og Guð blessaði mig svo sannarlega og gerði mér kleift að eiga þessa góöu endur- komu.“ En var þetta besti leikur hans í vetur, hann hefur átt þá marga góða? „Mér hefur fundist skemmtilegast að spila við Keflvíkinga í vetur og það hafa verið svaka orrustur. Þar átti ég tvo góða leiki sem við unnum en þessi leikur er lík- lega sá besti sem ég hef spilað í vetur. Nú er hins vegar framundan þriðja rimman og virkilega gaman að fá að kljást við Keflvíkinga og við trúum þvi svo sannarlega að við get- um lagt þá þrisvar að velli - ég veit að það verður erfitt og þetta verða rosaleikir og við verðum að vera andlega tilbún- ir í þá og einbeitingin í botni,“ sagði Lewis. -SMS Clifton Cook átti ekki góðan leik fyrir Tindastólsmenn í gærkvöld og hér brýtur hann allundarlega á Predraq Pramenko. DV-mynd E.ÓI. -SMS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.