Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2003, Síða 6
6
MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 2003
DV
Fréttir
Mál Péturs Þórs Gunnarssonar, fyrrverandi eiganda Gallerí Borgar:
Segist hafa selt öll verkin í góðri trú
DV-MYND SIGURÐUR JÖKULL
Héraösdómur Reykjavíkur í gær
Pétur Þór Gunnarsson og Jónas Freydal Þorsteinsson eru báðir sakaðir um að hafa falsað eða látið falsa gríðarlegt
magn af málverkum. Hér eru þeir ásamt lögmönnum sínum
Aðalmeðferð í máli gegn Pétri
Þór Gunnarssyni, fyrrverandi eig-
anda Gallerí Borgar, og Jónasi
Freydal Þorsteinssyni hófst fyrir
Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.
Pétur og Jónas eru ákærðir fyr-
ir skjalafals og fjársvik og sakaðir
um að að hafa blekkt viðskipta-
vini með skipulögðum hætti á list-
munauppboðum og í verslun Gall-
erí Borgar til að kaupa fólsuð mál-
verk. Þeir hafi ýmist falsað eða
látið falsa myndirnar og höfunda-
merkingu þeirra, í sumum tilvik-
um með þvi að mála yfir myndir
annarra höfunda eða merkt mynd-
ir óþekktra höfunda með nöfnum
þekktra listamanna, s.s. Kjarvals,
Nínu Tryggvadóttur og Asgríms
Jónssonar. Um er að ræða gífur-
lega umfangsmikið mál og hátt í
hundrað myndir.
Jón Snorrason saksóknari lagði
í málflutningi sínum áherslu á að
ákæruvaldið hefði óskað eftir
gögnum um viðskiptin með hin
meintu folsuðu málverk úr bók-
haldi Gallerí Borgar. Pétur hefði
ekki látið nein gögn af hendi og
ekkert væri til um móttöku mynd-
anna né uppgjör þegar þær voru
seldar. Pétur heföi ekki getað rak-
ið eigendasögu þeirra fyrir þann
tíma er þau komust í hendur hans
sem eiganda Gallerí Borgar.
Farið var yfir tuttugu og sex liði
ákærunnar en Pétur sagðist ekki
geta gert grein fyrir viðskiptum
með umrædd málverk þar sem
langt hefði liðið frá því að þau
áttu sér stað, eöa um það bil tiu
ár. Hann gagnrýndi lögregluna
fyrir að hafa dregið málið óhæfi-
lega og sagði að eðlilegra hefði
verið að yfirheyra hann varðandi
allar kærurnar á sínum tíma.
Saksóknarinn fór yfir listfræði-
leg álit ýmissa sérfræðinga á
myndunum sem töldu þær allar
falsaðar. Rökin fyrir þeirri niður-
Lést í vélsleðaslysi
Maðurinn
sem lést í
vélsleðaslys-
inu í Kerling-
arljöllum um
helgina hét
Sveinn
Magnús
Magnússon,
Sveinn Magnús til heimilis
Magnússon. að Blómstur-
völlum 34 í
Neskaupstað. Hann lætur eftir
sig eiginkonu og þrjá syni.
Hann var fæddur 12. janúar
1961.
stöðu voru meðal annars að í hin-
um meintu fölsuöu myndum
hefðu verið notaðir litir sem ekki
voru til á þeim tíma sem myndirn-
ar áttu að vera frá. Til dæmis
væru í nokkrum myndunum
svokölluð alkíðblönduð litarefni
sem heföu ekki verið til þá. Pétur
sagði það rangt þar sem slíkir lit-
ir hefðu komið á markað í kring-
um 1920 og því væri vel hugsan-
legt að málarar eins og Jón Stef-
ánsson hefðu notað þau í sín verk.
Hann sagði að allar myndimar
hefðu verið seldar í góðri trú og
neitaði alfarið að hafa falsað eða
látið falsa þær. Hann gagnrýndi
harkalega þau listfræðilegu álit
sem ákæruvaldið lagði fram og
fann að því að sérfræðingarnir
hefðu aðeins borið meintu falsan-
irnar saman við þekktustu og
hefðbundnustu málverk lista-
mannanna. Þeir væru allir mann-
legir og hefðu oft málað lélegar
myndir sem væru gjörólíkar hin-
um heföbundnu verkum þeirra.
Því væri alls ekki hægt að full-
yrða myndimar væru falsaðar.
Vegna gríðarlegs umfangs máls-
ins er héraðsdómur fjölskipaður
þeim Pétri Guðgeirssyni dómara,
Friðgeiri Björnssyni dómstjóra og
Ásdísi Ólafsdóttur listfræðingi.
Aðalmeðferðinni verður haldið
áfram i dag en gert er ráö fyrir að
hún muni taka allt að tvær vikur.
Fyrir dóminn munu meðal ann-
arra koma þeir listfræðingar sem
áður voru nefndir og gefa skýrslu
um þau álit sem fyrir liggja.
-EKÁ
boð vinnuafls auk þess sem það
geti virkað sem hemill á útgjöld
hins opinbera.
Þá segir í skýrslunni að hag-
þróun á íslandi hafi verið mjög
hagfelld á síðasta áratug. Hag-
kerfið hafi sýnt mikla aðlögun-
arhæfni þegar komið var í veg
fyrir ofþenslu og ójafnvægi á
ótrúlega skömmum tíma og án
þess að það kostaði djúpa niður-
sveiflu.
Þessa auknu aðlögunarhæfni
má að miklu leyti rekja til
breytinga í hagstjórn, segir í
skýrslunni, sem stuðlað hafi að
stöðugleika í efnahagsmálum og
auknu frjálsræði.
Viövörun Búnaðarbanka
Greiningardeild Búnaðar-
bankans komst hins vegar í gær
að annarri niðurstöðu um
skattalækkanir en OECD. Þar er
varað við „yfirboðum stjórn-
málaflokkanna um skattalækk-
anir:
„Eins og staðan er í dag eru
það [...] fyrst og fremst skatta-
lækkanir sem gætu leitt til al-
menns aukins kaupmáttar um-
fram það sem nú er,“ segir í
nýju riti bankans, Ávöxtun og
horfum.
„í þessu felst einmitt vandi
hagstjórnarinnar þar sem hætta
er á að yfirboð stjórnmálaflokk-
ana, nú í aðdraganda kosning-
anna, valdi því að halli myndist
á ríkissjóði. Við núverandi að-
stæður er halli á ríkissjóði ein
mesta ógnunin við efnahags-
stöðugleikann á meðan á stór-
iöjuframkvæmdunum stendur,“
segir Búnaðarbankinn. -ÓTG
Brekkuskóli:
Mikil óeining
um ráðningu
skólastjóra
Skólanefnd Akureyrarbæjar
hefur ráðið Karl Erlendsson,
skólastjóra Þelamerkurskóla,
sem skólastjóra Brekkuskóla frá
1. ágúst nk. Hann tekur við af
Birni Þórleifssyni sem lést fyrr
í vetur. Aðrir umsækjendur
voru Snorri Óskarsson, starf-
andi aðstoðarskólastjóri Brekku-
skóla, Sigfús Aðalsteinsson,
kennari í Noregi, og Eva S.
Ólafsdóttir, starfsmaður við
Kaupmannahafnarháskóla. Eva
S. Ólafsdóttir hefur ekki
kennsluréttindi og uppfyllti því
ekki skilyrði fyrir stöðunni. Sig-
mar Ólafsson, starfandi skóla-
stjóri Brekkuskóla, sótti ekki
um stöðuna.
Kennarar viija Snorra
Undirskrifta-
listar hafa ver-
ið í gangi með-
al kennara
Brekkuskóla,
sem eru 30, til
stuðnings
Snorra í skóla-
stjórastöðuna.
Jafnvel hefur
verið haft eftir
kennurum að
þeir hygðust segja upp stöðum
sínum yrði Snorri ekki ráðinn í
starfið. Að sögn Gunnars Gísla-
sonar, skólafulltrúa Akureyrar-
bæjar, höfðu engar slíkar upp-
sagnir borist í gær og hann
sagðist reyndar ekki búast við
þeim. Skólafulltrúi fundar meö
kennurum Brekkuskóla í dag.
Mikil umskipti
„Öðruvísi mér áður brá,“
kynnu einhverjir að segja nú.
Þegar Snorri flutti til Akureyrar
fyrir nokkrum árum frá Eyjum
mætti honum mótbyr en Snorri
er landskunnur fyrir störf sín
að trúmálum. Hann hafði fengið
kennarastöðu við Hrafnagils-
skóla en kennarar þar lögðust
gegn ráðningunni og höfðu sitt
fram. Hann var síðan ráðinn
kennari við Brekkuskóla og hef-
ur reynst farsæll kennari, bæði
meðal samkennara og nemenda,
og mjög vel liðinn af þeim. -GG
Kosið um samein-
ingu Búðahrepps
og Stöðvarhrepps
Fyrstu sameiningarkosningarn-
ar á þessu kjörtímabili fara fram
10. maí nk., samhliða kosningum
til Alþingis. Samstarfsnefnd um
sameiningu Búðahrepps og Stöðv-
arhrepps hefur ákveðið að leggja
til að íbúar þessara sveitarfélaga
greiði atkvæði um sameiningu
þeirra í eitt sveitarfélag. Fleiri
sameiningarkosningar eru ekki
fyrirhugaðar á næstunni en
heyrst hefur af vilja tU samein-
ingarviðræðna nokkuð víða á
landinu, s.s. á Suðurlandi og
Vesturlandi.
í Búðahreppi búa um 570
manns, en í Stöövarhreppi 260
manns. Þrátt fyrir sameininguna
verður sveitarfélagið ekki með
þeim stærri á landinu með 830
íbúa, það 40. stærsta, næst á eftir
Vatnsleysustrandarhreppi en að-
eins nokkuð stærra en Seyðis-
fjarðarkaupstaður. -GG
Ný skýrsla um stööu efnahagsmála:
0ECD mælir með skattalækkunum
Efnahags- og framfara-
stofnunin, OECD mælir með
skattalækkunum í nýrri skýrslu
um stöðu íslensks efnahagslífs
sem birt var í morgun. Segir í
skýrslunni að skattalækkanir
hafi vinnuhvetjandi áhrif sem
sé æskilegt að fá fram í aðdrag-
anda aukinna umsvifa í efna-
hagslífinu.
í skýrslu OECD er lagt til að
skattar á einstaklinga verði
lækkaðir enn frekar þar sem
slíkt hafi jákvæð áhrif á fram-