Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2003, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2003, Side 12
12 MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 2003 •BHfc-ur Fréttir Gylfi Þórðarson, framkvæmdastjori Sementsverksmiðjunnar hf. a Akra- nesi, telur að grípa hefði átt til sölu fyrirtækisins fyrir fimm til sex árum sew veröa vilt, ert míkil óvissa er um hvort hugsantegir kaupendur komi tit meó aö reka verksmiöjuna áfram. Verksmiðia til sölu on starfs- menn híða bess sem verða vill Ríílega 60 starfsmenn Sements- verksmiðjunnar hf. á Akranesi bíða nú þess sem verða vill varð- andi sölu á verksmiðjunni sem frá upphafi hefur verið í 100% eigu ríkisins. Segjast þeir nú vera al- gjörlega í lausu lofti varðandi störf sín þar sem mikil óvissa rík- ir um það hvort væntanlegir eig- endur komi til með að reka verk- smiðjuna áfram eða ekki. Það ræðst nú í vikulokin hver af þeim flmm hópum áhugasamra kaupenda verður valinn af Fram- kvæmdanefnd um einkavæðingu til frekari viðræðna um kaup á verksmiðjunni. Um er að ræða kaup á öllum hlutabréfum fyrir- tækisins sem eru að nafnverði 450 milljónir króna. í auglýsingu Framkvæmdanefndar er tekið fram að leitað sé að fjárfesti sem áhuga hefur á að viðhalda rekstri fyrirtækisins. Ekki munu þó allir tilboðsgjafar hafa áhuga á slíku og reyndar þykir mikill vafi leika á að hægt sé að reka verksmiðjuna áfram nema til komi verulegar breytingar. Stefnt er að því að ljúka sölu verksmiðjunnar í apríl. Fimm hópar í einum hópnum sem skiluðu inn tilboðum er Framtak fjárfest- ingarbanki hf., BM Vallá ehf., Björgun ehf. og Steypustöðin ehf. Þá er hópur sem samanstendur af GJ-fjármálaráðgjöf sf. fyrir hönd Ramis ehf., Benedikts Jón- mundssonar, Gunnars Sigurðsson- ar og Jóns Sigurðssonar. Gunnar Leifur Stefánsson býð- ur fyrir hönd Verkplansins ehf., Háaímjúks ehf„ Knarrar ehf., Tré- smiðjunnar Kjalar ehf„ Café 67 ehf„ Kistils ehf. og fasteignasöl- unnar Miðborgar ehf. Jóhann Halldórsson hrl. býður fyrir hönd fjórða hópsins sem samanstendur af Húsasundi ehf„ Uniland Cementera S.A. og óstofn- aðs hlutafélags Jóns Ólafs Hall- dórssonar og Steingríms Erlings- sonar. í fimmta hópnum eru svo Loftorka hf„ Eykt hf. og Sparisjóð- ur Mýrasýslu. Fyrirfram hefur verið talið lík- legast að hópur Framtaks fjárfest- ingarbanka hf„ BM Vallár, Björg- unar og Steypustöðvarinnar verði fyrir valinu sem fyrsti kostur í viðræðum um væntanleg kaup. Ástæða þess er einfaldlega talin sú að þar eru á ferð stærstu við- skiptavinir verksmiðjunnar og því lykilaðilar varðandi tal um mögulegt framhald rekstrarins. Ekkert hefur þó verið látið uppi um hvort sú verði raunin. „Veruleg óvissa“ Ljóst er að staða verksmiðjunn- ar er mjög slæm; í ársreikningi fyrir síðasta ár kemur fram að tap á árinu nam 220,3 milljónum og á árinu 2001 var rekstrartapið 228,4 milljónir króna. Samanlagt rekstr- artap verksmiðjunnar þessi tvö ár er því 449 milljónir króna. Bók- fært eigið fé félagsins var í árslok 2000 1.095,9 milljónir króna, en hafði lækkað í 732,1 milljón í árs- lok 2002 eða um 363,8 milljónir króna. Peningaleg staða félagsins í árslok, þ.e. heildareignir án var- anlegra rekstrarfjármuna að frá- dregnum heildarskuldum, var já- kvæð um 77,7 milljónir króna. Hafði hún versnað á tveim árum um 310,1 milljón króna. í áritun endurskoðenda Deloitte & Touche hf. kemur fram að ekki séu fyrirliggjandi áætlanir um fjármögnun uppsafnaðs taps síð- ustu tveggja ára. Þá séu verulegar líkur á tapi á árinu 2003 þrátt fyr- ir að gripið hafi verið til ýmissa aðgerða til þess að draga úr tap- rekstri félagsins. Síðan segir; „Með vísan til þessa verður að telja að veruleg óvissa sé um möguleika félagsins til áframhald- andi rekstrar.“ í gegnum súrt og sætt Gylfi Þórðarson, framkvæmda- stjóri Sementsverksmiðjunnar hf„ hefur verið þar innanborðs síðan 1978. Hann man tímana tvenna í rekstrinum og segir hana hafa gengið í gegnum lægðir á sements- markaði nokkuð reglulega á tíu ára fresti. Hann segist vita lítið meira en hver annar um hvernig sölumál verksmiðjunnar fari. Hann segir vissulega vilja til að halda verksmiðjunni gangandi á núverandi stað. Útilokað sé að flytja starfsemina og reisa nýja verksmiðju t.d. á Grundartanga. Slíkt sé einfaldlega of dýrt. Verk- smiðja til að mala gjall með öllu tilheyrandi myndi vart kosta mik- ið undir tveim til þrem milljörð- um króna og verksmiðja á borð við núverandi verksmiðju myndi líklega kosta um fimm milljarða króna. Gylfi telur því mjög óraun- hæft að ætla að slík verksmiðja geti borið sig á okkar litla mark- aði. Annaðhvort sé því að reka verksmiðjuna áfram á Akranesi eða hreinlega hætta framleiðslu á sementi hérlendis og flytja þá inn tilbúið sement. Of seint ákveðið að selja Gylfi segir að álit endurskoð- enda á rekstrarmöguleikum verk- smiðjunnar sé mjög ábyrgt. Hann telur þó alls ekki vonlaust að láta framleiðsluna standa undir sér. Líklega myndi það samt fela í sér töluverða fækkun starfsmanna. Verksmiðjan hét áður Sements- verksmiðja ríkisins, en var breytt í hlutafélag árið 1993 og heitir nú Sementsverksmiðjan hf. Öll hluta- bréf í fyrirtækinu eru í eigu ríkis- ins. Þó undanfarin ár hafi mönn- um staðið til boða að kaupa 25% í verksmiðjunni, þá vissu menn undir niðri að enginn kaupandi fengist til að leggja fjármuni í slíkt eignarhald sem væri nær óvirkt. Gylfi telur að miklu fyrr hafi átt að grípa til þess að selja verk- smiðjuna. - „Það hefði átt að ger- ast fyrir fimm til sex árum í kjöl- far mikillar hagræðingar eftir samdrátt á árunum 1993 til 1994.“ Gylfi segir að eftir það hafi verið búið að gera verksmiðjuna mjög öfluga og í framhaldi af því hefði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.