Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2003, Page 13
MIÐVIKUDAGUR 2. APRIL 2003
Fréttir
13
DV
HB - ■ ■ *VU
■ If '. Mm M *
S 11 I í fl Ujjl If Pt’. ■ p i§ Tl
w * Í'J ™ * i 1 fJ fjfSlásil ; ■ | Bilfffi ■M IMii r M 11 L 1 1 1 f II Lvf
7 ; |
11 Jf / /7 // /, / / I / 1
7 ; / / / oj ||
Gylfi Þórðarson framkvæmdastjóri
Hann telur óraunhæft aö flytja starfsemina og byggja upp aö nýju á Grundartanga.
átt að huga að sölu hennar. Það
hafi hins vegar verið mikil póli-
tísk andstaða gegn sölu verksmiðj-
unnar á þeim tíma og einnig and-
staða meðal starfsmanna. Gylfi
telur því mjög líklegt að staðan
væri önnur í dag ef verksmiðjan
hefði verið seld á þeim tíma. Af-
staða starfsmanna hafi þó breyst
mikið á síðustu árum, því menn
sjái að reksturinn meö óbreyttu
eignarhaldi gangi ekki upp. -
„Hann er kominn að leiðarlokum í
þessari mynd.“ Gylfa líst þó ekki á
ástandið á sementsmarkaði hér ef
verksmiðjan verður lögð niður og
enginn verði tO að halda uppi
samkeppni við danska sem-
entsinnflytjandann Aalborg
Portland.
Hóf starfsemi 1958
Verksmiðjan var reist á Akra-
nesi á árunum 1956-1958 og tók til
starfa síðla árs 1958. Allur vélbún-
aður verksmiðjunnar var fenginn
frá fyrirtækinu F. L. Smidth & Co
A/S í Kaupmannahöfn sem reynd-
ar er aðaleigandi danska sements-
framleiðandans Aalborg Portland
sem aftur á Aalborg Portland ís-
land hf. Sementsverksmiðjan og
Aalborg Portland hafa einmitt átt
í hatrömmum átökum á íslensk-
um sementsmarkaði undanfarin
misseri.
Framleiðslan byggist á votað-
ferð, en hráefnin eru skeljasandur
úr Faxaflóa og líparít úr Hvaifiröi.
Framleiðslugeta verksmiðjunnar
er um 100 þúsund tonn af gjalli og
200 þúsund tonn af sementi á ári.
Þrjár sementstegundir eru fram-
leiddar í verksmiðjunni, Portíand-
sement, Hraðsement og Kraftsem-
ent.
í verksmiðjunni nú eru 63
stöðugildi, en þeim hefur verið að
fækka talsvert að undanfórnu.
Eígn í fleiri félögum
Sementsverksmiðjan er stór
hluthafi í Eignarhaldsfélaginu
Speli hf. sem á Spöl ehf. sem
byggði og- rekur jarðgöngin undir
Hvalfjörð. Sementsverksmiðjan er
einnig hluthafi í fyrirtækjunum
Sandur - ímúr hf., sem aö hluta
byggir starfsemi sína á þróunar-
vinnu verksmiðjunnar, og Ein-
ingaverksmiðjunni hf., sem fram-
leiðir steyptar byggingareiningar
og burðarbita. Og eignir liggja víð-
ar.
Allt mælt í samræmi viö erlenda
staöla
Bragi Ingólfsson, gæöastjóri og
efnafræöingur Sementsverksmiðj-
unnar hf. Hér er hann meö sand í
steypuprufur sem er sá sami og not-
aöur er í prufur erlendis. Þannig á
aö nást réttur samanburöur á sem-
entsgæöunum.
Líka í íslenskum virkjunum
Gylfi segir margvíslegan land-
lægan misskilning uppi um fram-
leiðslu á íslensku sementi. Einn
þeirra sé sú lifseiga saga aö ís-
lenskt sement hafi aldrei verið not-
að í virkjanir hér á landi. Þetta sé
alrangt. Hann tekur dæmi af Búr-
fellsvirkjun. Við byggingu hennar
hafi verið flutt inn sementsgjall frá
Danmörku sem var malað og full-
unnið í verksmiðjunni á Akranesi.
Hluti af sementinu í þá virkjun
hafi verið framleitt með þessum
hætti. Allar virkjanir eftir það hafi
aö mestu verið byggðar úr sementi
sem framleitt var á Akranesi. Gylfi
segist þó ekki viss um að Sements-
verksmiðjan hf. muni koma að
framleiðslu á sementi fyrir Kára-
hnjúkavirkjun. Slíkt sé frekar
ólíkleg nema í óverulegum mæli.
íslenska sementið sé þó talið mjög
gott og ekki síst varðandi jarð-
gangagerð. Þar koma til sérstakir
eiginleikar íslenska sementsins
vegna íblöndunar á kísilryki. Þetta
kísilryk sem kemur frá Járn-
blendiverksmiðjunni á Grundar-
tanga var reyndar, að sögn Braga
Ingólfssonar gæðastjóra og efna-
fræðings, lykillinn að því að drepa
niður alkalívirkni í steypu hér á
landi.
í stjómstöó Sementsverksmiðjunnar
Sigurbaldur Kristinsson var á vaktinni aö fylgjast meö tölvustýröu vinnsluferli
verksmiöjunnar.
ALÞÝÐUSAMBAND ÍSLANDS
Velferð fyriralla
Þjóðarsátt um
velferðarkerfið?
Málþing um tillögur ASÍ ■ velferðarmálum
Þátttakendur verða Geir Haarde, Sjálfstæðisflokki, Guðjón Arnar
Kristjánsson, Frjálslynda flokknum, Halldór Ásgrímsson,
Framsóknarflokki, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Samfylkingu og
Steingrímur 3. Sigfússon, Vinstri hreyfingunni - grænu framboði.
Fulltrúar flokkanna fiytja stuttar framsögur, en sitja síðan í pallborði
og svara spurningum fyrirspyrjanda og utan úr sal.
Málþingið er öllum opið og er haldið á Grand Hótel í Reykjavík í
kvöld og hefst kl. 20:00
Pallborðsumræðum stýrir
Sigmundur Ernir Rúnarsson, ritstjóri DV.
Allir velkomnir - aðgangur ókeypis
Smáauglýsingar
atvinna í boði/óskast
550 5000