Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2003, Page 21

Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2003, Page 21
Kjallari Arni Bergmann rithöfundur Fyrir skömmu var hallæris- legt að finna að því að mikill auður safnaðist á fáar hendur. Það var annaðhvort lágkúruleg öfund eða úrelt sveitamennska að skilja ekki að þetta væri óumflýj- anleg þróun og sjálfsagður þáttur í því að hnattvæðast og virða þar með í verki trúna á kraftaverkafor- stjóra og fjármálasnillinga sem eru tvö hundruð sinnum dýrari en aðr- ir menn. Allir fá ntálið En nú ber nýrra við. Fjölmiðlar fyllast með ónot í garð forstjóra- græðgi, sjálftöku, fáránlegra kaupauka, ótrúlegra starfsloka- samninga og kvótasöluævintýra. Og því fer fjarri að hér séu einna helst vinstrivillingar að sinna þeirri gömlu og góðu skyldu sinni að hafa hátt um rangindi þar til einhver hlustar. Urgur og reiði hef- ur safnast upp út um allt samfélag og nú vilja allir tala í einu. Ekki nóg með að flóttamenn úr Sjálfstæðisflokki og Framsóknar- flokki láti illum látum. Davíð Odds- son skilur ekkert í því að menn vilji vera ofboðslega ríkir og er allt í einu farinn að spyrja eins og Tol- stoj fyrir hundrað árum: hversu mikið étur einn maður? Matthí- as Johannessen skrifar lesenda- bréf í sitt gamla Morgunblað og hneykslast á yfirgangi peninga- manna sem valsa í útlöndum með „auðtekinn ofsagróða" og koma íslensku samfélagi að engu haldi og lesandi spyr sig hvort skáldið hafi óvart tekið að sér að fylla það tóm sem varð þegar nöldurseggir gátu ekki lengur skotið á Mammon úr hús- um Þjóðviljans. Sjálfskaparvíti hægrimanna Ögmundur Jónasson var að stríða Geir Haarde á því á þingi að þau mál sem almenningur hneykslast sem mest á væru sjálfskaparvíti hægrimanna sem hefðu gefið bröskurum lausan taum á sínu valdaskeiði. Fjár- málaráðherra reiddist þessari réttmætu sögutúlkun, en málsvörn hans varð undarlega daufleg. Hann sagði sem svo, að „hið nýja og opna umhverfi" í fjármálum og viðskiptum „ætti ekki að vera gróðrarstía spilling- ar og skattaundandráttar heldur þvert á móti farvegur fyrir heið- arlega starfsemi öllum til ávinn- ings“. Nokkuð skondið tilsvar, en sendir kjama máls eitthvað út í buskann. Vaidhafar hafa hælt sér, bæði hér og annars staðar af því sem kallað er „deregulation“ - og þar er átt við að dregið sé sem allra mest úr hvers kyns afskiptum stjórnvalda af fjármagnsstreymi, viðskiptasiðum og bókhaldi. Þetta „opna umhverfi" naut samstillts lofs um allar jarðir - allt þar til miklir brestir komu í Ummæli Nógaö hækka launin „Á glæsilegum landsfundi Sam- fylkingarinnar var meðal annars haldin einkar fróðleg málstofa (mál- stofa 1) um auðsköpun og velferð. Þar sátu hagfræðingamir Ágúst Einarsson, Edda Rós Karlsdóttir og Gylfi Ambjömsson fyrir svörum. Til þeirra beindi ég þeirri spum- ingu hvort þau teldu að lengi geti dregist að hækka skattleysismörk. [...] Öll töldu þau óþarft að hækka skattleysismörkin, sögðust ekki hafa talað fyrir slíkum breytingum og minntust ekki einu orði á þá leið- réttingu vegna kjaraþróunar undan- farið, sem ég held þó að nánast sé samkomulag um að gera þurfi. Það þarf bara að hækka launin, sagði Ágúst!" Haukur Brynjólfsson í grein á vef Samfylkingar- innar 15. janúar 2002. Poppstjama, sem hefur 800 milljónir króna í tekjur á árinu áður en hún eignast bam, á kröfu á ríkið um að fá 320 milljónir króna á þvi sex mánaða tímabili sem hún er í fæð- ingarorlofi. Barnsfaðir hennar var heimavinnandi á þessum tíma og fær því samtals 99 þúsund krónur þá 3 mánuði sem hann tekur í orlof eins og annað heimavinnandi fólk sem eignast bam.“ Vefþjóöviljinn á Andríki.is. Þarf ekki púlt „Jesú þurfti ekkert ræðupúlt en kom boðskapnum samt til skila.“ Guðni Ágústsson á fundi í Holti, isafjarðarbæ, I fyrradag. Sagt eftir aö fundarstjóri haföi afsakað aö ekkert væri ræðupúltiö. “h MIDVIKUDAGUR 2. APRÍL 2003 MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 2003 21 Skoðun Kjallari Séra María Ágústsdóttir héraðsprestur í Reykjavíkurpróffasts- dæmi og formaöur Samstarfsnefndar kristinna trúfélaga á íslandi Útgáfufélag: Útgáfufélagið DV ehf. Framkvæmdastjóri: Örn Valdimarsson Aðalritstjóri: Óli Björn Kárason Ritstjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson Aöstoöarritstjóri: Jónas Haraldsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: Skaftahlíö 24,105 Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5749 Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Akureyri: Kaupvangsstræti 1, sími: 462 5000, fax: 462 5001 Setning og umbrot: Útgáfufélagiö DV ehf. Plótugerö og prentun: Árvakur hf. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Fylgið á fleygiferð Það sannast nú sem aldrei fyrr að vika er langur timi í pólitík. Fylgið er á fleygiferð á milli helstu stjórnmála- flokka landsins og flokksleiðtogar eru ekki fyrr byrjaðir að fagna góðri út- komu en þeir þurfa að afsaka niður- sveiflu næstu könnunar. Það eru fáar vikur til kosninga, í reynd rífir tutt- ugu virkir dagar og því má segja að það styttist i endasprettinn sem verð- ur snarpur og harður og hefst í fyrstu viku sumars. Flokk- arnir eru að taka sér stöðu og startbyssan komin á loft. Nú er spurt um dagsformið í islenskri pólitík. Sjálfstæð- isflokkurinn er á flugi eftir ljúfan landsfund þar sem for- maðurinn baðaði sig i sviðsljósi loforðaflaums og léttra gamansagna. Vænghaf stóra fálkans skyggir sem snöggvast á Samfylkinguna og Vinstri grænir ná ekki enn að brjóta sér leið upp úr tíu prósenta dikinu. Framsókn er heldur á uppleið og sömuleiðis frjálslyndir. Fylgið er að skila sér heim. í grófum dráttum eru flokkarnir á pari. Og lokaspretturinn fram undan. Ef fylgissveiflur síðustu tuttugu ára í islenskri stjórn- málasögu eru skoðaðar kemur i ljós að flokkarnir kastast upp og niður á milli kosninga og það með talsverðum lát- um. Hefðbundið er að flokkar sveiflist hálfan skalann enda á milli á kjörtímabili en nálgist svo gamla kjörfylgið sitt á siðustu dögunum fyrir kjördag. Það er eins og rót komist á hugi kjósenda að loknum kosningum og þeir vilji máta sig við marga flokka á meðan hægt er að svara fylgiskönnuðum án ábyrgðar. Skoðanakönnun DV um fylgi flokkanna, sem birtist í gær, sýnir aðra mynd en dregin hefur verið upp af ís- lenskri pólitík um margra mánaða skeið. Tveggja turna myndin er horfin en þess í stað mælast allir þingflokkar þjóðarinnar svo nálægt kjörfylgi sinu að með hreinum ólíkindum má heita. Framsókn á að visu enn nokkuð langt i land með að endurheimta sitt gamla fylgi en nær þó fimmtán prósentum sem er veruleg hreyfing upp á við, miðað við margar kannanir að undanförnu. Nú er spurt; hvað er í spilunum? Hver flokkurinn af öðrum er að sýna á trompin sín. Vinstri grænir kynntu stefnuskrá sína i fyrradag, FramsóknarfLokkurinn gerir það í dag. Sjálfstæðisflokkurinn stendur enn í ljóma lands- fundar og kastljósið beinist að Samfylkingunni um næstu helgi. Frjálslyndir mega hafa sig alla við til að halda þeirri athygli sem þeir hafa og víst er að sú verður þraut- in allra stjórnmálaflokka á næstu dögum og vikum að vera áhugaverður kostur. Niðurstaða könnunarinnar, sem DV tók nú i upphafi vikunnar og hefur verið að birtast á siðum blaðsins í gær og i dag, sýnir ekki einasta að flokkarnir eru við kjörfylgi sitt, heldur og að nærri helmingur kjósenda hallast að þvi að affarasælast sé að sama rikisstjórnin sitji áfram við völd. Næsti kostur er langt undan. Vel innan við fimmt- ungur kjósenda kýs samstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna, aðeins tíu prósent samstjórn Samfylkingar og Framsóknar. Spurning dagsins í islenskum stjórnmálum snýst fyrst og síðast um þær breytingar sem kjósendur vilja sjá að gerist í stjórn landsmála. Vilja menn miklar breytingar eða litlar - eða vilja menn jafnvel engar breytingar? Og þora menn að breyta til? Tvennt ræður miklu á næstu vik- um. Kjósendur munu vega og meta kosningaloforð flokk- anna og þeir munu sömuleiðis fylgjast með hverri hreyf- ingu hjá forystumönnum þeirra. Og þar skiptir dagsform- ið langsamlega mestu. Sigmundur Ernir ogvio Þein forríku hn „Eign er vald. Vald er varhugavert - og vald fáeinna eignamanna yfir litlu samfélagi verður fljótlega mun háskalegra en það ofríki stjómmálamanna sem lengi hefur verið yfir kvartað. “ Frómósk „Áttu aukamerki?" Eva María Jónsdóttir spyr Stefán Pálsson, gest í Kastljósinu, um merki sem hann bar í barminum með áletrununum „Davið í her- inn og herinn burt" og „Halldór I herinn og herinn burt". Hærri laun, hærri bætur „Með nýjum lögum um foreldra- og fæðingarorlof á árinu 2000 var [...] í fyrsta sinn í sögu landsins ákveðið að láta félagslegar bætur fylgja launum manna meö þeim hætti að því hærri sem launin eru því rausnarlegri eru bæt- urnar sem menn fá. [...] Klám eða kærleikur? En vandi flokksins stóra eru smámunir hjá því sem við hin þurfum að hafa andvökur af. Við vitum öll að sú þróun sem hér er tæpt á hlýtur að gera ís- lenskt samfélag að grimmara og verra plássi en það hefur verið. Vegna þess að þegar fáeinir menn eignast landið: miðin, bankana og búðimar - þá hnignar lýðræði og þeim lífsgæðum sem tengjast sann- girni og trausti. Eign er vald. Vald er varhugavert - og vald fáeinna eignamanna yfir litlu samfélagi verður fljótlega mun háskalegra en það ofríki stjómmálamanna sem lengi hefur verið yfir kvartað. Við getum steypt stjórnmála- mönnum, en ekki þeim forríku. Þeir forríku geta svosem verið alla- vega menn. Þeir geta verið kapp- samir menningarvitar eða háif- gerðir bófar og allt þar á milli. En við ráðum engu um það hvaða stefnu duttlungar þeirra taka. Sam- félagið allt verður innan tíðar eins og sjávarpláss þar sem ein fiöl- skylda á allan kvóta. Kannski fer hún skynsamlega með þann auð, kannski glutrar hún öllu út úr höndum sér, kannski klofnar fiöl- skyldan og selur allt klabbið í ann- an landshluta (eða úr landi þegar fiárflakksfrelsið verður enn meira). Fólkið í plássinu veit ekki neitt um það fyrir fram og enginn fær rönd við reist. - Nema öll þau ráð sem enn eru til andófs séu tekin - strax í dag. kerfið í sjáifum Bandaríkjunum með Enronhneykslinu og mörg- um skyldum dæmum. Og nú vakna menn einnig á íslandi upp við vondan draum við, að einnig þeir eru lentir á allt öðr- um stað en þeir ætluðu sér. Það sem „ætti að vera“ er ekki. í Morgunblaðsleiðara var viður- kennt feimnislega að það væri „ekki að ástæðulausu“ að marg- ir landsmenn spyrji „hvort við- skiptalífið á íslandi hafi farið úr böndunum". En það var reynd- ar „fært úr böndum“ með sam- stilltu ástandi ráðandi stjórn- málamanna og markaðshöfð- ingja, og einmitt sú stefna átti aö skila mönnum á grænar grundir eilífrar farsældar. Verra mannlíf Ekki nema von reyndar að einmitt ýmsir oddvitar Sjálf- stæðisflokksins séu áhyggjufull- ir. Þeir vita auðvitað að kaupaukar upp á 58 miiljónir, skattaflótti upp á milljarða og sú þróun að „fámennur hópur kaupi landið" (vitnað í fyrir- sögn í Morgunblaði) - allt þetta grefur í bráð og lengd undan þeirri hugmyndafræði að flokk- ur þeirra sé hinn mikli og nauð- synlegi vettvangur málamiðlana í samfélaginu. Allt tal um dreif- ingu valds, um stétt með stétt og fleira þesslegt verður að skrýtlu sem enginn hlær að. Á undanförnum árum hafa miklar breytingar oröiö í íslensku þjóðfélagi, bæði til góös og ills. Eitt af því sem færst hefur til verri vegar er hnignandi sið- ferðiskennd. Virðingin fyrir samferðafólkinu hefur dvínað og þar með sjálfs- virðingin. Um þetta ber hin svonefnda klámvæðing órækt vitni. Nú er það svo að klám er ekkert nýtt fyr- irbæri og ekki heldur fylgifiskur þess, vændið. Það er hins vegar engin afsökun fyrir tilvist þess, ekki frekar en morðum og grip- deildum, eins og bent var á í grein í helgarblaði DV nú um helgina. Og áhyggjuefnið er ekki síst hið aukna umfang klámsins og hve auðvelt er að nálgast það. Nú er öldin önnur Þegar ég var að alast upp voru myndir af fáklæddum konum á bensínstöðvum og bílaverkstæð- um það svæsnasta sem fyrir augu bar. Sjónvarpið var vant að virð- ingu sinni, þessi eina stöð sem til var, og gætti þess vandlega að sýna ekkert sem misboðið gat ung- um og ómótuðum sálum og dag- blöð og hljóðvarp sömuleiðis. Nú er öldin önnur. Klámblöð eru aðgengileg í nánast hverri sjoppu og ríkissjónvarpið þrammar veg niðurlægingarhyggjunnar með sumum öðrum stöövum. Klámfeng- ið orðalag og tilboð eiga einnig greiða leið að einhverjum útvarps- stöðvanna og ekki þarf að hafa mörg orð um klámið á Netinu, sem eitt út af fyrir sig hefur meðvirkað að upplausn hjónabanda. Höfum hugfast, að þessir miðlar eru opnir börnunum okkar, oft eftirlitslítið, og skilaboðin sem þaðan fást sjást m.a. í tískustraumum unglinga- menningarinnar. Auglýsingaherferð Flugleiða, þar sem gylliboðið er gratís laus- læti íslenskra kvenna, er einnig ein birtingarmynd viðurstyggðar- innar og til háborinnar skammar fyrir „virt“ fyrirtæki. Fyrirmynd okkar fullorðna fólksins er líka oft harla vafasöm þegar sumum körl- um og jafnvel einnig einhverjum konum virðist þykja fínt að kaupa þjónustu þeirra sem hafa atvinnu sína af því að selja losta. Viðkvæmasta gjöfin Til að fyrirbyggja allar ásakanir um þröngsýni og tepruskap vil ég taka eftirfarandi fram: Kynlíf og klám er ekki það sama. Kynlíf er af Guði gert, dásamleg gjöf til okk- ar mannfólksins, fyrirheit um þá mestu nánd sem hægt er að öðlast við aðra manneskju. Sú gjöf er hins vegar ein sú viðkvæmasta og hana þarf að umgangast af sér- stakri ábyrgð. Líkami og tilfinningar verða ekki aðskilin. Það sem gert er við líkama okkar hefur djúpstæð áhrif á sálarlífið, hvort sem við erum samþykk því sem á sér stað eða ekki. Þetta þurfum við að kenna börn- unum okkar, bæði piltum og stúlk- um, og innræta þeim virðingu og umhyggju fyrir manneskjunni sem heild. Misnotkun þeirrar gjafar Guðs sem kynlífið er sést skýrast í klámiðnaðinum. Þar er virðingin fyrir manneskjunni engin, niður- læging seljanda jafnt sem kaup- anda algjör. Ekki ósvipað eitur- lyfiamarkaönum græðir hvorki neytandi né seljandi neitt, nema stundarsvölun eða smápening. „Gróðinn" fer allur í vasa hinnar ósýnilegu illsku, sem hlakkar yfir rofnum trúnaði hjóna og brostn- um fiölskyldum. Samstaöa kristinna manna Ekki alls fyrir löngu staðfesti Hæstiréttur bann Reykjavíkur- borgar við einkadansi. Einkadans- inn er aðeins ein hinna mörgu „Kynlíf er af Guði gert, dásamleg gjöf til okkar mannfólksins, fyrirheit um þá mestu nánd sem hœgt er að öðlast við aðra manneskju. Sú gjöf er hins vegar ein .______sú viðkvæmasta og hana þarf að umgangast af sérstakrí ábyrgð.“ birtingarmynda klámsins, en engu að síður ber að fagna hverju skrefi sem tekið er í andspyrnu við klámvæðinguna. Það hefur Sam- starfsnefnd kristinna trúfélaga á íslandi gert og vill þar með sýna samstöðu kristinna manna gegn klámi. Kristin trú byggir á virðingu fyrir lífinu og náunganum og Biblían kennir okkur að annast gjafir Guðs af ábyrgð, kynlífið þar með talið. Ef einhver er í vafa, þá er viðmiðið þetta (1. Kor. 16.14): Allt sé hjá yður í kærleika gjört. +

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.