Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2003, Síða 28
28
MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 2003
DV
Ræktun lýðs og lands
Vel heppnað málþing:
Þátttaka en lífsstíll
„Þátttaka er lífsstíll", málþing um æsku-
lýðsmál, var haldið í Borgarholtsskóla síð-
astliðinn laugardag, en KFUM og KFUK,
SAMFÉS, Slysavarnafélagið Landsbjörg,
þjóðkirkjan, BÍSN, AFS á íslandi, BÍS og
Ungmennafélag íslands stóðu að þinginu.
Greipur Gíslason, verkefnisstjóri hjá
UMFÍ, sá um framkvæmd málþingsins og
hann var ánægður með hvernig til tókst:
„Já, það er ekki annað hægt, þátttakan
var góð og vinnan í málstofunum skilaði
miklum árangri. Það var líka ánægjulegt
að menntamálaráðherra sá hag sinn í að
dreifa skýrslu nefndar um stöðu og fram-
tíð æskulýðs- og tómstundastarfs á íslandi
á þinginu, en hann fékk hana í hendur
tveimur dögum áður.“ Greipur segir að
eins og gefi að skilja hafi mikill tími farið
í að ræða skýrsluna og einstaka þætti
hennar: „Já, og ég held að það sé mjög
gott, þótt ekki væri nema skýrslunnar
sjálfrar vegna, að það sé strax farið að
vinna með hana líkt og við gerðum á laug-
ardaginn. Það hefur lengi verið beðið eft-
Góð stemning á málþingi
Þessar fögru snótir tóku á móti gestum á mál-
þinginu „Þátttaka er iífsstítr. Góð stemning
ríkti á málþinginu og umræður í málstofum
voru fjörugar.
ir henni og því tilvalið að kynna hana á
málþinginu." Niðurstöður málþingsins
verða unnar og sendar til þeirra sem tóku
þátt.
Formannanámskeið á Selfossi
Formannanámskeiö UMFÍ verður haldið í
Selinu á Selfossi fóstudaginn 4. apríl og laug-
ardaginn 5. apríl næstkomandi. Dagskrá
námskeiðsins er fjölbreytt og margir góðir
fyrirlesarar mæta með áhugaverð erindi um
þau atriði sem forystumenn í félögum verða
að kunna skil á. Valdimar Gunnarsson,
fræðslustjóri UMFÍ, segir að formannanám-
skeið hafi verið haldin víða um landið í vet-
ur og góð þátttaka hafi verið í þeim. „Við
leggjum áherslu á að vera með góða fyrirles-
ara og hagnýtt námsefni og það hefur gefist
vel.“ Meðal þess sem fjallað er um á for-
mannanámskeiðum er uppbygging ung-
menna- og íþróttafélaga, áhrifaríkari fundir,
kynningarmál og kostun, framkoma og
ræðulist. Á formannanámskeiðum er farið í
leiki og þrautir sem tengjast námsefninu.
Ekki er nauðsynlegt að þátttakendur séu
formenn í félögum, deildum eða nefndum og
það geta komið fleiri en einn frá hverju fé-
lagi.
Góö þátttaka á formannanámskeiðum
Valdimar Gunnarsson, fræðslustjóri UMFÍ, segir
að formannanámskeið hafi verið haldin víða
um landið í vetur og að þátttaka hafi verið góð.
Skráningar á námskeiðið þurfa að berast
fyrir kl. 16 fimmtudaginn 3. apríl. Hægt er
að skrá sig með tölvupósti á hsk@hsk.is eða
í síma 482 1189.
Umhverfisverðlaun Pokasjóös og UMFÍ voru afhent í Gunnarsholti
Sveinn Runólfsson landgræðslustjórí og eiginkona hans Oddný Sæmundsdóttir, Sif Friðleifsdóttir
umhverfisráöherra, Björn Jóhannsson, framkvæmdastjóri Pokasjóðs, og Björn Jónsson, formaður
stjórnar UMFÍ.
LANPSMÓT
LEIÐTOGA.
SKÓLINN
Umsjón
Páll Guðmundsson
Vilmundur Hansen
Kynning á tómstundum og leik-
tækjum fypir eldri borgara
Næstkomandi laugardag mun Félag
áhugafólks um íþróttir eldri borgara og
UMFÍ standa fyrir kynningu á tómstundum
og leiktækjum fyrir eldri borgara. Kynning-
in fer fram í íþróttahúsinu við Strandgötu í
Hafnarfirði og hefst klukkan 14.
Páll Ólafsson, íþróttakennari og formaður
undirbúningsnefndar, segir að eldri borgar-
ar séu almennt mjög virkir í tómstunda-
starfi og því sé gaman að geta kynnt nýja
möguleika í tómstundum og afþreyingu fyr-
ir eldri borgarana. „í dag eru eldri borgarar
Eldri borgarar virkir í tómstundastarfi
Páll Ólafsson, iþróttakennari og formaður undir-
búningsnefndar, segir að eldri borgarar séu al-
mennt mjög virkir í tómstundastarfi og því sé gam-
an að geta kynnt nýja möguleika í tómstundum.
mikið í íþróttum og leikjum eins og boccia,
golfi og pútti, leikfimi og dansi, en við vilj-
um kynna nýja möguleika í tómstundastarfi
þessa hóps og má þar nefna leiki eins og iðu
og skondru," segir Páll.
Félagar úr FAÍA munu kynna leikina og
ýmis ný leiktæki og er kynningin opin öll-
um og allir velkomnir.
íslandsleikhús ræður leikstjóra
- þriðja leikárið í sumar
Stjórn íslandsleikhúss hefur ráðið Jó-
hönnu Friðriku Sæmundsdóttur, leiklistar-
nema frá Vík í Mýrdal, í stöðu leikstjóra í
sumar. Fjöldi umókna barst um stöðuna og
þóttu fjórar koma til greina. Eftir nánari fyr-
irgrennslan ákvað stjórnin að ráða Jóhönnu
Friðriku.
Jóhanna Friðrika fæddist 4. maí árið 1980.
Hún er dóttir Sæmundar Hafsteins Jóhann-
esson og Guðmundu Magneu Magnúsdóttur.
Hún ólst upp í Vík í Mýrdal og bjó þar þang-
að til hún fór að heiman til náms, fyrst í
Menntaskólann að Laugarvatn og síðan í
leiklistardeild Listaháskóla íslands þar sem
hún er á öðru ári. Jóhanna kveðst ánægð
með ráðninguna: „Já, þetta er mjög spenn-
andi og mikill heiður fyrir mig. Svo er þetta
svo frábært vekefni; það hefði nú verið gam-
an ef það hefði verið boðið upp á svona þeg-
ar ég var á þessum aldri." Jóhanna hefur
mikla reynslu af starfi með unglingum og
vann sem flokksstjóri í vinnuskólanum í
Vík. „Svo var ég líka í sumarbúðum Styrkt-
arfélags lamaðra og fatlaöra í Reykjadal og
það er mikil reynsla. Þar kom maður að
skipulagningu dagskrár og það á eftir að nýt-
ast með vel. Svo má ekki gleyma því að ég
var frjálsíþróttaþjálfari hjá Umf. Drangi og
Umf. Dyrhólaey." Þegar rætt er við Jóhönnu
er sko aldeilis ekki komið að tómum kofun-
um. Hennar helstu áhugamál eru, auk leik-
listarinnar sem hún hefur lagt töluverða
stund á, íþróttir, fondur, fjarlægar þjóðir og
eldamennska. Það síðastnefnda á aldeilis eft-
ir að koma sér vel þar sem stór þáttur í starfi
leikstjóra íslandsleikhúss er matreiðsla. „ Já,
ég hlakka mikið til að takast á við þetta og
þá ekki síst eldamennskuna."
fslandsleikhús 2003 verður með svipuðu
sniði og undanfarin ár. Það verður skipað 14
ungmennum frá sjö sveitarfélögum víðsveg-
ar af landinu auk Jóhönnu Friðriku og Sögu
Sigurðardóttur sem er fararstjóri leikhúss-
ins líkt og í fyrra.
Stjóm íslandsleikhúss skipa Greipur
Gíslason verkefnisstjóri, Dóra Hlín Gísla-
dóttir frá Gamla apótekinu og Páll Guð-
mundsson frá Ungmennafélagi íslands.
Nýr leikstjóri
Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir, önnur frá vinstri^ ásamt bekkjarsystkinum sínum í 2. bekk í
Listaháskóia íslands
s
X
Einn skíðapassi
Akureyri, Dalvík og Olafsfjörð
www.eyjafjordur.is
J