Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2003, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2003, Qupperneq 4
MANUDAGUR 28. APRÍL 2003 Fréttir ÐV íslenski stýrimaöurinn í Dubai: Þetta er algert klúður „Þaö er algert klúður, sem á ekki aö koma fyrir,“ sagöi Magn- ús Ásgeirsson sem var skipstjóri á Svaninum RE 40 þegar skipinu var siglt til Dubai þar sem það var afhent. Eins og komið hefur fram í fréttum var stýrimaður- inn með riflil meðferðis þar sem hann óttaðist sjórán. Hann var stöðvaður á flugvellinum á leið- inni heim og síðan færður í fang- elsi fyrir ólöglegan vopnaburð. í áhöfninni voru m.a. fjórir íslend- ingar og einn Dani. íslendingarn- ir eru komnir heim, að stýri- manninum undanteknum, sem enn situr í fangelsi að því best er vitað. Magnús sagði að riffillinn hefði aldrei átt að fara í land úr skipinu. Á flugvellinum um- rædda væri tékkun áður en far- þegar kæmu að miðasölunni. Þar Svanur RE 40 Þaö gaf undarlega á bátinn viö Dubai og sér ekki fyrir endann á undariegum afdrifum eins skipverjans. hefði maðurinn verið handtek- inn og síðan hefðu þeir ekki séð hann meir. Þeir hefðu hins vegar fengið boð frá honum um að hann væri á leið í fangelsi. Mjög strangt eftirlit væri á þessum svæðum, enda væri Dubai ekki langt frá átakasvæðum. Mikil tékkun væri í hafinu á þessari leið og strangt eftirlit á öflum leiðum. Magnús kvaðst ekkert hafa frétt af stýrimanninum eftir að þeir fengu boðin frá honum. „Þetta er leiðindamál og mað- ur vonar að þetta gangi fljótt fyr- ir sig,“ sagði Magnús, sem kvaðst að öðru leyti vísa til frétta frá norska sendiráðinu á staðnum um málið. Móðir stýrimannsins kvaðst í morgun ekki vilja ræöa málið þegar DV hafði samband viö hana. -JSS Næturfrost gæti skaðað gróður „Það er ekki laust við að ég sé uggandi," segir Þór Þorfinnsson, skógarvörður á Austurlandi, þeg- ar hann er spurður um kulda- kastið sem gengur yfir þessa dag- ana. „Sitkalúsin hefur verið í uppsveiflu í vetur og tré eru víða mjög illa farin, hún grasserar í Reykjavík en það er minna um hana hér í Hallormsstaðarskógi." Þór segir að trén jafni sig með tímanum og fólk eigi alls ekki að rjúka til og fella tré þó þau verði ljót. „Ég hef séð mörg tré sem hafa veriö nánast barrlaus og þau hafa jafnað sig á nokkrum árum. Það kemur nýr árssproti og svo koll af kolli þangað til tré hafa náð sér að fullu." Þór segir að það hafl verið næt- urfrost á Austurlandi fyrir skömmu og að slíkt geti haft verulega slæm áhrif á gróðurinn. „Lerkið er allaufgað og hitinn ekki nema tvær gráður eins og er og það er ekki gott til lengdar. Ég er rólegur eins og er en mér lýst ekki á blikuna ef það fer að frysta eitthvað að ráði. Veðurstof- an spáir kólnandi veðri næstu daga þannig að við erum á verði og ekki laust við aö það læðist að manni uggur ef hitinn fer mikiö niður fyrir núllið í marga daga.“ Að sögn Þórs er skógarplöntu- ræktun í fullum gangi og menn með varann á sér ef það frystir. „Fyrstu viðbrögð verða aö frost- vökva á nóttinni til að verja plöntumar en við vonum það besta og að kuldinn gangi yfir og það hlýni fljótlega aftur.“ -Kip Báru eld að fiskikari Þrír piltar á aldrinum 16 til 19 ára viðurkenndu í gær að hafa unnið eignarspjöll á Stokkseyri um helgina. Höfðu þeir meöal annars skemmt gervihnattardisk við ibúðarhús, skemmt segldúk við veitingastaðinn við Fjöru- borðið og skemmt rúður í bifreið- um og stolið þaðan hljómflutn- ingstækjum. Þeir fóru einnig að húsi björgunarsveitarfélags Ár- borgar og báru eld að fiskikari sem stóð þar fyrir utan. Barst eldurinn síðan að húsinu og breiddist þar út. Lögreglan á Sel- fossi handtók piltana í gær á Sel- fossi og á Stokkseyri og eftir að þeir viðurkenndu verknaðinn við yfirheyrslu var þeim sleppt. -EKÁ *««**>■ th-' \ •••■•:' "■■ —L. tæœZM. OV-MYNDtR HAFDÍS ERLA BOGADÓTTIR Ljúflr lóutónar Hvaö er Ijúfara en söngur lóunnar þegar allt er aö lifna viö og sumariö gengiö í garö? Þær flugu um í stórum hópi viö Eyvindarána á Héraöi um helgina og hiö einstaka dirrindí enduróm- aöi um loftiö í sólinni. Þrátt fyrir aö erfitt væri aö komast í návígi viö þær tókst Ijósmyndara aö laumast yfir ógrynni af hrossataöi, detta í mýri og hitta á leið sinni fjöldann allan af hunangs- flugum, og öörum „dásamlegum “ vorboöum, aöeins til aö ná vorboöanum Ijúfa á mynd til end- anlegrar sönnunar á því aö „sumariö sé nú komiö“! Tíminn aö hlaupa frá samningsaðilum: Stefnir í að heima- hjúkrun lamist „Staðan í dag er óbreytt og allt bendir til þess að heimahjúkrunin á þessu tiltekna svæði muni lam- ast um mánaðamót," sagði Krist- jana Guðjónsdóttir sjúkraliði, sem starfar við heimahjúkrun á höfuð- borgarsvæðinu. Nú styttist í að 55 af ríflega 70 starfsmönnum heima- hjúkrunar hætti störfum eftir að Heilsugæslan sagði upp aksturs- samningum við þá. Starfsmenn- irnir líta á þetta sem uppsögn ráðningarsamnings og hætta sam- kvæmt því störfum um næstu mánaðamót. Skjólstæðingar heimahjúkrunar á svæðinu eru um 1100 talsins. Viðræður hafa staðið yfir milli Heilsugæslunnar og fjármálaráðu- neytisins um þá stöðu sem upp er komin. Kristjana sagði að starfs- menn heimahjúkrunar hefðu ekki fengið neinar fregnir af þeim við- ræðum. Þeim hefði ekkert tilboð borist að hálfu Heilsugæslunnar, þannig að allt útlit væri fyrir að heimahjúkrunin legðist að mestu Helmahjúkrun Vinnan er erfiö og tekur á i mörgum skilningi. niður eftir þrjá sólarhringa. „Það verður ekki bara neyðará- stand á heimilum ef svo fer sem horfír,“ sagði Kristjana, „heldur einnig á sjúkrahúsum. Fjölmargir okkar skjólstæðinga eru svo háðir heimahjúkruninni að þeir geta ekki verið heima án aðstoðar. Þetta fólk mun þá leita til sjúkra- stofnana." Kristjana sagði að starfsfólk heimahjúkrunar hefði ekki séð neina útreikninga á sparnaði þeim sem fyrirhugaður væri við breyt- ingu á fyrirkomulagi aksturs. Sam- kvæmt upplýsingum heilbrigðis- ráðherra væri áætlaður spamaður 15 milljónir króna. Heilsugæslan hefði gefið út að fyrirhugað væri að nota kaupleigubíla eftir breyt- ingima. „Við spyrjum okkur að því hvers vegna sé verið að styrkja bílaumboð með þessum hætti, í stað þess að láta starfsfólkið njóta þess, ef sá spamaður sem næst á hvort eð er að fara til að bæta kjör þess, eins og forstjóri Heilsugæsl- unnar hefur sagt í fjölmiðlum," sagði Kristjana. -JSS Panta á netinu: www.smaar.is Sjálfbær Hrísey Siv Friðleifsdóttir umhverfisráð- herra og Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra skrifuöu á föstu- daginn, Degi umhverfisins, undir samning um innleiðingu Staðardag- skrár 21 í fámennum sveitarfélög- um og stuðning viö áform um að gera Hrísey að sjálfbæru samfélagi í tilkynningu frá umhverfisráðu- neytinu kemur fram að iðnaðarráð- herra og umhverfisráðherra muni beita sér fyrir því að til þessara samstarfsverkefna verði ráðstafað samtals 8 milljónum króna á ári í þrjú ár, þar af 7 milljónum á ári af fjárveitingu iðnaðarráðuneytis til framkvæmda byggðaáætlunar. 2 milljónir á ári í þijú ár munu fara til sérstaks þróunarverkefhis um sjálfbært samfélag í Hrísey. Hríseyingar ætla að nota féð til að ljúka við gerð skýrslu um orku- vinnslu í eynni en einnig til að kaupa jarðgerðarílát á öll heimili til að búa til lífrænan úrgang með það aö markmiði að minnka stórlega sorp sem flutt er frá eynni. -ÆD ísafjörður: Samið um þrjú menningarhús Gamla héraðssjúkrahúsið, Edin- borgarhúsið og salur tónlistarhúss- ins verða endurbyggð sem menn- ingarhús á ísafirði. Tómas Ingi 01- rich menntamálaráðherra og Hall- dór Halldórsson bæjarstjóri undir- rituðu samning þessa efriis í gær. Grundvöllur samkomulagsins er ákvörðun ríkisstjómar frá árinu 1999 um að veita stofnstyrki til uppbyggingar fimm menningar- húsa utan höfuðborgarsvæðisins með það að markmiði að bæta að- stöðu til menningarstarfsemi. Framlag ríkissjóðs til endurbygg- ingar húsanna þriggja hefur verið ákveðiö og nemur um 250 milljón- um króna, en það eru 60% kostnað- aráætlunar. Gamla héraðssjúkrahúsinu verö- ur ætlað það hlutverk að vera bóka- og listasafn, salur tónlistarskólans verður nýttur til tónleikahalds og Edinborgarhúsiö er m.a. ætlað til sviðslista. Framkvæmdir við húsin hafa staðið yfir um nokkurt skeið og er framkvæmdum viö tvö hin fyrstnefndu nánast lokið. -aþ Akureyri: Sjöfn kaupir Kaffibrennsluna Sjöfii hf. hefur keypt hlutabréf Kaldbaks í Nýju Kaffibrennslunni, Akva ehf. og Fjárstoð. Einnig hefur fyrirtækiö keypt hluti Baldurs Guðnasonar og Steingríms Péturs- sonar í Stíl ehf. og Ferðaskrifstofu Akureyrar. Hluti kaupverðsins er greiddur með hlutaíjáraukningu í Sjöfn hf. og mun eignarhlutur Kaldbaks í Sjöfn hf. verða 50%. Hluthafar Sjafnar hf. eftir breyting- una eru Kaldbakur fjárfestingarfé- lag með 50%, Eyfirðingur í eigu Baldurs Guðnasonar 41,7%, Eignar- haldsfélagið Stíll sem er í eigu Baldurs Guðnasonar og Steingríms Péturssonar með 8,3%. Með þessum viðskiptum verður til ein stærsta iðnfyrirtækjasamsteypa landsins sem hefur burði til að efla og styrkja íslenskan iðnað og iðnaðar- starfsemi á Akureyri. -GG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.