Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2003, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2003, Blaðsíða 13
13 MÁNUDAGUR 28. APRÍL 2003 DV_______________________________________________________Útlönd REUTERS-MYND Menem vígreifur Carlos Menem og eiginkona hans, Cecilia Bolocco, gera sér vonir um að flytja í argentínsku forsetahöllina. Menem verður að keppa við flokks- bróður sinn í síðarí umferðinni þar sem kosið er milli efstu manna. Menem fékk flest at- kvæði í Argentínu Carlos Menem, fyrrum forsæt- isráðherra Argentínu, fékk flest atkvæði í forsetakosningunum í gær. Hann verður þó að keppa við félaga sinn í perónistaflokkn- um, Nestor Kirchner, í síðari um- ferðinni þar sem enginn fram- bjóðenda fékk tilskilinn meiri- hluta. Kosningarnar voru hinar fyrstu frá því efnahagslífið hrundi fyrir fáeinum árum. Þegar búið var að telja atkvæð- in frá 80 prósentum kjördeilda hafði markaðshyggjumaðurinn Menem fengið um 24 prósent at- kvæða en Kirchner, sem þykir vinstra megin við miðju, var með um 22 prósent. Menem, sem hefur tvívegis áð- ur verið kjörinn forseti, lokkaði kjósendur til fylgis við sig með loforðum um að rétta efnahagslíf- ið úr kútnum. „Önnur umferðin verður bara formsatriði,“ sagði hinn 72 ára gamli Menem í nótt, með 37 ára gamla vanfæra eigin- konu sína og fyrrum fegurðar- drottningu sér við hlið. Jay Garner fundar með írösk- um leiðtogum í Bagdad í dag - búist viö því aö leiðtogar síta-múslíma munu hunsa fundinn Jay Garner í þungum þönkum Jay Garner gerír aöra tilraun í dag til þess að ræða skipan væntanlegrar bráða- birgðastjórnar í írak þegar hann hittir íraska leiðtoga á fundi í Bagdad. Fyrrum herforinginn Jay Garner, sem stjórnar uppbyggingarstarfinu í írak, mun hitta helstu leiðtoga stjórn- arandstæðinga og annarra áhrifahópa á fundi í Bagdad í dag þar sem rædd verður fyrirhuguð skipan fyrstu bráðabirgðastjórnar í landinu eftir fall Saddams Husseins. Vonast er til að allt að 400 fulltrúar hinna ýmsu áhrifahópa muni sækja fundinn í Bagdad þrátt fyrir fyrirhug- uð mótmæli og andstöðu stórra hópa síta-múslíma, sem hafhað hafa þátt- töku í viðræðunum til þess að mót- mæla afskiptum Bandaríkjamanna af uppbyggingarstarflnu eins og þeir gerðu fyrir fyrri fundinn sem haldinn var í nágrenni borgarinnar Nasiriya fyrir hálfum mánuði en þar mættu að- eins áttatíu fulltrúar íraka til við- ræðnanna. Samkvæmt áætlunum Bandaríkja- manna er væntarilegri bráðabirgða- stjórn ætlað að stjórna uppbyggingar- starfmu undir leiðsögn Banda- ríkjamanna og undirbúa jarðveginn fyrir lýðræðislega rikisstjórn sem tæki við eftir kosningar. Jay Garner ítrekaði í útvarps- ávarpi i gær að það yrði í höndum írösku þjóðarinnar sjálfrar að ákveða pólitíska framtið sína í lýðræðislegum kosningum. „Ég mun aðeins dvelja hér í stuttan tíma og aðstoða við undirbúninginn. Þetta er ykkar land og ykkar fram- tíö,“ sagði Garner í útvarpsávarpinu. Mike O'Brien, aðstoðarutanríkis- ráðherra Bretlands, mun einnig taka þátt í viðræðunum en hann er fyrsti breski ráðherrann sem heimsækir höfuðborgina Bagdad eftir fall Sadd- ams. Hann sagði í viðtali í gær að það væri vilji breskra stjórnvalda að írak- ar tækju sjálfir við stjómartaumun- um í landinu sem fyrst. „Við viljum sjá írak stjómað af írökum fyrir íraka sem fyrst,“ sagði O'Brian. Meira en hundrað manna leiðtoga- hópur landflótta íraka kom saman til viðræðna í Madrid á Spáni í gær og sagði í ályktun sem samþykkt var á fundinum að lýðræðislega kjörin stjórn, sem bandarísk stjórnvöld styddi, væri besta lausnin fyrir fram- tíð íraks og til að koma á farsælu lýð- ræði í landinu væri nauðsynlegt að draga Saddam fyrir dómstóla fyrir glæpi hans gegn irösku þjóðinni. Per Stig Moller Danski utanríkisráðherrann náði ekki samningum við Grænlendinga um eldflaugavarnir í Thule-stöðinni. Ekki enn samkomulag um eltlllaugavarnipnap Grænlendingum og Dönum tókst ekki, eins og til stóð, að ganga endanlega um helgina frá samkomulagi sem heimilar bandarískum stjómvöldum að gera endurbætur á ratsjárstöð- inni í Thule svo hún geti orðiö liður í eldflaugavarnarkerfi Bandaríkjanna. Vonir stóðu til að málið yrði frágengið í fyrir- spurnatíma í danska þinginu á morgun. Svo verður þó ekki. Grænlenska útvarpið sagði í morgun aö samkomulagið hefði strandað á kröfu Grænlendinga um að fá að sitja við sama borð og Danir. Ekki er víst að hún samrýmist því ákvæði stjórnar- skrárinnar dönsku að stjórnvöld í Kaupmannahöfn fari með utan- ríkismál ríkjasambandsins. Per Stig Moller, utanríkisráð- herra Danmerkur, og Hans Enok- sen, formaður grænlensku heima- stjómarinnar, munu nú ráðfæra sig við samherja sína bæði í Kaupmannahöfn og Nuuk. ' : m. w ■ A+nam 4. júní (kvöld og helgarnám) Tölvuviðgerðamám 5. maí (dagnám) 24. maí (kvöld og helgarnám) Námiö er samtals 180 kennslustundir. Á þeim téua er fariö yfir uppbygginu vélbúnaðar en meigin áhersla er lögð á verklega kennslu I viögenöum á tölvum. Nemendur hjá 7TSÍ takast á við raunverulegar bilanir og vandamál sem koma upp I tölvum fná utanaökomandi aðilum. Þannig öðlast rtemendur TTSÍ þekkingu og neynslu undir leiðsögn kennara og fá dýrmæta neynslu. Skólinn býðun upp á framúrskarandi aðstöðu á meðan á náminu stendur og eraðstaðan eitt stænsta og fullkomnasta verkstæði landsins. Markmið Tölvutækniskólans erað allir þeir sem klára tölvuviðgerðamámið sóu undin það búnir að vinna sjálfstætt á verkstæðum og við þjónustu tölvukorfa. Námið ersamtals 80 kennslustundirog stendur yfirí 5vikur. A+ gráðan er án efa ein eftirsóttasta gráða fýrír alla þá sem vinna við tölvuviðgerðir. A+ gráðan frá CompTTAereina alþjóðlega gráðan sem staðfestir fæmi og þekkingu í töh/uvtógerðu Tölvugrunnur Windows XP 17. og 18. maí (helgamám) Nám fyrir byrjendur á öllum aldri. Farið er í allt í sambandi við viðmót stýrikerfa (win98 og winXP). Kenrrt er hvemig nota má tölvuna lyrir alla almena notkun eins og intemetið, viðhald tölvunar, uppsetningu forrita o.m.fl f i n PEARSON of ber »TIA, ijalli 8 ópavour F. 554 77 skoli(®tb tiOþen 1L__,

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.