Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2003, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2003, Page 8
8 Yfirheyrsla MÁNTJDAGUR 28. APRÍL 2003 DV Afraksturinn verði eftir íhöndum áistakiwanna Davíð Oddsson segir að sérstaða Sjálfstæðisflokksins felist í því að vilja að sem mestur hluti afraksturs þjóðfélagsins verði eftir í höndum einstaklinganna fremur en hins opinbera. Ekki sé vafi að það verði til farsældar fyrir alla, sérstaklega þegar þess sé gætt um leið að tryggja sterkt og öflugt velferðarkerfi með öryggisneti sem fólk flækist ekki í og festist, en það virðist einmitt vera ær og kýr sumra vinstriflokka að festa menn til langframa i velferðarkerfinu. Tölur sýna aö skattbyrði hefur aukist á undanförnum árum vegna þess að persónuafsláttur hefur ekki hækkað í takt við laun og vegna þess hvemig skattkerflð er uppbyggt kemur það hlutfalls- lega þyngst niður á þeim sem hafa lægstar tekjur. Ertu sáttur við þessa niðurstöðu? „Það er innbyggt í skattkerfið að þegar tekjumar aukast þá greiða menn hærri skatt. Við höfum hins vegar lækkað skattprósentuna og það virkar auðvitað á móti þessari þróun. Ég er afskaplega ánægður með að það hefur tekist að skapa þann grundvöll í landinu að tekjumar aukist og menn borgi af þeim ástæðum meiri skatt. Þær tillögur sem við geram núna munu svo tryggja að það verð- ur miklu meira eftir í vasa fólksins í landinu. Til viðbótar því koma breyt- ingar eins og lækkim á matarskatti, sem þýðir að allir hagnast, líka þeir sem ekki borga skatta með beinum hætti, og þeir mest sem hlutfallslega mestu eyða í brýnustu nauösynjar. Megirunálið er þetta: Kaupmáttur eft- ir skatt hefur hækkað mjög mikið og mest hjá þeim sem minnstar tekjur hafa. Það er það sem skiptir megin- máli og það er ég ánægður með.“ Þið leggið til flata prósentu- lækkun skatta sem hefur verið gagnrýnd fyrir að þeir fái mest í krónum tahð sem hafi hæstar tekj- umar. Hækkun persónuafsláttar fyrir sama fé og þetta kostar kæmi sér betur fyrir meirihluta skatt- greiðenda. Hvers vegna ekki að fara þá leið? „Okkar hugmyndir eru þess eðlis að þær duga vel við núverandi að- stæður. Það felst í þeim hvatning til sköpunar og örvunar vinnugleði, að mönnum verði ekki refsað fyrir að auka við sig heldur hagnist þeir á því. Þessar tillögur okkar eru enda í góðu samræmi við tillögur hagfræð- inga OECD sem lögðu einmitt til að þessi leið yrði farin i ljósi þess efna- hagsástands sem nú er fram undan. Auk þess hækka skattleysismörkin um rúmar átta þúsund krónur með þessum breytingum sem við leggjum til. Þannig að á heildina litið kemur þessi breyting sér vel og ég hygg að þetta sé áhersla sem flestum skatt- borgurum landsins ætti að hugnast „Einhver mesta og mikil- vœgasta framförin í jafn- réttismálunum er að mínu mati breytingin sem við gerðum á fœð- ingarorlofinu. Það bætir stöðu allra kvenna og stuðlar að jafnrétti á vinnumarkaðinum, hvort sem er hjá riki, sveitarfélögum eða á al- menna markaðinum.“ ALÞINGISKOSNINGAR 2 0 0 3 best. Ef menn vilja ná til þeirra sem lægst launin hafa eiga menn að gera það með öðrum hætti og það gerum við líka; með lækkun matarskattar eins og ég nefhdi áðan, með hækkun bamabóta og einnig með þeim hætti sem við höfum verið að gera með sér- stökum samningum við öryrkja, aldr- aða og aðrar slíkar aðgerðir sem gagnast þeim best sem aðgerðunum er beint að.“ Er hægt að tala um sátt í sjávar- útvegsmálum þegar skoðanakann- anir benda til þess að 80% þjóðar- innar séu andvíg kvótakerftnu? „Umræðan um kvótakerfið er oft býsna misvísandi. Ég er búinn að fara vítt og breytt um landið og þær athugasemdir sem menn gera við kvótakerfið lúta að því hvaða breyt- ingar er hægt að gera á einstökum þáttum innan kerfisins. Ég man varla eftir að hafa hitt nokkurn mann sem vill afnema kvótakerfið og fara að fiska hömlulaust. Andúðin sem er á þessu hugtaki - kvótakerf- inu - er andúð á því að menn geta ekki fiskað jafnmikið og þeir vilja, eins og við gátum áöur. Það er nú ekki flóknara en það að flskveiðiget- an var orðin meiri en aflinn reis und- ir og þá urðu menn að frnna ein- hverja leið til þess að takmarka sókn- ina. Það er það sem fer í taugamar á fiskveiðiþjóð eins og íslendingum." Hvað með þá gagnrýni að til- teknir einstaklingar hafi örlög heilu byggðarlaganna í hendi sér og geti nánast rústað þau með því að selja kvótann burt? „Þetta hefur alltaf verið þannig, líka fyrir daga kvótakerfisins. Ef karlinn fór burt með skipið, ja, þá varð nú frekar dimmt yfir á eftir. Þetta hefur ekki breyst. Reyndar eru 92% kvótans úti í hinum dreifðu byggðum og hafa færst þangað frá höfuðborgarsvæðinu vegna þess að hagkvæmnin kallar eftir því að menn séu nálægt miðunum, þannig að þetta er líka allt saman orðum aukið. Menn tala um færeysku leiðina sem einhveija lausn í þessum málum. En þar eru sóknardagamir jafn framselj- anlegir og kvótinn og alveg jafh lík- legt að þorp og bæir lendi í því þar að sitja uppi dagalaus. Ef menn em á móti kvótanum af þessum ástæðum þá er færeyska leiöin engin lausn þar á. Meginmáli skiptir þó að við erum eitt af fáum ríkjum veraldar sem hef- ur tekist að tiýggja að sjávaraflinn hverfi ekki. Við erum þau einu sem lifum á þessu góðu lifi. Aðrir styrkja þessa grein sem einhveija vandræða- grein af því að þeir era búnir að eyði- leggja hana. Okkar kerfi hefur þó þann kost að menn geta stundað sjálf- bæran sjávarútveg. Það er lykilatriði fyrir lífsafkomu þessarar þjóðar. En menn spila á tilfmningamar. „[Það] er afar þýðingar- mikið að þeir sem sitja saman í stjórn beri traust hver til annars og viti það að orð halda. Það er þýðingarmikið og ég hygg að við stjórnar- myndun eftir kosningar muni menn hafa hliðsjón af því. “ Ég reyndi að leggja mitt af mörkum með veiðileyfagjaldsnefndinni á sín- um tíma. Þar náðist full samstaða um að koma á ákveðnu veiðileyfagjaldi og það var gert. Svo era menn núna í tilefhi kosninga að ijúfa þá samstöðu og setja allt á annan endann með al- gjörlega óábyrgum tillögum um svo- kallaða fymingarleið, sem myndi setja alla greinina í uppnám og byggðimar algjörlega í laust loft.“ Það kom nýverið fram í fréttum að á þessu ári hafi þeim fjölgað sem leiti til Hjálparstofnunar kirkjunnar eftir fjárhagsaðstoð. Bendir það ekki til þess að fátækt sé vaxandi vandamál á íslandi? „Það er merkilegt að þessi umræða skuli vera fyrirferðarmikil fyrir kosningar hér en ekki í öðrum lönd- um þar sem fátækt er miklu meiri, því að samkvæmt öilum tölum er fá- tækt hvergi minni en hér. Allar er- lendar rannsóknir sýna að ísland er það land í heiminum þar sem hvað minnstur munur er á efnahag fólks. Það er engin leið að tryggja að það séu ekki einhveijir sem lendi í tíma- bundnum erfiðleikum einhvem tím- ann á ævinni vegna ytri atvika, en við verðum að reyna að tryggja - eins og við höfúm gert - að hér sé minni fátækt en í nokkra öðra ríki í heim- inum. AJlar okkar aðgerðir hafa mið- að að þessu: að tryggja að það sé næga vinnu að fá, að hækka lág- marksbætur umfram allt annað, hækka kaupmátt bóta, samningur við öryrkja, samningur við aldraða, lækkun matarskatts - þetta era allt raunhæfar aðgerðir." Er eðlilegt að krefjast þess að stjómvöld í ríku landi sjái til þess að ekki einn einasti maður falii niður um öryggisnet velferðar- kerfisins? „Það er allt í iagi að setja sér háleit markmið en það hefur hvergi tekist í heiminum að gera fátæktarlaust land. - Af einhveijum ástæðum hefur höfuðborgin ekki dregist inn í þetta en ef fátækt er svona víðtæk og al- menn hér á landi eins og sumir hafa viljað vera láta þá ber höfuðborgin meginábyrgð samkvæmt lögum um sveitarfélög. Hins vegar sýna tölur frá Félagsþjónustu Reykjavíkurborg- ar að þar er ekki jafnmikill stuðning- ur við fátækar fjölskyldur og var fyr- ir funm til sjö árum af einhveijum ástæðum. Það er vonandi ábending um að fátækt hafi farið minnkandi. Ég geri ráð fyrir því fyrst að stuðn- ingurinn af háifu borgarinnar til þeirra sem minnst hafa hefur minnk- að.“ Gengi krónunnar hefur sveiflast mjög mikið undanfarin misseri og verðbólgan 2001 var 9,4%. Er hægt að tala um að stöðugleiki hafi ríkt í efhahagsmálum á liðnu kjörtíma- bili? „Á síðustu tíu árum hefur ríkt mikill stöðugleiki; svo mikill að þeg- ar verðbólgan nær í skamma hríð upp í 9% gera menn háværar athuga-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.