Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2003, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2003, Blaðsíða 6
Baleno ■ 4 d., bsk. Skr. 7/97, ek. 46 þús. Verð kr. 690 þús. Suzuki Baleno GLX, 4 d., bsk. Skr. 8/99, ek. 39 þús. Verð kr. 990 þús. Suzuki Swift GLX, 5 d., bsk. Skr. 11/96, ek. 67 þús. Verð kr. 450 þús. Suzuki Vitara JLX, 5 d., bsk. Skr. 6/00, ek. 74 þús Verð kr. 1290 þús. Suzuki Sidekick JX, 5 d., bsk. Skr. 9/96, ek. 88 þús. Verð kr. 780 þús. Hyundai Accent GLS, bsk. Skr. 7/98, ek. 45 þús. Verð kr. 550 þús. Hyundai Accent 1,5, bsk. Skr. 12/99, ek. 27 þús. Verð kr. 690 þús. Daewoo Lanos SX bsk. Skr. 10/98, ek. 78 þús. Verð kr. 590 þús. Hyundai Accent 1,5, bsk. Skr. 9/98, ek. 67 þús. Verð kr. 490 þús. Sjáðu fieiri á suzukibilar.is $ SUZUKI ---✓///...... SUZUKI BÍLAFt HF. Skeifunni 17, sími 568-5100 FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2003 Fréttir dv Viöbrögö náinna samherja Davíös: Enginn veit hvað átt helur... „Persónulega finnst mér mikill missir að Davíð úr embætti forsæt- isráðherra þegar að því kemur á næsta ári, því aö ég tel að hann hafi yfirburði yfir aðra íslenska stjórn- málamenn til að gegna því embætti. Mig grunar hins vegar að þessi breyting sé honum ekkert þungbær, enda hefur það verið hans styrkur að mínu mati í gegnum tíöina í stjómarmálum að geta mjög auð- veldlega hugsað sér að breyta til og þá líka í þá átt að láta af völdum sem hann hefur haft,“ segir Jón Steinar Gunnlaugsson lagaprófessor um væntanlegt brotthvarf hans úr forsætisráðuneytinu. Jón Steinar segir ekki tímabært að kveða upp úr um hvort þetta sé fyrsta skref Davíðs út úr pólitík: „En eigum við að segja að það mundi ekkert koma mér á óvart þó að þetta væri hans síðasta kjörtíma- bil sem alþingismanns, enda veit ég að hann getur mjög vel hugsað sér það persónulega að eiga einhvern tíma fyrir sjálfan sig og sín hugðar- efni þegar þessum miklu trúnaðar- störfum sem hann hefur gegnt slot- ar.“ Fagnar skattalækkunum „Davíð hefur verið einhver far- sælasti stjómmálamaður íslendinga frá upphafi,“ segir Hannes Hólm- steinn Gissurarson prófessor. „Hann hefur stjómað styrkri hendi. Ég skal fúslega játa, að ég mun sakna hans úr forsætisráðuneytinu, og ég held, að margir taki undir það með mér. Líklega segja sumir, sem hafa gagnrýnt hann síðustu misser- in: Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur.“ Hannes segist ekki hafa hug- mynd um hvort Davíð leiði flokk sinn í næstu þingkosningum. Að- alatriðið núna sé að náðst hafi samstaða um víðtækar skatta- lækkanir: „Það er stórkostlegt." Hann tekur undir það mat sumra að framsóknarmenn hafi fengið óvenjulega góðan samning sem tæplega 18% flokkur. „Jú, að sjálfsögðu. Sjálfstæðismenn með Davíð í fararbroddi sýna Fram- sóknarflokknum mikið pólitískt örlæti með þessum skiptum. En auðvitað verða að vera heilindi í samstarfi flokka, og það hefur ver- ið síðustu átta árin.“ Hannes segist ekki telja að meg- inástæðan fyrir þessari eftirgjöf sé sú að ekki hafi komið til greina af hálfu sjálfstæðismanna að fara í ríkisstjórn með Samfylkingunni. „Það held ég ekki. En gallinn við Samfylkinguna er, að enginn veit, hver veitir henni forystu eða stjórnar henni. Við hvem ætti að handsala samstarf? Össur? Ingi- björgu Sólrúnu? Jón Ólafsson?" -ÓTG DV-MYND E.ÓL. Glöð á góöri stund Framsóknarmenn komu kátir út af þingfiokksfundinum í Alþingishúsinu í gær. Siv Friöieifsdóttir þarf aö vísu aö sjá á eftir umhverfisráöuneytinu yfir til sjálfstæöismanna eftir um 15 mánuöi en telur sig örugglega eiga góöa möguleika á aö sitja áfram i ríkisstjórn. Davíð Oddsson. Met Sjálfstæðisflokksins: Lengst samfellt í ríkisstjórn Sitji stjómin sem verið er aö mynda út kjörtímabilið mun Sjálf- stæðisflokkurinn hafa átt aðild að ríkisstjóm samfellt í 16 ár, sem yrði met. Metið er núna hjá Alþýðu- flokknum sem átti aðild að ríkis- stjóm samfellt frá júlí 1956 til júlí 1971 eða í 15 ár. Framsóknarflokkur- inn var í ríkisstjóm í tæp 15 ár ffá ágúst 1927 til maí 1942. Eitt met mun hins vegar ekki falla. Framsóknarflokkurinn fór nefnilega samfellt með forsætisráðuneytið öll 15 árin sem að framan greinir. Sjálf- stæðisflokkurinn mun fara með for- sætisráðuneytið samfellt í rúm 13 ár, frá apríl 1991 til september 2004. Það er reyndar met á lýðveldistímanum en fýira met á flokkurinn sjálfur; tæp 12 ár í Viðreisnarstjórninni. Met- ið hefði fallið ef forsætisráðuneytið hefði komið í hlut Sjálfstæðisflokks- ins allt kjörtímabilið. Davíð Oddsson hefur þegar slegið bæði met Hermanns Jónassonar, sem var forsætisráðherra samfellt í 7 ár og tæpa tíu mánuði. Davíð sló það met 17. febrúar 1999 og bætir það ef að líkum lætur um tæp 6 ár. Her- mann var samtals forsætisráðherra i 10 ár og tæpa 3 mánuði. Davíð sló það met 19. júlí 2001 og bætir það ef að líkum lætur um 3 ár. Þess má geta að eftir því sem DV kemst næst hafa allir formenn Fram- sóknarflokksins, sem hafa setið í rík- isstjóm sem formenn flokksins, orðið forsætisráðherrar. Halldór Ásgríms- son hefði með öðrum orðum getað orðið fyrsti formaður flokksins sem ekki yrði forsætisráðherra eftir að hafa setið í ríkisstjórn sem formaður. 25 ráðherrar Ráðherramir sem Davíð Oddsson hefur unnið með frá 1991 era orðnir 25 talsins. Níu þeirra era úr Sjáfl- stæðisflokknum (taldir upp í sömu röð og í Handbók Alþingis): Friðrik Sophusson, Halldór Blöndal, Ólafur G. Einarsson, Þorsteinn Pálsson, Bjöm Bjarnason, Geir H. Haarde, Ámi M. Mathiesen, Sturla Böðvars- son og Sólveig Pétursdóttir. Átta koma úr Alþýðuflokknum: Jón Baldvin Hannibalsson, Eiður Guðnason, Jóhanna Sigurðardóttir, Jón Sigurðsson, Sighvatur Björgvins- son, Guðmundur Ámi Stefánsson, Össur Skarphéðinsson og Rannveig Guðmundsdóttir. Og átta koma úr Framsóknar- flokknum: Halldór Ásgrímsson, Finnur Ingólfsson, Guðmundur Bjamason, Ingibjörg Pálmadóttir, Páll Pétursson, Guðni Ágústsson, Siv Friðleifsdóttir og Valgerður Sverrisdóttir. -ÓTG Viöbrögö stjórnarandstööunnar viö ríkisstjórnarmyndun: Afram sama hægristjórnin „Ég get ekki sagt að þetta komi mikið á óvart. Það er ljóst að það stóð aldrei annað til hjá þeim en að halda áfram stjómarsamstarfi. Þá vantaði bara kjark og hreinskilni til að segja það fyrir kosningar. Ég gef ekki mik- ið út á þessar stólahrókeringar því það er stefna þessarar ríkisstjómar sem skiptir máli. Og ég hef ekki trú á að það verði nein stefhubreyting, þetta verður áfram sama hægrist- jórnin," sagði Steingrímur J. Sigfus- son, formaöur Vinstri grænna, við DV í morgun. Steingrímur sagði Framsókn hafa kyngt skattatillögum Sjálf- stæðisflokksins og liti á umhverfis- ráðuneytið sem skiptimynt. „Það þjónar þeim persónulega metnaði Halldórs að vera forsætisráðherra hluta samstarfstímans. En það er pólitíkin sem skiptir máli og þar hef ég því miður enga ástæðu til bjartsýni. Sjálfstæðisflokkurinn virðist ráða ferðinni í öllum aðalat- riðum. Það er síðan táknrænt að Framsókn lítur á þetta umhverfisráðuneytiö sem skipti- mynt í stólakaupum. En ég kvíði því ekkert þó það ráðuneyti fari til Sjálfstæðisflokksins því varla getur það versnað." Ingibjörg Sóh-ún Gísladóttir, tals- maður Samfylkingar, sagði verð- andi ríkisstjóm ekki leggjast vel í sig. „Þetta er ekki spennandi ríkis- stjóm, einkennist hvorki af ný- sköpun né krafti. Þama kemur fátt á óvart og ekkert nýtt nema stóla- skiptin milli Halldórs og Davíös. Ég er ekki farin aö sjá stjómarsáttmál- ann en víst er að við munum halda þeim við efnið og veita þeim verð- uga og málefnalega stjórnarand- stöðu. Þar munu efhahagsmálin koma sterkt inn í myndina ásamt mennta- og velferðarmálum," sagði Ingibjörg. Um stólaskipti formannanna sagði hún: „Mér sýnist að Halldór og Davíð fái metnaði sínum mætt að vissu marki. Þetta viröist ganga mikið út á persónulegan metnað í stað nýsköpunar og framsækinna mála.“ -hlh

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.