Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2003, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2003, Blaðsíða 29
29 Olafur þjálfar Aftureldingu Ólafur Björn Lárusson verður næsti þjálfari 1. deildar liðs Afturelding- ar í handknattleik. Aðil-. ar hafa komist að munn- legu samkomulagi og verður skrifað undir á næstu dögum. Áhersla verður lögð á að fá tvo sterka erlenda leikmenn og eru góðar líkar á að Litháinn Gintaras komi á nýjan leik til liðsins. í kringum nýja leikmenn verður síðan byggt upp á yngri leikmönnum llðs- ins. -JKS Dalas keppni i hverju orði Rafpostur: dvsport@dv.is Lið Dallas Mavericks, sem komið er í undanúrslit NBA-deildarinnar í körfuknattleik, hefur lýst yfir áhuga á körfuknattleiksmanninum Jóni Amóri Stefánssyni, sem nú leikur með þýska úrvalsdeildarlið- inu Trier. Eins og DV-Sport greindi frá á mánudaginn verður Jón Am- ór á meðal 31 leikmanns utan Bandarikjanna, sem verður í ný- liðavali NBA-deildarinnar i ár. Að sögn Péturs Guðmundssonar, eina íslendingsins sem leikið hefur í NBA-deiIdinni, hefur Dallas haft augastað á Jóni í ákveðinn tíma og hvort hann verður áfram í nýliða- valinu ræðst að miklu leyti á Dallás-liðinu og hvort þessi áhugi er enn fyrir hendi. Dallas er líklega það NBA-lið sem duglegast er að kortleggja Evr- ópska leikmannamarkaðinn. Félag- ið hefur verið mjög virkt á þeim vettvangi og nægir þar að nefha að Þjóðverjinn Dirk Nowitzki, einn besti leikmaður NBA í dag, var uppgötvaður af njósnurum félags- ins þegar hann lék í þýsku 2. deild- inni. Fyrst og fremst góö auglýs- ing fyrir leikmenn Allt er taliö eins líklegt að Jón Arnór dragi sig út úr nýliðavalinu áður en sjálft valið fer fram en það þykir mjög góð auglýsing fyrir er- lenda leikmenn að vera á þessum lista. Algengt er að leikmenn dragi sig út úr hópnum á síðustu stundu því aðeins einu sinni er hægt að vera á lokalistanum þegar sjálft val- ið fer fram. „Ef Jón og umboðsmaður hans finna fyrir því að það sé hugsanlega ekki grundvöllur fyrir því að hann verði valinn mun Jón líklega draga sig úr valinu til þess eins að fyrir- gera ekki réttinum að endurtaka leikinn síðar,“ segir Friðrik Ingi Rúnarsson landsliðsþjálfari og bendir i því samhengi á Grikkjann Konstantinos Tsartsa sem lék með Grindvíkingum hér á íslandi árið 1998. Hann hafi tvívegis skráð sig í nýliðaval NBA en í bæði skiptin dregið sig út úr því rétt áður en val- iö fór fram. Friðrik Ingi segist allt eins búast við þvi að þessi verði raunin hjá Jóni, jafnvel þótt hann sé nokkuð þekktur af NBA-liðun- um, bæði frá þeim tíma sem hann lék í menntaskóla þar í landi og eins úr þýsku úrvalsdeildinni. „Ég þekki nú ekki sögu umboðs- manns Jóns og annarra sem standa að þessu en veit að hann hefur ver- ið í tengslum við sum NBA-liðin. Þetta net í körfuboltanum er orðið svo þétt að það er vitað um alla þá menn sem eitthvað geta, hvar sem þeir eru í heiminum," segir Friðrik Ingi. - En er hann virkilega þaö góöur og efnilegur aö hann geti spjaraö sig í NBA-deildinni? „Jón Amór er mjög sérstakur leikmaður. Það virðist vera alveg sama í hvaða deild hann er - hann skilar alltaf sínum leik, hvort sem það er með unglingaliði KR eða í efstu deild í Þýskalandi, hann skil- ar sínum 15 stigum. Hann er með ótrúlega hæfileika sem er í raun- inni mjög erfitt að útskýra. Ég get alveg séð Jón Amór ná enn lengra en hann hefur gert í dag. Ef hann heldur áfram að vera duglegur og lærir af Ólafi (Stefánssyni hand- knattleiksmanni) bróður sínum, þá eru honum allir vegir færir,“ segir Friðrik Ingi. -vig LeikrniE Föstudagur 23. mai - Keflavik Kl. 18.00: Ísland-Noregur .... konur kf. 20.00: Ísland-Noregur .... karlar Laugardagur 24. mai - Frostaskjól kl. 14.30: Ísland-Noregur .... konur kl. 16.30: Ísland-Noregur .... karlar Sunnudagur 25. maí - Ásvellir kl. 18.00: Ísland-Noregur .... konur kl. 20:00: Ísland-Noregur .... karlar - landslið Islands í körfubolta ætla sér sigur á smáþjóðaleikunum tíma hefur öll umgjörð og annað sem kemur að leikjum batnað til muna. Friðrik Ingi segir að landslið- ið hafi notið góðs af því. „Leikmenn þeirra æfa meira í kjölfarið, sumir hverjir tvisvar á dag. Vissulega taka menn fram- forum á því og þetta fyrir- komulag er kannski eitthvað sem viö þurfum kannski að skoða hér á Fróni,“ sagði Friðrik Ingi ennfremur. Eigum góöa möguleika ísland og Noregur hafa fjórum sinnum mæst í kvennaflokki á körfuboltavellinum i gegnum tíð- ina. Aðeins einu sinni hefur ís- land borið sigur úr býtum en það var árið 2000 á alþjóðlegu móti í Lúxemborg. Síðar sama ár mættust þjóðimar aftur á Noröurlandamót- inu og sigruðu þá norsku stelpum- ar. Hjörtur Harðarson, landsliðsþjálf- ari kvenna, kveðst bjartsýnn fyrir leikina þrjá um helgina. „Þessir leikir leggjast bara vel í mig. Án þess að vita mikið um norska liðið þá hafa þær veriö svona svipaðar að getu og við síð- ustu ár og ég býst fastlega við því að lítil breyting verði á þvi núna. Ég tel okkur eiga góða möguleika og við stefnum að því að vinna alla þrjá leikina," sagði Hjörtur í samtali við DV-Sport i gær. Rétt eins og hjá körlunum segir Hjörtur að leikimir séu fyrst og fremst hugsað- ir sem undirbúningur fyrir smáþjóðaleikana. Þar telur hann íslenska liðið eiga góða möguleika á sigri. „Það er ekki spuming að við stefnum á sigur þar. Við höfum keppt við Lúxemborg, Kýpur og Möltu á síðustu tveimur árum og unnið þau lið. Ef viö spilum eins og við getum eigum við mikla mögu- leika. Við erum búin að æfa vel og eigum að koma vel undirbúin til leiks," segir Hjörtur. -vig Friðrik Ingl Runnrsson lancisliösþjálfari segir islensku líðiö ælla ser sígur og ekkert annað a smáþjoðaleikunum setn hnldnlr verða a Möltu i byi jun júni. Karla- og kvennalandslið ís- lands í körfuknattleik munu standa I ströngu um helgina en þá leika liðin þrjá leiki hvort við ná- granna okkar frá Noregi. Eru þessir leikir fyrst og fremst hugs- aðir sem liður i undirbúningi lið- ■ anna fyrir smáþjóðaleikana sem haldnir verða á Möltu í byrjun júní. Ætlum okkur sigur ísland og Noregur hafa 39 sinn- um att kappi í karlaflokki frá ár- inu 1966. ísland hefur oftar haft betur i þessum viðureignuni - alls 24 sinnum á meðan Norðmenn hafa 15 sinnum haft betur. Síðast mættust þjóðimar á Norðurlanda- mótinu síðasta sumar. Þá höfðu íslendingar betur gegn heimamönnum í háspennuleik þar sem lokatölumar urðu 77-76. Norðmenn eiga því harma að hefna um helgina en ef eitt- hvað er að marka orð Friðriks Inga Rúnars- sonar, landsliðsþjálf- ara karla, munu Norðmenn ekki eiga erindi sem erfiði í þessa íslandsfor sinni. „Það er alltaf tilhlökkun að fá landsleiki og það er langt síðan við lékum landsleik hér heima síðast. Allir leikmenn mínir eru tilbúnir í slaginn og ætla að leggja sig alla fram,“ sagði Friðrik Ingi þegar DV-Sport ræddi við hann í gær. Hann sagði lið sitt ætla að leika til sigurs um helgina. „Þessir leikir gegn Norðmönn- um eru nokkurs konar undirbún- ingur fyrir smáþjóðaleikana en auðvitað er líka kærkomið að fá tækifæri til að spila landsleik. Markmiðið hjá okkur er skýrt - að vinna smáþjóðaleikana. Það hefur ísland ekki gert I tíu ár en við ætlum að breyta því núna. Við forum í hvem einasta leik til að vinna,“ segir Friðrik Ingi. Þýðir ekki að væla Eins og fram hefur komið á síð- ustu vikum vantar nokkra sterka menn í landsliðshópinn. Það or- sakast af ýmsum ástæðum - sumir komast ekki vegna anna i námi, aðrir eru meiddir og þá hefur Helgi Jónas Guðfinnsson, sem valinn var besti leikmaður Inter-Sport deildar- innar í ár, ákveðið að leika knatt- spyrnu með Grindavík í sumar fre- kar en að taka þátt í verkefnum körfuknattleikslandsliðsins. Jón Arnór Stefánsson, sem af mörgum er talinn besti leikmaður landsliðsins, verður ekki með í leikjunum gegn Norðmönnum vegna meiðsla á hné. Jón Amór fór í speglun vegna áverkanna nú fyrir skemmstu og kveðst Friðrik Ingi ekki bjartsýnn á að hann verði búinn að ná sér í tæka tíð fyrir smá- þjóðaleikana. „Ég tel það frekar ólíklegt, því miður. Þessi meiðsli eru þess eðlis að hann getur ekki tekið mikla sénsa á að spila nema hann sé 100% heill," segir Friðrik Ingi og bætir við að hann reyni að einbeita sér að þeim hópi sem hann hefur hverju sinni. „Auðvitað er slæmt að vera án þessara manna sem gefa ekki kost á sér en það þýðir ekkert að tárast yf- ir því. Við einbeitum okkur bara að þeim sem eru að æfa núna og ég veit vel að þeir ætla að sanna sig og sýna hvað í þeim býr.“ Norðmenn í mikilli framför Að sögn Friðriks Inga hefur norska liðið verið að taka miklum framfórum í gegnum tíðina. Deild- arkeppnin þar í landi var stokkuð upp fyrir fáeinum ámm og frá þeim Hjörtur Harðarson. v y

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.