Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2003, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2003, Blaðsíða 26
26 FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2003 Guðmundur úr leik Guðmundur Stephensen var sleginn út í 32-manna úrslitum á heimsmeistara- mótinu í tennis í París í gærkvöld. Hann tapaði fyrir Li Ching frá Hong Kong, 4-1. Guðmundur byrjaði að vinna Mohamen Said Abduila frá Sómalíu, 4-0.1 2. umferð sigraði hann Said Frid frá Alsír, líka 4-0. Guðmundur lagði Walesbúann Adam Robertsson í 3. umferð, 4-3. í 4. umferð mætti Guðmundur Michael Maze frá Dan- mörku sem er i 21. sæti á heimslistanum. Guðmundur náði sér mjög vel á strik og sigraði þennan sterka spilara, 4-2. -JKS Ingvi Sveinsson, leikmaður Þróttar, fékk heilahristing og missti minnið gegn KR: Man ekkl efflr fyrsta úrvalsdeiMarleðtnum man samt ekki eftir fyrsta úrvalsdeildar- leiknum mínum,“ segir Ingvi. Hann kom ekkert við sögu í liði Þróttar árið 1999 en þá var liðið síðast í deild þeirra bestu. „Auðvitað hefði ég átt að fara út af um leið og þetta gerðist en sjúkraþjálfarinn og hinir áttuðu sig ekkert á því að um heilahristing væri að ræða. Hefði svo verið hefði mér að sjálf- sögðu ekki verið hleypt inn á völlinn í síðari hálfleik," segir Ingvi og bætir við að það sé lán í óláni að leikurinn hafi verið sýndur í beinni út- sendingu. Þannig hafi hann alla vega getað „séð“ sinn fyrsta leik í úrvalsdeildinni. „Ég stóð eiginlega strax upp eftir samstuðið og hélt áfram leik. Þeir athuguðu mig inni í klefa í hálfleik og þá gat ég víst sagt nafn mitt og kennitölu og þessa hluti. Þess vegna mátu þeir það svo að ég gæti haldið áfram leik. En ég man ekkert eftir leiknum eða þegar ég gekk inn á völlinn. Ég man aðeins eftir upphit- uninni,“ segir Ingvi Sveinsson, hægri bakvörður Þróttar í Lands- bankadeildinni, sem varð fyrir held- ur sérkennilegri lífsreynslu á mánu- daginn þegar lið hans atti kappi við íslandsmeistara KR í fyrstu umferð mótsins. Samstuðið varð rétt áður en flautað var til hálfleiks en þá átti Ingvi í höggi við Einar Þór Daníels- son, fyrirliða KR. „Þegar nokkrar mínútur voru liðnar af siðari hálfleik var ég farinn að spyrja Eystein (Lárusson), félaga minn í vöminni, á móti hverjum við værum að keppa, hver staðan væri og fleira í þeim dúr. Ég var víst gjörsamlega út úr kortinu og auðvit- að tekinn strax út af,“ segir Ingvi sem getur ekki annað en hlegið að atvikinu eftir á. Hann fór rakleiðis eftir leikinn á slysadeild og þar kom í ljós að hann hafði fengið heilahristing. „Ég fór bara heim og tók það ró- lega og morguninn eftir var ég eigin- lega alveg búinn að jafna mig. En ég Styrkleikalisti FIFA: ísland niður í 70. sætíð íslendingar eru nú í 70. sæti á styrkleikalista alþjóða knatt- spymusambandsins en nýr listi var gefinn út í gær. ísland hefm- fallið um tvö sæti frá því að list- inn var gefmn út síðast í mars og um tólf sæti frá því í desember. Brasilíumenn tróna sem fyrr í efsta sætinu og hafa verið þar frá því að þeir urðu heimsmeist- arar í fyrrasumar. Frakkar em í öðru sæti og Spánverjar í þriðja sætinu. Síðan koma Þjóðverjar, Argentínumenn og Hollending- ar. Englendingar eru í sjöunda sæti og Danir eru efstir Norður- landaþjóðanna í tíundu sæti á listanum. -JKS KORFUBOLTI JjPm Úrslit vesturdeildar 21. maí 2003 San Antonio-Dallas 119-106 Stig San Antonio: Tim Duncan 32 (15 fráköst, 5 stoösendingar), Malik Rose 25 (6 fráköst), Tony Parker 19. Stig Dallas: Michael Finley 29 (10 fráköst), Dirk Nowitzki 23 (10 fráköst), Raef Lafrentz 15.. Staðan í einvíginu er 1-1. Mikið gert grín að mér Ingvi þjálfar mikið af yngri flokk- um Þróttar og kveðst hafa orðið fyr- ir miklu aðkasti af yngri iðkendum félagsins frá því að hann sneri aftur Toyota-mótaröðin, úrvalsdeild karla, íslenskra kylfinga, hefst á Korpúlfsstaðavelli um helgina og stendur mótið yfir á laugardag og sunnudag. Flestir sterkustu kylfing- ar landsins taka þátt í mótum Toyota-mótaraðarinnar og t.d. verða m.a. Björgvin Sigurbergsson, GK, og Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, sem undanfarin ár hafa reynt fyrir sér erlendis, með í nokkrum mótanna. Glæsileg verðlaun verða á hveiju móti og eins hefur landsliðsþjálfar- inn ákveðið að stigameistarar Toyota-mótaraðarinnar vinni sér rétt til þátttöku á Norðurlandamót- inu sem haldið verður í Svíþjóð í lok september. Golftimabilið hófst óvenju snemma í vor og kemur það til af einmuna blíðu sem hefur verið hér á landi síðustu vikurnar. Vellimir koma almennt séð mjög vel undan vetri og voru flestir búnir að sefja inn á sumarflatir um síðustu mán- aðamót. í samningi Golfsambandsins og Búnaðarbankans, sem er einn af að- alsamstarfsaðilum sambandsins, er á æfingasvæðið. „Strákarnir sem ég þjálfa eru að stríða mér mikið þessa dagana - þeir spyrja hvort ég muni eftir þeim, segja að ég hafi skuldað þeim pen- inga og eitthvað svoleiðis. Þeim leið- ist alla vega ekki að ég hafi lent í lögð rík áhersla á bama- og ung- lingastarf. Þá mun sambandið verða með öflugt kynningarátak fyrir böm og unglinga í samstarfi við Búnaðarbankann sem gengur undir nafninu krakkagolf og verður golfi- Birgir Leifur Hafþórsson, kylfingur úr GKS. þessu“ segir Ingvi og skellir upp úr. Ingvi segist vera búinn aö ná sér fullkomlega og er tilbúinn í slaginn um næstu helgi. Þá fara Þróttarar í heimsókn upp á Skipaskaga og eiga þar í höggi við heimamenn í ÍA. þróttin kynnt víða um land í því átaki. Sýnt verður frá öllum mótum Toyota-mótaraðarinnar í sérstökum þáttum á sjónvarpsstöðinni Sýn. Sýnt verður hins vegar beint frá ís- landsmótinu í höggleik í Vest- mannaeyjum sem verður haldið helgina fyrir verslunarmannahelg- ina. Nokkur önnur stórmót verða haldin af golfklúbbunum í sumar. Opin mót verða á Grafarholtsvelli og Hvaleyrarvellinum. Af því tilefni hafa á fjórða hundrað erlendra kylfinga boðað komu sína hingað til lands. Hið heimsfræga Arctic Open á Akureyri verður á sínum stað og einnig stórmót í Eyjum sem einnig mun draga til sin fjölda erlendra kylfmga. Þá hefur verið ákveðið að þeir Justin Rose og Peter Baker verði á meðal þátttakenda á Canon-mótinu á Hvaleyrinni í sumar en báðir þessir kylfingar spila eins og kunn- ugt er á evrópsku mótaröðinni. -JKS ---------—--— ___________ Jesus Gil, forseti spænska liðsins Atletico Madrid, skýrði frá því í gær að hann myndi brátt láta af störfum sem forseti félagsins. Gil, sem er sjötugur að aldri, hefur í gegnum tíðina ver- ið mjög umdeildur og sætt oft harðri gagnrýni fyrir skoðanir sinar. Hann hefur verið á for- setastóli hjá Atletico í 16 ár. Sumir taka þessa yfirlýsingu með fyrirvara en Gil hefur áður sagst vera á forum. Aðgöngumióasala í forsölu fyrir Evrópumótið í Portúgal í knattspymu á næsta sumri gengur mjög vel. Vel á annað hundrað miðar eru þegar seldir en salan fer fram á Intemetinu. Hátt í hálf milljón miða er í boði og er ljóst að þeir verða löngu seldir áður en mótið hefst. Mótið fer fram á tíu leikvöngum víðs vegar um landið. Wesley Sneijder, einn efhileg- asti leikmaður Hollands í dag, skrifaði í gær undir fjögurra ára samning við Ajax sem hann hef- ur leikið með frá bamsaldri. Hann lék sinn fyrsta leik með liðinu I úrvalsdeild í febrúar sl. Mörg af stærstu félögum Evrópu sýndu þessum 18 ára pilti mik- inn áhuga. Vicente del Bosque, þjálfari Real Madrid, mátti sitja undir harðri gagnrýni spænskra fjöl- miðla þegar liðið féll út úr meist- aradeildinni eftir tap gegn Juventus. Fátt bendir til annars en að Bosque verði áfram þjálf- ari liðsins en það veltur á því hvort honum tekst að gera Real Madrid að Spánarmeisturum Thomas Hessler leikur sinn 400. deildarleik í þýsku úrvals- deildinni í knattspyrnu þegar lið hans, 1860 Múnchen, tekur á móti Bochum. Þetta verður um leið kveðjuleikur hans í deild- inni. Hassler, sem er 37 ára gam- all og á að baki 101 landsleik meö þýska landsliðinu, hefur í hyggju að leika áfram og langar að freista gæfunnar á Katar. David Beckham, fyrirliði enska landsliðsins í knatt- spymu, hitti í gær að máli Nel- son Mandela í Jóhannesarborg og sagðist ætla að styðja umsókn S-Afríku um að fá að halda heimsmeistaramótið 2010. Afr- íkumenn lutu í lægra haldi fyrir Þjóðverjum sem halda keppnina 2006. Englendingar mæta S-Afr- íkumönnum í vináttuleik í Durban í kvöld. Chelsea hefur krækt í austur- ríska markvörðinn Jtirgen Macho frá Sunderland. Macho, sem er 25 ára, lék 16 leiki með Sunderland á nýafstöðnu tíma- bili en liðið féll sem kunnugt er í 1. deild. Macho mun berjast um stöðuna í Chelsea við ekki ófrægari menn en Carlo Cudicini og Ed de Goey. í þingi Sundsambands Islands um síðustu helgi kom fram að hagnaður sambandsins á síðasta ári nam 1,8 milljónum króna. Munar það mestu um hagnað af Lottóinu. Benedikt Sigurðar- son er formaður SSl en á þing- inu var ákveðið að fjölga aðal- mönnum í stjórninni úr fimm í níu og hætta að kjósa varamenn. Þórunn Guðmundsdóttir kom ný inn i stjórnina. -JKS Keppnistímabil kylfinga aö hefjast fyrir alvöru: Bestu kylfingarnir með á Toyota-mótaröðinni - fyrsta mótið haldiö á Korpúlfsstaðavelli um helgina

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.