Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2003, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2003, Blaðsíða 24
24 íslendingaþættir Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson 80 ára Steingrímur Guömundsson, Breiðvangi 4, Hafnarfirði. 75 ára___________________________ Guðrún Jónsdóttlr, Litlageröi lb, Hvolsvelli. Hulda Þorsteinsdóttir, Skarðshlíö 1, Akureyri. 70 árg___________________________ Margrét Kristín Guðmundsdóttir, Suöurhólum 26, Reykjavík. Margrét Margeirsdóttir, Brávallagötu 26, Reykjavík. 80 ára___________________________ Áslaug Þorleifsdóttir, Gautavík 34, Reykjavík. Helgi Vigfús Karlsson, Miðvangi 8, Hafnarfiröi. Karólína Þorgrímsdóttir, Sunnubraut 48, Keflavík. Kristín R. H. Benediktsdóttlr, Selbrekku 20, Kópavogi. Kristján Þórarinsson, Borgarbraut 47, Borgarnesi. Hann veröur aö heiman. 50 ára_________________________ Atll Vlóar Jónsson, Veghúsum 15, Reykjavík. Guörún Jónsdóttir, Háaleitisbraut 34, Reykjavík. Hilmar Þór Pálsson, Engjavegi 55, Selfossi. Ingibjörg Benediktsdóttir, Vesturási 47, Reykjavík. Jakob Gunnar Hjaltalín, Garöarsbraut 39, Húsavík. Jón Guðbjörnsson, Nýbýlavegi 64, Kópavogi. Katrín Jónína Óskarsdóttir, Miðtúni, Hvolsvelli. Stefanía Borghildur Ólafsdóttlr, Hlíöargötu 51, Fáskrúösfiröi. 40ára__________________________ Eövarö Rúnar Lárusson, Hraunteigi 26, Reykjavík. Eifar Óskarsson, Blikahólum 6, Reykjavík. íris Elfa Haraldsdóttir, Sléttuvegi 4, Selfossi. Ragnheiöur L. Eyjólfsdóttir, Langholtsvegi 163b, Reykjavík. Sigmar Arnarson Scheving, Hverfisgötu 98, Reykjavík. Sigurvin B. Hafsteinsson, Jöklaseli 1, Reykjavík. Skarphéöinn Reynlsson, Ljósabergi 38, Hafnarfiröi. Steindór Kristinn ívarsson, Krummahólum 27, Reykjavík. Þorielfur Kristinn Karlsson, Hóli, Eyjafjaröars. Allt til alls ►I550 5000 Andlát Jóhanna Katrín Pálsdóttir Ijósmóöir, Hólabraut 3, lést á St. Jósefsspítala, Hafnarfiröi, laugard. 17.5. Fríöur Sigurjónsdóttir Ijósmóöir frá Litlulaugum í Reykjadal lést á Hrafnistu í Reykjavík mánud. 5.5. Útförin hefur fariö fram í kyrrþey aö ósk hinnar látnu. Ásgeir J. Sandholt bakarameistari andaöist á Hjúkrunarheimilinu Eir mánud. 19.5. Andrés Magnússon, Heiömörk 18, Hveragerði, lést á Landspítala Hringbraut mánud. 19.5. FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2003 DV Fólk í fréttum Ágúst ólafur Ágústsson nýkjörinn alþingismaður Samfylkingarinnar í Reykjavík Agúst Ólafur Ágústsson er einn nýliöanna á Alþingi eftir nýafstaðn- ar alþingiskosningar. Hann er 10. þingmaður í Reykavíkurkjördæmi suður fyrir Samfylkinguna, er næstyngsti þingmaður Alþingis og er yngsti þingmaður Samfylkingar- innar. Starfsferill Ágúst Ólafur fæddist í Hamborg í Þýskalandi 10.3. 1977 og ólst upp á Seltjamamesinu. Hann var i Mýr- arhúsaskóla og Valhúsaskóla, lauk stúdentsprófi frá MR 1997 með fyrstu einkunm og var dúx skólans í sagnfræði og stundar nú nám við lagadeild og viðskipta- og hagfræði- deild Hl. Á unglingsárunum vann Ágúst Ólafur á sumrin í bæjarvinnu hjá Seltjamamesbæ, í frystihúsi hjá Granda hf. og síðan við skrifstofu- störf hjá Hraðfrystistöðinni í Reykjavík. Hann stundaði verka- mannastörf í Kaupmannahöfn sum- arið 1998, var blaðamaður á dag- blaðinu Degi sumarið 1999, vann ný- sköpunarverkefni um reglur um persónuvemd í íslenskum og alþjóð- legum rétti fyrir Siðfræðistofnun HÍ sumarið 2000, starfaði í Tekju- og lagaskrifstofu fjármálaráðuneytis- ins sumariö 2001 og auk þess á Gjaldaskrifstofu ríkisskattstjóra. Ágúst Ólafur var forseti Framtíð- arinnar, nemendafélags í MR, vetur- inn 1996-97 og ritstjóri Skólablaðs MR veturinn 1995, hefur verið for- maður Ungra jafnaðarmanna frá 2001, situr í stjóm fulltrúaráðs Sam- fylkingarinnar í Reykjavík, var varaformaður Ungra jafnaðar- manna 2000-2001, sat í fram- kvæmdastjóm SUJ 1999-2000, var ritstjóri blaðs Ungra jafnaðar- manna, Pólitík, sem kom út árið 2002, og ritstjóri vefritsins politik.is árið 2000-2001, er varaformaður Varðbergs, samtaka um vestræna samvinnu, 2002-2004 og hefur verið í stjóm Varðbergs frá 2000, sat í stjórn Röskvu í HÍ veturinn 1999-2000, í ritstjóm Röskvu vetur- inn 1999-2000, sat í ritstjóm Úlfljóts, tímarits laganema, árið 2000, sat i stjóm ELSA-ísland, samtaka evr- ópskra laganema veturinn 1999-2000 og í ritstjóm Lagakróka, tímarits ELSA-ísland árið 2001 og var rit- stjóri Hátíðartímarits ELSA-ísland áriö 1999. Ágúst Ólafur gerði skýrslu um sjávarútvegsstefnu Evrópusam- bandsins og hvemig hún snertir hugsanlega aðild íslands að ESB ár- ið 2001 í Evrópuúttekt Samfylking- arinnar. Fjölskylda Sambýliskona Ágústs Ólafs er Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, f. 23.5. 1978, laganemi. Foreldrar Þorbjarg- ar eru Gunnlaugur A. Jónsson, f, 28.4. 1952, prófessor og forseti í guð- fræðideildar HÍ, og Guðrún Helga Brynleifsdóttir, f. 22.6. 1954, lögmað- ur og hagfræðingur. Þau búa á Sel- tjamarnesi. Dóttir Ágústs og Þorbjargar er El- ísabet Una, f. 22.5. 2002. Bræður Ágústs Ólafs eru Einar Ágústsson, f. 11.11. 1972, fram- kvæmdastjóri í Reykjavík; Ingólfur Ágústsson, f. 16.3. 1974, stærðfræð- ingur og eðlisfræðingur, búsettur á Seltjamamesi, en kona hans er Inga Brá Vigfúsdóttir. Foreldrar Ágústs Ólafs em Ágúst Einarsson, f. 11.1. 1952, prófessor og forseti viðskipta- og hagfræðideild- ar HÍ, og Kolbrún Ingólfsdóttir, f. 10.3. 1943, meinatæknir og sagn- fræðingur. Þau búa á Seltjamar- nesi. Ætt Bróðir Ágústs prófessors var Sig- uröur, forstjóri ísfélags Vestmanna- eyja, faðir Einars, stjómarformanns DV. Ágúst er sonur Einars, útgerð- armanns og bæjarfulltrúa í Vest- mannaeyjum og síðar í Reykjavík, Sigurðssonar, formanns á Heiði í Vestmannaeyjum, Sigurfmnssonar, b. í Ystabæli undir Eyjafjöllum, Runólfssonar, skálds á Skaganesi í Mýrdal, Sigurðssonar, pr. á Ólafs- völlum, bróður Sæmundar, fóður Tómasar Fjölnismanns. Sigurður var sonur Ögmundar, pr. á Krossi, Presta-Högnasonar á Breiðabólstað, Sigurðssonar, forföður Vigdísar Finnbogadóttur, Matthíasar Jo- hannessens og Gylfa Þ. Gíslasonar. Móðir Sigurðar á Ólafsvöllum var Salvör Sigurðardóttir, systir Jóns, afa Jóns forseta. Móðir Einars var Guðríður Jónsdóttir, b. í Káragerði i Landeyjum, Einarssonar, b. í Káragerði, Jónssonar. Móðir Einars var Guðrún, systir Sveins, langafa Ólafs, fóður Georgs, forstjóra Sam- keppnisráðs. Guðrún var dóttir ís- leifs, b. í Ytri-Skógum, Jónssonar, lrm. í Selkoti, ísleifssonar, ættföður Selkotsættar og forfööur Gísla John- sens, útgerðarmanns í Vestmanna- eyjum. Móðir Ágústs prófessors er Sól- borg Svava, dóttir Ágústs, verka- manns í Reykjavík, Guðmimdsson- ar, fulltrúa bæjarfógeta og kaup- manns í Reykjavík, Guðmundsson- ar, b. í Gröf í Ytri-Hreppi, Guð- mundssonar, b. í Efstadal, Guð- mundssonar, pr. í Reykjadal, Guð- mundssonar, afa Jóns Guðmunds- sonar ritstjóra. Móðir Ágústs var Ástríður Sigurðardóttir, vaktara í Reykjavik, Sigurðssonar og Kristín- ar Guðmundsdóttur, b. á Kalastöö- um, bróður Arndísar, langömmu Finnboga Rúts, föður Vigdísar. Móðir Kristínar var Ástríður Ólafs- dóttir, systir Þorvarðar, langafa Sig- ríðar, móður Friðriks Ólafssonar stórmeistara. Móöir Svövu var El- ísabet Jónsdóttir, pakkhúsmanns á Sauðárkróki, Jónssonar og Sólborg- ar Sigurðardóttur, b. á Kjartans- stöðum. Jónassonar, b. á Hamri í Hegranesi. Sigurðssonar. Móðir Jónasar var Björg Bjömsdóttir, systir Péturs, afa Siguröar Guð- mundssonar málara. Kolbrún er dóttir Ingólfs, verslun- armanns í Reykjavík. Ólafssonar, verkamanns í Reykjavik, bróður Konráðs á Efri-Grímslæk í Ölfusi, föður Gunnars, b. þar. Ólafur var sonur Einars, b. á Efri-Grímslæk. Eyjólfssonar, b. þar Eyjólfssonar. Móðir Eyjólfs Eyjólfssonar var Ey- dís, systir Grims, langafa Gríms, föð- ur Ólafs Ragnars forseta. Eydís var dóttir Þorleifs, ættföður Nesjavalla- ættar, Guðmundssonar. Móðir Ein- ars var Kristrún Þórðardóttir, b. í Hlíð í Eystrihreppi, Guðmundsson- ar. Móðir Þórðar var Kristrún Ei- ríksdóttir. Móðir Kristrúnar var Oddný Guðmundsdóttir, ættföður Kópvatnsættar, Þorsteinssonar. Móðir Ólafs var Guðrún Jónsdóttir, b. á Hjalla, Helgasonar og Guðrúnar Bergsdóttur. Móðir Jóns var Hólm- fríður Magnúsdóttir af Bergsætt, systir Magnúsar, langafa Ellerts B. Schram. Móðir Guðrúnar var Aldís, systir Ófeigs ríka á Ijalli, langafa Tryggva Ófeigssonar útgerðar- manns. Móðir Ingólfs var Ingveldur Einarsdóttir, b. í Árbæ í Ölfusi, Hannessonar og Vilborgar Ólafsdótt- ur. Móðir Kolbrúnar er Guðlaug Hulda Guðlaugsdóttir, b. á Snældu- beinsstöðum í Reykholtsdal, Hannes- sonar, og Sigurbjargar ívarsdóttur. Sjötug María Björk Þórsdóttir aö Bakka í Öxnadal Maria Björk Þórsdóttir á Bakka í Öxnadal er sjötug í dag. Starfsferill Björk fæddist á Bakka í öxnadal og ólst þar upp. Hún hlaut bamaskólamenntun nokkra vetur, stundaði biblíufræðslu i bréfaskóla Aðventista á árunum 1965-70 og er meðlimur í söfnuðinum í dag. Björk hefur búið á Bakka alla sína tíð og stundað þar heimilisstörf. í dag býr hún þar hjá Ólöfu Steinunni, systur sinni, og syni hennar. Fjölskylda Björk átti tvö systkini en bróðir hennar er nú látinn. Systkinin eru: Símon Beck, f. 9.9. 1931, d. 7.1. 1981, verkamaður á Bakka, ókvæntur og barnlaus; Ólöf Steinunn, f. 11.3. 1939, bóndi og húsmóðir á Bakka, og á hún soninn Helga Þór Helgason, f. 26.10. 1964, bónda á Bakka. Foreldrar Maríu voru Þór Þorsteinsson, f. 19.10. 1899, d. 26.10. 1985, bóndi á Bakka frá árinu 1929, og Guðrún Björg Jóhannesdóttir, f. 4.4. 1911, d. 4.9. 1984, húsfreyja á Bakka. Ætt Þór var sonur Þorsteins frá Sigríðarstöðum í Fnjóskadal, b. á Bakka, Jónssonar. Kona Þorsteins var Ólöf Guðmundsdóttir sem ólst upp hjá fósturforeldrum sínum á Helgavatni í Vatnsdal. Guðrún Björg var dóttir Jóhannesar Sigurðssonar, b. og skálds á Engimýri í Öxnadal, og k.h., Guönýjar Jónsdóttur. ..... Jón Ólafsson, prófastur í Holti í Önundar- flrði, fæddist í Fjósatungu i Fnjóskadal 22. maí 1902. Hann var sonur Ólafs Sig- urðssonar, bónda í Fjósatungu og á Kot- ungsstöðum, og Guðnýjar Ámadóttur húsfreyju. Jón lauk stúdentsprófi írá MR 1924 og embættisprófi í guðfræði frá HÍ 1928. Hann var heimiliskennari í Reykjavík 1925-1928, stundakennari við MR 1928-1929, prestur að Holti í Önundarfirði 1929-1963 og stundaði þar jafnframt búskap. Hann var prófastur í Vestur-ísafjarðarsýslu 1941-1963, stund- aði unglingakennslu á Flateyri og i Holti 1931-1945 og starfaði í Útvegsbanka íslands á ísafirði 1963-1969. Auk þess kenndi Jón við Jón Ólafsson Bamaskólann á Flateyri og kenndi unglingum í Holti og á Flateyri. Jón var formaður Prestafélags Vest- fjarða, sat í yfirkjörstjórn Vestur-ísa- fjarðarsýslu 1935-1959, var fulltrúi á fyrstu kirkjuþingum, var lengi formað- ur Kaupfélags Önfirðinga, sat í hrepps- nefnd 1934-1958 og var oddviti 1948-1958. Þá var hann símstöðvar- stjóri og bréfhirðingamaður 1930-1963 og formaður og gjaldkeri sjúkrasam- lagsins 1945-1963. Jón bjó í Holti 1929-1963, á ísafirði 1963-1975 og síðan í Hafnarfirði. Kona Jóns var Elísabet Einarsdóttir húsmóðir og eignuðust þau sex böm. Jón lést 29. maí 1995. Jarðarfarir Jaröarför Svanbjargar Jónsdóttur, Báru- götu 6, Dalvík, fer fram frá Dalvíkur- kirkju miðvikud. 28.5. kl. 13.30. Ásdís Jónasdóttir frá Efri Kvíhólma, Faxabraut 30, Keflavík, veröur jarðsett frá Ásólfsskálakirkju, Eyjafiöllum, laug- ard. 24.5. kl. 14.00. Sigríöur Frímannsdóttir frá Siglufirði, Hásteinsvegi 48, Vestmannaeyjum, verður jarösungin frá Sigluljaröarkirkju laugard. 24.5. kl. 14.00. Svanlaug Rósa Vilhjálmsdóttir, áöur til heimilis á Rókagötu 63, Reykjavík, verö- ur jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík fimmtud. 22.5. kl. 13.30. Halldóra Halldórsdóttir, fyrrv. húsfreyja á Sveinsstöðum, dvalarheimili aldraöra, Hlaöhömrum, Mosfellsbæ, veröur jarö- sungin frá Lágafellskirkju föstud. 23.5. kl. 13.30.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.