Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2003, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2003, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2003 DV Fréttir DV-MVND E.ÓL Umkringdur Segja má aö Davíö hafi komiö fréttamönnum í opna skjöldu þegar hann upplýsti um væntanlegt brotthvarf sitt úr forsætisráöuneytinu, eftir aö hafa kynnt þingflokknum drög aö stjórnarsáttmála á tveggja klukkustunda fundi. Davíð Oddsson hættir sem forsætisráðherra á næsta ári: Situr átram í ríkisstjórn „Pirringur“ - eins og Davíð Oddsson komst að orði - var í þing- flokki Sjálfstæðisflokksins með þá niðurstöðu Davíðs að fallast á ósk Framsóknarflokksins um að gefa forsætisráðuneytið eftir í septem- ber á næsta ári. Samkvæmt henni koma utanríkisráðuneytið og um- hverfisráðuneytið í hlut Sjáifstæð- isflokksins á sama tíma þannig að Sjálfstæðisflokkurinn hefur sjö ráðuneyti en Framsóknarflokkur- inn fimm. Fram að þeim tíma verða ekki breytingar á skiptingu ráðuneyta á miih flokkanna. Sjálfstæðisflokkurinn mun hafa formennsku í átta þingnefhdum en Framsóknarflokkurinn í fjórum. Forseti Alþingis verður tilnefhdur af Sjálfstæðisflokki. Ákvarðanir um skipan í ráð- herrastóla verða teknar í þing- flokkunum í kvöld. I annað ráðuneyti Davíð segist gera ráð fyrir að taka annað hvort við utanríkis- ráðuneyti eða fjármálaráðuneyti þegar þar að kemur og segist sátt- ur við að hverfa úr forsætisráðu- neytinu. Aðspuröur segist hann munu velta þeim möguleika fyrir sér að hverfa af Alþingi að kjör- tímabilinu loknu. Um formennsku sína í Sjálfstæðisflokknum segir hann aðeins að hann haldi henni áfram, enda kjörinn með um 98% atkvæða á síðasta landsfundi. Sanngirnisrök Davíð segir það fyrst og fremst hafa verið sanngimisrök sem réðu því að Framsóknarflokknum var gefið eftir forsætisráðuneytið. „Flokkamir hafa starfað saman mjög vel í átta ár og eru að leggja á djúpið fyrir önnur fjögur. Það er ljóst að formaður Framsóknar- flokksins hefur verið ráðherra í sextán ár með miklum ágætum, starfað í mörgum ráðuneytum og er með víðtæka reynslu. Okkur finnst sanngimisrök mæla með því í svona löngu samstarfi þar sem trún- aður ríkir að formaður hins stjóm- arflokksins fái einnig notið æðsta trúnaðar í samstarfinu," sagði Dav- íð eftir að hann kynnti þingflokki sínum niðurstöðuna í gær. Að ósk Framsóknar „Það er óhætt að segja að það hafí komið ósk frá formanni Fram- sóknarflokksins að þessi þáttur yrði skoðaður. Því var ekki hafnað af minni hálfu því að mér finnst, eins og ég segi, að það séu sann- gimisrök fyrir óskum eða eftir at- vikum kröfum af þessu tagi,“ sagði Davíð, spurður hvemig það heföi komið til í viðræðum flokkanna að Framsóknarflokkurinn tæki við forsætisráðuneytinu. Ástæðan fyrir því að skiptin verða ekki þegar kjörtímabilið er hálfnað eftir tvö ár er sú, að sögn Davíðs, að eðlilegt sé að nýr forsæt- isráðherra geti fylgt stefnuræðu sinni úr hlaði á Alþingi þegar það kemur saman í byrjun október 2004. „Dálítið mikilvægt" „Við setjum alltaf málefhin á oddinn, en þetta var auðvitað dálít- ið mikflvægt," segir Guðni Ágústs- son, spurður hvort hægt hefði ver- ið að mynda þessa ríkisstjóm án þess að forsætisráðuneytið færi yfir. Um sína eigin stöðu segist Guðni tilbúinn að taka við öðm ráðuneyti en bætir við: „Ég yfirgef ekkert landbúnaðinn ef mér býðst hann. Ég er ekki með neina kröfu- gerð.“ Guðni segist ekki vita hvort mik- il uppstokkun verði í ráðherraliði Framsóknarflokksins. „Davíð boð- ar uppstokkun hjá sér, alla vega. Ég skal ekki segja. Það er leyndar- mál sem Halldór er að bræða með sér.“ Pælingin Háttsettir menn í Sjálfstæðis- flokknum hafa tjáð DV að þar á bæ sé það sjónarmið uppi að líklega sé heillavænlegra fyrir flokkinn að ganga til næstu kosningabaráttu án þess að vera í forsæti fyrir rík- isstjóm. Við slíkar aðstæður hafi flokkurinn heldur frjálsari hendur, eins og Framsóknarflokkurinn hafi að einhverju leyti haft í nýaf- staðinni kosningabaráttu. Þá bendi úrslit kosninganna til þess að sam- felld forysta fyrir ríkisstjóm í sext- án ár yrði flokknum ekki til fram- dráttar í næstu kosningum. Þá hafi það styrkt samnings- stöðu Framsóknarflokksins að menn útilokuðu ekki að hann gengi til samstarfs við Samfylking- una. Slík stjóm hefði að vísu aö- eins haft eins manns meirihluta á þingi en fréttir bárust af því í her- búðir sjálfstæðismanna að Fijáls- lyndi flokkurinn væri reiðubúinn að styðja hana gegn því að fá for- mennsku í sjávarútvegsnefnd Al- þingis. Það að samningsstaða Fram- sóknarflokksins hafi verið talin sterkari að þessu leyti getur vart þýtt annað en að innan Sjálfstæðis- flokksins hafi samstarf við Sam- fylkinguna ekki komið til greina. Málefnin Samstaða var í báðum þingflokk- um um drög að stjómarsáttmála og töldu allir þingmenn beggja flokka sem rætt var við að þau gætu geng- ið eftir óbreytt. Samkvæmt áreið- anlegum heimfldum DV eru skatta- tiUögur Sjálfstæðisflokksins teknar nánast óbreyttar upp í stjómarsátt- málanum, nema hvað ákvæði um lækkun virðisaukaskatts er öðru- vísi orðað. Þá er ljóst að Framsóknarflokkn- um varð mjög ágengt varðandi hækkun lánshlutfalls húsnæðis- lána upp í 90% og loks eru boðaðar breytingar á stjómkerfi fiskveiða í takt við hugmyndir sem forystu- menn stjómarflokkanna reifuðu í kosningabaráttunni. -ÓTG Söluskrifstofan er á Suðurlandsbraut 24 Opið alla virka daga 9-17. Þjónustuverið er opið virka daga 9-17, laugardaga 10-16 og sunnudaga 11-15, sími 5 500 600. Þú getur einnig skoðað og bókað á lcelandExpress.is. Lág fargjöld. Enginn bókunarfyrirvari. Engin lágmarksdvöl og engin hámarksdvöl Söluskrifstofa Suðurlandsbraut 24, opið 9-17 virka daga Sími 5 500 600 www.lcelandExpress.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.