Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2003, Qupperneq 29
FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2003
29
Rafpóstur: dvsport@dv.is
Haraldur Pétursson á Musso
varö islands- og heimsbikar-
meistari á slöasta ári en hann
hyggst halda báöum þessum titl-
um. Haraldur á þó erfítt keppnis-
tímabil fyrir höndum því þaö
verður sótt aö honum úr öllum
áttum.
DV myndir JAK
Fyrsta torfærukeppnin í mynni Jósepsdals á sunnudaginn:
Ralltímabilið hefst
á Suðurnesjunum
Fyrsta umferö íslandsmeistara-
mótsins í ralli veröur ekin á Suöur-
nesjum á morgun, laugardag, og
hefst keppnin kl. 8.30 við BOa og
hjól. Eknar verða nokkrar leiðir og
er Reykjanesið þeirra fyrst. Síðan
verða ísólfsskála- og Djúpavatnsleið
eknar fram og tO baka.
Bræðurnir Rúnar og Baldur Jóns-
synir á Subaru þykja nokkuð sigur-
stranglegir en þó er ljóst að Sigurð-
ur Bragi Guðmundsson og ísak
Guðmundsson á Metro munu veita
þeim harða keppni auk þess sem bú-
ast má við hverju sem er af öðrum
keppendum, svona í upphafi móta-
raðarinnar.
Miklu meira afl
Þorsteinn Gunnarsson, öðru nafhi
Steini Ford, brosir blítt til Small Block
Chevy vélarinnar sem þeir Sigurður
Þór eru búnir að auka aflið i um 250
hestöfl. Þorsteinn fékk viðurnefni sitt
vegna sérstaks dálætis sem hann hefur
á ákveðinni bílategund en hann lætur
það ekki aftra sér frá því að hressa
aðrar vélagerðir við.
-JAK
Þaö sem átti að verða tiltölulega elnföld færsla á ökumannssæti hjá Sigurði
Þór Jónssyni á Toshiba-Tröllinu endaöi með smíði nýs bfls. Sigurður, lengst
til hægri, er svo lánsamur að hafa með sér geysiöflugt keppnisliö sem legg-
ur nótt við dag í óeigingjörnu starfi við að endurbæta og halda Toshiba-Tröll-
inu gangandi. DV-mynd JAK
Keppendur í torfærumi
nohkuð flHi en í fyrra
Torfærukeppnistímabilið hefst á
sunnudaginn en þá veröur fyrsta
umferð íslandsmeistaramótsins í
torfæruakstri ekin í malargryfjun-
um við Bolöldur í mynni Jósefs-
dals. Síðastliðið srnnar voru að
jafnaði 10 keppendur í hverri
keppni en á miðvikudaginn var bú-
ið að skrá 14 keppendur til leiks og
bendir því allt til þess að í vænd-
um sé spennandi og fjörugt tor-
færusumar.
Nánast allir keppendumir sem
voru með i fyrra munu keppa í
sumar auk þess sem nýir menn
bætast í hópinn en auk þess hefur
frést af nokkrum nýjum bílum sem
verið er að smíða og munum við
kanna það síðar.
Nýtt Toshiba-tröll
Allir gömlu jaxlarnir eru klárir í
í slaginn en þeir hafa verið að búa
sig misjafnlega undir keppnistíma-
bilið. Líklegast má segja að Sigurð-
ur Þór Jónsson á Toshiba-Tröllinu
hafi gengið lengst í því en hann
mætir með nýtt Tröll í Jósefsdal-
inn. „Við vildum breyta bílnum
vegna þess að ég sat í miðju gamla
bílsins og fannst ég ekki sjá nógu
vel út. Við ætluðum því að færa
sætið vinstra megin í bílinn en
þegar upp var staðið vorum við
búnir að smíða nýjan bíl upp úr
þeim gamla. Við notuðum örfáa
hluti úr þeim gamla,“ sagði Sigurð-
ur.
„Ég geri ráð fyrir að nýi bíllinn
verði 30 kg léttari en sá gamli en
auk þess höfum við aukið afl vélar-
innar úr 450 hestöflum upp í 700
hestöfl, án þess að.nota nitro-gas.
Þá verðum við með tvöfalt nitro-
kerfi í sumar,“ bætti Sigurður við
en hann hefur verið í toppbaráttu
torfærunnar undanfarin ár og ætl-
ar sér greinilega stóran hlut í sum-
ar.
Halli Pé hyggst verja stöðu sína
„Ég ætla að prófa að keyra
Mussoinn óbreyttan í sumar,“
sagði Haraldur Pétursson sem
varð tvöfaldur meistari í fyrra.
Haraldur hefur til þessa gert breyt-
ingar á Mussonum á hverju ári, til
að betrumbæta hann. Það skilaði
honum báðum titlunum í fyrra eft-
ir harða og tvísýna keppni við
Gísla G. Jónsson, á Arctic Trucks
Toyotunni. Haraldur viðurkennir
að það sé erfiðara að vera á toppn-
um en að komast þangað en hyggst
þó berjast eins og Ijón til að halda
stöðu sinni.
Tekst Gísla G. aö
rétta sinn hlut?
Gísli G. Jónsson varð að horfa á eft-
ir báðum titlunum til Haraldar og hef-
ur það verið sárt þar sem Gísli er
mikill keppnismaður og gefur aldrei
neitt eftir. Gísli, sem á sex íslands-
meistaratitla og fimm heimsbik-
artitla, hugsar vafalaust gott til glóð-
arinnar að fá að velgja Haraldi vel
undir uggum verður þó að mæta með
lánsvél í Arctic Trucks Toyotunni þar
sem hann fékk ekki varahluti í sína
vél nógu tímanlega fyrir keppnina til
að geta haft hana tilbúna.
Taka vinkilbeygju
eftir breytingu
Suðurnesjamennirnir og nafnam-
ir Gunnar Ásgeirsson á Eminum og
Gunnar Gunnarsson á Trúðnum
eru báðir búnir að breyta framhás-
ingunum undir jeppum sínum
þannig að þeir geta tekið mun
krappari beygjur en áður og fylgja
þeir þar í fótspor Haraldar Péturs-
sonar. Ragnar Róbertsson á Pizza 67
Willysnum, helsti keppinautur
Gunnars Gunnarssonar í götubila-
flokknum, mætir hins vegar með
nýtt plastboddí í þessa fyrstu
keppni.
Akureyringurinn Guðmundur
Pálsson á Flugunni ætlar að halda
uppi merkjum norðanmanna en
Bjarki Reynisson, Dalamaðurinn
knái, mun gera atlögu að Ragnari
Róbertssyni, heimsbikarmeistara
2002 og Gunnari Gunnarssyni, ís-
landsmeistaranum í götubíla-
flokki.
-JAK
-JAK
Baldur Jónsson varö íslandsmeist-
ari í rallí í fyrra en í ár mun hann
veröa aöstoöarökumaöur hjá Rún-
ari bróöur sínum sem búinn er aö
ná sér eftir erfið veikindi.
DV-mynd JAK