Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2003, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2003, Qupperneq 6
6 FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 18.JÚNÍ2003 Aukinn stuðningur við börn fátækra foreldra Annmarkar á ráðningu yfirflugumferðarstjóra FJÁRHAGSAÐSTOÐ: Félags- málaráð hefur samþykkt að hækka viðmiðunarupphæðir þeirra sem njóta fjárhagsað- stoðar í Reykjavík og sérstakar greiðslur til að bæta kjör fá- tækra barna. Lögð verður áhersla á að aðstoða börn sem ekki geta tekið þátt í samfélag- inu til jafns við önnur börn vegna félagslegra og fjárhags- legra aðstæðna. Þeir foreldrar, sem hafa haft tekjur á eða und- ir viðmiðunarmörkum Félags- þjónustunnar undanfarna 9 mánuði samfleytt, geta sótt um styrk að hámarki kr. 10.000 á mánuði fyrir hvert barn til þess að mæta kostnaði vegna leik- skóla, heilsdagsskóla, daggæslu, skólamáltíða eða tómstunda barna. Kostnaður vegna þessa er 15 milljónir á þessu ári. Þá hefur verið lagt til að reglur um fjárhagsaðstoð sæti endurskoð- un á næstu mánuðum. Einnig er lögð áhersla á að félagsmála- ráð hafi frumkvæði að því að taka upp viðræður við ríkisvald- ið og aðra sem koma að þess- um málum um sértækar að- gerðir til þess að bæta kjör hinna verst settu. RÁÐNING: Umboðsmaður Al- þingis telur að annmarkar hafi verið á málsmeðferð flugvallar- stjóra á Keflavíkurflugvelli við ráðningu i starf yfirflugumferð- arstjóra. I áliti hans kemur þó fram að ólíklegt sé að annmark- arnir geti leitt til ógildingar á ákvörðuninni um ráðningu. Maður sem sótti um starfið á sínum tíma en fékk það ekki kvartaði til umboðsmanns. Kvörtunin beindist meðal ann- ars að því að umsækjendum hefði verið heitið því í að farið yrði með umsóknir þeirra sem trúnaðarmál.Taldi umþoðsmað- ur leiða af lögum að veitingar- valdshafi gæti ekki gefið um- sækjendum um opinbert starf slíkt loforð. Umboðsmaður taldi að stjórnvöldum bæri almennt að tryggja að þær upplýsingar sem þau byggðu ákvarðanir sín- ar á lægju áfram fyrir hjá þeim eftir lok mála.Þá gerði maðurinn athugasemdir við það að flug- vallarstjóri hefði ekki skráð upp- lýsingar um það sem fram hefði komið í viðtölum við umsækj- endur.Taldi umboðsmaðureðli- legra að umræddar upplýsingar hefðu verið skráðar. Róleg nótt hjá lögreglu víðast hvar: Þjóðhátíðin fór vel fram Þjóðhátíðardagurinn fór víð- ast hvar vel fram að sögn lög- reglunnar og engar fregnir hafa borist um meiri háttar óhöpp. Þjóðhátíðardagurinn fór víðast hvar vel fram að sögn lögreglunnar og engar fregnir hafa borist um meiri háttar óhöpp. Hátíðarhöldin hófust á Austurvelli í gærmorgun með því að Ólafur Ragnar Gríms- son forseti lagði blómsveig að minnisvarða Jóns Sigurðssonar. Davíð Oddsson forsætisráðherra hélt hátíðarræðu og kom m.a. inn á málefni varnarliðsins. Davíð gat þess að viðræður um framtíð varn- arliðsins hæfust innan skamms en HÁTÍOARÁVARP: Davíð Oddsson for- sætisru'herra ávarpaði þjóðina á Aust- urvelli og bar varnarmálin þar hæst.Að hans sögn munu viðræður við Banda- ríkjamenn hefjast á næstunni og er hann bjartsýnn á góðan árangur. þá munu fulltrúar Bandaríkjanna og Islands hittast hérlendis. Kvaðst forsætisráðherra bjartsýnn á sann- gjörn niðurstaða finnist í málinu. Fyrir athöfnina fjarlægði lögregla hóp fólks sem vildi mótmæla þátt- töku þjóðarinnar í NATO. Fólkinu var gert að standa utan hátíðar- svæðisins. Fjallkona var Inga María Valdimarsdóttir og flutti hún ljóð eftir Ingibjörgu Haraldsdóttur. Ekki varmikið um ölvun í miðbæ Reykjavíkur og engin ölvunarmál til- kynnt til lögreglunnar. Ein líkamsárás Rigning setti ofurlítið strik í reikninginn í höfuðborginni en ekki var að sjá að fólk léti það mik- ið á sig fá og er talið að mannijöld- inn hafi náð um 30 þúsund þegar mest var síðdegis. Fjölbreytt skemmtidagskrá var frameftir degi og í gærkvöld var efnt til tvennra útitónleika f miðborginni. Fór skemmtunin vel fram og voru flest- ir farnir til síns heima um þrjúleyt- ið. Ekki var mikið um ölvun í mið- bæ Reykjavíkur og engin ölvunar- mál tilkynnt til lögreglunnar. Ein líkamsárás var þó tilkynnt í nótt en ráðist var á konu í Hafnarstræti. Hún var flutt á slysadeild en meiðsl hennar reyndust þó ekki alvarleg. Hún gaf lögreglunni lýsingu á árás- armanninum en ekki hefur enn verið haft uppi á honum. Hátíðarhöldin fóru almennt vel fram um allt land. Lögreglumenn sem DV talaði við í morgun voru BIRGITTA: Aðdáunin á Birgittu Haukdal leynir sér ekki á þessari mynd. Birgitta tróð upp á Arnarhóli í gær og tók þar nokkur lög, m.a. evróvisjónlagið við undirtektir hundraða barna. sammála um að þjóðhátíðin hafi verið róleg frá þeirra bæjardyrum séð. Tvennt á slysadeild Þá var tilkynnt um Qórar líkams- árásir aðfaranótt 17. júní. Stúlka og piltur í kringum tvítugt voru flutt á slysadeild eftir að ráðist hafði verið á þau á Ingólfstorgi um klukkan þrjú í nótt en þau hlutu beinbrot á ökkla og handlegg. Meiðsl þeirra voru þó ekki eins alvarleg og í upp- hafl var talið. Tveir árásarmenn, einnig í kringum tvítugt voru hand- teknir í kjölfarið og yfírheyrðir. Þeim var síðan sleppt að yfirheyrsl- um loknum. Ekki er enn ljóst hver tildrög árásarinnar voru. Þá fengu tveir menn að gista fangageymslur lögreglunnar á Akranesi aðfar- arnótt 17. júní vegna ölvunar og slagsmála. -ekA FJALLKONAN: Inga María Valdimarsdóttir leikkona var fjallkonan að þessu sinni og flutti hún Ijóð eftir Ingibjörgu Haraldsdóttur. DV-myndir Karl Petersson Rífandi gangur í bleikjuveiðinni / ~ ......................................\ BORGARLEIKHÚSIÐ Leiktélag Reykjavíkur LITLA SVIÐ RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare í samstarfí við VESTURPORT Lau. 21/6 kl. 20 - AUKAS., UPPSELT Su, 22/6 kl, 20 - AUKAS., UPPSELT ATH.: SÍÐUSTU SÝNINGAR Leikfélag Reykjavíkur og íslenski dansflokkurinn fara nú í sumarfrí. Við þökkum ríflega 100.000 gestum fyrir korauna í Borgarleikhúsið í vetur. Endurnýjun áskriftarkorta hefst 25. ágúst. Sala nýrra korta og afsláttarkorta hefst 1. september. Við hlökkum til ángæjulegra samverustunda í leikhúsinu á nýju leikári, 2003-2004. Bleikjuveiði hefur byrjað feiknavel víða um land og og Ijóst að fiskurinn kemur vel undan vetri. „Við fengum fína veiði hérna f Áramótahylnum, vænar bleikjur og fiskurinn gaf sig vel," sögðu þeir Ás- geir Ásgeirsson og Örn Þórhallsson er við hitturn þá við Áramótahylinn í Hvolsá \ Dölum, fyrir fáum dög- um. Hvolsáin oglónið hafa gefið 68 bleikjur og þeir stærstu eru um fjögur pund. Svakalegt fjör „Þetta var frábært. Við fengum 10 bleikjur í lóninu áðan og þær stærstu voru kringum fjögur pund- in,“ sagði Svavar Sölvason en hann veiddi neðar í ánni, eða f lóninu, og var mjög ánægður með stöðu mála. „Þegar maður finnur fiskinn er Þegar maður finnur fiskinn þá er þetta svakalegt fjör. þetta fjör, svakalegt fjör,“ sagði Svavar og hélt áfram að renna fyrir fiska í lóninu - flskurinn var í töku- stuði. Mjög góð bleikjuveiði hefúr verið víða um land og veiðimenn verið að fá mjög góða veiði. Veiðimenn sem voru í Hópinu í Húnavatssýslu fyrir nokkrum dögum veiddu vel og voru stærstu fiskamir um þrjú pundin. Sömu sögu er að segja af fleiri veiðisvæðum núna. Bleikjan kemur vel undan vetri enda tíðarfarið ver- ið gott. Veiðimenn sem vom á sil- ungasvæðinu í Vatnsdalsá veiddu Bleikjan kemur vel undan vetri og veiðist væn víða um landið. vel en fiskuririn var frekar smár. Laxinn gæti farið að gefa sig á allra næstu dögum. G.Bender

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.