Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2003, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2003, Page 18
18 TILVERA MIÐVIKUDACUR 18.JÚNI2003_ Ræktun lýðs og lands Umsjón: Páll Guðmundsson Netfang: palli@umfi.is Sími: 568 2929 , Undirbúningur fyrir Unglingalandsmót UMFI: Á móti sól leggur í hringferð DANSINN DUNAR: Hljómsveitin Á móti sól mun halda uppi fjörinu á Unglingalandsmótinu á Isafirði. Myndin er tekin á ULM á Tálknafirði þar sem eftir annasama daga var tjúttað og trallað langt fram eftir kvöldi. ISAFJÖRÐUR: Rómuð náttúrufegurð og stórfengleiki Vestfjarða munu leika stórt hlutverk á Unglingalandsmótinu á (safirði. í samvinnu við ferðaþjónustuyfirvöld munu mótshaldarar bjóða upp á gönguferðir og siglingar í nágrenni Isafjarðar. VALA FLOSADÓTTIR: Á ULM árið 2000.Á Unglingalandsmótið á (safirði mæta margir landsfrægir iþróttamenn úr öllum íþróttagreinum og taka þátt (fjölbreyttri dagskrá mótsins. Hljómsveitin Á móti sól, sem mun leika fyrir dansi á Ung- lingalandsmóti UMFÍ, stend- ur í ströngu þessa dagana. Sumarplata sveitarinnar, Fiðrildi, kemur út í lok júní og hljómsveitin verður mikið á ferðinni í sumar og spilar á sveitaböllum og víðar. Há- punktur sumarsins hjá Á móti sól verður um verslunar- mannahelgina þar sem hljómsveitin verður aðal- númerið á Unglingalands- móti UMFÍ á ísafirði. Sannir ungmennafélagar í sól „Þetta verður heilmikil törn. Við verðum á ferð og flugi um allt land meira og minna í allt sumar og eig- um von á miklu fjöri. Nýja platan kemur út í lok júní, það er aðeins á eftir áædun en lítið við því að gera," segir hljómborðsleikarinn Heimir Eyvindarson sem jafnframt gegnir hlutverki umboðsmanns hljóm- sveitarinnar. Heimir æfði á sínum tíma fót- bolta, var í marki og þótti góður. „Ja, ég veit það nú ekki," segir Heimir, „en það skemmtilega við þetta samstarf við UMFÍ er að við f sveitinni erum allir sannir og gaml- ir ungmennafélagar og höfum svona með einhverjum hætti stundað íþróttir eða tekið þátt í ungmennafélagsstarfinu." Magni söngvari er frá Borgarfirði eystra og kemur úr UMFB. Hann var ákaflega efnilegur hlaupari og stökkvari, Þórir var í Umf. Selfoss og HSK og tók þátt í Grýlupottahlaupinu, Heimir var í marki í fótbolta hjá yngri flokkum Umf. Selfoss og Sæv- ar gítarleikari var stormsenter m.a. í Hveragerði og Umf. Selfoss. Þess má geta að í fótboltakeppni hljóm- sveita á íslandi var Heimir valinn besti leikmaður mótsins og Sævar var markahæstur. „Við ætlum svo sannarlega að nota tækifærið og taka þátt f dagskrá Unglingalands- mótsins, sérstaklega allri afþrey- ingunni sem verður í boði og hugs- anlega í foreldraþautunum," segir Heimir. Nýja platan, Fiðrildi, inni- heldur 11 ný lög og eitt þeirra, Allt rólegt, er þegar komið í spilun. Fjölbreytt dagskrá Á Unglingalandsmótinu verður keppt í átta íþróttagreinum; fót- bolta, handbolta, körfubolta, sundi, frjálsum íþróttum, skák og glímu. f fótboltanum hefur verið tekin upp sú nýjung að nú geta ein- staklingar skráð sig til leiks og myndað lið með einstaklingum hvaðanæva af landinu. Eins hafa orðið þær breytingar á Unglinga- landsmótum UMFI að nú geta allir tekið þátt í mótinu og íþrótta- keppninni, óháð því hvort viðkom- andi er í hreyfingunni eða ekki. Sérstök hæfileikakeppni f sam- starfi UMFÍ og Samfés verður í gangi á Unglingalandsmótinu og geta allir á aldrinum þrettán til átján ára tekið þátt í keppninni og látið ljós sitt skína. Á ísafirði verður fjölbreytt af- þreying í boði fyrir gesti mótsins. Má þar nefna ýmsa leiki, þrautir, leiktæki, kajakleigu, siglingar, hestaferðir, veiði, gönguferðir, sund, flugeldasýningu, dans, kvöldvökur og margt fleira. Mikil þátttaka Á Unglingalandsmót UMFÍ koma alla jafna erlendir gestir og taka þátt í mótinu og sýna listir sín- ar. Að þessu sinni hafa glímumenn frá Svíþjóð boðað komu sína á mótið og munu þeir kynna grísk- rómverska glímu og bjóða þeim sem þora að taka við sig nokkur spor. Þá er aldrei að vita nema að íslenskir glímukappar reyni sig við hina grísk-rómversku glímumenn líkt og Jóhannes á Borg gerði forð- um daga og hafði betur. Ferðaþjónustuaðilar fyrir vestan bjóða upp á fjölmarga möguleika til gönguferða um rómaða náttúru Vestfjarða. Undirbúningur héraðssam- banda fyrir Unglingalandsmótið er nú víða vel á veg kominn. Á mótinu í fyrra voru um 1200 keppendur og Unglingalandsmótsnefnd stefnir að því að þeir verði fleiri í ár. Gestir á mótinu í fyrra voru úm 6000 og vonast er til að þeir verði enn fleiri í ár Á heimasíðu Unglingalands- móts, www.umfi.is/ulm2003, eða www.ulm.is, er hægt að nálgast all- ar upplýsingar um mótið og jafn- framt skrá sig til þátttöku. Unglingalandsmót UMFI er ókeypis fjölskylduhátíð. Aðgangs- eyrir er enginn og öll afþreying og skemmtun ókeypis. Sérstakt þátt- tökugjald fyrir keppendur á mótinu er 4.500 krónur og innifalið í því er öll afþreying og skemmtun, auk bakpoka með ýmsum glaðningi. Velkomin UNGLINGA LANDSMÓT UMFÍ Unglingalandsmót UAAFÍ Isafirði verslunarmannahelgina 1.-3. ágúst Frábær fjölskyldhátíð þar sem gleði, ánægja og heilbrigði ráða ríkjum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.