Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2003, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2003, Blaðsíða 31
 4- MIÐVIKUDAGUR 18.JÚNÍ2003 DVSPORT 31 SAGAN AF DAVID BECKHAM Nú þegar orðið er Ijóst að David Beckham mun spila með Real Madrid næstu fjögurtlmabilin er ekki úr vegi að fara yfir forsögu kaupanna sem teygir sig allt til miðvikudagsins 26. mars. • Miðvikudagur 26. mars: Jorge Valdano, yfirmaður knattspyrnu- mála hjá Real Madrid,hrindir af stað vangaveltum með því að segja að Beckham sé næsta stóra verkefni liðsins. • Þriðjudagur 22.apríl: David Beckham neitar að útiloka að hann gangi til liðs við Real Madrid með orðunum. „Ég hef alltaf sagt að maður eigi aldrei að segja aldrei." • Miðvikudagur 23.apríl: Beck- ham byrjar á bekknum í seinni leik Manchester United og Real Madrid (8-liða úrslitum meistaradeildar- innar - flestum til mikillar furðu. • Fimmtudagur 24.apríl: Flest dagblöð í Englandi gera því skóna að bekkjarseta Beckhams gegn Real Madrid marki endann á ferli hans hjá Manchester United. • Miðvikudagur 30. apríl: Flor- entin Perez,forseti Real Madrid, neitar því staðfastlega að félagið hafi rætt við Manchester United um kaup á David Beckham. • Laugardagur 7. júní: Manchester United birtir opinbera yfirlýsingu þar sem fram kemur að spænsk og ítölsk stórlið hafi sýnt David Beckham áhuga. • Mánudagur 9.jún(: ACMilan dregur sig út úr kapphlaupinu um David Beckham með orðum eig- anda liðsins, Silvio Berlusconi, um að það sé hægt að eyða peningum á snjallari hátt en að kaupa David Beckham. • Þriðjudagur lO.júní: David Beckham,f fríi (Bandaríkjunum, lýs- ir því yfir að hann vilji vera áfram hjá Manchester United á meðan félagið vilji hafa hann. Hann heldur þó öllum dyrum opnum því hann bætir við að hann hafi aldrei sagt að hann myndi ekki yfirgefa félag- ið einhvern tíma á ferlinum.Sama dag tilkynnir Manchester United að félagið hafi samþykkt tilboð Barcelona í Beckham sem er reynd- ar þeim skilyrðum háð að Joan Laporta,einn af forsetaframbjóð- endum félagsins, verði forseti, og að Beckham semji við Barcelona. David Beckham bregst illa við þessum fréttum og segist vera peð i forsetaslag Barcelona. • Miðvikudagur 11. júní: Joan Laporta staðfestir áhuga sinn á því að fá David Beckham til Barcelona og segir félagið þurfa leiðtoga á borð við Beckham. Sama dag gagnrýnir Gordon Taylor,formaður ensku leikmannasamtakanna, Manchester United fyrir meðferð s(na á Beckham. • Fimmtudagur 12. júní: The Sun birtir frétt þess efnis að búið sé að ákveða dag fyrir viðræður milli Real Madrid og Manchester United um kaup á David Beckham. • SunnudagurlS.júnúJoan Laporta er kosinn forseti Barcelona og allt virðist vera klárt fýrir kaup félagsins á David Beckham frá Manchester United líkt og samið var um lO.júní. • Mánudagur 16.júní: The Sun birtir mynd af David Gill, yfirmanni knattspyrnumála hjá Manchester United, ásamt Pedro Lopez, lög- fræðingi Real Madrid,á Sardiníu en Lopez þessi hefur séð um öll kaup Real Madrid á stórstjörnunum Luis Figo.Zinedine Zidane og Ronaldo, á undanförnum árum. Fyrirsögn fréttarinnar gefur til kynna að Beckham sé orðinn leikmaður Real Madrid. Sama dag segist Joan Laporta, nýkjörinn forseti Barcelona, aldrei hafa lofað því að félagið myndi kaupa David Beck- ham enda bendir flest til að hann gangi til liðs við erkifjendurna ( Real Madrid. • Þriðjudagur 17.júní: Daily Mail birtir frétt þess efnis að David Beckham hafi skrifað undir fjög- urra ára samning við Real Madrid. Seinna sama dag staðfesta Real Madrid, Manchester United og David Beckham þetta. oskar@dv.is David Beckham heldur á slóðir kónganna í Real Madrid í gær varð Ijóst að David Beckham mun leika með spænska stórliðinu Real Ma- drid næstu fjögur árin. Þar með er lokið nokkurra mán- aða farsa þar sem þessi snjalli leikmaður hefur verið orðað- ur við Barcelona og Real Madrid til skiptis. Manchester United ber ekki skarðan hlut frá borði því Real Madrid þarf að punga út þegar ailt kemur til 25 milljónum punda, rúm- lega þremur milljörðum ís- lenskra króna, sem verður að teljast bærilegt miðað við stöðuna á ieikmannamark- aðnum þessa stundina. Eins og áður sagði skrifaði Beck- ham undir íjögurra ára samning við Real Madrid og herma heimildir á Spáni að hann muni fá um 90 þús- und pund á viku, rúmar 11 milljón- ir. Hann mun gangast undir lækn- isskoðun 1. júlí og ef allt gengur að óskum skrifa undir samninginn daginn eftir. Manchester United birti yfirlýs- ingu í gær þar sem kaupin á Beck- ham voru staðfest en mikil leynd hefur verið yfir samningaviðræð- unum á milli félaganna tveggja. „Það er búist við því að gengið verði frá samningnum í júlí, svo framarlega sem stjórnir Manchest- er United og Real Madrid samþykki samninginn og nægileg trygging fá- ist fyrir greiðslunum. David Beckham hefur náð sam- komulagi um launakjör og mun væntanlega skrifa undir samning- inn þegar allt er klappað og klárt á milli félaganna." Úthugsuð kaup jorge Valdano, yfírmaður knatt- spyrnumála hjá Real Madrid, stað- festi einnig kaupin á Beckham í gær. „Ég er ákaflega ánægður með komu Davids til félagsins. Þetta voru úthugsuð kaup hjá félaginu sem munu gera Iiðið betra. Sam- skipti félaganna voru góð en það sem mestu máli skipti var að David vildi spila fyrir Real Madrid. Gat ekki sagt nei David Beckham, sem flaug til Asíu í gær í kynningarferð ásamt konu sinni Victoriu, sagði við blaðamenn að það hefði ekki verið að hægt að segja nei við stórlið eins og Real Madrid. „Þetta er ótrúlegt tækifæri íyrir mig og mína fjölskyldu og ég gat hreinlega ekki sagt nei. Ég hefði ör- „Þetta er ótrúlegt tæki- færi fyrir mig og mína fjölskyldu og ég gat hreinlega ekki sagt nei." ugglega séð eftir því það sem eftir Iifir ævinnar ef ég hefði neitað mér um tækifæri til að spila fyrir jafn- frægt félag og Real Madrid." Beckham notaði einnig tækifær- ið og þakkaði Alex Ferguson, knatt- spyrnustjóra Manchester United, fyrir að hafa gert hann að þeim knattspyrnumanni sem hann væri í dag og áréttaði að Manchester United og leikmenn þess myndu ^ alltaf eiga sérstakan stað í hjarta hans. Óska honutn alls hins besta Það hefur oft verið grunnt á því góða á milli Alex Ferguson og Dav- id Beckham á undanförnum árum en gamli Skotinn hafði ekkert nema gott um lærisveininn að segja í gær. „Ég hef þekkt David síðan hann var ellefu ára og það hefur verið af- ar ánægjulegt að fylgjast með hon- um vaxa og dafna í þann leikmann sem hann er í dag. David hefur verið stór hluti af ár- angri Manchester United undan- farin ár og ég óska honum og fjöl- skyldu hans alls hins besta í ffam- '* tíðinni." oskar@dv.is FERILL DAVIDS BECKHAMS í ENGLANDI FRÁ 1992-2003 ■ LANDSLEIKIR BECKHAMS Manchester United Tímabil Deildarl./mörk Bikarl./mörk Deildarbikarl./mörk Evrópui./mörk Samtals 1992-1993 0/0 0/0 1/0 0/0 1/0 1993-1994 0/0 1/0 3/0 1/1 5/1 1994-1995 4/0 1/0 0/0 0/0 5/0 1995-1996 33/8 3/1 2/0 2/0 40/9 1996-1997 37/8 2/1 0/0 10/2 49/11 1997-1998 37/9 4/2 0/0 8/0 49/11 1998-1999 34/6 7/1 1/0 12/2 54/9 1999-2000 31/6 0/0 0/0 12/2 43/8 2000-2001 31/9 2/0 0/0 12/0 45/9 2001-2002 28/8 1/0 0/0 12/4 41/12 2002-2003 31/6 3/1 5/1 13/3 52/11 Samtals 266/60 24/6 12/1 82/14 384/81 Preston North End (lán) 1994-1995 5/2 0/0 0/0 0/0 5/2 oskar@dv.is • l.september 1996: Spilaði sinn fýrsta leikfyrir enska landsliðið gegn Moldavíu í undankeppni HM (Moldavfu. • 26.jún(1998:Skoraðisittfyrsta mark fyrir enska landsliðið gegn Kólombíu á HM (Frakklandi. • 30. júní 1998: Fékk frægt rautt spjald gegn Argentínu á HM 1998 og var hataður á eftir. • 6. október 2001: Tryggði Englendingum sæti á HM 2002 með marki úr aukaspyrnu gegn Grikkjum þegar komið var fram yfir venjulegan leiktíma. • Landsleikir/mörk: 59/11 oskar@dv.is *

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.