Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.2003, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ2003
Lýsa furðu á vali verslunarmanns
VERSLUNARMENN: VR hefur
lýst yfir furðu sinni á því að Rás
2 og Samtök verslunar og
þjónustu skuli standa fyrir vali
á verslunarmanni ársins um
verslunarmannahelgina. Segir
VR að tilurð frídags verslunar-
manna megi rekja til þess að
árið 1894 buðust kaupmenn
og verslunarstjórar til að gefa
starfsmönnum frídag til að
þeir gætu skemmt sér og tók
VR að sér að skipuleggja dag-
inn með hátíðarhöldum. I þá
daga hefði verið unnið nánast
alla daga ársins, fyrir utan
helgustu daga, og því megi
e.t.v. kalla daginn fyrsta vísi að
orlofi launafólks á (slandi. VR sá
síðan um að skipuleggja dag-
skrá nær óslitið á frídeginum
frá þeim tíma og um verslunar-
mannahelgarfrá 1931,erdag-
urinn var fastsettur sem fyrsti
mánudagur í ágúst fram til
1957, en þá var dagurinn orð-
inn almennurfrídagur. Segir
VR að val Ríkisútvarpsins og
samtaka atvinnurekenda í
verslun á verslunarmanni árs-
ins út frá því hvernig menn
vinna á frídegi verslunar-
manna séu alger öfugmæli.
Trukkur valt
SLYS: Caterpillar-trukkurvaltá
hliðina á Reykjanesbraut, miðja
vegu milli Kúagerðis og afleggjar-
ans að Vogum.Trukkurinn er
geysistór, vegur um 40 tonn og
farmurinn sennilega um 60 tonn.
Bílstjórinn var að vinna að breikk-
un Reykjanesbrautar á vegum
Jarðvéla ehf. Mildi þykir að bílstjór-
inn skyldi sleppa ósár úr veltunni.
Okumaður bíls sem valt með þeim afleiðingum að kona og tvær dætur hennar létust:
Sýknaður af mann-
drápi af gáleysi
Héraðsdómur Vestfjarða sýkn-
aði í gær mann af ákæru um
manndráp af gáleysi. Hann var
ákærður fyrir að hafa ekið bíl
sínum í Skutulsfirði í október á
síðasta ári án nægilegrar tillits-
semi og varúðar og of hratt
miðað við aðstæður með þeim
afleiðingum að þegar vind-
hviða kom á tengivagninn, sem
var í eftirdragi, missti hann
stjórn á bílnum og hann valt
nokkrar veltur.
Við það köstuðust kona og tvær
dætur hennar út úr bílnum og
hlutu svo mikla áverka að þær lét-
ust nokkrum dögum síðar. Auk
mæðgnanna þriggja voru tvær dæt-
ur mannsins í bflnum.
Hann kvaðst hafa tekið
eftir vindgárum á sjón-
um og dregið úr ferð-
inni niður í 70-80 kíló-
metra.
Maðurinn sagðist hafa aukið
hraðann í um 90 kflómetra þegar
hann kom út fyrir þéttbýlismörkin.
Hann kvaðst hafa tekið eftir vind-
gárum á sjónum og dregið úr ferð-
inni niður í 70-80 kflómetra. Hann
hefði síðan heyrt öflug vindhljóð og
dregið enn úr ferðinni. Þá hefði
hann tekið eftir því að kerran lyftist
og færðist til hliðar. Hann hefði
sveigt bflinn aðeins til vinstri inn á
veginn en kerran hefði lyft honum
að aftan og hann þá misst stjórn á
honum þannig að hann valt.
Stóðst ekki vindinn
Bfltækniráðgjafi og umferðar-
verkfræðingur voru dómkvaddir til
að leggja mat á hugsanlegar orsakir
slyssins. Sögðu þeir að það sem
hefði átt afgerandi þátt í að valda
slysinu væri að kerran stóðst ekki
vindálagið og fauk til hliðar. Miðað
við árstíma hefðu ekki ríkt óvenju-
legar eða óeðlilegar veðurfarsað-
stæður og aðstæður sem þessar
gætu einnig komið upp að sumar-
lagi í ákveðnum tilfellum. Þá töldu
þeir að kerrur eins og þessi, sem
væru ekki hannaðar til að minnka
viðnám gegn vindi, gætu ekki talist
hentugar hér á landi. Væri því æski-
legt að vara við því að draga léttar
Þá varð ekki annað séð
en að skilyrði til aksturs
hefðu verið góð að öllu
öðru leyti en því sem
varðaði veðrið.
kerrur í hvassviðri og líma á þær
viðvörunarmiða.
Ók á leyfilegum hraða
Dómurinn taldi ósannað með til-
liti til óvissuþátta að maðurinn
hefði ekið hraðar en hann kvaðst
hafa gert. Samkvæmt því var talið
að hann hefði verið innan lög-
leyfðra hraðatakmarkana þegar
slysið varð. Þá varð ekki annað séð
en að skilyrði til aksturs hefðu verið
góð að öllu öðru leyti en því sem
varðaði veðrið. Þó var ekki talið að
veðurskilyrði hefðu gefið mannin-
um fyrir fram tilefni til sérstakrar
aðgæslu þrátt fyrir að hánn drægi
kerru sem væri illa hönnuð með til-
liti til vindálags. Var það því ekki
virt manninum til gáleysis að hafa
ekki gert sér grein fyrir því er hann
ók út með Skutulsfirði í þægilegum
meðvindi að hann mætti vænta
skyndilegrar vindhviðu sem dygði
til að hliðra kerrunni til.
-EKÁ
Trúa skýringum borgarstjórans
Þórólfur Árnason, borgarstjóri í
Reykjavík, fundaði í gær með
borgarfulltrúum Reykjavíkur-
listans um aðkomu sína að
meintu samráði olíufélaganna.
Árni Þór Sigurðsson, forseti
borgarstjórnar, segir að ekki sé
ástæða til annars en að trúa
skýringum hans um málið.
„Þórólfur fór ítarlega í gegnum
þetta mál með okkur á heiðarlegan
og opinskáan hátt að mínu mati.
Þetta er auðvitað stórt mál og
grafalvarlegt, en miðað við þær
upplýsingar sem við höfum og
skýringar Þórólfs sjáum við ekki
ástæðu til að aðhafast neitt frekar
að svo stöddu,“
sagði Árni Þór í
samtali við DV í
morgun.
Þórólfúr svar-
aði í gær skrif-
lega fyrirspurn
sjálfstæðis-
manna í borg-
arstjórn um
málið og neitaði
þar að hafa tekið þátt í meintu
ólögmætu útboði olíufélaganna. Að
mati sjálfstæðismanna, með
Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson í
fararbroddi, var það svar hins vegar
ekki trúverðugt og sögðu þeir eftir
fundinn að Þórólfur hefði ekki sagt
satt frá miðað
við þær upplýs-
ingar sem liggja
fyrir úr frum-
skýrslu Sam-
keppnisstofn-
unar um málið
og birst hafa
sfðustu vikur í
fjölmiðlum.
Telja þeir varla
stætt á því að hann starfi áfram sem
borgarstjóri.
Plataði ekki
Þórólfur segir í viðtali við Morg-
unblaðið í morgun að hann hafi
ekki platað Reykjavíkurborg með
undirritun tilboðs vegna útboðs
árið 1996.
Þórólfur fór ítarlega í
gegnum þetta mál með
okkur á heiðarlegan og
opinskáan hátt að
mínu mati.
Fulla yfirsýn yfir málið hafi hann
ekki fengið fýrr en f viðtali hjá Sam-
keppnisstofnun á síðasta ári, þó
svo hann hafi gert sér grein fyrir því
í starfi sfnu hjá Olíufélaginu að
samráð væri milli olíufélaganna
þriggja-
Geir Magnússon, fyrrverand for-
I ■ stjóri Olíufé-
^ lagsins, sendi
; J frá sér yfirlýs-
■! m 'ngu í gærkvöld
I vegna málsins
» |É| þar sem segir:
I „Vegna um-
I ræðu um tengsl
Þórólfs Árna-
Árni Þór Sigurðsson. sonar borgar.
stjóra við mál-
efni olíufélaganna undanfarið vil
ég taka fram að Þórólfur hafði ekki
ákvörðunarvald né ábyrgð á verð-
lagningu á bensíni og olíu og við-
skiptakjörum til stórnotenda í starfi
sínu hjá Olíufélagiriu hf.“ kja@dv.is
ÞórólfurÁrnason.
Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson.