Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.2003, Side 14
14 TILVERA MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ2003
Ræktun lýðs og lands
Umsjón: Páll Guðmundsson
Netfang: palli@umfi.is
Sími: 568 2929
LEIÐTOGA
SKOLINN
Unglingalandsmót UMFÍ
sett á föstudagskvöld
Unglingalandsmót UMFÍ verð-
ur sett á íþróttasvæðinu á
Torfnesi, ísafirði, næstkom-
andi föstudagskvöld, klukkan
20.00. Meðal gesta á setning-
arhátíðinni verða forseti ís-
lands, hr. Ólafur Ragnar
Grímsson, og Sturla Böðvars-
son, samgönguráðherra og
settur menntamálaráðherra.
Sjónvarpsmennirnir góð-
kunnu, Sigmar Vilhjálmsson
og Sverrir Þór, betur þekktir
sem Simmi og Sveppi úr
Popp tíví, verða kynnar og
skemmtikraftar á kvöldvök-
um unglingalandsmótsins á
ísafirði um verslunarmanna-
helgina.
Félögunum tveim af Popp tíví
fylgir jafnan mikið grín og mikið
gaman og næsta víst að Simmi og
Sveppi eiga eftir að bregða á leik
með gestum mótsins.
Þeir eru sannfærðir um að dag-
skráin verði mjög skemmtileg.
Sigmar segir að dagskrá mótsins
sé fjölbreytt og nóg að gera fyrir
utan íþróttakeppnina. „Við Sveppi
ætíum til dæmis að nota tækifær-
ið og skoða okkur um fyrir vestan,
fara í siglingu og jafnvel á hestbak
eða í fjallgöngu." Sveppi tekur
undir með félaga sínum og er
ánægður með að á unglingalands-
mótinu sé lögð áhersla á fjölskyld-
una og heilbrigð gildi. „Það er al-
veg ofsalega mikið til af góðum
krökkum að gera mjög skemmti-
lega hluti og unglingalandsmótið
er kjörinn vettvangur fyrir þá að
koma saman með pabba og
mömmu, sýna sig og sjá aðra -
vfmuefnalaust að sjálfsögðu."
Sveppi segir að þeir félagar hafi
að undanförnu unnið að undir-
búningi skemmtiatriða fyrir
kvöldvökurnar. „Við verðum með
atriði sem hafa aidrei sést áður á
Islandi og við hiökkum mikið til
mótsins og að hitta allt fólkið þar.‘‘
KÁTIR KRAKKAR: Iþróttasvæðið sem byggt hefur verið upp í kringum Unglingalandsmót UMFl á ísafirði á eftir að nýtast þessum
krökkum vel (framtíðinni.
Fjölbreytt dagskrá og mikil
afþreying
Samhliða íþróttakeppninni er
boðið upp á fjölbreytta skemmtun
og afþreyingu á unglingalandsmót-
inu. Jón Pétur Róbertsson, fram-
kvæmdastjóri ULM, segir að lögð
hafi verið áhersla á að skapa um-
gjörð fyrir alla fjölskylduna á mót-
inu. „Það verða leikjabrautir og
leiktæki fyrir yngstu börnin, hæfi-
leikakeppni og foreldraþrautir. Þá
mun hljómsveitin Á móti sól leika
fyrir dansi og henni til aðstoðar
hljómsveitin BMX frá fsafirði, sem
er ein efnilegasta hljómsveit lands-
ins.“
Að sögn Jóns Péturs getur fólk
siglt á kajak, farið í gokart, hesta-
feröir eða gönguferðir og á kvöld-
vökur meðan á mótinu stendur,
auk þess sem boðið verður upp á
flugeldasýningu og dansleiki. „Það
skemmir heldur ekki fyrir að kynn-
ar og skemmtikraftar á kvöldvök-
unum verða þeir Simmi og Sveppi
sem flestir þekkja úr þáttunum Sjö-
tíu mínútur."
Setningarhátíðir landsmóta
UMFÍ hafa löngum verið hátíðleg-
ar. Fulltrúar þrjátíu og tveggja hér-
aðssambanda ganga fylktu liði
undir merkjum félaga og glæsilegri
fánaborg. íþróttakeppnin hefst á
föstudagsmorgun með golfi en
keppni í öðrum íþróttagreinum
hefst á laugardagsmorgni.
Sæmundur Runólfsson, fram-
kvæmdastjóri UMFÍ, segir að und-
irbúningur fyrir mótið hafi gengið
vel. „Það má sannarlega segja að
mótshaldararnir HSV hafi staðið
sig vel við undirbúning mótsins
sem að þessu sinni er veglegasta
unglingalandsmót sem haldið hef-
ur verið hvað varðar afþreyingu og
skemmtun. Keppendur verða um
tólf hundruð sem er svipað og í
Sfykkishólmi í fyrra." Sæmundur
segir það sérstaklega ánægjulegt í
ljósi þess að ísafjörður er ekki í al-
faraleið. „Aðkoma ísafjarðarbæjar
að mótinu sé sérlega glæsileg og nú
hefúr verið byggð upp frábær að-
staða til íþróttaiðkana á Torfnesi."
Fjölbreytt keppni
Á tólfta hundrað keppenda hafa
skráð sig til leiks í átta íþróttagrein-
SETNING UNGLINGALANDSMÓTSINS í FYRRA: Um tólf hundruð keppendur eru skráðir til leiks
ráð fyrir milli sex og átta þúsund gestum á mótíð.
um á unglingalandsmótinu. Keppt
er í fótbolta, handbolta, körfubolta,
frjálsíþróttum, golfi, sundi, skák og
glímu. Einnig verður haldin sérstök
hæfileikakeppni þar sem unglingar
geta látið ljós sitt skína með leik-
rænni tjáningu, dansi eða hverju
því sem þeim dettur í hug.
átta íþróttagreinum á Unglingalandsmóti UMFl á Isafirði um helgina. Gert er
Simmi og Sveppi sjá
um kvöldvökurnar
m
n
'
> Alltaf ódýrast
á www.fi u gfe I a g. i s
■ FLUGFÉLAG ÍSLANDS